Dagur - 28.12.1999, Side 1
SÍMI-BÓK-VEFUR
Akvörðim Fiims
kom mér á óvart
82. og 83. árgangur - 246. tölublað
Verð ílausasölu 150 kr.
Engar áherslubreyt-
ingar í virkjana- og ál-
versmálum og brott-
hvarf Finns er óháð
„Pálsmálinu“.
„Þessi ákvörðun Finns Ingólfs-
sonar kom mér á óvart og það er
mikil eftirsjá að honum. I lann er
hörkuduglegur maður og hefur
staðið sig afar vel sem ráðherra.
Það er hins vegar þannig í stjórn-
málum að það er alltaf eitthvað
að koma manni á óvart. En þar
eins og annars staðar kemur
maður í manns stað og þannig
hefur það alltaf verið og verður
alltaf," sagði Halldór Asgríms-
son, utanrikisráðherra og for-
maður Framsóknarflokksins, um
ákvörðun Finns lngólfssonar,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra, að
sækja um stöðu bankastjóra
Seðlabankans.
Óháð „Pálsmáli“
Finnur Ingólfsson iðnaðarráð-
Orðlaus
Þóra ásamt
drengjunum sín-
um tveimur.
„Eins og þetta
Ieit út fyrir jól-
in og um jólin,
þá hefur þetta
gengið mjög
vel,“ segir Sig-
fús Ólafur
Helgason,
mágur Þóru
Hrafnsdóttur
á Akureyri sem
missti aleiguna í bruna rétt fyrir
jólin. „Eg hef engar tölur og veit
ekki hvernig gengur með söfn-
unarreikninginn. Henni hafa
borist ótal gjafir, húsbúnaður og
raftæki, þannig að maður er al-
veg orðlaus og innilega þakklát-
ur fyrir hvernig fólk hefur tekið
á þessu. Nú er allt á fleygiferð
við að byggja þetta upp. Við tók-
um ýmislegt dót sem er verið að
skoða en það er nánast allt
ónýtt,“ segir Sigfús Olafur. Iðn-
aðarmenn eru komnir til starfa
og uppbygging íbúðarinnar á
fullu að sögn Sigfúsar..og það
er bjart framundan með hjálp
þjóðarinnar." - Hl
TVÖFALDUR 1. VINNINGUR
Fara Vallárbændur með Svínabúið
sitt til útlanda?
Stjömugrís
til útlanda?
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
kveðið upp þann dóm að fyrir-
hugað svínahú Stjörnugríss hf.
að Melum í Melasveit verði að
ganga í gegnum mat á umhverf-
isáhrifum. Framkvæmdastjóri
Stjörnugríss segir að áfrýjun sé í
skoðun, en einnig „hvað hægt sé
að gera erlendis."
Umhverfisráðherra hafði úr-
skurðað að umhverfismat skyldi
fara fram og höfðaði Stjörnugrís
hf. ógildingarmál, sem ráðherra
var nú sýknaöur af. Astæða úr-
skurðar ráðherra voru þær stað-
reyndir að á fyrirhuguðu búi er
ætlunin að framleiða 20 þúsund
grísi á ári og falla frá þeim
12.800 tonn af úrgangi á ári.
Embætti skipulagsstjóra mælti
með umhverfismati, enda lægi
ekki fyrir „hvar og hvernig ætti
að farga úrgangi, óljóst væri
hvaða áhrif dreifing hans hefði
með tilliti til mengunar vatns og
óþæginda fyrir fólk, upplýsingar
vantaði um urðun dauðra dýra
auk þess sem fyrirhugað at-
hafnasvæði lægi að sjó og að
svæði sem væri á náttúruminja-
skrá með mikið útivistar- og
rannsóknargildi. Þá byggði dóm-
urinn á tilskipun Evrópusam-
bandsins.
Að sögn Geirs Gunnars Geirs-
sonar, framkvæmdabónda í
Stjörnugrísi hf., er framhald
málsins í höndum lögmanna.
„Viðbrögð okkar munu liggja
fyrir í byrjun janúar og þá kem-
ur í ljós hvort við áfrýjum, en
einnig erum við að skoða hvað
hægt er að gera erlendis, því við
mætum svo miklu skilningsleysi
hérlendis. Við viljum vita hvern-
ig þessir hlutir gerast erlcndis og
eigum bágt með að sætta okkur
við umhverfismat sem okkur er
sagt að taki eitt og hálft til tvö
ár,“ segir Geir Gunnar. - FÞG
herra tilkynnt starfsfólki í ráðu-
neytum sínum í gærmorgun að
hann hefði sótt um bankastjóra-
stöðuna og á rfkis-
stjórnarfundi í kjöl-
farið sagði hann sig
frá bankastjóraráðn-
ingunni. Hún mun
verða í höndum Dav-
íðs Oddssonar, for-
sætisráðherra, en
málefni Seðlabanka
munu færast undir
hann um áramót.
Finnur Ingólfsson
sagði í gær að ástæð-
ur þess að hann hafi
ákveðið að hætta
væru persónulegar
og að ákvörðunina hafi hann tek-
ið í samráði við fjölskyldu sína.
Finnur segist ekki telja að
ákvöðrun hans scm varafor-
manns um að hætta, muni veik-
ja flokkinn, öflugt fólk muni taka
við merkinu.
Valgerður Sverrisdótttir þing-
maður á Norðurlandi eystra mun
taka við embættum Finns og
koma inn í ríkisstjórn. Hins veg-
ar þýðir þetta að Páll Pétursson
mun ekki víkja, ekki að sinni í
það minnsta. Þing-
menn framsóknar-
flokl<sins sem þekkja
vel til málsins lögðu
þó áherslu á að brott-
hvarf Finns Ingólfs-
sonar væri óháð ráð-
herrahrókeringunni
sem ákveðin var við
stjórnarmyndunina í
vor og fólst í að Val-
gerður kæmi inn nú
um áramót og leysti
af Pál. „Þetta er sjálf-
stætt mál og er á eng-
an hátt til komið til
að gera Páli kleift að sitja,“ eins
og það var orðað.
Við þingsæti Finns tekur Jón-
ína Bjartmarz varaþingmaður en
óráðið er hvernig fer með emb-
ætti varaformanns. Halldór Ás-
grímsson var spurður hvort
ákvörðun hafi verið tekin um
hvenær nýr varaformaður fyrir
Framsóknarflokkinn verður kjör-
inn í stað Finns: „Það er aðeins
flokksþing sem getur kjörið vara-
formann flokksins og þess vegna
býst ég við að það bíði næsta
hausts. Annars er það alveg
órætt í flokknum," sagði Halldór.
Fljótsdalsvlrkjun óbreytt
Þá var formaðurinn spurður
hvort einhverjar áherslubreyting-
ar verði hjá Framsóknarflokkn-
um í virkjana- og álversmálum
við það að Finnur Ingólfsson
hverfur úr stóli iðnaðarráðherra
og ný manneskja tekur við.
„Nei, alls ekki. Þessi ákvörðun
Finns kemur því máli ekkert við.
Við munum halda áfram með
Fljótsdalsvirkjun og álver við
Reyðarfjörð með óbreyttum
hætti og höfum einsett okkur að
Ijúka því máli,“ sagði Halldór As-
grímsson.
Hann sagði að gengið yrði frá
ráðherraskiptunum hjá flokkn-
um á þingflokksfundi sem hald-
inn verður í dag, þriðjudag.
- s.dór/bg
Sjd einnig bls. 2
Halldór Ásgrómsson.
Nú eru menn byrjaðir að safna í áramótabrennur víða um land enda styttist í gamiárskvöid. I blaðinu í dag er ítar-
leg úttekt á áramótunum á íslandi og fjallað um flugelda, vín, mat, veður, ferðamannastraum o.m.fl. Myndin er
frá bálkesti við Ægissíðu. mynd pjetur
Afgreiddir samdægurs
Venjulegirog
demantsskomir
trúlofunarhringar
GULLSMKMR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI - SÍMI 462 3524