Dagur - 20.02.1999, Blaðsíða 2

Dagur - 20.02.1999, Blaðsíða 2
18-LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1999 Dagur LÍFIÐ í LANDINU Menn hafa kannski undrað sig á því hvað hann Þorsteinn Joó var upprifinn yfir 100 ára afmæli KR i vikuiuii. Bjami Fel fékk varla skotið inn orði svo xnikið Jnirfti Þor- steinn að tjá sig um þessi stórkostlegu tíma- mót. Svipað var uppi á teningnum á fimmtu- dagskvöldið þegar Þorsteinn gat varla á heil- um sér tekið af hrifningu yfir væntanlegu uppboði á bindum þekktra íslendinga. En það er snm sé skynsamleg skýring á taugatitringnum og lífskætiimi því hann og eiginkonan, María Ellingsen leikkona, vom að eignast litla dóttur. Hnátan hefur víst hlotið nafnið Lára... „Bíddu, hvað er nú í gangi,“ sagði Davlð Oddsson og stoppaói í miðri ræóu í fimm- tugsafmæli Ingibjargar Pálmadóttur, sem haldið var á Akranesi í fyrradag. Þetta gerð- ist þegar Margrét Guðmundsdóttir ieik- kona, sem gerði Ingibjörgu Pálmadóttur annars góð skil í síðasta áramótaskaupi, æddi með fyrirgangi hm í salinn, þar sem hún var klædd í múnderingu afmælisbams- ins. Mikið var um dýrðir í þessu afmæli, Þóra Einarsdóttir óperasöngkona steig á stokk og söng fyrir gesti og gangandi, þar á meðal forsetann, rík- isstjóm og þingmenn. Veislugestir komu víða frá, meðal annars af Vesturlandi, af heimslóðum ráðherrans í Rangárþingi - að við- bættu fólki héðan og þaðan. Vala Matt er að hefja upp kvikmyndaraust sína að nýju og nú á Skjá 1. Eins og lands- menn vita hefin hún áðm verið með þætti, hvort tveggja f Sjónvarpinu og á Stöð 2. Að sögn hefur Vala haft brennandi áhuga á kvik- myndum alveg frá táningsaldri og eins og títt cr um ungviðið vora það stjömumar sein heilluðu. Hún klippti út leikaramyndir og h'indi upp á vegg, fóðraöi raunar heilan vegg með myndum af stjömunum sínum. Vala er ekki hætt aö fylgjast með stjömunum og ehm hluti hins nýja kvikmyndaþáttar verðm væntanlega ferðalög hennar til út- landaogviðtöl við stjömumar. Konumar í Baðhúsinu era ákallega kátar við Íeikflmina því að ýmislegt augnakonfekt er þartil að vhða fyrir sér meðan hjólin era stigni-’eða tækin pumpuð. Fyrir utan list- rænar nektar-ljósmyndimar á veggjunum er það helst eina karlhetjan á staðnum, Sævar Pétuísson. Sævar þessi er myndarlegur karhnaður, grannm og spengilegur, cnda bróöh sjáhrar Lindu Pé. Já, það kemm óneiíanlega við hormónana að horfa á svo glæsilegan karlmann. Úr einum myndarmamii í annan. Tómas Þóroddsson, sem síðustu árin heíúr starfað sem yfirkokkm á Hótel Selfoss, hyggst nú söðla ærlega um og er að færa sig inn á nýjan starfsvettvang. Á næstu mánuðum ætlar Tómas að ffytja búferlum til Bretlands, þar sem hami ætlar ætlar ásamt fleiram út í það verkefni að Herbalife-væða Breta. Kokkurhui er sem sagt aö fara úr mahium í duftið. Að sögn kunnugra er Herbalife-markaðminn í Bretlandi htt plægður og því er talið að þar sé hægt að gera stóra hluti - og kannski hagnast vel. Vonandi að það bara rjúki ekki allir í það, - eins og í flskeldið forðum! Tómas Þóroddsson. Ingibjörg Björnsdóttir segir vera þversögn í dönskuieiðanum hjá krökkum, þau nenni ekki að læra dönsku en svo þeg- ar þau komast á Nordjobb-atdurinn vilja langflestir helst fara til Danmerkur. H.C. Andersen líka íyrir Morðna „Það er náttúrulega misskilningur að ævintýri H.C. Andersens séu barnaævintýri. Það er svo margt í þeim. Það hafa komið hingað margir þekktir danskir leikarar og verið með upplestra á H.C. Andersen og það hefur alltaf verið fullt. Þetta eru yndisleg ævintýri, allavega finnst mér það. Það er svo mikill boðskapur í þessu hjá hon- um.“ Það erH.C. Andersen hátíð íNor- ræna húsinu næstu daga og þangað kemurhinn spaugsami danski prestur Johannes Möllehave... I dag kl. 15 verður opnuð sýning á Iífi og list H.C. Andersens (1805-1875) og í tilefni sýningarinnar verður ýmislegt gert til að heiðra ævistarf þessa danska ævintýraskálds. Þangað kemur m.a. Jo- hannes Möllehave, sá er sló í gegn í fyrra með fyr- irlestri um danska kímni, og heldur fýrirlestur á sunnudaginn ld. 14 um ævintýraheim Andersens og les upp úr sögum hans. Johannes var starfandi prestur allt til ársins 1991, þekktur fyrir umdeilan- legar skoðanir og skopskyn, auk þess sem hann er rithöfundur. Hann hefur komið víða við á ritvellin- um, skrifað m.a. bók um húmor í ævintýrum And- ersens, barnabækur, skáldsögur og endursamið biblíutexta. Efla dönskiLkennslima „Þetta er liður í |>ví að efla dönskukennslu hér á landi,“ segir Ingibjörg Björnsdóttir hjá Norræna húsinu en danska sendiráðið, Félag dönskukenn- ara og fleiri aðilar koma að sýningunni. Sýningin er svokölluð skermasýning, þ.e. myndir og texti er settur upp á frístandandi plötur. Þangað munu grunnskólanemendur koma með kennurum sín- um, skoða sýninguna undir leiðsögn og vinna alls kyns verkefni í tengslum við ævintýri Andersens. - En nú eru krnkkar orðnir 10-11 ára þegar þeir byrja i dönsku, eru þeir ekki of gamlir til að hrifast af H.C. Andersen? Þversögn í dönskuleiðanum - Nú eruð þið reglulega með alls konar dagskrár sem tengjast Danmörku og danskri menningu og til ykkar kemur fjöldi skólaharna. Finnst þér að is- lenskir krakkar séu eitthvað að mildast í garð dönskunnar? „Já, ætli Jrað ekki. Ég tek nú oft dæmið um Nordjobb [ungir Islendingar fá að vinna á ein- hverju Norðurlandanna yfir sumartímann]. Þá vilja allir þessir unglingar helst fara til Danmerkur. Þá setja þau málið ekki fyrir sig. Þeim finnst Dan- mörk alltaf vera mest spennandi af þessum Norð- urlöndum. Ég veit ekki hvort þau átta sig á því að þau þurfa náttúrulega að tala dönsku. Það er ekki nóg að nota enskuna þar. Mér finnst dálítil þver: sögn í þessu hjá krökkunum, þau nenna ekki að læra dönsku en svo finnst þeim voða spennandi að fara til Danmerkur. En mér finnst þessir dönsku- kennarar sem ég hef kynnst leggja sig svo rriikið fram um að gera efnið lifandi og skemmtilegt að ég held það hljóti að vera miklu meira gaman að læra dönsku núna en þegar ég var að læra dönsku...“ Sýningin stendur til 14. mars og þann 23. febrú- ar verður einnig fyrirlestur og tvær kvikmyndir um H.C. Andersen verða sýndar. - LÓA Maður vikumiar gerirút... ...án þess að eiga nokkurn kvóta. Vestfirski útgerðarmað- urinn Svavar R. Guðnason, sem sendi bát sinn á sjó þótt enginn væri veiðikvótinn, er hetja í augum þeirra sem vilja kvótakerfið feigt, en aðrir telja hann venjulegan lög- brjót sem eigi að refsa. Um það efni mun Hæstiréttur væntanlega hafa síðasta orðið. Svavar R. Guðnason útgerðarmaðjh.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.