Dagur - 28.12.1999, Síða 8
8 - ÞRIÐJUDAGU R 28. DESEMBER 199 9
FRETTASKYRING
Drekkum 1,7 milljóii
GUÐ-
MyiVDUR
RIJNAR
HEEÐARS-
SON
Níu lítrar á hvem lög-
ráða íslending. Vín
selt fyrir 1,5 milljarð.
Spáð brjáluðu veðri
um áramótiu. Minua
um erlenda ferða-
menn. Flugeldar fyrir
100-200 milljónir.
Mikill viðbúnaður.
2000-vandinn fyrir 2-
10 milljarða.
Það verður eflaust mikið um
dýrðir hjá landsmönnum um
komandi áramót eins og víðar um
heiminn þegar fagnað verður
nýju ársþúsundi og eða nýrri öld.
Hinsvegar er spáð mjög leiðin-
legu veðri á gamlársdag og jafnvel
hávaðaroki með tilheyrandi úr-
komu. Þrátt fyrir þessa spá virðist
ekkert lát á undirbúningi fyrir
áramótin þar sem ilestir stefna að
því að fagna nýju ári á með pompi
og prakt. Aftur á móti verður
minna um erlenda ferðamenn á
landinu en búist var við. Sömu-
leiðis hefur minna verið um
heimsendaspár en reiknað var
með. Þá verða haldnar margar
stássveislurnar á nýárskvöld og
meðal annars híður Menningar-
borg Reykjavíkur um 300 gestum
í Perluna á gamlárskvöld. Miðinn
á þessar veislur getur kostað allt
að því 32 þúsund krónur fyrir
manninn. Sem dæmi er gert ráð
fyrir því að landsmenn eyði hátt í
200 milljónum króna í flugelda
og drekki áfengi lyrir allt að 1,5
milljarð króna í mánuðinum. Þar
fyrir utan leggur fólk í töluverðan
kostnað í mat, fatnaði og ýmsum
öðrum varningi sem sérstaklega
er merkur 2000 ártalinu. Vegna
hugsanlegra tölvuvandamála og
keðjuverkana sem af því geta orð-
ið vegna áramótanna er mun
meiri viðbúnaður hjá þeim sem
vinna að almannavörnum og lög-
gæslu en við hefðbundin áramót.
Aætlað er að kostnaður vegna
meints 2000-vanda geti numið 2-
10 milljörðum króna.
„Sprengilægð“
Þorsteinn Jónsson veðurfræðing-
ur á Veðurstofu Islands segir að
samkvæmt veðurkortum verði
áramótaveðrið mjög slæmt, enda
búist við hvassviðri og úrkomu
um land allt á gamlárs- og nýárs-
dag. Hinsvegar ber tölvuspám
ekki saman úr hvaða átt vindur-
inn muni blása. Það ræðst til
dæmis af því hvort lægðin fer
beint yfir Iandið eða vestur fyrir
landið. Sú afstaða getur líka ráð-
ið því hvort úrkoman verður rign-
ing eða snjór. Aftur á móti virðist
nánast borðleggjandi að það verði
Iágskýjað og því hætt við að
skyggni verði ekki eins og best
verður á kosið um allt landið.
Þorsteinn segir að þessi áramóta-
lægð sé kölluð „sprengjulægð"
vegna þess hvað hún dýpkar
hratt. Þegar síðast fréttist bentu
spár til þess að Iægðin gæti orðið
allt að 929 millbör sem þykir rpeð
myndarlegri vetrarlægðum. Þessi
lægð er því ekki í neinum tengsl-
um við fellibylji, enda enginn
slíkur á ferli um þessar stundir.
Ef spáin fer á versta veg mun
Veðurstofan gefa út stormviðvör-
un sólarhring áður en veðrið
skellur á.
Allir á tánum J
Haukur Ingibergsson formaður
2000-nefndar ríkisstjórnarinnar
segist telja að íslenskt þjóðfélag
hafi brugðist afar vel við því kalli
að hafa allan búnað 2000-hæfan.
Enda ætla menn að stóru kerfin
séu eins vel undir þetta búin og
kostur sé og virki eðlilega. Þarna
sé meðal annars um að ræða raf-
orkukerfið, fjarskiptakerfið og
fjármálakerfið svo nokkuð sé
nefnt. Hinsvegar sé aldrei hægt
að útiloka það að mönnum hafi
getað yfirsést eitthvað eða að eitt-
hvað virki ekki eins og ætlast sé
til. Haukur segir að nefndin verði
í samstarfi við Almannavarnir og
Ríkisútvarpið og þá aðila sem
verða með vaktir um áramótin. I
þessu samstarfi verður meðal
annars Ieitast við að hafa yfirsýn
með því sem verður að gerast er-
lendis á þessum tímamótum á
meðan daglínan er að ganga yfir.
Síðan hefst vöktun á því sem er
að gerast hér innanlands á mið-
nætti á gamlárskvöld og eitthvað
fram eftir nóttu. Á nýársdag og
sunnudaginn verða víða um-
fangsmiklar prófanir á kerfum
sem fylgst verður með eftir föng-
um. Sömuleiðis verður íylgst með
því hvort allt sé ekki í lagi þegar
þjóðlífið tekur á ný til almennra
starfa mánudaginn 3. janúar. Þá
sé viðbúið að einhver hundruð
manna verði í vinnu um áramótin
við eftirlitsstörf vegna hugsanlegs
2000-vanda sem ella hefðu verið
heima. Haukur segir að margir
hafi styrkt vaktir hjá sér og aðrir
komið á vöktum scm ekki voru
fyrir til að fylgjast með sínum
búnaði. Hann segist hinsvegar
ekki geta giskað á hvað hugsan-
legur 2000-vandi hefur kostað
þjóðfélagið. Hinsvegar hafa kom-
ið fram áætlanir um að þessi
kostnaður geti verið allt frá
tveimur upp í tíu milljarðar. Það
sé aftur á móti erfitt að meta
þetta og meðal annars vegna þess
að margir hafa notað tækifærið til
að endurbæta búnað og annað
sem þeir hefðu ekki gert fyrr en
seinna. Þessutan hafa ýmsir hald-
ið að sér höndum með markaðs-
setningu á vörum og þjónustu
síðustu vikur og mánuði til að
auka ekki álag á tölvukerfin sín.
Heima er best
I upphafi ársins gerðu margir
innan ferðaþjónustunnar sér von-
ir um mikil uppgrip vegna mikils
fjölda erlendra ferðmanna vegna
Flugeldasalan undirbúin hjá Landsbjörg/Hjálparsveit skáta í Re
2000 áramótanna. í það minnsta
var mikið um fyrirspurnír og hót-
elbókanir. Þegar á reyndi hefur
hinsvegar orðið heldur minna úr
þessum Ijölda en búist var við. Af
þeim sökum munu enn vera laus
herbergi á nokkrum hótelum í
borginni. Engu að síður mun vera
fullt bæði á Sögu, Grand hóteli
og Hótel íslandi svo dæmi sé tek-
ið. Þá hefur Radison-hótelkeðjan
gert það að skilyrði að hótelstjór-
ar verði á vakt um áramótin
vegna hugsanlegs 2000-vanda.
Þorleifur Þór Jónsson hagfræð-
ingur hjá Samtökum ferðaþjón-
ustunnar segir að ástæðan íyrir
því að ekki sé uppselt á öllum
hótelum höfuðborgarinnar sé
einfaldlega sú að fólk vilji vera
heima hjá sér í faðmi fjölskyld-
unnar um þessi áramót. Þrátt fyr-
ir það telur hann að útlitið sé vel
þokkalegt með tilliti til þess hvað
sé búið að staðfesta í bókunum á
hótelherbergjum um áramótin.
Af þeim sökum ættu kannski að
gista um 2.500 erlendir ferða-
menn á hótelum höfuðborgarinn-
ar um áramótin. Þessutan sé
Haukur Ingibergsson formaður
2000-nefndarinnar:
„Eins vei undirbúnir og
kostur er.“
Höskuldur Jónsson forstjóri ATVR:
„Veitan í desembermánuði
tvöfalt meiri en í venjulegum
mánuði."
Sigurður Jónsson framkvæmda-
stjóri hjá Samtökum verslunar og
þjónustu: „Smókingskyrtur með
2000 - ártalið á skyrtukraganum."
Jón Viðar Matthíasson
varaslökkviliðsstjóri:
„Meiri viðbúnaður en áður um
áramótin."
I