Dagur - 19.06.1999, Qupperneq 9

Dagur - 19.06.1999, Qupperneq 9
 LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1999- LÍFiÐ í LANDINU Drifkraftur ESB - Hver er afstaða þín til aðildar Islands að Evrópusambandinu? “ESB er svo mikill drifkraftur í pólitískri umræðu samtfmans að við verðum að skoða öll þau tækifæri sem við höfum til að hafa áhrif á þá pólitísku stefnu- mótun sem þar á sér stað. I sambandi við inngöngu þá eru ákveðnar hindranir á veginum en ég fagna þeirri áherslubreyt- ingu sem hefur orðið í Fram- sóknarflokknum varðandi Evr- ópumál. Eg er stuðningsmaður þess að við tökum þátt í sam- starfi sem tengist Evrópusam- bandinu. Eg er hinsvegar ekki að tala fyrir því að við göngum inn í það. Það er spurning sem bíður síns tíma.“ Heimildir mínar segja að það hafi verið mjög stuttur að- dragandi að því að þú komst á ráðherralista, það hafi verið ákveðið seint um kvöld og til- kynnt næsta morgun. „Þetta er saga sem gengið ekki rétt. inn vissi endan- lega hver yrði á tillögu Halldórs nema hann sjálfur fyrr en í þann mund sem hann lagði hana fram. Ef maður skoðar hinn pólitíska raunveruleika þá var eðlilegt að á listanum væru tveir ráðherrar af suðvesturhorninu og fjórir af landsbyggðinni. Það hefði verið óeðlilegt að setja á Iistann fimm ráðherra af landsbyggðinni og einn af suðvesturhorninu. Þetta var rökrétt tillaga hjá Halldóri." - Hvemig hefðir þú tekið því ef þú hefðir ekki verið valin ráð- herra? „Þegar við Finnur tókumst á um varaformennsku í flokknum og ég laut í lægra haldi þá stóð ég ekki upp og sló frá mér. Eg tók úrslitunum og hefði sennilega gert það sama hefði ég ekki verið valin ráðherra. Mér hefði hins vegar þótt það tiltölulega óeðlilegt í Ijósi úrslita kosninga og framtíð- ar flokksins." - Hefðir þú viljað verða ráðherra einhvers annars málaflokks en umhverfismála ? „Eg var tilbúin að taka við hvaða málflokki sem væri. Mér finnst umhverfismálin hins vegar mjög spennandi málaflokkur. Umbverfisráðuneyti eru að verða með stærstu, erfiðustu og þyngstu ráðuneytunum erlendis þannig að mér finnst ákveðin for- réttindi að fá að koma hingað inn. Það er mjög spennandi að vinna í þessum vaxandi mála- flokki og ég finn hvað mig þyrstir í að Iáta gott af mér leiða í um- hverfismálum. Eg var í sveitarstjórn í átta ár og stærsta málið sem ég tók þátt í þar, og erfiðasta pólitíska málið, sneri að umhverfismálum. Minnihluti bæjar- stjómar Sel- tjarnarness náði með mikilli vinnu og þrautseigju að stöðva áform meirihluta bæjar- stjórnar Sjálf- stæðisflokksins um að byggja um- fangsmikla byggð í kringum Nes- stofu. Við geng- um hús úr húsi með undirskrifta- lista og vorum mjög eljusöm við það að uppfræða fólk um áformin, þannig að mitt stærsta pólitíska mál á sveita- stjórnarstigi var í umhverfísmál- - Hverjir eru þínir nánustu pólitísku ráðgjafar? „Eg er með bakhópa sem ég hitti við og við. I þeim er bæði flokksbundið og óflokksbundið fólk. I einum hópnum eru bara konur og við hittumst stundum í hádeginu, fáum okku súpu og köllum okkur „Soup Girls“. Eg ráðfæri mig við hópana og fæ viðbrögð við því sem ég er að gera, bæði hrós og gagnrýni. Þetta er mjög gagnlegt og gef- andi, bæði fyrir mig og hópana.“ - Stefnirðu ekki í framtíðinni að formennsku í Framsóknar- flokknum? „Eg tek alltaf eitt skref í einu. Það er alveg óljóst hvað verður í framtíðinni. Við verðum bara að sjá hvað tíminn leiðir í Ijós.“ „Ég fagna þeirri áherslubreytingu sem hefur orðið í Framsókn- arflokknum varðandi Evrópumál. Ég er stuðn- ingsmaður þess að við tökum þátt í samstarfi befur Sem tengist Evrópusam- 6n er ' Eng- bandinu. Eg er hinsveg- ar ekki að tala fyrir því að við göngum inn í það. Það er spurning sem bíður síns tíma.“ um.“ „Ég tók úrslitunum og hefði sennilega gertþað sama hefði ég ekki verið valin ráðherra. Mér hefði hins vegar þótt það tiltölulega óeðiiiegt í ijósi úrslita kosninga og framtíðar flokksins." Siglfirðingurinn Friðrik J. Arngrímsson kláraði menntaskóla og prófúr Stýri- mannaskólanum áður en hann fór í lögfræðinám i háskólanum. „Sumir safna frímerkjum, ég hefáhuga á sjávarútvegi og hefalla tíð haft. Ég hefekki hugsað um annað, “ segir hann. og reynslu á nýjan mann. Þó að við munum auðvitað vinna saman þá verður verkaskipting skýr. Kristján mun hafa yfirumsjón með því sem lýtur að fiskveiði- stjómuninni. Eg mun aftur vera með yfirumsjón með öðru sem lýtur að starfi framkvæmda- stjóra.“ - Hvor vkkar verður talsmaður LÍÚ? „Ætli við verðum það ekki báðir en það færist að verulegu leyti yfir á mig.“ - Nm er sagt að Kristján séfrekur og erfiður í samstarfi. Hvemig leggst það í þig? „Eg væri ekki að þessu ef það legðist ekki vel í mig. Það er al- gjört grundvallaratriði.“ Ákveðinn í að slaka á - Hverju svararðu því að hann vilji ráða en samtfela sig á hak við ein- hvem mann? „Mér finnst það bara fyndið. Við erum búnir að gera það upp frá báðum hliðum. Fyrir mann eins og Kristján hlýtur að koma að því að hann taki þessa ákvörð- un og það gerist ekki nema hann sé ákveðinn í að fara að slaka á. Það er erfitt fyrir mann sem er búinn að hafa þetta allt í fanginu að hætta en þegar búið er að taka Nýráðinn framkvæmda- stjóri LÍÚ er með stýri- mannspróf upp á vas- ann. Hann er Siglfirð- ingur og sjómaður í húð og hár. „Undanfarin ár hef ég unnið ein- göngu fyrir útgerðir, stórar og smáar. Að því leytinu til verður þetta ekki mikil breyting, ég kem til með að vinna fyrir sömu aðil- ana. Þetta hefur yfirleitt verið samningagerð af ýmsu tagi, mikið tengt fiskveiðistjórnuninni, kaup og sala á skipum, sameining fyrir- tækja og hvað sem er,“ segir Frið- rik J. Arngrímsson, nýráðinn framkvæmdastjóri Landssam- bands íslenskra ún-egsmanna, LIU. Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum mun Kristján Ragn- arsson, framkvæmdastjóri LIU í hátt í 30 ár, hætta um ára- og aldamót og vera þess í stað í fullu starfi sem stjórnarformaður. Frá 15 áratil sjós Friðrik er Siglfirðingur að upp- runa, móðir hans heitir Margrét Friðriksdóttir, kaupmaður á Siglufirði, og faðir hans Amgrím- ur Jónsson, fyrrverandi skipstjóri. Friðrik er fæddur 1959 og að sjálfsögðu alinn upp á Siglufirði en 16 ára gamall fór hann í menntaskóla. Að stúdentsprófi loknu lá leiðin í Stýrimannaskól- ann og loks í lögfræði í háskólan- um. Frá 15 ára aldri var hann til sjós, fór á sjóinn í öllum fríum og tók jafnvel einn og einn túr með skóla. Eftir útskrift úr Stýri- mannaskólanum starfaði hann sem stýrimaður í nokkra mánuði, aðallega á togaranum Orvari frá Skagaströnd. „Sumir safna frímerkjum, ég hef áhuga á sjávarútvegi og hef alla tfð baft. Eg hef ekki hugsað um annað og það er ekkert flók- ið,“ segir hann. „Konan segir að útgerðimar séu númer eitt, skipin númer tvö og hún og fleiri númer þijú. Eg veit ekki hvort það er satt hjá henni en ég hef fyrst og fremst verið kringum þetta dag og nótt. Þetta hefpr verið áhugamál- ið.“ Friðrik er kvæntur Guðrúnu Blöndal, markaðsstjóra hjá Kaup- þingi, og eiga þau fjögur böm og eitt bamabarn, sem er þriggja ára. „Við byijuðum að vera saman 12 og 13 ára. Það er ekki flókið ástarlífið á þeim bænum.“ Gott milli mín og hans Starfslok Kristjáns og ráðning Friðriks urðu til þess að Jónas Haraldsson lögfræðingur LIU sagði upp starfi sínu. Hann hefur látið óánægju sína berlega í ljós. Friðrik segir: „Hann hefur tjáð sig um þetta. A milli mín og hans er ekkert nema gott.“ - Heldurðu að það sé verið að refsa honum fyrír að tapa máli fyrir Granda, eins og einhvers staðar hefur komiðfram? „Eg ætla ekki að blanda mér í það mál. Það er algjörlega mér óviðkomandi og ég hef ekkert um það að segja. Eg hef ekkert haft með þessa ákvörðun að gera. Þetta er algjörlega án þess að ég komi þar nálægt.“ - Hvemig kom það til að þú varst ráðinn í þetta starf? „Kristján hafði bara samband við mig og spurði mig hvort þetta kæmi til greina,“ svarar Friðrik og kveðst hafa þurft að velta ákvörð- uninni fyrir sér. „Eg hef verið að byggja upp minn rekstur undan- farin ár og gengið vel. Það var heilmikil ákvörðun." - Hefurðu verið að vinna fyrír LÍÚ? „Nei, ekki fyrir LÍÚ, bara fyrir útgerðir, bæði stórar og smáar.“ Skýr verkaskipting Kristján kemur til með að starfa sem stjómarformaður í fullu starfi. Friðrik segir að sér finnist mikilvægt og gott að Kristján fari ekki út sama daginn og nýr mað- ur kemur inn vegna þess að „hann hefur -yfirburða þekkingu á sjávarútveginum. Það er mikill styrkur að hafa hann áfram og það er hugsunin með þessu, að reyna að yfirfæra þessa þekkingu ákvörðunina þá er hún bara tekin þannig að ég hef ekki áhyggjur af því þó að menn segi eitthvað svona. Það verður að vera þeirra mál.“ - Hvemig telurðu að framtíðin verði t fiskveiðimálum þjóðarinn- ar? „Ég held að það sé mikilvægt að menn haldi þeirri stefnu sem hefur verið mótuð því að mark- miðið með fiskveiðistjómunar- kerfinu er að vemda fiskistofnana og hámarka afraksturinn og nýt- ingu þeirra. Þetta er gmndvallar- sjónarmið sem ekki má missa sjónar af,“ segir hann og telur ekkert betra hafa komið fram. Hugmyndir eins og veiðileyfagjald eða auðlindaskatt telur hann ekki til hins betra enda er greinin nú þegar að borga mikinn skatt. „Þegar gengur vel hjá fyrirtækjum verður það til þess að þau fara að borga skatta. Það er ekki langt síðan mörg þeirra vom að tapa miklum Ijárhæðum,“ segir hann. „Sumir \ilja breytingar breyt- inganna vegna. Sem betur fer höfum við haft almennar reglur sem hafa skilað verulegum ár- angri. Nú verða fýrirtækin að standa á eigin fótum sem verður til þess að þeir lifa, sem standa sig best. Það hefur orðið vemleg breyting varðandi stöðugleika. Menn hafa getað skipulagt sig fram í tímann, ljárfest í nýjum tækjum og búnaði í trausti þess að ekki verði kollsteypur á morg- un. Þetta var mikið rætt í síðustu kosningum og þá var mjög mikil- vægt að stjómarflokkamir fóru ekki á taugum enda veit meiri- hluti þjóðarinnar að þetta hefur skilað okkur áfram.“ Fríðrik telur óþolandi að Is- lendingar veiði ekki rækju á Sval- barðasvæðinu og segir: „Það er al- gjört forgangsverkefni að mínu mati því að við eigum fullan rétt á því samkvæmt Svalbarðasáttmál- anum og Norðmenn útiloka okk- ur með algjörum órétti. Þetta er gífurlegt hagsmunamál fyrir ís- lenska þjóð. Við ættum að vera að veiða þar, höfum fullan rétt til þess og verðum að fara að veiða þar strax á morgun.“ -GHS

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.