Dagur - 20.02.1999, Blaðsíða 20
36- LAUGAHDAGVR 20. FERRÚAR 1999
-Tt^ur
H iHÍ ■ ■ ■■■■■■■■■■■
R A D A i U G I L Ý S I N G A R
A T V I N N A
GARÐABÆR
Skipulagsfulltrúi
Sérfrœðingur
í landupplýsingunt
Garðabær óskar eftir að ráða arkitekt
eða verkfræðing til starfa á tækni- og
umhverfissviði bæjarins.
Um er að ræða starf skipulagsfulltrúa og
starf á sviði landupplýsinga Garðabæjar,
og skiptast starfsviðin u.þ.b. til helminga.
Umsækjandi þarf að hafa háskólamenntun
á sviði skipulags bæja og landupplýsinga
og/eða milda starfsreynslu á báðum sviðum.
Rejmsla af byggingar- og umhverfismálum
er einnig æskileg.
í starfinu felst m.a. vinna og umsjón með
hvers kyns verkefnum á sviði
bæjarskipulags, s.s. svæðisskipulag,
aðalskipulag og deiliskipulag. Á sviði
landupplýsinga felst starfið í áframhaldandi
þróun og vinnu við landupplýsingar
Garðabæjar.
Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt
og sýnt frumkvæði í fyrrnefndum
málaflokkum og eiga auðvelt með
samvinnu á breiðum grunni. Hann þarf
að tala og rita góða íslensku og hafa góða
tölvukunnáttu með tilliti til starfsins.
Upplýsingar um starfið veitir
bæ j arverkf ræðingur.
Umsóknarfrestur er til 26. febrúar 1999
og skulu umsóknir berast bæjarskrifstofum
Garðabæjar, Garðatorgi 7.
Bæ j arverkfræðingurinn
í Garðabæ
:
Tækni- og umhverfissvið
Garðyrkjumaður
Dalvíkurbyggð óskar eftir að ráða garðyrkju-
mann til starfa í byggðarlaginu.
Laun samkvæmt samningi Dalvíkurbyggðar við
Starfsmannafélag Dalvíkurbyggðar. Nánari upp-
lýsingar gefur bæjartæknifræðingur í síma 466
1370.
Umsóknarfrestur ertil 10. mars 1999.
Umsókn skal senda til Tæknideildar Dalvíkur-
byggðar, Ráðhúsinu, 620 Dalvík.
Bæjartæknifræðingurinn Dalvikurbyggð.
Vélstjóri
Vélstjóri óskast á ísfisktogara. Þarf að hafa
réttindi VS1 eða meira.
Upplýsingar í síma 455 4400 eða 894 1378.
Framkvæmdastjóri Heilbrigð-
isstofnunar Austurlands
Endurbirt auglýsing vegna framlengingar á um-
sóknarfresti.
Laus er til umsóknar staða framkvæmdastjóra Heil-
brigðisstofnunar Austurlands.
Heilbrigðisstofnun Austurlands varð til við sameiningu
heilbrigðisstofnananna á Egilsstöðum, Seyðisfirði og
Neskaupstað og heilsugæslustöðvanna á Djúpavogi,
Eskifirði, Fáskrúðsfirði og Vopnafirði.
Framkvæmdastjóri er skipaður af heilbrigðisráðherra til
5 ára. Gert er ráð fyrir að framkvæmdastjóri hefji störf
1. apríl 1999. Umsækjendur skulu hafa háskólamennt-
un ásamt reynslu í rekstri og stjórnun.
Launakjör eru samkvæmt ákvörðun kjaranefndar.
Nánari upplýsingar um starfið veita Davíð Á. Gunnars-
son ráðuneytisstjóri (s. 560 9700) og Katrín Ásgríms-
dóttir formaður stjórnar Heilbrigðisstofnunar Austur-
lands (s. 854 9440).
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu,
Laugavegi 116, 150 Reykjavík fyrir 8. mars 1999.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
skipun hefur verið tekin.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
Reykjavík, 19. febrúar 1999.
Wk
GARÐABÆR
Garðaskóli
Sérkennarar
Garðabær auglýsir lausar til umsóknar
tvær stöður sérkennara við Garðaskóla.
Um getur verið að ræða stjórnun
sérkennslunnar í skólanum
fyrir hæfan einstakling.
í Garðabæ er greitt sérstaklega fyrir samstarf
við foreldra og sérfræðinga enda leggur
Garðaskóli mikla áherslu á foreldrasamstarf.
Enn fremur er greitt sérstaklega fyrir
greiningarvinnu.
í skólanum er góð starfsaðstaða og mikill
metnaður fyrir uppbyggingu og þróun
sérkennslunnar til að tryggja öllum
nemendum jafnrétti til náms.
í Garðaskóla hefur verið þróað líkan að
gæðastjórnun sem allir kennarar
eru virkir þátttakendur í.
Umsóknum með upplýsingum um nám
og fyrri störf á að senda til
Gunnlaugs Sigurðssonar, skólastjóra,
sem veitir nánari upplýsingar um störfin
í síma 565-8666.
Umsóknarfrestur er til 13. mars nk.
Grunnlaun eru samkvæmt
kjarasamningum Launanefndar
sveitarfélaga og Kennarasambands íslands
en samkvæmt samþykktum bæjarstjórnar
Garðabæjar er greitt sérstaklega fyrir tiltekin
störf í grunnskólum Garðabæjar.
Grunnskólafulltrúi
Fræðslu- og menningarsvið
Málarar
Vegna aukinna umsvifa óskum við eftir málur-
um.
• Góður starfsandi.
• Unnið eftir mælingakerfi.
• Traust fyrirtæki.
• Góð laun í boði fyrir góða málara.
Nánari upplýsingar í síma 587 5100 milli kl. 8 og 18
virka daga.
ranLúr - og
Lálningarþjónustan hf.
Réttarhálsi 2. 110 Reykjavík - Sími 587 5100 - Símbréf 587 5110
Æ
Frá Menntaskólanum
að Laugarvatni
Ein til tvær kennarastöður við Menntaskólann að
Laugarvatni næsta skólaár eru lausar til umsóknar.
Helsta kennslugrein: íslensk fræði; auk þess
kennsla í sögu og félagsfræði, þýsku og tölvufræði.
Staða aðstoðarskólameistara losnar einnig eftir
þetta skólaár.
Skólinn er hefðbundinn menntaskóli. I honum er
jafnhliða kennslu unnið að ýmsum áhugaverðum
verkefnum, m.a. kynningu á ferðaþjónustu í sam-
vinnu við nágrannasveitarfélög, nýtingu hugbúnaðar
í kennslu og samskiptum, nemendaskiptum o.m.fl.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf berist skólameistara eða formanni skólanefnd-
ar fyrir 10. mars nk.
Upplýsingar gefur skólameistari í síma 486 1156
eða 486 1121.
Heilsugæslustöðin Sólvangi
Hafnarfirði
Heilsugæslulæknar
Lækna vantar til afleysinga í júní, júlí og ágúst nk.
Starfskjör eru samkvæmt gildandi úrskurði kjara-
nefndar um launakjör heilsugæslulækna.
Hjúkrunarfræðingar
Langar þig að vinna fjölbreytt starf við heilsu-
gæsluhjúkrun?
Lausar eru 2 fastar stöður hjúkrunarfræðinga.
Um er að ræða störf á sviði skólahjúkrunar,
heimahjúkrunar, mæðraverndar, móttöku á
heilsugæslustöð (almennrar heilsugæsluhjúkrun-
ar, slysa- og bráðahjúkrunar).
Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af
heilsugæsluhjúkrun. í aðra stöðuna er óskað eftir
hjúkrunarfræðingi með Ijósmæðramenntun.
Ennfremur er laus afleysingastaða hjúkrunar-
fræðings í eitt ár og einnig til afleysinga í
júní, júlí og ágúst nk.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem
fyrst eða skv. nánara samkomulagi.
Launakjör eru samkvæmt samningum stofnunar
og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Sjúkraliðar
Sjúkraliða vantar til afleysinga í júní, júlí og
ágúst nk.
Umsóknarfrestur er til 19. mars nk. Um störf
starfsmanna heilsugæslustöðva gilda lög nr.
97/1990 um heilbrigðisþjónustu og lög nr.
70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna rík-
isins. Heilsugæslustöðin Sólvangi er reyklaus
vinnustaður.
Frekari upplýsingar veita Emil L. Sigurðsson yfir-
læknir um störf lækna og Kristín Pálsdóttir hjúkr-
unarforstjóri um störf hjúkrunarfræðinga og
sjúkraliða í síma 550 2600.