Dagur - 20.02.1999, Side 11
Tk^ir
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1999 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Fresturmn til að semja
reiuiur út í dag
Fjölmiðlar bíða í ofvæni fyrir utan Rambouillet-kastala skammt frá París,
þar sem Serbar og Albanir sitja að samningaviðræðum.
Seiidifulltrúar og aðr-
ir ríkisborgarar Nató-
ríkjaima byrjaðir að
yfirgefa Júgöslavíu.
Madeleine Albright, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, fer til
Rambouillet í dag, en fresturinn
sem Serbar og Albanir hafa til
þess að komast að samkomulagi
rennur út á hádegi, eða klukkan
ellefu að íslenskum tíma. Sátta-
semjarar í Rambouillet kastala
afhentu samningsaðilum breytta
útgáfu af samningsdrögunum í
gær, og sögðu það vera lokagerð
sáttmálans.
I gær endurtók Albright enn
einu sinni hótanir um hernaðar-
aðgerðir, og beindi orðum sínum
aðallega að Slobodan Milosevic,
forseta Serbíu. „Hann fær að
finna illilega fyrir því, og hann
verður sviptur ýmsu sem hann
metur mikils," sagði hún.
Christopher Hill, sáttasemjari
Bandaríkjanna, fór í gær til að
hitta Milosevic forseta í Belgrað,
en fyrri fundur þeirra á þriðjudag
var árangurslaus. I þetta sinn
neitaði Milosevic að ræða nokk-
uð við Hill.
Bæði Bandaríkin, Kanada og
Frakkland hafa sagt sendifulltrú-
um sínum að fara frá Belgrað.
Stjórnvöld í Þýskalandi og Frakk-
landi hafa hvatt ríkisborgara
sína, sem búa í Júgóslavíu, til
þess að fara úr Iandi hið fyrsta.
Sömuleiðis voru Þjóðverjar
varaðir við að ferðast til
Júgóslavíu og Kosovo sérstak-
lega.
Gripið er til þessa ráðs til að
sýna Serbum, og reyndar Albön-
um líka, að Bandaríkjunum og
NATO sé full alvara með hótun-
um sínum. Milosevic hefur sagt
að Serbar muni ekki láta undan
kröfunni um að hersveitir NATO
fari til Kosovo, jafnvel þótt það
muni kosta þá hernaðaraðgerðir.
Árásirnar myndu væntanlega
hefjast á því að Tomahawk flug-
skeytum yrði skotið frá skipum
og kafbátum í Miðjarðarhafinu
og Adríahafi. Fyrstu skotmörkin
yrðu loftvarnarkerfi Serba, rat-
sjárstöðvar og helstu bækistöðvar
hersins.
Engan veginn er þó víst að al-
vara verði gerð úr þessum hótun-
um, þar sem öll áhersla hefur
verið lögð á það að ná fram pólit-
ískri Iausn áður en gripið yrði tii
hernaðaraðgerða.
I gær fór Milutinovic, forseti
Serbíu, fram á það við samráðs-
hóp sex ríkja að þau veiti Serbum
„vernd“ gegn því að NATO sendi
hermenn sína til Kosovo. Það
myndi einungis verða til þess, að
enn erfiðara verði að finna pólit-
íska lausn á deilunni, sagði hann
í bréfi sínu til utanríkisráðherra
samráðshópsins, enda sé ekki
gert ráð fyrir því í upphaflegum
friðartillögum hópsins að her-
sveitir NATO verði staðsettar í
Kosovo.
- GB
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Mánudaginn 22. febrúar 1998 kl.
20-22 verða bæjarfulltrúarnir
Oddur H. Halldórsson og Ásta
Sigurðardóttir til viðtals á skrif-
stofu bæjarstjóra að Geislagötu
9, 2. hæð.
Bæjarfulltrúarnir munu svara
símaviðtölum eftir því sem að-
stæður leyfa.
Síminn er 462 1000.
Til sölu
Til sölu Volvo F-610, ár-
gerð 1982, ekinn 300
þús. km. Með tveggja
tonna lyftu. Lengd
kassa 5,40, breidd 2,15
og hæð 2,0 metrar.
Bíll í mjög góðu standi.
Upplýsingar í síma
466-1502 og vinnusími
466-3360.
HEIMURINN
Kiirdar mótmæltu í Hamborg
ÞÝSKALAND - Um 3.000 Kúrdar mættu
til mótmælagöngu í Hamborg í Þýska-
landi í gær. Þar var þess krafist að
Abdulla Ocalan verði Iátinn laus úr fang-
elsi í Tyrklandi. Mótmælagangan hófst
nokkru síðar en áætlað var, m.a. vegna
þess að verið var að bíða eftir Kúrdum frá
öðrum borgum í Þýskalandi. Mótmælin
virtust ætla að ganga friðsamlega fyrir
sig, en um 1.000 lögreglumenn fylgdu
göngunni eftir.
Mannréttindasamtökin Amnesty inter-
national telja ekki útilokað að Öcalan
verði dæmdur til dauða og að dauða-
dómnum verði framfylgt, jafnvel þótt
engum dauðadómi hafi verið fullnægt í
Tyrklandi í 1 5 ár. Þótt dauðarefsing sé enn í lögum hafa Tyrkir gætt
þess að fremja ekki aftökur, ekki síst vegna þess að þeir hafa sótt það
fast að fá inngöngu í Evrópusambandið.
Barist í Kolumbíu
KOLUMBIA - Harðir bardagar hafa geisað síðustu daga í Kólumbíu
milli hersveita ríkisins og uppreisnarmanna og hefur nokkurt mann-
fall orðið. A.m.k. 40 manns hafa látist, bæði úr röðum hersins og
byltingarsveitanna. Friðarviðræður, sem nýlega voru hafnar, liggja
niðri.
Abdulla Ocalan.
Aftur snjóHóðahætta í Ölpunum
SVISS - Mikil snjókoma hefur verið í svissnesku ölpunum undanfar-
ið, og með hækkandi hita óx í gær mjög snjóflóðahættan þar í Iandi.
Fjöldi snjóflóða varð í gær og þurftu um 600 manns að yfirgefa heim-
ili sín, en enginn hafði hlotið tjón af. Nokkur skíðasvæði voru lokuð
vegna snjóflóða sem féllu yfir vegi sem þangað liggja. Sömuleiðis var
rafmagnslaust á stóru svæði í Austurríki vegna þess að möstur féllu
vegna snjóflóða þar.
Sýnd kl. 9 á mánud.
Sýnd kl. S - ísl. tal.
Einnig sýnd kl. 3 um helgina.
Sýnd kl. 11 á mánud.
MuIan
Sýnd kl. 1 um helgina.
nniDOLBYl
D I G I T A L
rirmrir
EcreArbic