Dagur - 13.02.1999, Síða 4

Dagur - 13.02.1999, Síða 4
t S. - p t> e t siíi'ú :.n . i i ,\ a r> ha ss i. > ví z ,v 20 — LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1999 PETUR GAUTUR eftir Henrik Ihsen Sýningar: Fös. 12. feb. kl. 20 Lau. 13. feb. kl. 20 ALLRA SIÐUSTU SÝNINGAR! Glefsur úr leikdómum: „Hið vandasama aðal- hlutverk leikur Jakob Þór og ferst það vel úr hendi. Framsögn hans er til fyrir- myndar og leikurinn af- burðagóður." „Leikur, búningar, tónlist, leikmynd og lýsi ng mynda mjög sannfærandi heild þar sem textinn er gerður að lifandi afli sem hrífur áhorfandann með sér." Sveinn Haraldsson MBL „Uppsetning Leikfélags Akureyrar á Pétri Gaut hlýtur að teljast leiklist- arunnendum á Akureyri og í nærsveitum kær- komið tækifæri til þess að njóta einnar af perlum leikbókmenntanna. Þeir ættu ekki að láta það fram hjá sér fara." Haukur Ágústsson Degi „Sveinn Einarsson leik- stjóri hefur skilað hreint frábæru verki. Svona á leikhús að vera og það er einfaldlega fullkomin synd að láta þessa sýn- ingu fram hjá sér fara." Þórgnýr Dýrfjörð RÚVAK „Leiftrandi skemmtileg sýning þar sem ævintýrið er höndlað í eftirminni- legum atriðum. Ógleym- anlegt." Auður Eydal DV TEATER QG DANS I NORDEN V N LEIKFÉLAG AKUREYRAR SÍMI 462 -1400 MENNINGARLÍFIÐ í LANDINU bók Elias Snæland Jónsson ritstjóri HILLAN Murdoch kveður „Ég er í annarri deild, ekki á meðal guða eins og Jane Austen og Henry James og Tolstoy,“ sagði Iris Murdoch eitt sinn um skáldskap sinn. Ymsir gagnrýnendur hafa orðið til að taka undir þetta sjálfsmat hennar, en flestir viðurkenna þó að hún hafi verið einn helsti skáldsagnahöfundur Breta á seinni hluta ald- arinnar - að minnsta kosti nú þegar hún er látin. Ekki svo að skilja að Murdoch hafi tekið mikið mark á gagnrýnendum. Fræg eru um- mæli hennar þar að lútandi: „Slæm gagnrýni skiptir jafnvel enn minna máli en hvort það rignir í Patagoníu!“ Einbimi í leit að systkiniun Iris Murdoch var ekki einn þeirra höfunda sem leita frægðar í fjölmiðlum eða á manna- mótum. Þvert á móti hélt hún sig til hlés og Iagði metnað sinn í skáldsögurnar. Þær urðu 27 áður en yfir lauk, auk þess sem hún samdi nokkrar bækur um hitt helsta áhugamál sitt; heimspeki. Reynar var skáldsagnagerðin og heimspekin nátengd í öllu lífsstarfi hennar; sögurnar eru ekki síst gegnumlýsing á ein- staklingum sem standa andstænis djúpstæð- um siðferðilegum spurningum. Það á eink- um við um átökin miklu milli góðs og ills. Jean Iris Murdoch fæddist í Dublin á Ir- landi 15. júní árið 1919 og var því 79 ára þegar hún lést eftir nokkurra ára baráttu við hinn illræmda Alzheimer-sjúkdóm. Eigin- maður hennar og sálufélagi, John Bayley, hefur nýverið lýst dapurlegum áhrifum þessa sjúkdóms á konu sína í merkilegri bók - „El- egy for Iris.“ Hún ólst upp á bókmenntasinnuðu heimili í London og fór að skrifa þegar á barnsaldri. „Eg var einbirni í leit að ímynduðum bróður eða systur. Þess vegna þykir mér gaman að búa til sögupersónur," sagði hún eitt sinn. Hún gekk menntaveginn, meðal annars í Ox- ford þar sem hún kynntist ýmsum róttækl- ingum; varð kommúnisti um skeið en færðist síðan smám saman til hægri og endaði sem fylgjandi Thatchers á níunda áratugnum. I Oxford lagði hún einkum stund á heimspeki, en þá grein kenndi hún seinna um langt ára- bil. Margverðlaimuð Að loknu háskólanámi starfaði hún meðal annars við hjálparstarf Sameinuðu þjóðanna á meginlandi Evrópu eftir heimsstyrjöldina síðari; kynntist þar aðeins Jean Paul Sartre, hreifst um hríð af tilvistarstefnu hans og skrifaði um það efni fyrstu bók sína: „Sartre: Romantic Rationalist" (1953). Hún var orðin 35 ára þegar hún hóf að skrifa skáldsögur. Sú fyrsta sem komast á prent - „Under the Net“ - kom út árið 1954; síðan sendi hún nokkuð reglulega frá sér nýj- ar sögur, oft með aðeins eins árs millibili. Frægasta saga hennar er vafalaust „The Sea, The Sea“ sem hlaut hin eftirsóttu Booker-verðlaun árið 1978 - en alls voru sex bóka hennar tilnefnd til Jjeirrar Mðurkenn- ingar. Tvær aðrar skáldsögur fengu þekkt bresk bókmenntaverðlaun: „The Sacred and Profane Love Machine" (1974) og „The Black Prince“ (1973). Hún var einnig öðluð af bresku drottningunni. Handrit í pappirspoka Murdoch var alltaf að skrifa þar til sjúkdóm- urinn rændi hana sköpunargáfunni. Hún byrjaði gjarnan á nýrri sögu daginn eftir að hún skilaði handriti til útgefanda síns. Vinnuaðferðir hennar voru einnig sérstak- ar. Hún skrifaði allar sínar bækur með penna: „Ég hef aldrei snert ritvél, hvað þá tölvu," sagði hún eitt sinn í blaðaviðtali. Er hún hafði lokið við nýtt handrit stakk hún því ofan í stóran pappírspoka og hélt með það til útgefandans í London. „Það er eðlilegt að ég fari með það sjálf, því þetta er alltaf eina ein- takið sem til er.“ Frægt er að hún lét aldrei breyta stafkrók frá handritinu; það varð að birtast nákvæm- lega eins og hún hafði gengið frá því. Margt hefur verið skrifað um skáldskap hennar. Þar má sérstaklega nefna bókina „Iris Murdoch: The Saint and the Artist“ eft- ir Peter J. Conradi (útgefandi St. Martin’s). Sólrún, Pol Pot og Plnlby íslands? Ég hef lengi ver- JÓHANIUESAR- ið þeirrar skoð- unar að mönn- um beri að forð- ast svívirðilegar og særandi sam- líkingar, nema þá helst ef þær eiga verulegan og rökstuddan rétt á sér. Þannig tel ég ekki við hæfi að nemendur uppnefni, ja, til dæm- is handavinnukennarann sinn Hitler, af því að hann þyki strangur úr hófi fram og vilji halda uppi arískum aga í bekkn- um. Samlíkingin er einfaldlega of langsótt, of mikil hyldýpisgjá milli háttalags Hitlers og handa- vinnukennarans. I fyrra tók tannlæknir á Húsa- vík upp á því í ritsmíð að spyrða ■ saman nafn lögfræðings í bæn- um og nöfn „morðingja" á borð við Che Guevara og Lenín. Lög- fræðingurin brást eðlilega ókvæða við og taldi að jaðraði við meiðyrði og varð úr mikil þrætu- bók að vonum. Agætur sjómaður í sama bæj- arfélagi átti það til á sjöunda glasi að hrópa uppstyttulaust fram yfir ellefta glas: „Stalfn er góðmenni, Stalín er Ijúfmenni!" Og auðvitað varla tij eftirbreytni, en ekki beinlínis saknæmt þar sem ekki var farið út í saman- burð við nafngreinda einstakl- inga í þessu upphrópunum. Khmerar og kratar Hingað til hef ég sjálfur í ræðu og riti forðast særandi svívirðing- ar í mínum samanburðarfræð- um, nema nauðsynlegt hafi þótt í þágu skemmtanagildis. En nú kann að verða breyting á. Þannn- ig háttar til að ég er hálfmennt- aður maður, hef sem sé Iært ýmis fræði en fátt er um prófgráður. En ég kann til dæmis skil á mál- tækjum á borð við: Eftir höfðinu dansa limirnir. Og höfuð okkar mennta- og hálfmenntamanna er auðvitað sjálfur menntamálaráð- herra. Sem hefur einmitt nýverið opnað allar gáttir á sviði svívirði- Iegra samlíkinga og sennilega seilst lengra í þeim efnum en dæmi eru um. Ráðherra hefur sem sé á net- inu viðrað hugmyndir sínar um vissar hliðstæður í pólitík Ingi- bjargar Sólrúnar og Samfylking- arinnar á Islandi annarsvegar og Pol Pots og hans kátu Rauðu Khmera í Kampútseu hinsvegar. Nú þekki ég Ingibjörgu Sólrúnu ekki vel þó við værum samtíða í Menntaskólanum við Tjörnina á sínum tíma og veit |ní ekki gjörla hvern mann hún hefur að geyma. Enn minni voru samskipti okkar Pols Pots. Hinsvegar veit ég að ekld er hægt að bera þau Ingi- björgu og Pol saman hvað varðar frammistöðu í fjöldamorðabrans- anum á sama hátt og gert var með Davíð og Sál í biblíunni, nema þá helst með því að söngla: Pol Pot drap sínar milljónir en Ingibjög Sólrún drap - ja, kannski flugu, ef hún hefur þá gert það. Og þó menntamálaráðherra standi ógn af Samfylkingunni og vilji vara landsmenn við þeim Satans söfnuði, þá er kannski ekki beinlínis við hæfi að bera hana saman við Rauðu Khmer- ana. Því þó Samfylkingin eigi hugsanlega eftir að reynast landsmönnum illa, þá eru svona heldur litlar Iíkur á að við þurf- um að upplifa það sama og fólk- ið á blóðvöllum Kampútseu á sínum tíma. Bjöm og Kim Hið jákvæða við samanburðar- fræði menntamálaráðherrra er hinsvegar það að nú getur limur á borð við mig farið að dansa eftir höfðinu. Þegar fordæmið að ofan liggur fyrir þá hefur maður loksins frelsi til að opinbera ýmsar hug- leiðingar og vangaveltur sem mað- ur hefur fyrir siðasakir ekki viljað láta frá sér fara til þessa. Þegar ég var ungur maður og róttækur, eins og allir ungir menn sem ekki eru fæðingarhálfvitar hljóta að vera, Jjá var ég sannfærð- ur um að Bjöm Bjarnason væri njósnari Sovétmanna, föðurlands- svikari, eins konar Björn „Philby“ Islands. Björn var þá blaðamaður á Mogga og andskotaðist daglega á rússum og vinstrimönnum ojg meintum vinstrimönnum. I orð- um, æði, útliti og ldæðaburði var hann prótótýpa hins hreinræktaða hægrimanns, hann var svo full- kominn í sinni rullu, svo yndislega massívt íhald að það var of gott til að vera satt. Hann hlaut að vera tilbúningur - framleiddur eftir for- múlunni um hundrað prósent hægri manninn. Og engir höfðu meiri hag af |)ví að búa til svona mann en einmitt Sovétmenn - til brúkunar í njósnaskyni. Enginn myndi gruna slíkan mann um græsku, enda forðust Kremlverjar æfinlega að ráða yfirlýsta vinstri- menn til njósnastarfa. Svona var ég nú einfaldur og bláeygur (eða rauðeygður) í bernsku. Og þó. Ég meina, það hefur aldrei verið afsannað að Björn hafi verið Moskvuagent. Ekki eru öll kurl komin til grafar úr skjalasöfnum KGB. Þannig að hver veit nema að hinn óttalegi leyndardómur Björns Bjarnason- ar eigi eftir að verða lýðum Ijós. Svona geta nú limirnir orðið svívirðilegir í samanburðarfræð- um og andstyggilegir í ályktun- um þegar sjálft höluðið hefur varðað veginn. SPJALL

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.