Dagur - 19.06.1999, Side 6

Dagur - 19.06.1999, Side 6
LÍFIÐ í LANDINU j - LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1999 Fimm prósent kosningaloforð Þið fyrirgefið, lesendur góðir, en mér fannst aldrei verulega sannfær- andi, sjónvarpsauglýs- ingin sem Framsóknar- flokkurinn birti fyrir liðnar kosningar og sýndi formanninn Hall- dór Asgrímsson, þar sem hann sat einhvers staðar ábúðarfullur og tilkynnti að flokkur hans ætlaði að leggja milljarð til fíkniefnavarna. Halldór Ásgrímsson er nefnilega alltaf ábúðarfull- ur að sjá og í þetta sinn gat ég ekki með nokkru móti séð, að hugur fylgdi máli bak við ábúðarfylluna. Vitaskuld dreg ég ekki í efa að Halldóri sé það jafn mikið kappsmál og okkur flestöllum öðrum, að sigrast á þeim vanda sem eiturlyf eru unga fólkinu okkar, en samt var einhvern veginn svo augljóst að hann langaði svo miklu meira að vera á fundi með Norð- mönnum um Smugudeiluna, heldur en sitja þarna og messa eitthvað um fíkni- efnamál. Það er út af fyrir sig ekkert sér- stakt við það að athuga; sérhverri mann- eskju er heimilt að velja sér áhugamál og hjartans mál og séu fíkniefnavarnir ekki endilega ætíð efst í huga Halldórs Ás- grímssonar, þá verður svo að vera og ég vona bara að hann hafi haft gaman af fundunum með Norðmönnum um Smugudeiluna. Þessi frægi milijarður En þótt hver einstaklingur hljóti sem sé að fá að kjósa sér sjálfur hvað hann hefur sér hjarta næst, þá gegnir dálítið öðru máli um stjómmálamenn, sem eru að biðla til kjósenda og vilja atkvæði þeirra í skiptum fyrir starfsorku sína og sannfær- ingu. Halldór Ásgrímsson sat í þessari sjónvarpsauglýsingu og tilkynnti að Framsóknarflokkurinn ætlaði að beijast með öllum ráðum gegn eiturlyíjavandan- um og leggja til hans milljarð. Það gildir í þessu tilfelli einu, þó eilítið óviss og þreytulegur svipurinn, hafi vakið með þeim áhorfanda og þeim kjósanda sem hér talar, þann grun að baráttan gegn eit- urlyfjavánni væri kannski ekki innsta hjartans mál þess sem talaði, og kannski hefði bara einhver auglýsingamaður eða kjósendafræðingur Framsóknarflokksins bent formanninum á að herská stefna gegn eiturlyfjum væri máske vænleg til að ná eyrum kjósenda. Þótt við höfum í raun öll vitað að þetta var kosningaslag- orð til að afla atkvæða, fremur en fast- mótuð úthugsuð stefna, þá sagði maður- inn þetta samt og okkur finnst að hann eigi ekki að gleyma því alveg strax. Við vorum alveg búin undir að hann gleymdi því fljótlega, myndi kannski svo eftir því þegar nálgast færi næstu kosningar, en við ætluðumst þó til þess að hann rámaði í þetta stóra loforð sitt lengur en svo ör- fáar vikur, sem nú eru liðnar frá kosning- unum. Halldór þarf að fara á fund En Halldór er strax búinn að gleyma sjónvarpsauglýsingunni sinni. Hún hefur líklega dottið úr honum einhvers staðar á leiðinni á alveg sérstaklega mikilvægan fund í útlöndum, einhvern fund sem er alveg lífsspursmál fyrir íslensku þjóðina að einmitt Halldór Ásgrímsson sitji og stjórni og leggi eitthvað til málanna um viðskiptamál, ef ekki hreinlega hernaðar- aðgerðir í öðrum löndum. Það segir sig sjálft að ef Halldór Ásgrímsson er sífellt í stríði í útlöndum, þá geta gleymst lítil- ræði eins og svolítil styrjöld sem hann þóttist ætla að hefja hér heima - gegn eit- urlyíjunum. Því sú styijöld hefur nú að- eins sárafáum vikum eftir kosningar reynst vera gervistríð. Ein aðalbækistöð þjóðarinnar í því stríði, sem hún þykist heyja gegn eiturlyfjunum, er meðferðar- stöðin Stuðlar og þar er nú ekki verið að færa út kvíarnar og fjölga herfylkjum og ráða fleiri dáta og pótintáta í stríðið. Nei, þar er verið að draga saman seglin. Það er verið að fækka meðferðarplássum vegna þess að milljarður Framsóknar- flokksins hefur eitthvað látið á sér standa. Á Stuðlum voru hvorki meira né minna en heil átta pláss fyrir langt leidda eiturlyfjasjúklinga á unglingsaldri; átta pláss sem öllum kunnugum ber saman um að þyrfti að fjölga stórlega, auk þess sem öllum kunnugum ber líka saman um að aftur þurfi að koma á fót ýmsum „mildari" meðferðarheimilum, sem Iögð voru niður þegar Stuðlar voru stofnaðir með Iúðrablæstri og húsbyggingabrölti fyrir nokkrum misserum. En það er sem sagt ekki verið að fjölga plássum handa þessum tvö hundruð ungmennum sem Halldór Ásgrímsson sagði okkur í sjón- varpsauglýsingunni að væru í hættu stödd og skoraði á okkur að leggja þeim lið í neyð þeirra með því að kjósa Fram- sóknarflokkinn. Það er verið að fækka plássunum, þau verða fímm. Það verða aðeins fimm pláss í stríði Framsóknar- flokksins gegn eiturlyljunum. Sigurinn ákveðinn fyrirfram Fimmtíu milljónir, er sú upphæð sem vantar til að hægt sé að halda áfram þeirri fátæklegu starfsemi Stuðla, sem fram að þessu hefur verið útvörður okkar í styrjöldinni. Fimmtíu milljónir gætu virst dálítið há tala, en lítur öðruvísi út þegar á það er Iitið að mér reiknast til að þetta séu nákvæmlega fimm prósent af þeim milljarði sem Halldór Ásgrímsson ætlaði að leggja til fíkniefnavandans á því kjörtímabili sem nú er nýhafið. Fimm prósent - og Stuðlar fá ekki þessi fimm prósent. Sfðan í apríl hefur erindi Stuðla um milljónirnar fimmtíu beðið á borði ríkisstjórnarinnar og ekki verið svarað. Hvorki fyrir kosningar né núna eftir kosningar og sjónvarpsauglýsingar Fram- sóknarflokksins. Og nú verður ekki beðið lengur og það er sem sé verið að fækka plássunum. Úr heilum átta niður í heil fimm. Þetta er glæsilegur árangur f stríð- inu og mun áreiðanlega eiga mikinn þátt þeim fullnaðarsigri, sem búið er að ákveða að við Islendingar munum vinna á eiturlyfjavánni. Því eins og við munum þá kváðu stjórnvöld í landinu upp þann úr- skurð að ísland skyldi verða án eiturlyíja árið tvö þúsund eða tvö þúsund og eitt eða tvö þúsund og tvö, hvenær sem það var nú aftur - alla vega hljóta eiturlyfin að fara eftir þessu og hypja sig burt frá landinu, fyrst stjórnvöld eru búin að ákveða þetta svona skörulega; kannski þarf alls ekki milljarð Framsóknarflokks- ins til. Vonandi ekki, því milljarðurinn virðist allt í einu ekki standa lengur til boða, úr því ekki er hægt að kría út fyrir fimm prósentunum til þess að þrjú illa haldin ungmenni komist í meðferð svolít- ið fyrr en eila. Engin fimm prósent, bara fimm pláss; það dugar í stríði Framsókn- arflokksins gegn eiturlyljunum. En kannski hart ef ekki er hægt að treysta því að Framsóknarflokkurinn efni vesæl fimm prósent af kosningaloforðum sín- um. Fáið ykkur í pípu og slappið af í viðtali einhvers staðar sagði forstöðu- maður Stuðla að biðtíminn eftir meðferð væri nú eitt ár. Vissulega væri reynt að koma allra erfiðustu tilfellunum að fyrr en sem því næmi, en þetta væri nú samt staðreynd. Eitt ár. Uppdópaður ungling- ur, örvæntingarfullir foreldrar, komið aft- ur eftir eitt ár. Reynið að spjara ykkur þangað til og bíta á jaxlinn. Fáið ykkur í pípu og slappið af, Framsóknarflokkurinn er önnum kafinn. Hann er að byggja ál- ver á Reyðarfirði; hann er að æfa sig með ameríska hernum í að glíma við öfgafulla umhverfisverndarmenn; Halldór, hann er í útlöndum; Clinton er í símanum, það þarf að fara einhvers staðar í stríð - í út- löndum. Halldór þarf að fara á fund út af því. Og Finnur er á fundi með Columbia Ventures; ekki trufla hann með væli út af uppdópuðum unglingi. Gleymið ekki for- gangsröðinni, byggðastefnunni, íslensku atvinnulífi. Vantar fimm prósent af því sem lofað var? Unglingurinn út úr heim- inum og umsetinn glaðbeittum dílerum? Já, einmitt, komið aftur eftir eitt ár. Þá verður Halldór kannski kominn til lands- ins, kannski vaknaður, en alla vega liggur ekkert á. Þetta reddast bara ef við fáum álver á Reyðarfjörð og virkjum Eyjabakk- ana; getur ekki verið að þá líði unglingn- um aðeins betur? Og hvurnig væri annars að senda dópistana á búlldósera austur á Eyjabakka, eða láta þá fá vinnu í kannski - ef villtustu draumarnir rætast - olíu- hreinsunarstöð á Reyðarfirði; hver þarf svo sem að sprauta sig ef hann gæti nú fengið vinnu þar? Gleymið ekki forgangs- röðinni; truflið ekki forráðamenn Fram- sóknarflokksins með tittlingaskít eins og þremur glötuðum plássum á Stuðlum, þremur glötuðum sálum á götum Reykja- víkur, eða annars staðar á Iandinu, fimm skitnum prósentum af kosningaloforðun- um. Einhvers staðar las ég að það væri orðið aðkallandi vandamál í Reykjavík, allt ldámið sem hér er boðið uppá á búll- unum. Vel má svo vera, en ég gæti sem best trúað það yrði samt meira vandamál fyrir þjóðina er fram líða stundir, allt klámið í kosningaloforðum Framsóknar- flokksins. Pistill Illuga var fluttur í morgunútvarpi Rásar 2 á miÖvikudag. UIVBUDA- LAUST „Eri það er sem sagt ekki verið að fjölga plássum handa þessum tvö hundruð ungmennum, sem Halldór Ásgrímsson sagði okkur í sjónvarpsauglýsingunni að væru í hættu stödd og skor- aði á okkur að leggja þeim lið í neyð þeirra, með því að kjósa Framsóknarflokkinn. Það er verið að fækka pláss- unum, þau verða fimm. Það verða aðeins fimm pláss í stríði Framsóknarflokksins gegn eiturlyfjunum."

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.