Dagur - 20.10.1999, Síða 1

Dagur - 20.10.1999, Síða 1
Verö ílausasolu 150 kr. BLAÐ 82. og 83. árgangur - 199. tölublað Gjörbreyttar for- sendur R-listans Ný staða varðandi framhald R-listasam- starfsins segir Finniir Ingólfsson. - Aifreð Þorsteinsson er á öðru máli. Steingrím- ir J. Sigfússon segir samstarfsmál við R- listann órædd hjá VG. Framsóknarmenn eru ekki sam- mála um framhald R-listasam- starfsins þegar yfirstandandi kjörtímabili Iýkur. Finnur Ing- ólfsson, varaformaður flokksins, er efins um framhald samstarfs- ins en Alfreð Þorsteinsson borg- arfulltrúi vill halda því áfram. A aðalfundi fulltrúaráðs fram- sóknarfélaganna í Reykjavík um síðustu helgi kom fram mjög hörð gagnrýni á R-listann og margar efasemdaraddir um hvort halda eigi samstarfinu áfram. „Framhald R-Iistasamstarfsins er mál sem er algerlega órætt hjá okkur framsóknarmönnum. Það er alveg klárt að ef og ég segi ef menn ætla að velta þessu sam- starfi fyrir sér við næstu borgar- stjórnarkosningar, þá blasir við nýtt pólitískt landslag. A- flokkarnir og Kvennalistinn er orðinn einn flokkur og VG er kominn til sögunnar frá því í síðustu kosningum. Þess vegna eru forsendur fyrir samstarfinu al- gerlega nýjar og kalla á grund- vallarumræðu um framhaldið," segir Finnur Ingólfsson, varafor- maður Framsókriarflokksins og foringi framsóknarmanna í Reykjavík. Stormur í vatnsglasi „Nei, þetta er bara stormur í vatnsglasi,“ sagði Alfreð Þor- steinsson, borgarfulltrúi R-list- ans frá Framsóknarflokknum, um hvort brotthvarf Arna Þórs Sigurðssonar úr Alþýðubanda- laginu ógni R-Iistanum. Hann var spurður hvort vilji væri til þess að R-Iistinn verði endurnýj- aður í samvinnu við Vinstrihreyf- inguna fyrir næstu borgarstjórn- arkosningar? „Mér þykir ekkert ólíklegt að menn muni ræða saman um slíkt samstarf," segir Alfreð. Margrét Frí- mannsdóttir, talsmaður Sam- fylkingarinnar, segir í samtali við Dag að Samfylkingin verði tilbúin með framboð í öllum sveitarfélögum í næstu sveitarstjórnarkosningum. Hún tekur líka fram að Samfylk- ingin muni að sjálfsögðu vera til- búin í R-listasamstarf og að bjóða fram með öðrum flokkum eða samtökum þar sem það á við. Órætt mál - En hver er afstaða VG til sam- starfs við R-Iistann við næstu borgarstjórnarkosningar? „Það er algerlega órætt mál hjá okkur og þvf ótímabært að slá neinu föstu um það með hvaða hætti okkar aðkoma að sveitar- stjórnarmálum verður. Það eina sem ég get sagt á þessu stigi málsins er að við munum taka þessi mál fyrir og ákveða með hvaða hætti við komum að þeim og það verður sérstakur dag- skrárliður á landsfundi okkar um næstu helgi. Formleg ákvörðun verður síðan tekin, vænti ég, á komandi vetri," segir Steingrím- ur J. Sigfússon, formaður flokks- ins. Hann segist búast við því að hjá VG eins og öðrum flokkum ráðist það nokkuð eftir aðstæð- um á hverjum stað hvernig flokk- urinn stendur að framboði. Hann segir að það sé ekki vinstri-grænna einna að segja til um hvort og hvar samstarf verð- ur. „Við eigum auðvitað flokks- menn víða sem eru þátttakendur í sveitarstjórnarmálum og þeir munu án vafa hafa sitt að segja hver á sínum stað hvernig þessu verður hagað,“ sagði Steingrím- ur. Hann bætti svo við að auðvit- að væri líklegra að VG vildi sam- starf til vinstri en hægri, áhersl- ur flokksins lægju þar. - S.DÓR Finnur Alfreð Ingólfsson. Þorsteinsson. Rjúpnastríð á (jölliim Árviss leit og óhöpp tengd rjúpnaveiðinni fylgdu upphafi rjúpnaveiðitfmans um helgina. Stríðsástand er eitt þeirra orða sem komið hefur fram í umræð- unni um fyrstu dagana þegar þúsundir veiðimanna arka á fjöll í Ieit að bráð. Samkvæmt sam- tölum sem Dagur átti við ýmsa hagsmunaaðila hefur slíkum at- vikum þó fækkað. Óháð einstök- um atvikum um liðna helgi og hvort útbúnaöur manna sem þeim tengdust var í lagi eða ekki er eðlilegt að spurt sé um eftir- lit, öryggismál, útbúnað, kostn- að við leit og ekki sfst hæfni veiðimanna til að fara með sín vopn. Dagur ræddi við veiðistjóra, skotveiðimenn, lögreglumenn og björgunarsveitarmenn um ástandið. - Sjd núnar ú bls. 8-9. Svanirnir, endurnar og aðrir fiðurfuglar á Tjörninni geta ekki kvartað undan kulda þessa dagana en engu að síður þarfað fylla mallakútana. Hér vænta fuglarnir einhvers frá ungum herramanni, sem er í fylgd með pabba og stóra bróður, en bera heldur lítið úr býtum. mynd: hilmar þór Mökkurinn frá Járnblendiverk- smiðjunni hefur ekki farið framhjá vegfarendum. mynd: bjb. Horfir á mökkinn Miklir bólstrar stigu til himins úr þriðja ofni Járnblendiverk- smiðjunnar í gær, þriðja daginn í röð, vegna bilunar í reykhreinsi- búnaði ofnsins. Svo mikill var mökkurinn að Hermann Svein- björnsson, forstjóri Hollustu- verndar ríkisins, gat fylgst með menguninni út um gluggann á skrifstofu sinni í Síðumúlanum í Reykjavík. Aðspurður hvað flögraði í gegnum huga hans við þessa sýn sagði hann viðbrögð sín vera þau hvort ekki þyrfti einfaldlega að loka ofninum. Forstjóri Hollustuverndar seg- ir þó að þegar verið sé að taka í notkun nýjan ofn þá hefur verk- smiðjan ákveðinn umþóttunar- tíma til þess þótt útblástur sé kannski meiri en eðlilegt getur talist. Hann sagði að starfsmenn Hollustuverndar myndu kanna það hvort þetta rúmaðist innan þessa prufutíma, nánast dag eft- ir dag. Aftur á móti var ekki bú- ist við að starfsmenn Hollustu- verndar yrðu sendir á verk- smiðjusvæðið til sýnatöku vegna þessa. Þarna sé um að ræða kís- ilryk sem sé slæmt fyrir lungu þótt það sé ekki beinlínis eitrað og vatnsgufa sem sé í þessum bólstrum. Hinsvegar sé það hálf ömurlegt að geta fátt eitt annað en horft upp á þessa bólstra bera við himinn án þess að geta aðhafst nokkuð. Þó sé hægt að beita sektum ef svona álíka hlut- ir gerast umfram þann umþótt- unartíma sem verksmiðjan hef- ur til að gangsetja ofninn. Viðurlög of væg Hermann bendir á að viðurlög við brotum á mengunarlöggjöf- inni séu allof væg. Flann segir að Hollustuvernd sé að reyna að fikra sig áfram á þeirri braut að menn taki mengunarlöggjöfina alvarlega. I því sambandi bendir hann á að Hollustuvernd hafi kært mörg mál en þau hafa mörg hver viljað daga uppi hjá ríkissaksóknara. - GRH Afgreiddir samdægurs ’Í Venjulegirog f demantsskomir trúlofunarhringar GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI ■ SÍMI 462 3524

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.