Dagur - 21.12.1999, Síða 12
12 - ÞRIÐJUDAGU R 21. DESEMIiER 1999
ERLENDAR FRÉTTIR
Miðjiiflokkar vinna
sigur í Rússlandi
Rússnesku miðju-
fLokkamir eru sigur-
vegarar í þiugkosn-
mgiim í Rússlaudi
uin helgina.
Þegar talning atkvæða var
langt komin í gær eftir þing-
kosningarnar í Rússlandi um
helgina var kommúnistaflokk-
urinn í forystu. Miðjuflokkar
sem styðja Vladimir Pútín for-
sætisráðherra og Sameiningar-
flokkurinn komu þar fast á eft-
ir. Niðurstöðurnar þykja benda
til þess að almenningur í Rúss-
landi sé ánægður með hvernig
Pútín hefur tekið á málum í
Tjetseníu-stríðinu. Talið er að
kosningarnar hafi í för með sér
umtalsverðar breytingar á rúss-
neskum stjórnmálum og vekur
vonir manna um umbætur í
efnahagsmálum. Miðjuflokk-
Níu þúsuud látn-
ir í Venesúela
Samkvæmt fréttaskeytum
Reuter er talið að meira en 9
þúsund manns hafi farist í
flóðum og aurskriðum í Venes-
úela síðustu daga. Fundist
hafa um 1000 lík og að minns-
ta kosti 6000 er saknað. Þetta
eru mestu náttúrhamfarir í
sögu landsins i meira en öld.
Aætlað cr að um 150 þúsund
manns haí i misst heimili sín i
þessum miklu náttúruhamför-
um. Flesíir hinna látnu hafa
fundist í nágrenni höfuðborg-
arinnar C aracas en erfitt hefur
reynst að jarða þá látnu þar
sem kirkjugarðar borgarinnar
eru á kafi í aur. Orsök rigninga
í Venesúela er rakin til La
Nina halstraumsins, en hon-
um hefur fylgt óvenju votviðra-
samt og kalt veður undanfarið
í Suður Ameríku.
Þótt Vladimír Pútín hafi ekki verið í kjöri í þingkosningunum þá styðja
sigurvegarar þeirra, miðjufiokkarnir, forsætisráðherrann, sem hér
kemur út úr kjörkiefa í Moskvuborg um helgina.
arnir eru því taldir sigurvegarar
kosninganna og þeir sagðir
hafa náð fram hæglátri bylt-
ingu með því að fá alls um
helming þingsæta í Dúmunni.
Þegar búið var að telja rúm
80% atkvæða höfðu kommún-
istar fengið um 24% atkvæða í
kjöri framboðslista. Alls sitja
450 þingmenn í Dúmunni,
neðri deild rússneska þingsins.
Helmingur er kjörinn af fram-
boðslistum sem fá 5% fylgi,
eða meira, en helmingur í ein-
menningskjördæmum.
Eining, undir forystu
Shogus, ráðherra almanna-
varna, var með urn 23% at-
kvæða þegar 80% höfðu verið
talin upp úr kössunum.
I þriðja sæti var Föðurland-
Allt Rússland, flokkur Príma-
kovs, fyrrum forsætisráðherra,
og Lúskovs, borgarstjóra
Moskvu, með 12% atkvæða.
Þrír aðrir flokkar náðu 5%
markinu sem þarf til að fá
menn kjörna af flokkslistum.
Þetta eru Bandalag hægri flok-
ka, undir forystu Kiriyenkos,
fyrrverandi forsætisráðherra,
og miðjuflokkurinn Jabloko.
„Mikil tímamót“
„I fyrsta skipti í tíu ár mun
Dúman ekki lúta stjórn komm-
únista. Það er vart hægt að
gera of mikið úr þessum sigri“,
sagði Sergej Kirijenko, Ieiðtogi
Sambands hægri afla, eins af
fjórum miðjuflokkunum, eftir
að fyrstu tölur lágu fyrir.
„Bylting hefur átt sér stað í
Rússlandi, friðsöm bylting en
bylting engu að síður," sagði
Igor Shabdurasulov, einn hel-
stu ráðgjafa Jeltsíns, við frétta-
menn eftir að helstu úrslit lágu
fyrir. „Þetta eru mikil tíma-
mót,“ sagði hann ennfremur.
Leiðtogi Kommúnistaflokks-
ins, Gennady Zyuganov, sagð-
ist vera ánægður með útkom-
una þrátt fyrir harða keppni
við miðjuflokkana. Flokkurinn
hefði stigið ákveðin og mikil-
væg skref, ekki hara á þingi,
heldur vegna komandi forseta-
kosninga. Pútín er þó talinn
þar með sterka stöðu, enda
hefur hann stuðning Jeltsíns
sem arftaki á forsetastóli.
3ORGARTÚNI 7, 105 REYKJAVÍK SÍMI 552 6844,
BRÉFASÍMI 562 6739
FORVAL 12365
Up ýsingarkerfi fyrir
frí haldsskóla
Ríki' a.up, f.h. menntamálaráðuneytis óska eftir
uppi jum um bjóðendur sem áhuga hafa á þátttöku í
loku'. tboði/verðkönnun um gerð upplýsingakerfis fyrir
framhaidsskóla.
Forv? ögn verða til sölu á kr. 3.000,- á skrifstofu
Ríkis upa, Borgartúni 7, 105 Reykjavík, frá og með
22. ^rnber n.k. Forvalsgögnum skal skila á sama stað
fyrir ! .00 hinn 25. janúar 2000.
ÍÞRÓTTIR
Njítrðvíkingar í toppsætið
Njarðvíkingar eru nú komnir á kunn-
uglegar slóðir á toppi úrvalsdeildar
karla í körfuknattleik, eftir sautján
stiga sigur á Tindastóli, 101-84, í
íþróttahúsinu í Njarðvík á sunnudag-
inn. Njarðvíkingar eru þar með komn-
ir með 18 stig eftir 11 leiki, eða jafn-
mörg og KR-ingar sem eru í öðru sæt-
inu. Nú hafa öll liðin í deildinni leik-
ið ellefu leiki, þar sem frestuðum
leikjum vegna þátttöku Reyknesinga í
Evrópukeppninni er lokið og því loks-
ins komin raunhæf mynd á stöðu lið-
anna í deildinni.
Sex leikja sigur-
ganga stöðvuð
Fyrir leikinn í Njarðvík hafði Tinda-
stóll unnið sex leiki í deildinni í röð og
því var beðið eftir leiknum með mikilli
eftirvæntingu. Eftir jafnan fyrri hálf-
leik, þar sem staðan var 52-53 fyrir gestina í leikhléi, mættu Njarð-
víkingar tvfefldir til seinni hálfleiks og lögðu þá grunninn að góðum
sigri með grimmum varnarleik. Hjá Njarðvíkingum, sem hafa spilað
án útlendings frá því í byrjun desember, átti Teitur Orlygsson sann-
kallaðan stórleik og var hann stigahæstur með 32 stig. Páll Kristins-
son átti líka góðan leik hjá Njarðvíkingum og var næst stigahæstur
með 20 stig. Annars spilaði allt Njarðvíkurliðið mjög vel og uppskar
sanngjarnan sigur.
Hjá Tindastóli, sem nú er í þriðja sæti deildarinnar með 16 stig,
jafnmörg og Grindvíkingar, sem eru í fjórða sæti, áttu þeir Sune
Henriksen og Svavar Birgisson bestan leik og var Svavar stigahæstur
með 16 stig. Þar næst komu þeir Sune og Shawn Mayers með 15 stig
hvor og Isak Einarsson með 11.
Njarðvíkingurinn Örlygur
Sturluson á fullri ferð.
Sigur og tap hjá ísfirðmguin
Úrslit annaraleikja um helgina urðu þau að Keflvíkingar unnu tólf
stiga sigur á Isfirðingum í Keflavík þar sem staðan í leikhléi var 43-
48 gestunum í vil. ísfirðingar misstu sinn besta mann, Clifton Bush,
útaf vegna meiðsla þegar staðan var 53-62 og við Jrað hrundi leikur
þeirra og Keflvíldngar sigldu framúr. Chianti Robert skoraði mest
Keflvíkinga, eða 21 stig og Bush mest fyrir Isfirðinga, 27 stig.
A föstudag fór fram leikur ísfirðinga og Hauka á Isafirði og endaði
hann með fimm stiga sigri heimamanna, 82-77. Clifton Bush var
bestur og stigahæstur Isfirðinga með 33 stig, en þeir Jón Arnar og
Ingvar Guðjónsson, skoruðu mest fyrir Hauka, 18 stig hvor og Marel
Guðlaugsson 17.
Leikmöniium Arsenal laust mumi-
vatnið
Emmanuel Petit, leikmaður Arsenal,
mun hafa sloppið fyrir horn í leiknum
gegn Wimbledon um helgina, þar sem
hann mun hafa hrækt á eftir harðjaxl-
inum John Hartson, framherja
Wimbledon, án þess að dómarinn eða
sjálfur Hartson tækju eftir því.
Hartson mun hafa Ient f útistöðum
við Fransmanninn í leiknum, sem
endaði með því að sögn sjónarvotta,
að Petit hrækti á eftir Hartson.
Walesmaðurinn stóri og stæðilegi
sagði eftir leikinn að ef hann hefði vit-
að af þessu hefði hann örugglega gert
eitthvað í málinu. „Strákarnir sögðu
mér að hann hefði hrækt á eftir mér,
en ég varð ekki var við það. Ef ég hefði
vitað af því hefði ég örugglega strax gert eitthvað í málinu," sagði
framherjinn vörpulegi. Hvað hann meinti er ekki vitað, en nokkuð
víst að hann ætlaði ekki að horga fyrir sig í sömu mynt.
Leikmönnum Arsenal virðist í vetur laust munnvatnið, því þetta er
í annað skipti á stuttum tíma sem þeir verða uppvísir að slíku. I fyrra
skiptið var það annar Fransmaður, Patrick Vieira, sem hrækti á Neil
Ruddock, hjá West Ham, og hlaut langt hann og niðurlægingu fyrir.
Enska knattspyrnusambandið bíður nú skýrslu dómarans, Graham
Barber, um málið, áður en ákvörðun um refsingu verður tekin.
Leboeuf biðst afsökunar
Frank Leboeuf, leikmaður Chelsea, sem féklc að líta rauða spjaldið í
leiknum gegn Leeds í ensku úrvalsdeildinni í fyrradag, hefur beðið
félaga sína hjá Chelsea afsökunar á hegðan sinni og stundarbrjálæði
í leiknum. Það er nokkuð ljóst að tapið hefur gert meistaradrauma
Chelsea að engu í vetur og spurning hvort liðinu tekst að ná Evrópu-
sæti.
Það er þó ekki víst að afsökunarbeiðnin dugi til að bræða Gianluca
Vialli, framkvæmdastjóra, sem jafnvel horfir fram á erfiða baráttu um
að halda starfi sínu hjá félaginu, eftir afleitt gengi í dcildinni að und-
anförnu. Þar að auki mun þessi Ijóta uppákoma örugglega ekki falla
stjórnendum enska knattspyrnusambandsins vel í geð og nokkuð ör-
uggt að Leboeuf á eftir að hljötá strangari dóm agáhefndafihnar.