Dagur - 11.03.2000, Síða 13
i.írm í i.andinij
LAUGARDAGUR 11. MARS 2000 - 29
gfósástaeif
'wNDmUNOÍ’
«vuun
MöBtbtJií
Mmí í
’aa&M
UffJMUNDA-
A **OK
KOitowri
SÍFI6LO* TJÖRN
s%S?*?66íuo5!í'
HIHUt%S*R8Jfc
fáWAVífN
SILFRUH/SÐ
afktitwas cst4;iáa Kfm
Krökkt á Kristn i hátíð?
Kristnihátíðarnefnd
reiknar með allt að fjórð-
ungi þjóðarinnar á
Kristnihátíð á Þingvöllum
í sumar.
Landsmenn eiga von á bæklingi
frá Kristnihátíðarnefnd um dag-
skrá og skipulag Kristnihátíðar á
Þingvöllum 1. og 2. júlí í sumar.
Þar getur að líta meðfylgjandi
kort hér að ofan sem sýnir hátíð-
arsvæðið og skipulag þess.
Allri íslensku þjóðinni er boðið
á Kristnihátíðina á Þingvöllum en
að auki verða sérstakir gestir há-
tíðarinnar, innlendir og erlendir.
Sérstakir innlendir gestir verða
forseti Islands, ríkisstjóm, alþing-
ismenn, Hæstaréttardómarar,
biskupar, prestar og ýmsir aðrir.
Gert er ráð fyrir að sérstakir er-
lendir gestir hátíðarinnar verði
180 til 200. Starfsmenn og þátt-
takendur í ýmsum viðhurðum á
hátíðinni verða um eða yfir 3 þús-
und.
Risasvið
Aðalsvið hátíðarinnar er það
stærsta sem upp hefur verið sett
hér á landi. Gólfilöturinn er um
550 fermetrar og tjaldið 12 metra
hátt. Þrjú veitingatjöld verða á
svæðinu og er hvert þeirra um
500 fermetrar. Sérstakt tilbúið
eldhús í gámi verður leigt erlend-
is frá. Sölutjöld verða tuttugu. A
þjónustutorginu verða sex 12 fer-
metra tjöld en þar verður veitt
ýmiss konar þjónusta. Þá verður
einnig sett upp sérstakt skrúðhús
fyrir presta, aðstaða fyrir starfs-
menn, varðstofa lögreglu og
sjúkrastofa.
Rútuferðir og bílastæði
Gert er ráð fyrir að rútur fari frá 4
til 5 stöðum á höfuðborgarsvæð-
inu. Allar rútur frá höfuðborgar-
svæðinu fara um Nesjavallaveg,
þaðan eftir nýjum Grafningsvegi
að Þingvallavegi og loks um 7 km
veg sem verður lagður samhliða
Þingvallavegi að sérstökum stæð-
um fyrir rútur á Hakinu ofan við
Almannagjá. Með þessum hætti á
að koma í veg fyrir að umferð
einkabíla og langferðabíla skarist.
Gert er ráð lyrir 23 þúsund bif-
reiðastæðum á sjö stöðum. Þar að
auki verða sérstök stæði fyrir rút-
ur á Hakinu ofan við AJmannagjá.
Einkabílastæði eru í eins til
tveggja kílómetra gönguíjarlægð
frá hátíðarsvæðinu en styttra er
frá rútubílastæðunum.
Samstarf verður við samtök
fatlaðra og hreyfihamlaðra um
að einstaklingar innan þeirra
vébanda komi ekki á einkabíl-
um heldur með rútum. Þessar
rútur fara yfir Hellisheiði, upp
Grímsnesið og eftir Vallavegi til
Valhallar.
Nóg af salemum
Skipulögð verða tjaldstæði við
Skógarhóla um 2 km norðan við
þjónustumiðstöðina á Þingvöllum
og jafnframt verða tjaldstæðin á
skátasvæðinu við Ulfljótsvatn til
afnota fyrir hátíðargesti.
A Kristnihátíðinni verða 366
salerni eða meira en helmingi
fleiri en voru á Þingvallahátíðinni
1994. Auk þess verður stóraukin
þjónusta hvað varðar þrif, tæm-
ingar og áfyllingar. Salerni verða
þar að auki á fleiri stöðum og
meðal annars á bílastæðum.
Köttur úti í mýri..
...úti er ævintyri.
Átak til að fækka
flækingsköttum í
Breiðholti
í samræmi við samþykkt um
kattahald í Reykjavík
tilkynnist hér með að
dagana Kk til 25. mars mun
sérstakt átak gert til að fanga
flækingsketti í Breiðholti.
Kattaeigendur í hverfinu
em hvattir til að halda
köttum sínum inni á meðan
á átakinu stendur.
Jafnframt eru kattaeigendur
minntir á að merkja ketti
sína með húðflúri (tattóveringu)
á eyrum og skrá upplýsingar
um eiganda, heimilisfang og
símanúmer. Jafngild er
örmerking skv. stöðlum
Alþjóða staðlaráðsins
(ISO 11784 eða 11785).
Oll handsömuð dýr
verða flutt í Kattholt.
Athugið
Kettir verða eingöngu
fangaðirfrá kl. 20:00 að
kvöldi til kl. 07:00 að
morgni.
Aöalfundur
Landsbanka íslands hf.
Aöalfundur Landsbanka Islands hf. veröur haldinn á Grand Hótel
Reykjavík, Sigtúni 38, föstudaginn 17. mars 2000 og hefst kl. 14:00.
Dagskrá: 1. Aðalfundarstörf samkvæmt 13 gr. samþykkta félagsins.
2. Tillögur til breytinga á samþykktum.
3. Tillaga um kaup félagsins á eigin hlutum samkvæmt 55. gr. hlutafélagalaga.
4. Önnur mál sem eru löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum sem bera á fram á aðalfundi skulu hafa borist í hendur stjórnar með
skriflegum hætti, eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund.
Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins ásamt skýrslu endurskoðenda munu
liggja frammi á skrifstofu félagsins, á Laugavegi 77, Reykjavík, hluthöfum til sýnis sjö dögum
fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa á
skrifstofu Landsbankans, Laugavegi 77, Reykjavík, frá 13.-16. mars. Atkvæðaseðlar
og önnur fundargögn verða afhent við upphaf fundarins.
Bankaráð Landsbanka lslands hf.
Hreinsunardeild Reykjavíkurborgar
l andsb.mki KImikI*