Dagur - 20.10.1999, Síða 10
Vt eepr K'nhTno . ii s nuaMntHivaiM
10- MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1999
-rt
SMÁAUGLÝSINGAR
Hey til sölu
Hey til sölu bæði baggar og fullþurrkaðar
rúllur
Uppl. í síma 862 2296.
Húsnæði óskast______________________
Oska eftir herbergi til leigu á Akureyri.
Upplýsingar í síma 464 1486 eða 861 2629.
Einkamál
Eg er 34 ára karlmaður, sem óskar eftir
að kynnast góðri vinkonu, sem býr í Hafn-
arfirði, Garðabæ eða í Reykjavík. Viltu vera
svo væn að svara mér eins fljótt og hægt
er. Ég hef mikinn áhuga á að kynnast þér,
sem góðri vinkonu.
Vinsamlegast hringdu í sima 869 4772.
Takið eftir
Samhygð, samtök um sorg og sorgarvið-
brögð á Akureyri og nágrenni verða með
opið hús í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju
fimmtudaginn 21. október kl. 20:00. Sr. Þor-
grímur Daníelsson á Grenjaðarstað talar um
hjónaskilnað og fleiri sorgaráföll. Samtökin
fyrirhuga að vera með starf í minni hópum
þar sem fólk getur hitt þá sem orðið hafa
fyrir svipuðum áföllum. Við höfum fengið
fagfólk okkur til aðstoðar. Allir velkomnir,
ekkert þátttökugjald. Stjórnin.
AL-ANON
Samtök ættingja og vina
alkohólista.
Er áfengi vandamál í þinni fjölskyldu?
Ef svo er getur þú í gegnum samtökin:
- Hitt aðra sem glíma við
samskonar vandamál
- byggt upp sjálfstraust þitt.
- bætt ástandið innan fjölskyldunnar.
- fundið betri líöan
Fundarstaöur:
AA húsiö, Strandgötu 21, Akureyri,
sími 462 2373.
Fundir í Al-Anon deildum eru:
Miðvikudaga kl. 21.00 og
laugardaga kl. 11.00
(nýliöar boðnir velkomnir ki. 10.30)
VE) ERUM MIÐSVÆÐIS
MELVEGUR 17 • HVAMMSTANGA
SÍMI 451 2617 • FAX 451 2890
Sýnishorn af bílum og tækjum
á sýningarsvæði
Hyundai Stavex 7 manna Diesel 4x4
árg.99
Subaru Legacy nýr árg. 99
Landrover douplecap 5 cyl. Diesel árg.
99
Nissan Diesel 4x4 árg. 99
Suzuki Grand vitara 6 syl. nýr árg. 99
Suzuki Balleno st. 4x4 nýr árg. 99
IVIMC douple cap 4x4 árg.95
Subaru Legacy árg.90
Hyuandai Elantra árg. 95
Hyuandai Sonata árg. 97
Lada Sport árg. 88
Grand Cherocy 6 syl. árg. 93
Toyota Turing árg. 95
Ford Explorer árg. 91
MF 4255 95ha 4x4 árg. 99
Ford newholland 6640 4x4 árg. 96
Ford newholland 5635 árg.97
Rúlluvél Wermer 504 árg. 99
Pökkunarvél K 7335 árg. 99
Pökkunarvél Tangó árg. 99
Sláttuvélar
Kunn GMD 700 árg. 99
Niemeyer Eurodiese 260 árg. 99
Sturtuvagn 8,5 tonn
Muavél nyemaier RS 340-DA árg. 99
Springmaster hestaflutningakerra árg.
99
Vegna mikillar sölu vantar allar gerð-
ir af bílum og tækjum á söluskrá.
Island - vetnissamfélag
framtíðarinnar
Fræðslufundur um vetnisvæðingu íslands á
vegum félags landfræðinga miðvikudaginn
20. október kl. 20:30, stofu 201 í Odda, húsi
félagsvísindadeildar HÍ
Orka og orkunýting hefur verið mikið í samfélagsumræðunni
að undanförnu og sýnist sitt hverjum. Miðvikudagskvöldið
20. október mun Jón Björn Skúlason, landfræðingur og
framkvæmdastjóri íslenskrar nýorku flytja erindi um vet-
nisvæðingu íslands sem kallast
(SLAND - VETNISSAMFÉLAG FRAMTlÐARINNAR.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimil
Véla - Pallaleiga
Skógarhlíð 43, 601 Akureyri
fyrir ofan Húsasmiðjuna
Leigi út álvinnupalla.
Henta vel við málningu
og viðgerðir á litlum og
stórum húsum.
■ZT
461-1386 og
892-5576
www visir i
FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR
rD^ftr
FRÉTTIR
Staða nútímakvenna í sveit er sögð vera mun óljósari en var þegar starfsvettvangur og valdastaða húsfreyjunnar
á sveitaheimilum fortíðarinnar var óumdeild.
Jafnrétti til sveita
Til að efla stöðu og fé-
lagslega virkui bæuda-
kvenna. Ný hugsun.
Hluti af byggðaþróun.
Landbúnaðarráðuneytið hyggst
ráða sérstakan starfsmann til að
sinna hagsmunamálum kvenna
og jafnréttismálum í landbúnaði
og er áætlað að verja til þess um
5 milljónum króna á ári. Verk-
efnið miðar einnig að því að
gæta að sérhagsmunum bænda-
stéttarinnar í atvinnuuppbygg-
ingu og atvinnuþróun til sveita í
samstarfi við önnur ráðuneyti.
Nýja hujjsun
A alþjóðlegum degi sveitakvenna
nýverið kynnti landbúnaðar-
ráðuneytið markmið og fram-
kvæmdaáætlun sína til að stuðla
að jafnrétti kynjanna sem Anna
Margrét Stefánsdóttir hefur
unnið fyrir ráðuneytið. Sem
dæmi um félagslega þátttöku
kvenna má nefna að á Búnaðar-
þingi hafa setið tvær konur af 49
fulltrúum, en þrjár þegar mest
hefur verið. Þá séu flest bónda-
býli á kennitölu karlkynsbónda.
Landbúnaðarráðuneytið telur
brýnt að gert verði stórátak £
jafnréttis- og byggðaþróunarmál-
um og þá ekki síst með tilliti til
sérstöðu bændakvenna. Það
verður m.a. gert með fræðslu- og
upplýsingaefni og margvíslegum
tillögum til úrbóta. Þótt margt
hafi breyst í landbúnaði þá virð-
ist sem karlaveldi hefðarinnar sé
enn mjög ríkt á sama tíma og
staða bændakvenna sé mun
óljósari, bæði fyrir þeim sjálfum
og öðrum. Af þeim sökum sé
nauðsynlegt að bændakonur
finni stuðning og hvatningu í
jafnréttismálum. Þá sé það að-
kallandi að ráðuneytið beiti sér
fyrir öflugri starfsemi sem gæti
stuðlað að aukinni félagslegri
virkni beggja kynjanna innan
landbúnaðarins með sérstakri
áherslu á konur. Samhliða því
yrði unnið að því að breyta hugs-
unarhættinum innan kerfisins til
að jafna þar hlut kvenna svo nú-
tímakonur finni andlegu atgervi
sínu farveg innan bændastéttar-
innar í framtíðinni. — GRH
Nýr hugbimað-
ur frá Netverki
íslenska hugbúná^ar- og há-
tæknifyrirtækið Netverk hefur
þróað nýja afurð er nefnist Fo-
neStar. Um er að ræða hugbún-
að er gerir gagnaflutning mögu-
legan um farsímakerfi eins og
t.d. GSM. Forráðamenn Net-
verks segja að FoneStar geti t.d.
flutt gögn úr fartölvu í gegnum
GSM-kerfi á fljótari og hag-
kvæmari hátt en áður hefur ver-
ið mögulegt.
Þessi nýja samskiptatækni ger-
ir það m.a. að verkum að þegar
samband rofnar, sendir Fone-
Star eða tekur á nióti gögnum
þar sem frá var hörfið í stað þess
að byrja upp á nýtt. Þannig get-
ur FoneStar stytt sendingartíma
um allt að 80 prósent og dregið
verulega úr kostnaði við gagna-
flutninga, að því er forráðamenn
Netverks fulltyrða.
FoneStar vinnur með öllum
helstu tölvupóstforritum sem
eru á markaðnum í dag og starf-
ar í bakgrunni þeirra án þess að
notandinn verði þess var.
„Með þessum hugbúnaði skip-
ar Netverk sér í fremstu röð fyr-
irtækja á þessum markaði," segir
John Huckle, nýr forstjóri Net-
verks. „Þessi búnaður á eftir að
létta fartölvunotendum lífið og
gera tölvusamskipti þeirra við
skrifstofur og heimili ódýrari og
öruggari. I dag er talið að aðeins
tvö prósent af farsímanotendum
séu að flytja gögn um slík kerfi.
Það hlutfall mun hækka veru-
lega á næstu árum, eftir því sem:
slíkir gagnaflutningar verða hag-i
kvæmari. Eg tel þvf að hugbún-
aðurinn eigi eftir að gegna lykil-
hlutverki á þessum ört stækk-
andi markaði,“ scgir Huckle.
John Tuckle, nýr forstjóri Netverks, ásamt Holberg Mássyni stjórnarfor-
manni (t.h.) við kynningu á FoneStar gagnaflutningakerfinu. - mynd: e.ól.