Dagur - 20.02.1999, Blaðsíða 7

Dagur - 20.02.1999, Blaðsíða 7
LAUGARDAGUR 20. FF.BRÚAR 1999 - 23 LÍFIÐ í LANDINU Um borð á m/b Föroya Bjór á siglingu milli eyja með öl. Frændinn, Heini, teygarJolly Cota. Öibáturinn á Tvoröyri. Með Níelsi, gömlum skútukarli sem kenndi Hjálm- ari færeysku. Hafragrautur með maltöli Hjálmar Árnason: „Versta atriðið sem ég þurfti að túlka var þegar ég átti að þýða fyrir einn ungan úr áhöfninni til ís- lenskrar konu að hann elskaði hana. Það þótti mér mjög erfitt.“ Einn sunnudaginn braust út blóðugt stríð milli Færey- inganna og íslendinga sem þótti Færeyingarnir full djarfir til kvennanna. - mynd: eól. Þeir erufáir sem vita. afþví en samt er það satt. HjálmarÁmason þingmaður er kvart- Færeyingur og hejurí raun W í nafninu sínu. Hjálmarheitir WaagÁmason eftir staðamafninu Vági. Foifeðmnum þótti bara fínna að rita það upp á danska mátann. „Þegar ég var sjö eða átta ára polli kom afabróðir minn, Einar Waag, hingað til Islands til að sækja einhvern ættingja sinn og viðhalda tengslunum. Upphaf- lega held ég að hann hafi ætlað að sækja Hjálmar W. Hannesson sendiherra, frænda minn, sem ber nafn sama manns og ég en hann vildi ekki fara og þá tók hann litla orminn. I Færeyjum var ég sumarlangt næstu sex sumur og fyrir vikið lærði ég fær- eysku,“ segir Hjálmar Arnason þingmaður. Hjálmar er Færeyingur að ein- um fjórða því að afi hans og nafni var kennari og skólastjóri í Færeyjum. Hjálmar eldri hitti ömmu Hjálmars, Kristínu Arna- dóttur Þórarinssonar frá Stóra- Hrauni, þegar hún var í hús- mæðraskóla í Danmörku. (Eg fékk einmitt fyrir tilviljun nýlega frá manni í Kópavogi sem hefur einhver tengsl við Færeyjar eld- heit ástarbréf milli afa míns og ömmu frá því á fyrri hluta þess- arar aldar þegar þau voru í til- hugalífinu í Danmörku," skýtur hann inn.) Afi hans dó mjög ungur og amma hans flutti aftur til Islands þegar Arni, faðir Hjálmars, var fimm eða sex ára. MjólMn skömmtuö Langafi Hjálmars stofnaði og rak ölgerðina Föroya Bjór og Einar afabróðir hans átti og rak Föroya Bjór á þeim árum sem Hjálmar var hjá honum í sveit. Hann vann í ölgerðinni og sigldi milli eyjanna með ölbátnum. Mjólkur- framleiðsla var og er lítil í Fær- eyjum og mjólkin var skömmtuð, tveir lítrar á viku. Það má því segja að Hjálmar sé alinn upp í ölgerðinni. Mjólkin var skömmt- uð vegna lítillar mjólkurfram- leiðslu og börnin fóru með brúsa til bóndans tvisvar í viku og fengu einn Iítra í hvort sinn. I öl- gerðinni var hins vegar nóg af gosdrykkjum og öli og þar ólst Hjálmar upp við það að borða hafragraut með maltöli. „Það er hin ágætasta fæða þegar maður er búinn að venjast því,“ segir hann. A hverju sumri var Hjálmar gjarnan þrjár til fjórar vikur í Sörvogi. Þar hafði hann það hlutverk að fara með beljur upp í fjall og sækja þær á kvöldin. „Fyrir mig var þetta eins og að fara 100 ár aftur í tímann. Fólk gekk um á sauðskinnsskóm. I sumum húsunum var ekki einu sinni vatnssalerni. Það var leikur hjá okkur strákunum að elta gömlu karlana þegar þeir voru að skíta í fjörunni og henda svo bolta niður og þykjast vera að hlaupa á eftir þeim þegar karl- arnir voru komnir með brækurn- ar á hælana,“ segir hann. HátíðleiMim eyðilagöur Árið 1962 hófst áætlunarflug til Færeyja. Fyrsta flugvélin var Gunnfaxi DC3 frá Flugfélagi ís- lands. Oll fyrirmenni Færeyja voru viðstödd - og íslenski poll- inn. „Eg var að springa úr monti yfir að vera íslendingur," segir Hjálmar. En þessi hátíðlega at- höfn hálf eyðilagðist því að þegar flugvélin renndi í hlað brast á al- mennur hlátur. „Eitt það fyrsta sem menn sáu þegar hún stopp- aði var áletrunin „neyðardyr" á hlið vélarinnar. Neyðardyr á fær- eysku þýðir vitleysingur. Mönn- um þótti einkennilegt að senda vitleysing til Færeyja." Pattinn kynntist að sjálfsögðu grindardrápi og hann rifjar upp þegar heill bíósalur tæmdist á svipstundu þegar grindarboð bár- ust inn. „Menn þustu út í trill- urnar og út á sundin til að reka vöðuna inn.“ Drukku kaffi í lúkaruu in Þegar Hjálmar var 13 ára fór hann strax eftir skóla til Færeyja á 50 tonna bát hjá frænda sínum og sigldi til Islands. „Eg var á skaki í níu vikur út af Norður- landi með færeyskum flota, allt norður til Kolbeinseyjar. Við héldum alltaf sunnudaginn heilagan og sigldum inn til Siglufjarðar eða Grímseyjar um helgar. Þetta var nokkuð stór floti og meðal annars tvær eða þrjár skonnortur. Menn fóru á milli og drukku kaffi í lúkarnum þegar bátarnir voru inni. Þar drakk ég meðal annars kaffi í Kútter Sigurfara sem er núna á Akranesi. Það var eitt skemmti- legasta sumar sem ég hef upplif- að að vera háseti á skaki með Færeyingum við Islandsstrend- ur,“ rifjar hann upp. Á færeysku bátunum var með- al annars stundaður svokallaður sjálfdráttur og var þá aflinn tal- inn í Iok hvers veiðidags og laun- in greidd eftir því. Þetta segir hann að hafi framkallað „ægilega spennu um borð“. Mannlífið var Ijölbreytilegt og margt sem gat komið upp á, til að mynda bilaði kokkurinn, nýtrúlofaður maður- inn, síðustu vikuna, lagðist í koju og kom ekki út aftur fyrr en siglt var inn á pollinn í Klakksvík. „Það var bara af spennu og þrá eftir sinni heittelskuðu, sem margir sjómenn þekkja," segir hann. Blóðug orusta I landi var pottormurinn frá Is- landi túlkur fyrir Færeyingana. „Versta atriðið sem ég þurfti að túlka var þegar ég átti að þýða fyrir einn ungan úr áhöfninni til íslenskrar konu að hann elskaði hana. Það þótti mér mjög erfitt,“ segir Hjálmar og bætir við að einn sunnudaginn hafi brotist út stríð milli „Færeyinga og ungra Siglfirðinga sem töldu Færeying- ana heldur djarfa til kvenna sinna. Það var blóðug orusta með grjótkasti á gömlu plani á Siglufirði." í sjálfdrættinum var hann eini íslendingurinn um borð og yngstur en samt þriðji lægstur. „Og ég trúi því að þeir hati mig enn þeir tveir Færeyingar sem voru fyrir neðan mig,“ segir hann. Heimsfrægur í Færeyjum Hjálmar var við nám við Fróð- skaparsetur Færeyja veturinn 1972-1973, starfaði við færeyska útvarpið og gerði 1 5 þætti um Is- land. Ekki var útvarpað allan daginn og því hlustaði öll þjóðin þegar útvarpað var. Þetta er í eina skiptið sem hann hefur upplifað það að vera heimsfræg- ur. Þá var hann á línutúr með Færeyingum við RockAlI. „Eg hafði aldrei komið nálægt línu og var enn einu sinni í þeirri stöðu að vera útlendingurinn, ekki góður beitingamaður, eigin- lega skipsfíflið sem naut lítillar virðingar. Þá var búið að taka upp fyrsta þáttinn af þessum 15. Þegar við vorum að sigla aftur til Færeyja og útvarpið farið að nást þyrptust allir upp í brú til að hlusta. Eftir lestur kvöldfrétta kynnti þulur að nú myndi Hjálm- ar Árnason byija fyrsta fyrirlestur sinn af 15 um Island. Menn voru dálitla stund að átta sig, horfðu til skiptis á mig og út- varpið. Þegar þeir uppgötvuðu að þetta væri þeirra maður skaust ég eins og korktappi í virðingu frá því að vera skipsfíflið upp í að vera þeirra maður. Þeir nánast báru mig í land af því að maður- inn í útvarpinu var þeirra maður. Það er besta lexían mín í ólíku gildismati,“ riljar hann upp. Islendingar njóta gífurlegrar virðingar og vinarþels á Færeyj- urn, að sögn Hjálmars, meðal annars vegna þess að Færeyingar hafa haft mikil samskipti við ls- lendinga. Margir Færeyingar komu hingað á sjötta áratugnum til að vinna, bæði á sjó og sjúkra- húsum en samskiptin ná líka lengra aftur. Færeyingarnir fóru nefnilega í gamla daga á skútun- um að vori frá Færevjum og byrj- uðu gjarnan á því að koma við á Austljörðum. „Sumir höfðu þar samninga við bændur við sjávarsíðuna um að setja niður kartöflur. Síðan héldu þeir út til veiða og voru sumarlangt, út af Austurlandi, á Selvogsbanka og jafnvel inni í Faxaflóa. Síðsumars og undir haust sigldu þeir heim með við- komu á Austfjörðum. Þeir komu heim með saltfisk og nýjar ís- lenskar kartöflur." - GHS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.