Dagur - 11.03.2000, Síða 23

Dagur - 11.03.2000, Síða 23
Xk^ur LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2000 - 39 SKAKIUIOLAR Linares 2000 i Ofurmótið í Linares heldur í áfram og á fimmtudag, í næst- síðustu umferð, sigraði Anand sína fyrstu skák í mótinu! Margir höfðu nú líklega búist við einhverju meira þar. En staðan er annars sú fyrir síð- ustu umferðina að Kasparov og Kramnik eru efstir og jafnir með 5.5 vinninga en í 3-6 sæti eru svo þeir Leko, Anand, Khalifman og Shirov með fjóra vinninga. 1 síðustu umferð mætast svo þeir Kasparov og Anand, Khalifman og Shirov og Kramnik og Leko. Það er Ijóst að róðurinn verður þung- ur fyrir Kaspárov, því ekki er hlaupið að þvf að vinna An- and. Það er því aldrei að vita nema að við fáum nýjan sigur- vegara á stórmóti, Vladimir Kramnik! íslandsmót barnaskólasveita Um síðustu helgi fór fram Is- landsmót barnaskólasveita í skák. Melaskóli sigraði með miklum yfirburðum, en um önnur úrslit vísast til töflu. Eg vil þó vekja athygli á yfir- burðasigri Melaskóla, og ár- angri B-sveitar Lundarskóla frá Akureyri, en þeir fengu tveim vinningum meira en A - sveitin! 1. Melaskóli a-sveit 34 vinningar 2. Kársnesskóli, Kópavogi 27.5 v. 3. Ölduselsskóli 22.5 v. 4. Rimaskóli a-sveit21.5 5. Lundarskóli b-sveit 21 v. OZ.COM úrtökumótið Heljarmikið úrtökumót var haldið á netinu fyrir skömmu og var þar keppt um eitt sæti á heimsmótinu sem fram fer í Kópavogi í byijun apríl. Meðal þátttakenda á því eins og flest- um skákáhugamönnum er kunnugt verða þeir félagar Kasparov og Anand ásamt fleirum sterkum skákmönn- um. Mörg fræg nöfn mátti sjá á keppendalista mótsins áður en það byijaði, m.a. Short, Ad- ams og Svidler svo að örfá dæmi séu tekin. Þess má reyndar geta að á mótinu voru 63 stórmeistarar sem er að sjálfsögðu það langmesta sem nokkurn tímann hefur sést áður á netmóti. Jafnir og efstir urðu, nokkuð óvænt, tveir pólskir stórmeistarar Robert Kempinski og Alex Wojtki- ewicz. Þeir tefldu svo einvígi um sætið og sigraði sá síðar- nefndi örruglega 3-1. Síðustu mót innanlands Hellir hélt atkvöld síðastliðið i mánudagskvöld og urðu lykt- irnar þær að Hlíðar Þór Hreinsson sigraði með 5 vinn- ingum af 6 mögulegum. Dav- íð Kjartansson og Lárus Knútsson urðu í 2.-3. sæti með 41/2 vinning. Skákfélag Akureyrar hélt tvö mót um síðustu helgi á föstudag var 7 mínútna mót og þar sigraði Þór Valtýsson með 12.5 vinniga en í 2-3 sæti urðu þeir Öm Ragnarsson og Halldór B. Halldórsson með 10.5. Á sunnudag var svo 15. mínútna mót og urðu þar efstir og jafnir þeir Ólafur Kristjánsson og Halldór. Mikið verður um að vera í skáklífinu um helgina og ber þar hæst Atskákmót Islands og Skákþing Garöabæjar. Einstakur náungi Matthew Modine sló í gegn f myndinni Birdy. Sfðan hefur hann Ieikið í allnokkrum myndum, þar á meðal Memphis Belle og Full Metal Jacket. Hann hafnaði á sínum tíma til- boði um að leika í Top Gun þar sem hernaðar- andi myndarinnar höfðaði ekki til hans. ' Félagi hans Eric Stoltz lýsir honum sem einstök- um manni - hlýjum, heið- arlegum, staðföstum og sönnum. Vinur Modine, Liam Neeson, tekur í sama streng, segir hann göfugan og fullan af hlýju. Modine býr í Greenwich Village ásamt eiginkonu sinni og hann á einnig bóndabýli skammt frá New York sem hann er að gera upp. „Eg ætlaði mér aldrei að verða ríkur og frægur;“ segir hann’ „ég'yildi finna mér eigm>-farv.eg.“ Tvær myndirt^ru vájntánlegar á markað rh’ecT'þejssúm geð- þeldca manm/ f' árínarri leikur hann á móti Gary Oldman og í hinni á móti Charles Durning og Mart- in Landau. Matthew Modine er að innrétta sveitabýli þar sem hann dvelst löngum stundum. Vatnsberinn Formúla 1 í heim- inum er E = MC í 2. veldi. Spurðu bara kappakstur- skjánana 'dk Fiskarnir Láttu þér líða vel um helglna. Það er engin ástæða til að flýta því sem þegar er gengið um garð. Hrúturinn Lofaðu bót og betrun. Það er alltaf vinsælt, en dugar náttúrlega skammt. Nautið Þú eignast óvæntan aðdá- anda í kvöld sem segir að þú lítir út eins og Saddam Hussein, bara Ijóshærður. 4 Tvíburarnir Þig dreymir að þú sért að syngja Júróvisjónlagið afturábak i fjósinu heima. Segðu þig strax úr gagna- grunninum! Við viljum hvetja alla sem hafa eitthvað í pokahorninu að senda okkur efni. Utanáskriftin er: Dagur - Barnahorn Strandgata 31 600 Akuteyri Tölvupóstur: pjetur@dagur.is Sólar- lagið Ljúkið við myndina með því að draga línu milli punktana. Hvað er kennarinn gamall Ari, kennari, var þessi rólega manrígerð sem sjaldnast svaraði beint út. Einn daginn spurði Stella, nemandi hans, sem var í fimmta bekk, hann að því hversu gamall hann væri. Ari svaraði þá rólegri röddu: „I ár er ég þrefalt eldri en Iitla systir mín en fyrir sex árum var ég fimm sinnúm eldri en hún.“ Hve gamall er Ari kennari? ADAMSON Krabbinn Aldurinn er stundum afstæð- ur en þó oftast austanstæður. Varaðu þig að vestan. Ljónið Þú ferð í sólar- landaferð í Kópa- voginn og lætur úrsvalan vindinn leika um nakinn líkama þinn. Meyjan Þú fjárfestir í fjögurhund- raðasta raf- tækinu þínu á til- boðsverði. Lífið er endalaust stuð. Vogin Reyndu að koma þér undan því sem á þig er lagt. Bjangaður þér frá farginu, eða segðu honum að hunskast i líkams- rækt. Sporðdrekinn Þú getur hugsan- lega skilað grein- argerðinni á rétt- um tíma en það er ólíklegt að þú sért fær um að taka saman eigin . greindargerð. Bogamaðurinn ’ Flest ér á'uppleið þessa dagana nema það sem mestu máli skiptir. Láttu samt ekki deigan síga. Steingeitin Þú hittir innhverf- an og sjálfselsk- an aflaskipstjóra á Kaffi Reykjavík í kvöld. Nafla- skipstjóra.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.