Dagur - 28.12.1999, Side 10
n *-
n n o 1« i •> 'r
i| n r
10 -ÞRIÐJUDAGIJR 21. DESEMBER 1999
SMAAUGLYSINGAR
Einkamál
Árnað heilla
34 ára karlmaður vill kynnast góðri
vinkonu. Þarf að vera jákvæð og góð. Það
væri mjög gott að fá svar sem fyrst. Uppl. í
síma 869-4772
Til leiqu
Til leigu stúdióibúð, laus um áramót.
Reglusemi áskilin. Uppl. í síma 462-4100
ogeftir kl. 21.00 462-3539
VIÐ ERUM MIÐSVÆÐIS
MELVEGUR 17 • HVAMMSTANGA
SÍMI 451 2617 • FAX 451 2890
Fimmtudaginn 30. desember nk. verður
Kristján Ólafsson Bjarkarbraut 11 Dalvík 60
ára, af því tilefni býður hann vinum og
ættingjum til afmælisfagnaðar í safn-
aðarheimili Dalvíkurkirkju kl. 19.00.
Frumsýning á íslandi
Halti Billi frá Miðey
eftir Martin McDonagh
Leikstjóri Hallmar Sigurðsson
Þriðjudaginn 28. desember kl. 20:30
Næstu sýningar
Föstudaginn 7. janúar kl. 20:30
Laugardaginn 8. janúar kl. 16:00
Miðasala í síma 462 1129
UTBOÐ
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboðum í endur-
málun í grunnskólum Reykjavíkur.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar á kr. 1.000.
Opnun tilboða: 5. janúar 2000, kl. 14:00 á sama stað.
Við vekjum athygli á því að lokað verður hjá Innkaupastofnun á
gamlársdag.
Linnkaupastofnun
REYKJAVÍKURBORGAR
Frfkirkjuvegi 3 - Pósthólf 878 - 121 Reykjavík - Sími 552 5800
Bréfsími 562 2616/561 1120. Netfang: isr@rhus.rvk.is
Veffang: www.reykjavik.is/innkaupastofnun - 660169-4079
I
I
UTBOÐ
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboðum í endur-
málun fasteigna íþrótta- og tómstundaráðs.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar á kr. 1.000.
Opnun tilboða: 6. janúar 2000, kl. 14:00 á sama stað.
Við vekjum athygli á því að lokað verður hjá Innkaupastofnun á
gamlársdag.
Linnkaupastofnun
REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Pósthólf 878 - 121 Reykjavík - Sími 552 5800
Bréfsími 562 2616/561 1120. Netfang: isr@rhus.rvk.is
Veffang: www.reykjavik.is/innkaupastofnun - 660169-4079
IBIO
fBKiðjud.
:jð. 15, 17 ki. 15
c. ,n Miönverd'
-7 kr 200«
y. Qö[50*; > DD@ **
D I G I T * L D I G l T A L
Qé
nvjfl bio
RÁÐHÚSTORGI
□QlnomYj I l_| V-
D I G I T A L I rl A
SÍMI 461 4666
Sýndkl. 23:15 -
18:40 og 21 n
kl. 15 og 16:50
kl-15 m/ísl.tali
HVAB ER Á SEYfll?
HATIÐARHLJOMAR VID ARAMOT
A gamlárs-
dag, 31. des-
ember, verða
að venju tón-
leikar í Hall-
grímskirkju
undir yfir-
skriftinni
„Hátíðar-
hljómar við
áramót."
Trompetleik-
ararnir Ás-
geir H.
Steingríms-
son og Eirík-
ur Orn Páls-
son ásamt
Herði Ás-
kelssyni org-
elleikara flytja tónlist eftir Albinoni, Frescobaldi, Handel, Widor og
Þorkel Sigurbjörnsson. Tónleikarnir hefjast klukkan 17.00 en í
framhaldi af þeim verður sunginn aftansöngur í kirkjunni kl. 18.00.
Þar sem Jón Þorsteinsson tenór og Mótettukór Hallgrímskirkju
koma fram. Prestur er séra Jón Dalbú Hróbjartsson.
Hátíðarhljómar við áramót hafa átt sér fastan sess í tónlistarlífi
Hallgrímsldrkju síðan stóra orgelið var tekið í notkun árið 1992.
Efnisskráin samanstendur af verkum sem höfða til stórs hlustenda-
hóps og hafa tónleikarnir jafnan verið mjög vel sóttir. Á tónleikun-
um í ár verða flutt Adagio eftir Albinoni, tvær kansónur eftir
Frescobaldi, svíta úr Vatnamúsíkinni eftir Handel og Intrada eftir
Þorkel Sigurbjörnsson. Auk þess leikur Hörður Áskelsson þekktasta
orgelverk franska orgeltónskáldsins Charles-Marie Widor, Tokkötu
í F-dúr. Sem eftirspil við aftansönginn að loknum tónleikunum
leikur Hörður Tokkötu og fúgu í d-moll eftir Johann Sebastian
Bach, en það tónverk hefur hingað til átt fastan sess í efnisskrá Há-
tíðarhljómanna.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Kvöld dapurleika og trega
I kvöld og annað kvöld verða
flutt ljóð og tónlist helguð dap-
urleika og trega í Sölvasal
kaffihússins Sólon Islandus í
Bankastræti. Flytjendur eru
franski bandoneonleikarinn
Olivier Manoury ásamt Tómasi
R. Einarssyni á bassa, en textar
verða fluttir af Fríðu Björk
Ingvadóttur. Á efnisskrá er
búið að velja saman margvís-
lega tónlist og texta frá ýmsum
heimshluum sem eiga þema
„melankólinunnar“ sameigin-
legt. Tónlistin er m.a. eftir Ant-
onio Carlos Johim, Thelonisu
Monk, Olivier Manoury og
Tómas R. Einarsson. Textarnir
eru eftir Jaques Prevert,
Wallace Stevens, Thor Vil-
hjálmsson, Vigdísi Grímsdóttur
og fleiri. Tónleikarnir hefjast
kl. 21.00.
Maggi og Rut á Kaffi Reykja-
vík
Tónlistarmennirnir Magnús
Kjartansson og Rut Reginalds
leiða saman hesta sína á Kaffi
Reykjavík í kvöld og hefja leik
sinn klukkan 22.00.
Börnin á bak
I húsdýragarðinum geta börn
brugðið sér á hestbak milli
klukkan 13.00 og 15.00 í dag.
ÞORLÁKSSHÖFN
Menningarkvöld í Þorláks-
kirkju
Jónas Ingimundarson, píanó-
leikari, leikur í Þorlákskirkju í
kvöld kl. 20.30. Haukur Ingi
Jónasson guðfræðingur flytur
hugleiðingu og sóknarprestur
flytur ávarp í upphafi og lýkur
stundinni með bæn og blessun.
Allir eru velkomndir. Aðgangur
er ókeypis.
FRA DEGI TIL DAGS
ÞRIÐJUDAGURINN 28. DESEMBER
362. dagur ársins, 3 dagar eftir.
Sólris ld. 11.22, sólarlag kl. 15.36.
Þau fæddust 28. desember
• 1856 fæddist Wilson Woodrow, sem
var 28. forseti Bandaríkjanna (1913-
21).
• 1889 fæddist þýski kvikmyndaleik-
stjórinn F.W. Murnau.
• 1890 fæddist sænski Ieikarinn og leik-
stjórinn Gösta Ekman.
• 1908 fæddist bandaríski rithöfundur-
inn og leikarinn Quentin Crisp, sem
lést 21. nóvember síðastliðinn.
• 1932 fæddist argentínski rithöfundur-
inn Manuel Puig.
• 1934 fæddist breska leikkonan
Maggie Smith.
• 1935 fæddist Ellý Vilhjálmsdóttir
söngkona.
• 1945 fæddist Helga Jónsdóttir leik-
kona.
• 1946 fæddist rokkarinn Edgar Winter.
Þetta gerðist 28. desember
• 1594 var leikrit eftir Shakespeare í
fyrsta sinn flutt á sviði, svo vitað sé.
• 1836 viðurkenndu Spánverjar sjálf-
stæði Mexíkó.
• 1871 fluttu skólapiltar í Reykjavík
leikritið „Nýársnóttina“ eftir Indriða
Einarsson.
• 1887 flutti Bríet Bjarnhéðinsdóttir
fyrirlestur í Góðtemplarahúsinu í
Reykjavík um kjör og réttindi kvenna.
• 1895 stóðu Lumiére-bræður í Parfs
fyrir íyrstu opinberu kvikmyndasýn-
ingunni, sem selt var inn á.
• 1965 reis eyja úr hafi rétt hjá Surtsey,
sem hlaut nafnið Jólnir, en hún hvarf
aftur í október árið eftir.
• 1985 undirrituðu múslimar og kristn-
ir í Líbanon friðarsamkomulag.
Vísa dagsins
Sálardjú'pur, sagnfróður
sögur og bögur ritar,
mennta hjúpi margskreyttur
frá Minna-Núpi Brynjólfur.
Símon Dalaskáld
Afmælisbam dagsins
Leikarinn Denzel Washington fædd-
ist þann 28. desember árið 1954 í
bænum Mt. Vernon í New York-fylki.
Að loknu menntaskólanámi innrit-
aði hann sig í Fordham-háskólann
og ætlaði að leggja stund á blaða-
mennsku. Hann lék nokkrum sinn-
um á sviði á háskólaárum sínum.
Fyrsta hlutverk hans í kvikmyd var í
myndinni Cabon Copy frá árinu
1981. Síðan hefur hann leikið ýmis
hlutverk. Árið 1982 giftist hann
æskuástinni sinni Paulettu Pearson.
Heimskan er algengsta frumefnið í al-
heiminum. Hví skyldum við ekki ræða
það?
Frank Zappa
Heilabrot
Eins og allir vita er nýjársdagur nákvæm-
lega viku á eftir jóladegi. Samt kemur það
fyrir að jóladag og nýjársdag ber upp á sama
árið. Hversu oft gerist það?
Lausn á síðustu heilabrotum: Á milli
himins og jarðar er smáorðið „og“.
Veffang dagsrns
Brátt rennur upp ártal með þremur núll-
um. Mörgum hefur þetta orðið tilefni til
spádóma af ýmsu tagi, og munu þeir víst
allnokkrir spekingarnir, sem reikna með
heimsendi á næstunni. Og gott ef ekki
dómsdegi líka. Forvitnilega samantekt um
helsta svartagallsrausið, sem skotið hefur
upp kollinum, er að finna á þessum vefsíð-
•—*-——----——.— ----------—
www.religioustolerance.org/end_wrld,htm