Dagur - 11.09.1999, Page 3

Dagur - 11.09.1999, Page 3
XJaÆOir LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1999 - 19 1990 Mosfellsbær 1994 Selfoss Verður þinn bær næstur? Tuttugasta og fjórða Landsmót UMFÍ verður haldið í júlí árið 2004. Ungmennafélag íslands óskar eftir umsóknum frá sambandsaðilum og sveitarstjórnum um að taka að sér undirbúning og framkvæmd 24. Landsmóts UMFÍ. Fyrsta Landsmót UMFÍ fór fram á Akureyri 1909 en Landsmótin eru orðin tuttugu ogtvö talsins. Síðasta Landsmót var haldið í Borgarnesi 1997. Nlæsta Landsmót UMFÍverður haldið á Egilsstöð- um 12.-15. júlí 2001. Landsmót UMFÍ hafa jafnan verið mikil lyftistöng fyrir byggðarlögin þar sem þau hafa verið haldin. Kröftug uppbygging íþróttamannvirkja hefurátt sér stað og starf ungmenna- og íþróttafélaga eflst. Landsmót UMFÍ eru stærstu íþrótta- og menning- arhátíðir sem haldnar eru hér á landi og vekja þjóðarathygli. Á Landsmótinu sem haldið verður 2004 má gera ráð fyrir allt að tvö þúsund þátttak- endum sem keppa í um tuttugu íþróttagreinum. Þar mun fremsta íþróttafólk landsins keppa í flestum greinum Iþrótta en auk þess verður keppt í starfsíþróttum eins ogt.d. pönnukökubakstri, dráttavélaakstri og línubeitingu. A Landsmótum UMFÍ er boðið upp á fjölbreytta dagskrá þar sem öllfjölskyldan getur verð saman. Aukin áhersla hefur verið lögð á þátttöku almenn- ings í ýmsum íþróttagreinum á síðari árum. Umsóknum um að halda 24. Landsmót UMFÍ 2004 skal skilað á þjónustumiðstöð UMFÍ að Fellsmúla 26,108 Reykjavík fyrir 31. desember 1999. UNGMENNAFELAG ÍSLANDS '

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.