Dagur - 28.12.1999, Blaðsíða 7

Dagur - 28.12.1999, Blaðsíða 7
0**0»- o T n > r n 'i> Vwvr ÞJÓÐMÁL ÞRIDJVD AGU R 28. DESEMBER 1999 - 7 Fj órflokkuriim í lok aldartnnar „Svo lengi sem ég man hefur verið umræda ísamféiaginu um að þessi skipan væri úrelt og „fjórfiokkurinn" hefði runnið sitt skeið, “ segir Jón Kristjánsson m.a. í grein sinni. JÓN KRISTJÁNS- SON skrifar Það var í upphafi þessarar aldar sem grunnur var lagður að því flokkakerfi sem við búum nú við í íslenskum stjórnmálum. Jónas Jónsson lagði grunn að flokka- skipaninni á vinstri væng og miðju stjórnmálanna og skrifaði stefnuskrá Alþýðuflokksins og Framsóknarflokksins með eigin hendi. Ætlaði Alþýðuflokknum að höfða til verkafólks við sjávar- síðuna, en Framsóknarflokknum að höfða til fylgis í sveitum landsins. Sjálfstæðisflokkurinn var flokkur embættismanna og atvinnurekenda. Þetta var sú mynd sem dregin var upp þegar núverandi flokkakerfi var í burð- arliðnum. Seinna myndaðist síðan Sósí- alistaflokkurinn og tvær íylkingar börðust á vinstri vængnum. Þar með var kominn „fjórflokkurinn“ svokallaði sem enn í dag Iifir í ís- lenskum stjórnmálum. Vinstri vængurinn Svo lengi sem ég man hefur ver- ið umræða í samfélaginu um að þessi skipan væri úrelt og „Qór- flokkurinn“ hefði runnið sitt skeið. Kvennalistinn var sér- stæð uppákoma í íslenskum stjórmálum, hann markaði spor, og hefur áreiðanlega orðið til þess að létta konum róðurinn í stjórnmálaflokkunum, en hann hvarf. Framboð á vegum samtak- anna var f raun lokað helmingn- um af þjóðinni og skipulag þeirra og forusta var laus í reipunum. Utskiptaregla af Alþingi og for- mannsleysi voru ekld síst þung í skauti þessum samtökum. Samíylkingin sem nú berst fyr- ir tilveru sinni var marktæk til- raun til þess að fækka flokkum á vinstri væng og mynda stóran flokk sem mótvægi við Sjálfstæð- isflokkinn. Allt bendir til þess nú að tilraun þessi hafi mistekist. í raun er Samfylkingin ekki annað nú en stækkaður Alþýðuflokkur en gengi hennar hefur verið afar slakt í skoðanakönnunum síðan um kosningar. Areiðanlega veld- ur þar nokkru um að ekki er búið að leysa úr skipulagsmálum flokksins eða treysta forustu til framtíðar í sessi. Samkvæmt skoðanakönnunum hafa „Vinstri grænir", eða Sam- tök um grænt framboð nú náð styrk Alþýðubandalagsins og rúmlega það. Líklegt er að bróð- urparturinn af fylgi Kvennalist- ans hafi gengið til liðs við sam- tökin. Þar að auki hafa þeir hjá Vinstri grænum losnað við þann höfuðverk að samræma sjónar- miðin. Þeir gátu tekið stefnu Al- þýðubandalagsins upp nokkurn vegin óbreytta með áherslu á um- hverfismál, meðan þeir hjá Sam- fylkingunni þurftu að samræma sjónarmiðin. „Vinstri grænir“ Fróðlegt verður að fylgjast með gangi mála á næstunni. Sam- fylkingin þarf mjög á því að halda að koma skipulagsmálum sínum á hreint með flokksstofn- un og kjöri á leiðtoga. A meðan geta Vinstri grænir reynt að treysta sig í sessi og halda utan um það fylgi sem þeir hafa feng- ið í skoðanakönnunum. Þeir munu gera út á andstöðu við einkavæðingu, andstöðu við nán- ari samskipti við Evrópuþjóðir, andstöðu gegn Nato, og einnig munu þeir telja sig hafa ráð und- ir rifi hverju í byggðamálum. Hvort þessi andstöðupólitík dug- ar til þess að vera 20% flokkur verður framtíðin að skera úr um. Eg trúi því vart að svo verði. Hins vegar nægir þessi pólitík áreiðan- lega til þess að verða 10-15% flokkur. Styrkur Sjálfstæðisflokksins Hræringarnar á vinstri væng stjórnmálanna hafa eins og ávallt áður styrkt Sjálfstæðisflokkinn, sem hefur trausta stöðu sam- kvæmt skoðanakönnunum. Sjálf- stæðisflokkurinn hefur fengið fríspil undanfarið, og afstaða Vinstri grænna gagnvart þeim flokki er mjög athyglisverð. Al- þýðubandalagið kynnti sig sem höfðuðandstæðing Sjálfstæðis- flokksins. Athyglisvert er að Steingrímur Sigfússon kynnir sinn flokk ekki þannig. Af mál- flutningi hans má ráða að höfuð- andstæðingur Vinstri grænna sé Framsóknarflokkurinn. I ræðum hans á Alþingi nú lyrir jólin lagði hann sérstaka áherslu á Fram- sóknarflokkinn þegar hann ræddi um stjórnarflokkana og ranga stefnu þeirra að hans mati. Það er alveg ljóst að með þessum málflutningi er Steingrímur að gera út á grátt svæði sem Iöngum hefur verið á milli Framsóknar- flokksins og Alþýðubandalagsins. Þarna er um að ræða þjóðernis- sinnað félagshyggjufólk, fólk sem hefur ekki sætt sig til fulls við varnarliðið á Keflavíkurflugvelli og hefur andvara á sér gagnvart einkavæðingunni. Þetta fólk lítur á Sjálfstæðisflokkinn sem sinn höfuðandstæðing. Það er því mikil þversögn í því fólgin að Steingrímur tali til þessa fólks um leið og hann afskrifar Sjálf- stæðisflokkinn sem höfuðand- stæðing. Það liggur í augum uppi að hann vill komast á þá stöðu að hann sé valkostur fyrir Sjálfstæð- isflokkinn að starfa með og lokar ekki neinum dyrum á það. Þessi málflutningur er svo áberandi að Sjálfstæðismenn taka vel eftir honum og hafa haft orð á honum við undirritaðan. Löng valdatíð, fleiri óvinir Framsóknarflokkurinn hefur ver- ið slakur í skoðanakönnunum undanfarið. Svo hefur löngum verið á milli kosninga. Flokkur- inn er í skotlínunni og margir gera sér það að skyldu að gagn- rýna forustumenn hans sem standa í eldlínunni í erfiðum málum. Það skiptir hins vegar mestu máli að missa ekki sjónar af takmarki sínu í baráttu dags- ins. Flokkurinn hefur verið í for- ustu á miklu framfara- og breyt- ingaskeiði í lok þessarar aldar, verið í ríkisstjórn síðan árið 1971 að fjórum árum undanskildum. Þessi langa ábyrgð á málum hef- ur skapað flokknum og forustu hans marga andstæðinga, en það er ekki annað en taka því. Það er niðurstaðan sem skiptir máli. Þessi tími hefur verið mesta hag- sældarskeið sem þessi þjóð hefur upplifað. Enginn getur borið á móti því að hér er framsækið vel- ferðarþjóðfélag, og lífskjör með því sem þau gerast best. Það þýð- ir ekki að hér séu ekki vandamál við að fást. Rótleysi í samfélag- inu og neysla vímuefna eru vandamál sem þarf að snúast gegn af alvöru. Byggðaröskun er alvarlegt vandamál og einnig þarf ætíð að huga að þeim sem böll- um fæti standa í samfélaginu. Þessi verkefni blasa við á nýrri öld. 20 milljarðar í bílalán á einu ári JÓHANNA SIGURÐAR DÓTTIR alþingismadur skrifar Viðskiptaráðherra hefur á Alþingi svarað fyrirspurn minni um útlán hjá tryggingarfélögum og eignar- leigum. Útlán eignarleigufyrir- tækja til einstaklinga hafa aukist um hátt í 500% á 4 árum. Þau voru 1.997 millj. kr. 1995 en voru á árinu 1998 9.297 millj. kr. Aætla má að þessu útlán sem eru að verulegu leyti hjá Glitni og Lýsingu séu mest vegna bílalána. Útlán vátryggingafélaga voru tæpir 6 milljarðar 1996 en voru 1998 rúmlega 10 milljarðar króna og hafa aukist um 68% á þremur árum. Af þessu má áætla að um 20 milljarðar hafi farið í bílalán hjá eignarleigufyrir- tækjum og tryggingafélögum 1998. Innnflutningur á bílum til einstaklinga hefur þrefaldast frá árinu 1994 en þá var hann um 6.400 bílar en þessu ári voru fluttir inn um 18 þúsund bílar. M.v. 20 milljarða bílalán trygg- ingafélaga og eignarleigufyrir- tækja á árinu 1998 og influtta bíla sem voru 16.700 á því ári má ætla að meðallán á hvern inn- fluttan bíl hjá þessum aðilum hafi verið rúmlega 1 milljón kr. á síðasta ári. Aukning á bflaeign meiri en á íbúðaeign Þessar fjárhæðir í bílalán á einu ári eru fyrir utan útlán bankanna sem á árinu 1998 voru 106 millj- arðar króna, sem ætla má að sé að töluverðu leyti vegna bílalána í bönkunum, en útlán bankanna til einstaklinga hafa tvöfaldast á fjórum árutn. Þétfa kemur heima og saman við að 62 milljarða eignaaukning heimilanna í land- inu er mest vegna aukinna bif- reiðaeignar eða 34 milljarðar, en 28 milljarðar eru vegna fbúða- eignar á sama tíma og skuldir heimilanna hafa aukist um 144 milljarða króna. Óábyrg útlánastefna Þessi staða endurspeglar þá gíf- urlegu þenslu sem er í þjóðfélag- inu. Ekkert er auðveldara en að kaupa og taka allt að láni, bíla, heimilistæki, utanlandsferðir, bara nefna það. Innlánsstofnan- ir, krítarkortafyrirtæki, trygginga- félög, eignarleigur lána og lána. Greiðslumat sem lánveitingar nýja íbúðalánasjóðsins byggja á miðast við framfærslukostnað sem er út úr öllu korti, enda hef- ur Ráðgjafastofa heimilanna var- að við þeirri viðmiðun. Allstaðar blasa við freístingarn- ar,; Kaupið nú, greiðið síðar. Ekki er spurt um greiðslugetu, bara veðsetningu vegna lánanna hjá lánastofnunum. Ekki er ólíklegt að lánastofnanir muni eignast drjúgan hluta af nýjum bílaflota landsmanna komi til mikillar niðursveiflu eða efnahagskreppu. Neysluæöi Þetta neysluæði í þjóðfélaginu og óábyrg úllánastefna Iánafyrir- tækja er mikið áhyggjuefni. Þetta kemur fram í litlum þjóðhagsleg- um sparnaði sem ekki hefur ver- ið minni um langt skeið eða síð- an í lok áttunda áratugarins og er nú aðeins 14% af Iandsfram- leiðslu. Seðlabankinn og Þjóð- hagsstofnun telja að hann þurfi að aukast um 30 milljarða eða fara í 19% af þjóðarframleiðslu, til að sparnaðurinn standi undir áformaðri Qárfestingu á næsta ári. Neysluæðið kemur einnig fram í miklum viðskiptahalla sém spáð var í október að ýrði 29 milljarðar króna en stefnir nú i að verða 38 milljarða á þessu ári. Eiúkenni fjármálakreppu Margt í efnahags- og fjár- málaumhverfinu nú ber ein- kenni, sem getur verið undanfari fjármálakreppu eða bankahruns. A því vakti Seðlabankinn m.a. at- hygli í ársskýrslu sinni s.l. vor, þar sem leitast var við að greina rætur fjármálakreppu og vís- bendingar sem gætu orðið til að vara við slíkum kreppum. Bent var m.a. á að útlánaþensla og mikil hækkun fasteignaverðs eða hlutabréfaverðs væru yfirleitt undanfari bankakreppu, sem brjótist út þegar hlutabréfaverð eða fasteignaverð fellur. Fæstir vilja af þessu vita, en hversu lengi er hægt að berja hausnum við steininn? .innió'jloalöfniiii; «

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.