Dagur - 20.02.1999, Blaðsíða 10

Dagur - 20.02.1999, Blaðsíða 10
'I '26-~l'augardagúr 20. febrúár 1999 ÞANNIG KYNNTUMST VIÐ... Ðíypur í Noregi. Anna Pátína og Aðalsteinn Ásberg ásamt Guðrúnu Gunnarsdóttur og norskum vini. Þremur börnum síðar, Árni Húmi, Álfgrim- ur og Þorgerð- ur Ása. Búin að tilkynna Jónasi Ámasyni að hann verði ekki boðinn í af- mælið hennar. Eins og vafningsjurt Vinir, elskendurog samstarfsmenn í einn og hálfan áratug. Það eru hjóninAðalsteinn Ásberg Sigurðsson og Anna Pálína Ámadótt- ir. Ánægð með lífið. „Einhvern tímann var mér sagt að við hefðum verið saman í mörgum lífum, að við fléttuð- umst saman eins og vafningsjurt og það er alveg satt því að við þurfum að taka okkur verulega á til að Iifa sjálfstæðu lífi. Það er átak fyrir okkur," segir Anna Pálína og Aðalsteinn bætir við: „Fólk hefur stundum spurt af hverju við köllum okkur ekkert heldur notum bara nöfnin okkar og kannski er það nauðsynlegt f^TÍr okkur. Við erum tveir ein- staklingar og bæði mjög ákveðin. Við þurfum oft að takast á um hlutina og það er líka mjög gott.“ Höfum styrk hvort af öðru Anna Pálína og eiginmaður hennar, Aðalsteinn Asberg Sig- urðsson, verja stórum hluta sól- arhringsins saman og mun meiri tfma en flest pör. Fyrir utan það að búa saman vinna þau mikið saman í gegnum tónlistina. Anna Pálína sér að vísu um barnatím- ann í Utvarpinu og Aðalsteinn Ásberg er formaður Rithöfunda- sambandsins sem er ærinn starfi auk þess að semja tónlist og skrifa bækur en saman gefa þau út plötur, nú síðast Berrössuð á tánum, og koma fram og flytja tónlist við ýmis tækifæri. Þau ræða saman vinnuna og hafa áhrif á verk hvors annars, hvort sem verkefnið er sameiginlegt eða ekki. „Við höfum styrk hvort af öðru í því sem við erum að starfa." Anna Pálína, og Aðalsteinn eiga margt sameiginlegt þó að tónlistin eigi þar óneitanlega þau kynntu ísland gegnum vísnatónlistina. Það var upphaf- ið. Eftir eitt ár komu þau heim aftur, giftu sig og Anna Pálína fór í Kennaraháskólann. „Svo þegar við vorum búin að eignast barn númer tvö varð ég að horfast í augu við þessa söng- þörf og fór í söngnám hjá FIH. Upp úr því gáfum við út fyrstu plötuna okkar. Við vorum búin að ýta boltanum af stað og horfast í augu við að þetta væri eitthvað sem við ætluðum að gera af alvöru,“ segir hún. Tónlistin bindur þau sterkum böndum, sérstaklega áhugi á norrænni vísnatónlist. „Þetta er dálítið merkilegt. Þetta er ekkert vinsæl tónlist en það er svolítið sérstakt að þessi norræna lína höfðar mjög sterkt til okkar beggja," segir Anna Pálína og játar að vera veik fyrir Country- tónlist á laun meðan Aðalsteinn hlustar á djassinn. Þau eru Iík og hafa svipaðan takt til vinnu, taka tarnir og liggja svo í Ieti. Börnin eru í skóla og þau þurfa stundum að beita sig aga til að fara að sofa á kristilegum tíma. „Eg held því fram að við þurfum að komast í rúmið fyrir klukkan ellefu því að alltaf klukkan ellefu gerist eitthvað. Þá förum við að fá hugmynd- ir og tala saman og þá fer eitthvað af stað. Allt í einu er klukkan orðin Aðalsteinn Ásberg og Anna Pálína: við höfum verið saman í mörgum lífum. -mynd: E.ÓL. Reykjavík 23. janúar 1983. „Við höfðum bæði verið í Ieikhúsi um kvöldið, hvort í sínu leikhúsinu. Við höfum bæði mikinn áhuga á leiklist og höfum alltaf haft, við vorum mjög fljót að kynnast vegna þess að við komumst strax að því að við höfðum sameigin- Iega mikinn áhuga á tónlist,“ seg- ir Aðalsteinn. Hún var einlægur aðdáandi vísnahljómsveitarinnar Hálft í hvoru en þrætti við hann um að hann væri í þeirri hljómsveit. „Eg hafði aldrei tekið eftir honum. Þeir voru náttúrulega svo miklir yfirtöffarar nokkrir að ég tók ekki eftir þessum hægláta manni, sem var þarna innan hljómsveitarinn- ar,“ segir Anna Pálína. Hafa svipaðan takl til viiimi Þau voru snögg að ná saman og strax árið 1984 var haldið til Nor- egs þar sem stærstan þátt. Anna Pálína er fædd árið 1963 og er bæjarbarn, alin upp í Hafnarfirði, en Aðal- steinn er fæddur 1955 og er sveitabarn, alinn upp á Ondólfs- stöðum í Reykjadal. Bæði koma þau úr stórum systkinahópi og syngjandi tónlistarfjölskyldu. Anna Pálína er örverpi, yngst sex systkina og 23 ár á milli hennar og elsta bróðurins, en Aðalsteinn er elstur jafn margra systkina. Það er 21 ár milli hans og yngstu systur hans. Fyrst koma orðin... „Eg er ekki eingöngu alinn upp við búskap, það var líka tré- smíðaverkstæði heima hjá mér. Þegar ég man fyrst eftir mér voru vikulegar æfingar karlakórsins á verkstæðinu þannig að ég er al- inn upp við heilmikla tónlist,“ segir Aðalsteinn, sem átta ára gamall var búinn að ákveða að verða rithöfundur. Um eða upp úr tvítugu fór hann að semja tón- list við textana sína. „Þannig að ég segi alltaf: fyrst koma orðin, svo koma tón- arnir.“ Söng- gleðin ríkti líka í fjölskyldu Onnu Pálínu. Stórfjölskyldan hitt ist og spilaði og söng. Hún fór í kór Oldutúns- skóla og örlögin leiddu hana svo f söngnám þeg- ar hún var skiptinemi er- lendis. í mennta- skóla kom hún fram með hljóm- sveitum en framtíðin réðst á skemmtistað f tvö. Við erum mjög dugleg að láta okkur dreyma saman og ger- um okkar besta til að láta draumana rætast," segir Anna Pálína og kemst að þeirri niður- stöðu að þau bæti hvort annað upp. „Aðalsteinn er á jörðinni í peningamálum og kann að halda utan um svoleiðis hluti á meðan ég legg Iínurnar út á við,“ segir Anna Pálína. fírifin af sögu Þeim þykir gaman að ferðast og eru hrifin af gömlum hlutum. „Það er mjög hlægilegt. Við get- um dottið í það að vera svo hrif- in af einhverjum hlutum að \að þurfum að taka verulega á til að kúpla okkur út úr því. Á ferða- lögum höfum við staðið framrni fyrir því að ætla að kaupa risa- stórt borðstofusett sem við höf- um ekki haft neina hugmynd um hvernig við ætluðum að koma heim eða hvar við ætluð- um að koma fyrir. Við getum hrifist svo af...sögunni. Við höf- um gaman af sögu, að finna fyr- ir því að hlutir eigi sér sögu og hafi verið lengi til,“ segir Anna Pálfna. - En hvernig tekst ykkur að vinna og búa saman án verulegra árekstra? „Okkur hefur tekist að skilja þarna á milli. Þegar við erum að æfa, setja saman dagskrá eða ræða vinnuna þá erum við ekki hjón heldur vinnufélagar. Það hafa komið upp árekstrar en okkur hefur tekist að ræða þá. Grundvallaratriðið er sú virðing sem maður ber fyrir samstarfsfé- laga sínum. Eg held að það sé mikilvægast,“ svarar hún. Og Aðalsteinn Ieggur í púkkið: „Þetta er vissulega stundum erfitt og einstaka sinnum veltum við því fyrir okkur hvort það sé mikil þröngsýni að feta þennan stíg og vera ekki meira út á við, vinna með fleirum. En oftast komumst við að þeirri niður- stöðu að þetta sé eftir sem áður langskemmtilegast.“ -GHS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.