Dagur - 15.06.1999, Page 6

Dagur - 15.06.1999, Page 6
6 e '* i w \m . v 1 - ÞRIÐJUDAGUR 1 S . i MLO.lQ.ltt'i JUNÍ 1999 ÞJÓÐMÁL Útgáfufélag: dagsprent Útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Aðstoðarritstjóri: birgir guðmundsson Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson Skrifstofur: strandgötu si, akureyri, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK Símar: 460 6100 0G ooo 7080 Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjald m. vsk.: 1.800 KR Á mánuði Lausasöluverð: 150 KR. OG 200 KR. helgarblað Grænt númer: 800 7080 Netfang auglýsingadeildar: omar@dagur.is Símar auglýsingadeildar: (REYKJAVIKJ563-i615 Ámundi Amundason (AKUREYRIJ460-6191 G. Ómar Pétursson OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir Sfmbréf auglýsingadeildar: 460 6iei Símbréf ritstjórnar: 460 6171(akureyrij 551 6270 (reykjavík) Talsmaður hvað? í fyrsta lagi Það var nokkuð óvenjuleg ráðstöfun á sínum tíma þegar Margrét Frímannsdóttir var útnefnd talsmaður Samfylkingarinnar. Þá var verið að höggva á ákveðinn skipulagslegan hnút, hnút sem var farinn að standa þessari nýju hreyfingu fyrir þrifum á við- kvæmum tíma. Hreyfinguna sárvantaði foringja, en hún var þó ekki tilbúin til að taka það skref svo snemma á samrunaferli sín- um. Að mörgu leyti var bráðsnjallt að kaupa tíma með því að benda bara á Margréti og kalla hana talsmann Samfylkingarinn- ar. í öðru lagi Síðan hafa menn vanist því að líta á Margréti sem talsmann Samfylkingarinnar. Hún kom fram sem slík í kosningabarátt- unni og fyrst eftir kosningar. Því kom það mönnum nokkuð á óvart um helgina að fjölmargir forustumenn úr röðum samfylk- ingarmanna hafa komið fram og gagnrýnt það sem Margrét hef- ur verið að segja varðandi væntanlegan formann í flokknum. Augljóslega er Margrét ekki talsmaður Jóhönnu Sigurðardóttur, Sighvats Björgvinssonar, Bryndísar Hlöðversdóttur eða Astu Ragnheiðar Jóhannesdóttur lengur. Allt þetta fólk hefur nú tal- að fyrir sig sjálft og er að segja aðra hluti en Margrét. í þriðja lagi Af þessu tilefni rifj'ast raunar upp það orðalag að Margrét hafi einungis verið útnefnd talsmaður Samfylkingarinnar til kosn- inga. Hennar tími virðist því liðinn. Samfylkingin stendur þá á ný frammi fyrir því að vera með fjölskipaða forustu, en engan einn greinilegan leiðtoga. Hættan er hins vegar sú að þessi fjöl- þætta forysta sendi frá sér misvísandi skilaboð, eins og t.d. hef- ur gerst nú um helgina varðandi foringjamálið, en slíkt spillir mjög trúverðugleika flokksins. Foringjavanda Samfylkingarinnar var slegið á frest með skipan talsmanns. Nú bankar þessi vandi upp á að nýju og ef Samfylkingin ætlar að verða stór, þarf hún einfaldlega að taka á honum og leysa hann til lengri tíma. Birgir Guömundsson. Hundasúrt kjöt af vegafé Ef marka má Dag (sem alltaf má) eru nú uppi áform um að rækta vont gras á íslandi. Hingað til hafa menn haft gæðasjónarmið að leiðarljósi í ræktunarmálum, hvort sem um hefur verið að ræða gras eða fóðurkál til skepnuhalds eða tómata og gúrkur til manneldis. En nú á sem sé hugsanlega að brjóta upp þetta gæðaferli og fara að rækta bragðvont gras. Þetta gras á að spretta í vegasárum og veg- köntum í því skyni að fæla vega- lömb og annað vega- fé frá því að Iiggja þar og háma í sig gómsætt gæðagras. Til þessa hefur eingöngu verið sáð há- gæðagrasi í kantana sem lömb og mæður þeirra hafa því sótt sérstaklega í. Þetta hefur vald- ið verulegri slysahættu og mörg lömb fallið í valinn og bifreiðar skemmst fyrir vikið. Staðan er raunar sú, er haft eftir ágætum bónda, að Vega- gerðin er að búa til eftirsótt beitiland fyrir sauðfé og annan búsmala við vegi landsins með því að nota besta grasið til uppgræðslu. Með öðrum orð- um, Vegagerðin framleiðir hættuástand. Nýtf súrmeti? Hér er að mörgu að hyggja, fyrir utan náttúrlega slysa- hættuna sem af þessu skapast sem hlýtur að vega þyngst við ákvarðanatöku í málinu. Þannig hefur íslenskt lamba- kjöt verið markaðssett sem fjallalambakjet, hálfgerð villi- bráð, en vegalömb alltaf verið V litin hornauga og talin spilla \dllibráðarímyndinni. Þó eru fáir sælkerar svo gómsnjallir að þeir geti sagt til um hvort þeir eru að éta fjalla- eða vega- lamb í það og það skiptið. En maðurinn er það sem hann étur, stendur þar og á ugglaust einnig við lömbin Iíka. Þannig að ef menn fara að sá sérlega ólostætu grasi í vegkantana, til dæmis Ber- ingspunti, þá er hætt við að blessuð vegalömbin, stríðalin á Beringi, verði ekki verulega ljúffeng á disk komin. Og hvað ef vegkantar verða þaktir hundasúr- um? Verður vegalamba- kjötið þá orðið „nýtt“ súrmeti, tilbúið á þorrabakkana? Spyr sá sem ekki veit. Flókið mál Nei, hér þarf að fara að öllu með gát því framtíð fjárbú- skapar í landinu er í veði. Og eins og grasafræðingurinn hjá Náttúrufræðistofnun íslands sagði, aðspurður í Degi um gott eða vont gras í vegarkönt- um: „Hér er ekki um einfalt mál að ræða og mörg sjónar- mið sem taka þarf tillit til.“ Og bætti um betur og sagði málið ákaflega flókið og raunar við- kvæmt. Garri mun hinsvegar styðja það að lögð verði áhersla á heldur bragðvont gras og aðrar fúlar jurtir í vegarköntum, haf- andi í huga hið fornkveðna að á misjöfnu þrífast lömbin best. - GARRI JÓHANNES SIGURJÓNS- SON SKRIFAR Alþjóð hefur lengi vitað að Hjör- leifur Guttormsson er einhver harðduglegasti þingmaður þjóð- arinnar. Hann ku svo lúsiðinn og samviskusamur að hann mun eini þingmaðurinn sem Ies allar milljón blaðsíðurnar af skýrslum, greinargerðum og alþjóðasátt- málum sem þingmönnum berast til yfirlestrar. Og þar sem Hjör- leifur veit vel að enginn annar þingmaður nennir að lesa nema brot af þessu pappírsflóði, þá tel- ur hann sig tilneyddan að spara þeim ómakið og flytja þeim efn- isútdrátt pappíranna úr ræðu- stól. Þessvegna talaði Hjörleifur samtals í 30 kukkustundir á síð- asta Iöggjafarþingi. Annar atorkumaður á þingi er Árni Johnsen, stöðugt á þeytingi milli lands og E>ja og leggjandi gjörva hönd á svo margt sem að gagni má koma á Islandi en þó einkum í Vestmannaeyjum. En Arni er ekki eins iðinn við ræðu- höld og Hjörleifur og talaði að- Eiiin tífaldan Johnsen, takk! eins í hálftíma í síðasta þingi eða tíu sinnum skemur en Hjörleif- ur. Dýr mínútan Nú kunna ýmsir að telja þessar tölulegu staðreyndir Hjörleifi til tekna en Ieggja Árna til lasts. Menn fara kannski að reikna það út hvað hver mínúta þeirra fé- laga í ræðustól kostar þjóðina og þar yrði Johnsen nokkuð dýrari þingmaður en Hjörleifur. Þetta er auðvitað ekki sanngjarnt því hér eins og svo oft er spurt um gæði en ekki magn. Þannig getur eitt Iítið ljóð, fullkomið í formi og innblásið andríki verið miklu meira listaverk en þúsund blað- síðna þurrpumpudoðrantur sem ekkert skilur eftir sig. Sprang í skóflustimgui Hér skal því þó ekki haldið fram að hálftíminn hjá Árna í ræðu- stól hafi einkennst af innblásnu manmdti og stórkostlegum til- Hjörleifur Guttormsson. þrifum í stíl, en þrjátíu tímarnir Hjörleifs hafi verið fúlasta froðu- stagl. Á það er enginn dómbær nema sá sem á báða hefur hlýtt til fullnustu á síðasta þingi. Maðurinn verður ekki dæmdur af ræðutímanum einum saman, eins og þar stendur. Hér er að- eins verið að reyna að verja Árna fyrirfram, áður en Illugi og aðrir slíkir fara að andskotast á hon- um fyrir leti í ræðustól. Árni er sem sé ekki bara þing- maður heldur einhverskonar sjálfskipaður heiðursþjóðhöfð- ingi Vestmannaeyja ög þarf stöðugt að spranga þangað í fyrstu skóflustungur, reisugilli, sigurhátíðir fótboltamanna, opn- un og Iokun vinnslustöðva, upp- haf Iundaveiðitímans, lok lunda- veiðitímans og guð má vita hvað. Og heldur nátúrlega ekki langar þingræður á meðan. Sagt er að á börum í Eyjum sé seldur kokkteill sem ber nafn bindindismannsins Árna. Þar er sem sé hægt að panta einn tvö- faldan Johnsen. Ef menn biðja hinsvegar um tífaldan Johnsen, þá fá þeir umsvifalaust einn ein- faldan Hjörleif, sem ku vera ákaflega höfugur drykkur. -Ðuqur spurOhi svaraid Ereðlilegtað taka veu)- hækkanir sem rekja má til aukinna gæða út úr vísitölu? Rantiveig Guómundsdóttir þingflokksformaðwSamJylkingarimi- ar. „Þetta eru alveg ný vinnubrögð sem erfitt er að sjá hvernig geta þróast. Ef þessu verður viðhaldið hvílir þung ábyrgð á þeim sem eiga að meta hveiju sinni hvort gæði hafa aukist eða minnk- að, hvað varðar þá fjölmörgu þætti sem hafa áhrif á vísitöluna. Mér finnast þetta ekki hreinar línur og þessar upplýsingar komu fleirum en mér á óvart.“ Aðalsteinn Baldursson formaðwVerkalýðsfélags Húsavíkur. „Eg tel að það þurfi að taka all- ar þessar vísitöl- ur til gaumgæfi- legrar skoðunar og þær verði metnar upp á nýtt því mér finnst þetta að mörgu leyti óeðli- Iegt eins og menn hafa verið farn- ir að tala um til dæmis í þessu sambandi að kippa út auknum gæðum, þannig að ég tel þetta mjög óeðlilegt. Eins og ég sagði þá er svo margt í þessum vísitöl- um sem þarf að skoða og yfirfara.“ Vilhjálmur Egilsson þ ingmaðw Sjálfitæðisflokksins. „Það er mjög eðlilegt að gera það vegna þess að vísitalan er verðvísitala en ekki magnvísitala eða gæðavísitala. Með öðrum orð- um er það sem verið er að leita eftir í mælingum á vísitölunni verðhækkanir, sem að mæla ein- angrað verðbreytingar en hvorki magnbreytingar né gæðabreyting- ar. Það er þess vegna hlutverk vísitölunnar að mæla verð en ekki eitthvað annað.“ Hannes Sigutðsson Vinnuveitendasambandiíslands. „Vísitölu neyslu- verðs er ætlað að mæla verðbreyt- ingar en eldd út- gjöld heimilanna. Mælingamar byggjast á því að fylgst er með verði á sömu vöru og þjónustu og því ber að einangra verðbreyting- ar vegna aukinna gæða frá al- mennum verðbreytingum. Frá því að núverandi grunnur vfsitölu neysluverðs var tekinn upp í apríl 1997 hefur Hagstofan beitt gæða- leiðréttingum við útreikning vísi- tölunnar. Þetta hefur einkum ver- ið gert í þremurútgjaldaflokkum; kaupum á nýjum bílum, tölvum og fatnaði. Áalþjóðavettvangi er vaxandi tillit tekið til gæðabreyt- inga, enda hafavísitöluútreikning- ar verið gagnrýndir fyrir að of- meta verðbólgu vegna þess að þeir hafi ekki tekið tillit til gæða- breytinga.11

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.