Dagur - 13.02.1999, Page 11
LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1999 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
L
Máltnu vart loldð
þrátt fyrir sýknudóm
Clinton forseti Bandaríkjanna: Repúblikanar tækju það vægast sagt
óstinnt upp efhann færi að hrósa sigri.
Viðbrögð Clmtons við
úrskurði öldimga-
deildarinnar gætu
skipt sköpum.
Nánast öruggt þótti í gær að
Clinton forseti yrði sýknaður af
ákæru um meinsæri og að
hindra framgang réttvísinnar,
þegar öldungadeild Bandaríkj-
anna gekk til atkvæða um það.
Hins vegar er fjarri því að and-
stæðingar hans hafi fyrirgefið
honum.
Ljóst er að málaferlin hafa sett
sitt mark á Clinton. Hans verður
þegar frá líður fyrst og fremst
minnst vegna réttarhaldanna,
miklu fremur en vegna afreka
sinna í embætti. Og þótt Clinton
beri sig vel, þá er nánum sam-
starfsmönnum hans Ijóst að
hann á afar erfitt með að horfast
í augu við það sem gerst hefur.
Og það á jafnvel eftir að versna
þegar frá líður og hann fær
meira tóm til að hugsa málin.
Heldur Starr áfram?
En þótt Clinton hafi sloppið eft-
ir atvikum mjög vel frá atkvæða-
greiðslunni í gær, þá þýðir það
ekki að Lewinsky-málinu sé lok-
ið. Meðal annars hefur Kenneth
Starr, sérskipaður saksóknari í
málinu, verið að skoða mögu-
leika á því að kæra Clinton fyrir
almennum dómstól.
Þótt almennur dómstóll geti
ekki vikið forseta úr embætti, þá
gæti þeim málaferlum hæglega
lokið með sakfellingu íyrir mein-
særi eða a.m.k. fyrir að hafa mis-
notað aðstöðu sína í forsetaemb-
ættinu til að hindra rannsókn á
Lewinsky-málinu.
A hinn bóginn er samkvæmt
fréttum verið að undirbúa rann-
sókn á hendur Starr í bandaríska
dómsmálaráðuneytinu, en hann
er sakaður um að hafa beitt
óeðlilegum aðferðum við rann-
sókn sína á Lewinsky-málinu.
Þá má búast við að Monica
Lewinsky, Linda Tripp og fleiri
sem málinu tengjast eigi eftir að
tjá sig í viðtölum og halda mál-
inu þannig áfram í kastljósi Qöl-
miðlanna.
Clinton sagður í hefndarhug
Talsmenn Hvíta hússins báru í
gær til baka fréttir um að Clint-
on hyggist hefna sín á ákærend-
um sfnum með því að beijast
með öllum ráðum gegn því að
Repúblikanarnir 13, sem stjórn-
uðu málarekstrinum á hendur
honum, nái endurkjöri í þing-
kosningunum árið 2000.
Bandaríska dagblaðið New
York Times skýrði á fimmtudag
frá sögusögnum þess eðlis að
Clinton sé í hefndarhug gagn-
vart þinginu, og þá einkum
gagnvart Repúblikönum í dóms-
málanefnd fulltrúadeildarinnar.
Repúblikanar brugðust
ókvæða við þessum fréttum, og
sögðu það dæmalausan hroka í
forsetanum ef satt væri að hann
væri fullur hefndarhugar gagn-
vart ákærendum sínum. Honum
væri nær að iðrast í raun gerða
sinna, sem Ieitt hefðu til þeirrar
sorglegu stöðu sem nú væri
komin upp.
Það væri sjálfsagt afar óskyn-
samlegt ef Clinton hæfi herferð
gegn andstæðingum sínum. Það
myndi áreiðanlega draga úr
möguleikum hans til þess að
koma helstu áhugamálum sín-
um, svo sem frumvörpum um al-
mannatryggingar og Iífeyris-
sparnað, gegnum þingið, þar
sem Repúblikanar eru í meiri-
hluta. Það skiptir miklu fyrir
Clinton að koma þessum málum
í gegn, ef hann á að ljúka emb-
ættisferli sínum með lágmarks
reisn.
Sömuleiðis Ieggur Clinton alla
áherslu á að Demókratar vinni
aftur meirihluta í fulltrúadeild-
inni í kosningunum árið 2000.
Svo virðist sem hann telji það
nauðsynlegan endapunkt á
valdaferli sínum, ásamt því að A1
Gore varaforseti nái kosningu
sem eftirmaður hans á forseta-
stóli. — GB
SUlHriiii
miíi !0T1 ifl 1
Lnul JU 1 1 HEIMURINN
Pólland í NATO 12. mars
POLLAND - Geremek, utanríkisráðherra Póllands, skýrði frá því í
fyrrakvöld að Pólland myndi ganga formlega í NATO þann 12. mars
næstkomandi. Fyrir um tveimur vikum barst Pólverjum formlegt boð
um aðild frá Javier Solana, framkvæmdastjóra NATO, og þann 12.
mars verður staðfestingarskjal þess efnis undirritað í Washington.
Geremek sagði að með aðild Póllands að NATO væri seinni heim-
styrjöldinni og afleiðingum hennar loks lokið, hvað Pólland varðar.
Framleiðendur skotvopna
skaðabótaskyldir
BANDARÍKIN - AlríkisdómstóII í New York komst á fimmtudag að
þeirri niðurstöðu að byssuframleiðendum bæri að greiða skaðabætur
vegna afleiðinga ofbeldis, þar sem skotvopnum hefur verið beitt. 25
fyrirtæki voru dæmd sek um vanrækslu í markaðssetningu og dreif-
ingu skotvopna sem gert hefur það að verkum að framleiðslan hefur
borist til ríkja í Bandaríkjunum þar sem strangar reglur um meðferð
skotvopna eru í gildi, þar á meðal til New York. Talið er að andstæð-
ingar skotvopna víða í Bandaríkjunum muni notfæra sér fordæmis-
gildi þessa dóms til þess að draga skotvopnaframleiðendur til ábyrgð-
ar, líkt og gert hefur verið gagnvart tóbaksframleiðendum.
Ferjuslys í Brasilíu varð 30 mauus ad
baua
BRASILIA - Ferja með um 150 farþegum sökk á fljótinu Madeira í
norðurhluta Brasilíu. Um 120 farþegar komust lífs af, en talið er að
um 30 manns hafi farist. Grunur leikur á að ferjan hafi verið ofhlað-
*
Askriftarsíminn er
o o 00 7080 TJía^nr
□□ | DOLSV |
CcrsArbíé
DIGIXAL SOUND SYSTEIVI
Sýnd kl. 9 og 11.15
MhIan
Sýnd um
helgina
kl.13
1111111111111111111 i 1111111 m m rn