Dagur - 11.03.2000, Page 16
32 - LAUGARDAGUR 11. MARS 2000
Fluguveiðar að vetri (158)
Fiskar í eggjaleit
Hér má sjá eggið í ítarlegri útfærslu hjá Sigurði Pálssyni.
Einhveiju sinni
hitti ég veiði-
mann sem er
þjóðfrægur. Af
einhveijum
furðulegum
ástæðum barst
talið að veiði.
Þá var rökrétt að
minnast á flug-
ur. Og í fram-
haldi af því sagði
hann að málið
væri ekki erfitt með urriða að
vori: hann tæki hrogn. Ég sá mig
nú ekki hnýta hrogn á öngul.
Enda hélt hann nú ekki.
Smeygja bara lítilli bjartri kúlu af
appelsínuguluefrii á öngulinn.
Kasta upp og láta reka niður. Ein-
faldarari gat fluguhnýtingin ekki
verið, og því síður veiðiaðferðin.
Hann hafði mokað upp urriða á
þetta, gott ef ekki keypt einhveija
hnoðra í fluguhnýtingabúðum
sem kallast „egg“ upp á útlensku.
Nú veit ég að sums staðar kallast
hún Glo-bug.
Þessi saga fór í hirslu vantrúar.
En svo lenti ég í því að sjá menn
veiða á flugu sem þeir kalla „egg“,
og fá á bleikju. Nú veit ég að hún
er skæð í sjóbirting líka. Og þá er
komið að því að halda áfram að
Iíta í „tíuflugnabox" Sigurðar
Pálssonar, þar sem frá var horfið,
enda við bara hálfnuð að kanna
gripina. Hann byijar á „eggi“ í
þeirri útfærslu sem honum líkar,
og sést á mynd hér að ofan.
Kraginn er svartur, hnúðurinn er
kúlulaga fremst á búknum, rauð-
fjólublár eða gulur, afturhluti
mjókkar mjög og er svartur, skott
er svart með glitþráðum.
Siguröurfær orðið
Honum segist svo frá um síðari
helming uppáhaldsflugna sinna,
þeirra tíu sem hann myndi helst
hafa með sér við veiðar laxfiska
hér á landi:
6. „Eggið - Schaadt egg sac -
....hefur skemt mér vel í tæru
vatni. Kvöld við Breiðbalakvísl og
næsti morgunn sept. ‘97 eða 8
gleymast ekki. Fiskar virtust fáir
en heilluðust mjög og komu með
bakið uppúr á eftir flugunni.
Vatnið var eins og spegill. Fleiri
góðar stundir koma í hugann. Eg
hef bara veitt á eggið með
eldrauðum hnoðra fremst á
búknum. Pálmi Gunnarss notar
Iíka gulan hnoðra þama og veiðir
vel en vesalingur minn fær þá
ekkert.
SJH bætir við: Hef reynt þessa
útgáfu, og veit hún er góð.
7. „Street Walker...
er ein af stórum flokki amer-
ískra steelhead flugna. Það er
sannkallaður dýrðarakur og væri
fljótlegt að tína til 10-20 flugur
sem ég ég er býsna hugfaginn af.
Street Walker er bara fulltrúi fýrir
þær. Ég hvet sjóbirtingsveiði-
menn til að skoða þær flugur með
opnum huga og mæli reglulega
með fjöllyndi á þessu sviði. Sá
sem er ófeiminn við að skipta um
flugur, þó sú sem er á gefi veiði,
hlýtur marga óvænta ánægju-
stund að launum.
SJH bætir við: Hef reynt þessa
líka, hún er fagurlega (jólublá á
skrokkinn með hvítan væng. Sér-
staklega vek ég athygli á ráðgjöf-
inni sem fylgir: að skoða amer-
ísku regnbolgasilungsflugumar á
bók (American Flytying manual
eftir Hughes).
8-9. „Kóngurinn og Drottn-
ingin...
...verða að fljóta saman í þessu
skrifi. Ég kynntist þeim þannig
að sonur minn hringdi utan af
landi sumarið ‘88 og sagði:
„Heyrðu kall, mig vantar flugu
sem ég get farið með niður í Ijöm
og veit þar bleikju í sjónum. Get-
urðu ekki sent mér nokkrar?"
,Jújú“, svaraði ég, og hikaði svo-
lítið. „Þetta má ekki klikka, ég er
búin að tala þannig", sagði þá af-
kvæmið. Ég ráðfærði mig við
Engilbert (Jensen) eina ferðina
enn og hann bjargaði málinu.
„Hnýttu Kónginn og Drottning-
una, þú finnur þær í Veniard-bók-
inni“. Mikið rétt. Þetta ldikkaði
ekki þá í sjónum og síðan hefur
oft verið gaman að veiða sjó-
bleikju í ám og vötnum á þessa
fallegu flugu. Kóngsa hnýti ég á
gylltan öngul en kelluna á silfur-
litan.
SJH bætir við: Veniard bókin
er að sögn Sigurðar slík biblía að
allir sem taki sig alvarlega verði
að eiga hana. Eg læt vita þegar
ég hef fengið fiska á konungs-
hjónin. En þau em birt undir
heitinu King og Queen í Veiðflug-
um Islands. Sú næsta er alveg
feikisterk:
10. „Hér kemur ein í viðbót
og heitir Varði.
Hún hefur slegið öllu við í sjó-
bleikjuveiði, því sem ég þekki.
Ekki er hún þó óbrigðul enda hef
ég dæmi um það. Kunningi
minn sem er glöggur og fær veiði-
maður, fór með hana í Vopnafjörð
og fékk ekkert. Ég hef oft
mokveitt sjóbleikju á hana og eitt-
hvað af laxi. Bleikja snarar henni
ofaní kokið á sér ef hún kemst í
færi. Reynsla mín af henni
spannar 8 ár og er á eina lund.
Ég setti hana ekki í bókina hans
Jóns Inga, Veiðiflugur Islands,
enda var ég hræddur um að hafa
stolið hugmyndinni einhvers
staðar Sá ótti sýnist mér nú að
hafi verið ástæðulaus. Flugan er
ekki til í bók eða blaði svo hér
verður að koma uppskrift.
1. Öngull: legglöng þríkrækja
silfruð eða svört. Sé notuð svört
er gott að veíja legginn með flötu
silfri eða lakka hann hvítan með
bílalakki sem þolir sterkan þynni.
2. Haus - svartur og máluð hvít
augu á hvora hlið, talsvert áber-
andi.
3. Búkur - fremur ljósblátt flos
með vöfum úr flötu mylar silfri.
Flosið er frá Indlandi, á litlum
keflum. Gott er að lakka búkinn
vel með acryl.
4. Skegg - blátt, hænuhnakki.
5. Vængur - blátt urriðaskott
(grár íkomi) - blandið svolitlu
crystal flash í bláum tóni saman
við. Blái liturinn á skeggi og
væng er mjög líkur litnum á Blue
Elver.
Tvennt kann að fylgja notkun
þessarar flugu, sem getur verið
varasamt
1. Þungur aðgerðakvíði í
nokkra daga fyrir veiðiferð.
2. Oskaplega meirimáttar-
kennd á heimleiðinni."
Þeir sem þora að hnýta Varða
vita þá að þeir hafa verið varaðir
við.
FLUGUR
M
Stefán Jón
Halstein
skrifar
CORTLAND
, FLUGU
LINURNAR
.. HÆFA
OLLUM
AÐSTÆÐUM
Cortland 444 fíugulínumar
fást 110 gerðum sem hæfa
sérhverjum aðstæðum.
Framþungu fiugulfnurnar fást
{2 ger&um af flotlfnum, 3
ger&um af sökk-odds línum,
Intermediate ásamt 4 ger&um
af sökklfnum.
Því ekki að byrja með Cortland,
þú endar þar hvort eð er!
Fæst i næstu velðlverslun.
Sportvörugerðin
Heildsala-smásala
Mávahlíð 41, Rvik, sími 562-8383
Krossgáta nr. 177
Lausn .................
Nafn...................
Heimilisfang
Póstnúmer og staður
Helgarkrossgáta 177
I krossgátunni er gerður
greinarmunur á grönnum
og breiðum sérhljóðum.
Lausnarorð sendist til
Dags (Helgarkrossgáta nr.
177), Strandgötu 31, 600
Akureyri eða með símbréfi
í númer 460-6171.
Lausnarorð 175 var
„prjónavél". Vinningshafi
er Svanlaug Eiríksdóttir,
Kirkjuvegi 27 á Selfossi og
fær senda bókina Kóral-
forspil hafsins eftir Örn
Ólafsson. Skjaldborg gefur
út.
•T.bU.IJJiM
Verðlaun: Boðs-
dagar hjá þrem-
ur stórþjóðum,
eftir Braga Sig-
urjónsson.
Skjaldborg gefur
út.