Dagur - 20.02.1999, Blaðsíða 14

Dagur - 20.02.1999, Blaðsíða 14
30 - LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1999 Streptó- kokkur A er skað- ræðis- padda Margir hafa legið í bælinu að undanförnu, börn jafnt sem fullorðnir, og vilja flestir kenna flensunni illræmdu um. í sumum tilfellum getur það þó verið streptókokkur A sem veldur og þá er réttast að láta rækta úr hálsi sér og fá fúkkalyf gegn sýkingunni. Hárhiti dögum sarnan, sár- indi í hálsi og tungu. Flestir myndu halda aðþama væri flensan óttalega áferðinni en þaðþarfekki að vera. Útbrot- in sýna að þetta gæti verið skarlatssótt og þá er nú ör- uggara að rækta sýni. „Skarlatssótt er streptókokkasýking og kemur þá sem útbrot og hálsbólga, sárindi í munni og tungan verður sérkennileg og graftarnabbar í hálseitlum. Þetta er streptókokkur A, sem er skaðræðispadda og meðhöndluð með pensillíni. Sem betur fer hefur hún ekki áunnið sér ónæmi fyrir penisillíni enn sem komið er en það er rétt að standa klár á henni,“ segir Geir H. Þor- steinsson barnalæknir. Myndar eiturefni Börn og fullorðnir hafa lagst í rúmið um allt land að undanförnu og er í mörgum tilfellum flensunni um að kenna en einnig hefur verið um skarlatssótt að ræða. Allir geta fengið streptókokkasýkingu en fólk fær útbrotin ekki nema einu sinni, oft í „Það er rétt og skylt að rækta úrhálsifólks og vera ekki að skjóta svona eins og með haglabyssu út í loftið ein- hverjumfúkkalyfjum bara af því að það emfúkkalyf “ æsku. Eins og nafnið bendir til eru þau skarlatsrauð og sumir verða það og flagna svo tíu dögum síðar á fingrum og tám. Geir segir að streptókokkur A geti myndað eiturefni í líkamanum sem getur valdið nýrna- og liðagigtarsjúkdómum. Aður fyrr hafi hann verið talinn ein aðal- ástæðan fyrir liðagigt löngu síðar á ævinni og því vilji menn meðhöndla sýkinguna með penisillíni og ekki láta líkamann mynda mótefni því að þá eru meiri líkur á að bakterían nái að vinna skaða. Enn í dag er nefnilega talið samband á milli streptókokks A og liðagigtar þó að það sé langt frá því eina ástæðan. Aftur og aftur Streptókokk A getur maður fengið aftur og aftur í hálsinn án þess að fá útbrot. I hvert skipti er nauðsynlegt að leita til Iæknis og fá lyf. Ef viðkomandi hefur ofnæmi fyrir penisillíni er þó erfiðara um vik því að bakteríurnar eru ónæmar fyrir því lyfi sem þá er gefið. „Það er rétt og skylt að rækta úr hálsi fólks og vera ekki að skjóta svona eins og með haglabyssu út í loftið ein- hverjum fúkkalyfjum bara af því að það eru fúkkalyf," segir Geir. -GHS HEILSUMOLAR Daður á Netinu Þeir eru ýmsir sem hafa gaman af að daðra á internetinu. Hér koma nokkrar vefsíður sem hægt er að prófa: http://chat.aftonbIadet.se www.maze.se/chatchatchat/ www.chatta.com http://hem 1 .passagen.se/jan- mob/chat.html http://chat.Iovepower.com/chat www.tjatta.com/tjatta Átta góð ráð í daðrinu: 1. Veldu þér passlegt nafn sem gefur þér ekki of ákveðinn stimpil. Ef þú kallar þig „Blondfnu" geturðu kallað yfir þig fullt af karlmönnum sem þú \ált ekkert við tala. 2. Til að ná sambandi er gott að fylgjast fyrst með því sem er í gangi áður en þú blandar þér inn í samræðurnar. 3. I mörgum tilfellum er hægt að senda einkaskilaboð og það er góð aðferð til að ná sambandi við einhvern sem mann lang- ar til að daðra við. 4. Ef þú kemur inn í umræðurnar miðj- ar er langbest að reyna að komast strax í taktinn með því að ræða það sem er í um- ræðunni. 5. Ekki vera hrædd(ur) við að viður- kenna að þú sért ný á þessu sviði. Þau hin eru strax tilbúin til að hjálpa þér. 6. Daðraðu og hrósaðu. Það skiptir miklu máli. 7. Ekki taka allt alvarlega. Það er miklu betra að hafa húmorinn í Iagi. Þetta er jú allt bara í gamni gert! 8. Ekki gefa upp upplýsingar um sjálfan þig nema í einkasamtali. Bíddu Iíka með það þangað til þú hefur talað við sömu manneskjuna nokkrum sinnum og skipst á e-mailum nokkrum sinnum við hana. Það er líka þægilegt að hafa ókeypis e-mail, til dæmis á hotmail, og fá sent þangað. Kamival í kamesinu Nú er liðinn öskudagur og málningin rétt að nást framan úr krökkunum. Þeim fannst óskaplega gaman að klæða sig upp og ganga einn dag um sem risaeðla, Lína, Hrói eða leðurblökumaður. Búningarnir auka ærsl og gleðilæti barna og kætin dugar jafnvel fram að páskum. Fullorðnum er líka hollt að ærslast og Ieika og þá geta búningar hjálpað við hömlulosun og aukið á yndi. Það gerðist í Garðabæ Það muna margir eftir þjóðsögunni sem gekk um prúð hjón úr Garðabænum (kannski þingkona og fasteignasali, vel- stæð) sem lentu í eilítið pínlegri búninga- sittúasjón. Sporlaust hvarf þeirra gerði vini áhyggjufulla og lögregla var fengin til að kúbeinsopna húsið fína með jafna hekkinu (spurning samt hvort þetta var hárnálaopnun, erfitt að gera sér grein fyr- ir hversu smart aðferðum þeir búa yfir). Vinahjón og þrír lögregluþjónar bísperrtir með kylfur og táragas í vasa þustu inn í húsið og í svefnherberginu blasti við ógleymanleg sjón; fasteignasalinn lá á gólfinu tvíbrotinn á fæti klæddur súper- mannbúningi en eiginkonan var handjárn- KYNLIF Ragnheiöur Eiríksdóttip skrifar uð á báðum við miðstöðvarofninn í latexnærbuxum einum fata. Sög- unni fylgdi að þrátt fyrir sólar- hrings vosbúð varð hjónunum ekki meint af og gátu þau að sex vikum liðnum tek- ið upp fyrri hætti og haldið áfram að rækta sitt innra barn. Innkaup Pornóverslanir bjóða iðulega upp á dágott úrval búninga sem sér- staklega eru ætl- aðir til kynlífs- Ieikja. Hjúkku- búninga er alltaf hægt að fá, það eru þá þessir sem lifa góðu lífi í fantasíuheimi karlpenings um víða veröld, knall- stuttir og ósiðlega flegnir með lær- Súpermann - meðan allt lék i lyndi. háum sokkum í stíl. Ekki alveg það sem maður sér í veruleikanum uppi á Land- spítala þó að mín skoðun sé reyndar sú að vinnuklæðnaður hjúkrunarfræðinga sé allt annað en kyndeyfandi (svo ég tali nú ekki um skurðstofugalla ákveðinnar stétt- ar sem vinnur þétt við hliðhjúkrunarfræð- inga ... ah). Fyrir ástmenn er svo til dæm- is hægt að fá lendarskýlur með pardus- mynstri eða hreinlega hinn háklassíska of- urmenninsbúning með hentugu gati að framanverðu um miðbik. Veisla Langar ykkur ekki í stóra grímuveislu þar sem inngönguskilyrði er að koma í bún- ingi eða að minnsta kosti með grímu sem hylur andlit? I veislunni ægir saman furðuverum, þarna er kattarkonan, köngu- lóarmaðurinn, trúður, svín, klámblaðskan- ína, satan og hafmeyja. Kannski er hægt að þekkja ofurmennið á stinnum bakhlut- anum og framsettri bringunni eða hof- gyðjuna á tignarlegum limaburði og dill- andi hlátri. Tala svo allt kvöldið við greindarlega múmíu með lostafullt augna- ráð og hrífandi rödd og andlitið ennþá leyndardómur ldukkan 02.45. Kannski dansa þá þétt og anda á háls. Spennan gæti nálgast óbærileika. Eg hef ekki enn komist í svona teiti en bíð spennt eftir boði.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.