Dagur - 27.11.1999, Qupperneq 8
Xfc^MT'
LÍFIÐ í LANDINU
24 - LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1999
Hann er ein aðalspraut-
an í Stuðmönnum,
búksveitinni Human
Body Orchestra, Sam-
fylkingunni, Græna
hernum og Umhverfis-
vinum. Jakob Frímann
Magnússon er öflugur
liðsmaður hvar sem
hann í fylkingu fer og
mitt í slagnum um Eyja-
bakkamálið undirbýr
hann eina af veglegustu
aldamótahátíðum
íslands.
„I/ið stöndum frammi fyrir miklu
stærri og hrikalegri framkvæmdum
og röskun á umhverfi landsins en við
höfum áður gert“
„Stuðmenn ákváðu fyrir einum
sex árum að fagna nýrri öld með
eftirminnilegum hætti í stærsta
samkomusal lýðveldisins í Laug-
ardal. Þar verður vonandi mikið
um dýrðir, margt að sjá og heyra.
Okkur Iangar að búa til einhvers-
konar „Heimsþorps-stemmningu"
inni í höllinni þar sem menn geta
fýlgst með því, á þar tilgerðum
skjám, sem er að gerast í öðrum
heimsálfum. Síðan að feta okkur
í gegn um „Islands þúsund ár“ í
tali, tónum og myndum. Hug-
myndin er að fyrir miðnætti skoð-
um við þátíð, nútíð og framtíð
með ýmsum hætti. Eftir miðnættí
hoppum við svo glaðbeitt mót
óvissu nýrra tíma.“
- Er þetta skemmtun fyrir alla
aldurshópa?
„Eg er sannfærður um að börn,
gamalmenni, foreldrar og ung-
lingar geta og eiga að skemmta
sér saman á þessum tímapunkti
og rejTidar við hvaða tækifæri
sem er. Ég hef áður vitnað til þess
að í Grænlandsför fyrir 10 árum
komum við fram á stórhátíð. Þar
héldu afarnir og ömmurnar á
ungabörnunum á öxlunum, pabb-
arnir, mömmurnar og unglingarn-
ir, öll voru undir sama þaki að
skemmta sér. Það er, að öðrum
samkomum ólöstuðum, með því
allra skemmtilegasta sem ég hef
tekið þátt í.“
- Finnst þér þú sjá of lítið af
þeirri stemmningu hér á Fróni?
„Við skulum segja að ég stefni
að því að sjá meira af því. Ég
styð heilshugar þá hugmynd
Ragnhildar Gísladóttur að steypa
undir sama þak elliheimilum og
barnaheimilum og færa elstu
kynslóðinni í auknum mæli það
hlutverk að ala þá yngstu upp. Ég
nýt þess að hafa alist upp með afa
mínum og ömmu fyrstu árin sem
ég man eftir mér og hefði ekki
viljað fara á mis við það. Ég er
Iíka ánægður með að hlutvcrk
Stuðmanna er og hcfur verið að
nokkru leyti hlutverk brúarsmiða
- sem brúa bilið milli kynslóða."
Búinn að stimpla mig inn
- Ertu hættur að slarfa í Bretlandi
ogfluttur heim?
„Nei, ég hef alltaf verið með
heimili á tveimur stöðum, síðasta
áratug í Hafnarfirði og London,
þar áður í Reykjavík og Los Ang-
eles. Þó að ég hafi eytt stórum
hluta þess árs.sem er íjð líða á Is-