Dagur - 28.12.1999, Síða 12
12 - ÞRIDJUDAGUR 28. DESEMBER 1999
ERLENDAR FRETTIR
Reynt að semja
við fliigræningj a
Indversk stjómvöld
em itndir inikluin
þrýstingi frá ættingj-
uni gíslanna uni að
finna friðsamlega
lausn.
Ríkisstjórn Indlands sendi í gær
sjö manna nefnd til þess að
semja við flugræningjana í
Afganistan og hófust viöræður
við þá í gær. Indverska stjórnin
var undír miklum þrýstingi frá
ættingjum gíslanna um að finna
friðsamlega lausn á málinu og
gera allt sem þyrfti til þess að
komast hjá frekara blóðbaði.
Flugræningjarnir höfðu hótað
því að hyrja að myrða farþega
indversku flugvélarinnar ef ekki
yrði gengið að kröfum þeirra, en
fresturinn sem þeir gáfu rann
hjá án þess að þeir Iétu verða af
hótun sinni. Að minnsta kosti
einn farþegi hcfur þó látist frá
því flugvélinni var rænt á föstu-
dag. Ræningjarnir munu hafa
stungið hann mcð hnífi þegar
hann neitaði að verða við fyrir-
mælum þeirra að horfa ekki
framan í þá.
Indverska flugvélin, sem er af
gerðinni Airbus, stendur nú á
flugvellinum í Kandahar í
Afganistan og hefur verið þar frá
því á laugardag. Flugvélinni var
rænt á föstudag, en þá voru um
horð í vélinni 178 farþegar og
Ættingjar gíslanna loka götu í Nýju Delhi á Indlandi til aö sýna óánægju
sína með að indverskum stjórnvöldum hafi ekki tekist að fá gíslana lausa.
1 I manns í áhöfn. Mikill meiri-
hluti farþeganna voru Indverjar,
eða 150 manns. Nokkur hluti
gíslanna hefur þegar verið látinn
laus, en í gær voru enn 160
manns í gíslingu.
Astandið um horð mun hafa
versnað síðustu daga, en með
indversku samninganefndinni
voru einnig læknar og sömuleið-
is voru nauðsynjavörur handa
gíslunum fluttar frá Indlandi.
Flugræningjarnir hafa krafist
þess að indversk stjórnvöld Iáti
lausa úr fangelsi nokkra skæru-
liða sem barist hafa í Kasmír-
héraði ásamt pakistönskum trú-
arleiðtoga, Maulana Masood
Azhar, sem var handtekinn árið
1994.
Azhar er helsti hugmynda-
fræðingur skæruliðahóps, sem
nefnist Harkat uI-Ansar. Talið er
að þessi hópur hafi meðal ann-
ars haft æfingabúðir í Afganist-
an. Þessi sami hópur tók árið
1995 fimm vestræna gísla í
Kasmír-héraði, þar á meðal
Norðmann sem fannst síðar lát-
inn og hafði verið hálshöggvinn.
Hinir fjórir gíslarnir cru enn
ófundnir og taldir látnir.
Aður en indversk stjórnvöld
höfðu ljáð máls á því að ræða
við llugræningjana höfðu stjórn-
völd Talebana í Afganistan kraf-
ist þess af ræningjunum að þeir
annað hvort gæfust upp eða
hefðu sig á hrott úr landinu.
Flugræningjarnir sögðu þá bilun
vera í eldnsneytistanki vélarinn-
ar og sendu Talebanar viðgerð-
armann til þcss að líta á það.
Fellibylitr í Evrópu
EVROPA - Tugir manns létust af völdum fellibylsins Lothar, sem
gekk yfir Evrópuríki í gær. Fyrir utan manntjónið hefur fellibylurinn
valdið miklum skemmdum víða í Frakklandi, Þýskalandi og Sviss.
Borgaryfirvöld í París skýrðu frá þvf í gær að annað hvert tré í al-
menningsgörðum borgarinnar væri ónýtt. Skipta þarf um 140.000
tré í Bois de Boulogne og Bois de Vincennes. Mikil snjókoma hefur
einnig aukið hættu á snjóflóðum, meðal annars í Sviss.
Svartar strendur af olíu
FRAKKLAND - Mikið magn af olíu hefur
borist upp á vesturströnd Frakldands, en
hún er úr olíuskipinu sem sökk út af Bretan-
íuskaga fvrir tveimur vikum. Fjöldi manns
vinnur við að hreinsa strendurnar, en sú
vinna viröist vera vonlítil því sffellt bætist við
meiri olía upp á strendurnar. Þúsundir fugla
hafa týnt Iífinu í olíubrákinni.
Oliumengun á
Bretaníuskaga.
Fyrirstaða í Grosni
RUSSLA.ND - Fyrirstaða skæruliða í Grosní, höfuðborg Téténíu,
hefur verið meiri en rússneski herinn reiknaði með. Rússar hafa
haldið uppi stöðugum árásum á borgina og Vladimír Pútín, forsæt-
isráðherra Rússlands, ítrekaði það í gær að Rússar væru staðráðnir í
að linna ekki Iátum fyrr en borgin væri fallin. Bæði er beitt þunga-
vopnum og loftárásum. Rússar sögðust í gær hafa náð norðvestur-
hluta Grosní á sitt vald, og hefðu þeir skæruliðar sem þar voru
staddir þar með einangrast frá öðrum skæruliðum í borginni. Talið
er að um 2000 skæruliðar séu enn í Grosní.
Stjómaraiidstæðmgiir sigraði
GVATjEMALA - Stjórnarandstæðingurinn Alronso Portillo sigraði í
forsetakosningum í Gvatemala um helgina, og hlaut 67,5 prósent
atkvæða. Þetta er í fýrsta sinn í nærri 40 ár sem haldnar eru forseta-
kosningar í Gvatemala á friðartímum. Mótframbjóðandinn, Oscar
Berger, hlaut aðeins 32,5 prósent atkvæða, en hann naut stuðnings
forseta landsins og stjórnarflokksins. Portillo lagði í kosningabarátt-
unni áherslu á baráttu gegn glæpum, atvinnuleysi og fátækt.
Barak
missti meiri
hlutann
Ehud Barak, forsætisráðherra
Israels, nýtur ekki lengur
meirihluta á ísraelska þinginu.
Shas, flokkur réttrúaðra Gyð-
inga, gekk í gær úr stjórninni.
Ríkisstjórnin nýtur nú aðeins
stuðnings 51 af 120 þing-
mönnum í Israel.
Shas-flokkurinn var næst-
stærsti flokkurinn í ríkisstjórn
Baraks, með 17 þingmenn,
þannig að verulega munar um
hann. Þetta kemur sér sérstak-
lega illa fyrir Barak nú þegar
samningaviðræður við Sýr-
lendinga eru nýbyrjaðar, og
samningaviðræður við Palest-
ínumenn eru á erfiðu stigi.
Ríkisstjórnin er þó ekki fall-
in, því ýmsir smærri flokkar
araba og aðrir stjórnarand-
stöðuflokkar hafa heitið
stjórninni stuðningi í ýmsum
málum og líka ef vantrauststil-
laga kemur fram.
Barak bað Shas-flokkinn um
að bíða í sólarhring með end-
anlcga ákvörðun, og sumir
þingmenn flokksins scgjast
vongóðir um að lausn muni
finnast á þessari stjórnar-
krejjpu, en aðrir ekki.
Ástæðan fyrir því að Shas
sagði skilið við stjórnina er að
rétttrúaðir Gyðingar vilja fá
meira fé til reksturs trúar-
skóla. Formaður þingflokks
Shas sagði að flokkurinn
myndi örugglega greiða at-
kvæði gegn fjárlagafrumvarpi
stjórnarinnar, og væri þar með
ekki lcngur aðili að stjórninni.
ÍÞRÓTTIR
Úlafur Ragnar Grímsson forseti íslands þiggur tertusneið frá nýkjörnum
íþróttamanni ársins 1999, Erni Arnarsyni.
Öm Arnarson
íþróttamaður
ársins 1999
Hafuflrðinguriim Örn
Amarsson var í gær-
kvöld kjörinn íþrótta-
niaður ársins í annað
sinn. Eyjólfur Sverr-
isson, landsliðsfyrir-
liði í knattspymu,
lenti í öðm sætinu og
Vala Flosadóttir,
frjálsíþróttakona, í
því þriðja.
Sundmaðurinn Orn Arnarson úr
Sunclfélagi Hafnarfjarðar, var í
gærkvöld kjörinn íþróttamaður
ársins af Samtökum íþrótta-
fréttamanna, annað árið í röð.
Örn, sem vann tvo Evrópumeist-
aratitla á árinu, í 100 og 200 m
baksundi, hlaut afgerandi kosn-
ingu í fyrsta sætið, með alls 347
stig. Orn er vel að titlinum kom-
inn, cnda án efa okkar fremsti
íþróttamaður í dag, sem hann
sannaði svo rækilega á Evrópu-
meistaramótinu í Lissabon, þar
sem hann vann áðurnefnda titla.
Eyjólfur Sverrisson, Iandsliðs-
fyrirliði í knattspyrnu og leik-
maður Herthu Berlín í Þýska-
landi, lenli í öðru sæti í kjörinu,
með 264 stig. Hann var lykil-
maður mcð félagsliði sínu og
stóð sig einnig frábærlega með
íslenska landsliðinu, sem á árinu
náði sínum besta árangri á stór-
móti til þessa.
I þriðja sæti varð Vala Flosa-
dóttir, stangarstökkvari úr IR,
með 239 stig. Vala náði frábær-
um árangri í stangarstökki á ár-
inu og vann meðal annars silfur-
verðlaun á HM innanhúss í Jap-
an, sem er besti árangur Islend-
ings á HM til þessa.
Alls fengu 29 íþróttameim
stig í kjörinu:
1. Orn Arnarson, 347
2. Eyjólfur Sverrisson, 264
3. Vala Flosadóttir, 239
4. Ólafur Stefánsson, 95
5. Rúnar Kristinsson, 91
6. Rúnar Alexandersson, 61
7. Kristinn Björnsson, 59
8. Bjarki Sigurðsson, 55
9. Sigurbjörn Bárðarson, 48
10. Þórður Guðjónsson, 33
I I. Elva Rut Jónsdóttir, 32
12. Auðunn Jónsson, 30
13. Guðrún Arnardóttir, 28
14. Jón Arnar Magnússon, 26
I 5. Vernharð Þorleifsson, 21
16. Halldór Jóhannsson, 19
1 7. Þórey Edda Elísdóttir, 18
18. Birkir Kristinsson, 15
18. Guðmundur Benediktss., 15
20. Eiöur Smári Guðjohnsen, 10
21. Róbert Julian Duranona, 5
22. Edda Lovísa Blöndal, 3
22. Einar Karl Hjartarson, 3
24. Elsa Nielsen, 2
24. Gísli G. Jónsson, 2
24. Lára Hrund Bjargardóttir, 2
27. Björgvin Sigurbergsson, 1
27. Ingibergur Sigurðsson, 1
27. Rúnar Jónsson, 1