Dagur - 23.05.2000, Side 9
ÞRIÐJVDAGU R 23. MAÍ 2000 - 9
ÍÞRÓTTIR
Varameimimir
sáu um KR-ínga
KeflvíMiigar uimu í
fyrrakvöld óvæntau 2-
3 sigur á KR-ingum á
Laugardalsvelli í ann-
arri umferð Lands-
símadeildar karla. KR-
ingar töpuðu þar sín-
um fyrsta heimaleik
síðan haustið 1998.
Grindvíkingar sýndu
sitt rétta andlit gegn
Fram, þegar þeir unnu
3-0 heimasigur á
Reykj avíkurliðinu.
Fyrir leik KR og Keflavíkur, sem
fram fór á Laugardaksvellinum í
fyrrakvöld, höfðu KR-ingar ekki
tapað heimaleik í deildinni, síðan
26. september árið 1998, þegar
þeir töpuðu 0-2 gegn Eyjamönn-
um í síðustu umferð Landssíma-
deildarinnar það árið. Síðan hafa
KR-ingar leikið níu heimaleiki í
Frostaskjólinu, unnið sjö og gert
tvö jafntefli, gegn Breiðabliki og
Leiftri í fyrra og reyndar ekki tap-
að deildarleik síðan gegn ÍBV í
Eyjum um miðjan júní í fyrra. Það
er þó huggun harmi gegn, fyrir
hörðustu KR-inga, að heimaleik-
urinn var Ieikinn í Laugardal, en
ekki á KR-vellinum, þannig að
enn eru þeir taplausir á eiginleg-
um heimavelli.
KR-ingar byrjuðu betur
Það var ekki að sjá á leik KR-inga
í fyrri hálfleik í fyrrakvöld að tap
yrði hlutskipti liðsins, því að það
lék mun betur en Keflvíkingar og
hefði með smáheppni átt að vera
komið með tveggja marka forskot
í hálfleik. Gunnleifur Gunnleifs-
son, markvörður Keflvíkinga, var
sínum gömlu félögum í KR mjög
erfiður og kom öðrum fremur í
veg fyrir að þeim tækist að klára
dæmið.
Guðmundur Benediktsson kom
KR-ingum á bragðið á 24. mínútu
þegar hann skoraði gott skalla-
mark eftir sendingu frá Einari Þór
Daníelssyni og fékk síðan gullið
tækifæri til að bæta við öðru þeg-
ar dæmd var vítaspyrna á Keflvík-
inga eftir brot á Einari Þór. En
Guðmundur var ekki á skotskón-
um og skaut vel yfir markið.
Innkoma Ljubicic virkaði
sem vitamínsprauta
Það kom nokkuð á óvart að Páll
Guðlaugsson, þjálfari Keflvíkinga,
skyldi byrja leikinn með þá Zoran
Ljubicic og Guðmund Steinars-
son á bekknum, en greinlega
vantaði nokkuð bit í sóknarleik
liðsins. Það kom því ekki á óvart
þegar Ljubicic var skipt inná á 53.
mínutu og síðan Guðmundi á 61.
mínútu. Innkoma Ljubicic virkaði
eins og vitamínsprauta á liðið og
aðeins mínútu eftir að Guðmundi
var skipt inná, opnuðust allar
flóðgáttir hjá KR-ingum og Kefl-
víkingar allt í einu komnir með
tveggja marka forskot, á aðeins
átta mínútna leikkafla. Fyrsta
markið kom eftir mistök Gunnars
Einarssonar í vörninni, en hann
missti boltann á miðjum eigin
vallarhelmingi og Keflvíkingar
voru fljótir að hefna. Guðmundur
amstal1
I 1 < *r i
l!f| m j m
/7 '4Í*A
Keflvíkingar fagna einu þriggja marka sinna gegn KR-ingum í fyrrakvöld
fékk boltann á auðum sjó og skor-
aði auðveldlega af stuttu færi eft-
ir undirbúning Kristjáns Brooks
og Zoran Ljubicic. Ljubicic var
einnig höfundurinn að öðru
markinu, sem Kristján Brooks
gerði fimm mínútum síðar, eftir
að Ljubicic hafði leikið Iaglega á
KR-vörnina. A 69. mínútu var síð-
an dæmd vítaspyrna á KR-inga,
þegar David Winnie braut á Guð-
mundi Steinarssyni innan teigs.
Guðmundur tók vítið sjálfur og
skoraði örugglega.
Guimleifui bestur
KR-ingar gerðu nú allt hvað þeir
gátu til að jafna leikinn, en Kefl-
víkingum með Gunnleif Gunn-
leifsson sem besta mann, tókst að
halda þeim í skefjum, þar til um
fimm mínútur voru til Ieiksloka.
Þá fékk Andri Sigþórsson stungu-
sendingu inn fyrir vörnina og
skoraði örugglega. Lengra komust
KR-ingar ekki og óvæntur 2-3 sig-
ur Keflvíkinga, en þó sanngjarn
eftir gangi leiksins, í höfn. Það er
ljóst eftir þennan leik að KR-ing-
ar verða að taka til í varnarleikn-
um og þá sérstaldega á miðsvæð-
inu, þar sem menn náðu illa sam-
an og fóru á taugum þegar á
reyndi.
Griudvíkingar sýna sitt rétta
andlit
Eftir gott undirbúningstímabil og
0-0 jafnteflið gegn Stjörnunni í
fyrsta leik íslandsmótsins s.l.
þriðjudag, sýndu Grindvíkingar
nú aftur sitt rétta andlit, þegar
þeir unnu 3-0 sigur á Frömurum í
Grindavík. Þrátt fyrir fjarveru
þeirra Scott Ramsey og Sinisa
Kecik, sem tóku út leikbann eftir
að hafa fengið að líta rauða
spjaldið f leiknum gegn Stjörn-
unni, lék lið Grindvíkinga mun
betur en í síðasta leik. Þegar það
svo bættist við að Guðjón As-
mundsson, fyrirliði liðsins, þurfti
að yfirgefna völlinn vegna meiðs-
la á 46. mínútu áttu menn frekar
von á að liðið myndi gefa eftir, en
svo varð ekki. Þeir voru einfald-
lega betra liðið allan leikinn og
eftir að Paul McShane, besti
maður vallarins, hafði skorað fyrs-
ta markið á 24. mínútu var eins
og mestur vindur væri úr Frömur-
um, sem höfðu pressað mjög stíft
í upphafi leiks. Þrátt fyrir yfir-
burðina sköpuðu Grindvíkingar
sér ekki mörg færi, en héldu þó
spilinu vel gangandi, eins og þeir
hafa lengst af gert í vorleikjunum.
Framarar hafa aldrei irnnið
Grindvíkinga
Það var svo ekki fyrr en á 80. mín-
útu sem Grindvíkingum tókst að
bæta við öðru markinu, en það
gerði Olafur Orn Bjarnason úr
vítaspyrnu sem Paul McShane
fiskaði. McShane skoraði síðan
sitt annað mark í leiknum sex
mínútum síðar og kórónaði þar
með góðan leik sinn og tryggði
Grindvíkingum um leið enn einn
sigur Grindvfkinga gegn Frömur-
um. Síðan liðið komst fyrst í efstu
deild árið 1995, hefur það aldrei
tapað fyrir Fram í deildinni í þeim
níu leikjum sem liðin hafa leikið
saman.
Úrslit leikja:
1. utnferð
Stjarnan - Grindav. 0-0
ÍA - Leiftur 1 -0
Keflavík - Breiðabl. 1-0
Fram - KR 0-1
ÍBV - Fylkir 2-2
2. umferð
KR - Keflavík 2-3
Grindavík - Fram 3-0
t gærkvöld:
Fylkir - Leiftur 1-1
ÍBV - Stjarnan 2-0
Breiðablik - ÍA 0-1
Staðan eftir 2. umferðir
Keflavík 2 2 0 0 4:2
ÍA 2 2 0 0 2:0
Grindavík 2 110 3:0
ÍBV 2 1 1 0 4:2
KR 2 10 1 3:3
Fylkir 2 0 2 0 3:3
Stjarnan 2 0 11 0:2
Leiftur 2 0 1 1 1:2
Breiðablik 2 0 0 2 0:2
Fram 2 0 0 2 0:4
Næsta lunferö:
Laugard. 27. maí
Kl. 15.00 ÍA - KR
Sunnud. 28. maí
Kl. 20.00 Fram - ÍBV
Kl. 20.00 Leiftur - Breiðablik
KI. 16.00 Stjarnan - Fylkir
Mánud. 29. maí
Kl. 20.00 Keflavík - Grindavík
6
6
4
4
3
2
1
1
0
0
íslands- og bikarmeisturum KR er spáð sigri í Landssímadeild kvenna í
sumar. Hér fagna þær Sigríður Fanney Pálsdóttir og Helena Ólafsdóttir
sigri í deiidarbikarnum á dögunum.
KR-ingar hefja fitil-
vömma gegn IBV
íslands- og bikar-
meistunim KR er
spáð íslandsmeist-
aratitlinum í ár, en
liðið hefur titilvöm-
ina gegn ÍBV í kvöld.
BreiðábliM og Val er
einnig spáð góðu
gengi og er búist við
að baráttan á toppi og
botni deildarinnar
verði meira spenn-
andi og jafnari en oft
áður.
Keppnin í Landssímadeild
kvenna í kvattspyrnu hefst með
heilli umferð í kvöld, þar sem Is-
lands-, bikar- og deildarbikar-
meistarar KR heíja titilvörnina
gegn IBV á KR-vellinum í fyrsta
leik. Aðrir leikir kvöldsins eru
leikur nýliða FH-inga gegn
Breiðabliki á Kaplakrikavelli,
Ieikur Stjörnunnar gegn IA á
Stjörnuvelli og síðan Þór/KA og
Val á Akureyri. Allir leikirnir
hefjast kl. 20:00.
Samkvæmt spá fyrirliða, þjálf-
ara og forráðamanna liðanni í
deildinni, er KR-ingum spáð ís-
landsmeistaratitlinum í ár, en
skammt þar á eftir kemur
Breiðablik og síðan Valur.
Spáin: Stig:
1. KR 160
2. Breiðablik 143
3. Valur 132
4. Stjarnan 102
5. ÍBV 85
6. ÍA 64
7. Þór/KA 39
8. FH 32
Miðað við gengi liðanna í
fyrra, má ætla að spáin um topp-
inn sé nokkuð líkleg og einnig ef
tekið er mið af Ieikjum í deildar-
bikar og Reykjavíkurmóti, þar
sem KR hafði sigur í báðum
mótunum eftir stórsigra gegn
Val, 7-2 í Reykjavíkurmótinu og
8-2 í deildarbikarnum. Það kom
á óvart í riðlakeppni deildarbik-
arsins að þar vann Stjarnan yfir-
burðasigur í riðlinum með fullt
hús stiga, eftir að hafa unnið
bæði Breiðablik og ÍBV nokkuð
auðveldlega. Þrátt fyrir slaka
byrjun er Breiðabliki spáð góðu
gengi í sumar og sumir svo bjart-
sýnir að spá þeim jafnvel sigri á
mótinu. Allavega er búist við
jafnari keppni á toppnum, þar
sem þessi þrjú lið eru talin sterk-
ust og muni skera sig nokkuð úr.
Stjaman til alls líkleg
Miðað við árangur Stjörnunnar í
riðlakeppni deildarbikarsins í
vor virðist liðið til alls líklegt og
líklegra en oft áður til að velgja
toppliðunum undir uggum.
Sama er að segja um IBV, ef
þeim tekst fljótlega að stilla sam-
an strengi, en liðið hefur haft
stuttan tíma til undirbúnings
þar sem hluti leikmanna er ný-
kominn til Eyja, bæði erlendis
frá og frá námi í Reykjavík.
Heimavöllur liðsins er sterkur
og sem dæmi þá vann Breiðablik
þær ekki nema með eins marks
mun í riðlakeppni deildarbikars-
ins í Eyjum. IBV fær eins og í
fyrra góðan liðsstyrk frá
Englandi, en þær Karen Burke
og Kelly Shimmin munu aftur
spila með liðinu í sumar.
Lið IA, sem spáð er þriðja
neðsta sætinu, mætir til leiks
með nýjan þjálfara, sem er Mar-
grét Akadóttir. Þetta er frum-
raun Margrétar sem þjálfara, en
hún hyggst einnig leika með lið-
inu. Flestir spá þeim erfiðu
sumri og jafnvel falli, en liðið
hefur misst þrjá leikmenn úr
byrjunarliðinu frá því í fyrra og
er landsliðskonan Kristín Ósk
Halldórsdóttir ein þeirra, en hún
mun hætt.
Þór/KA og FH spáð falli
Þór/KA og FH, nýliðunum í
deildinni, er spáð botninum og
líklegt að þeirra bíði erfitt tíma-
bil. Liðin byggja bæði að mestu
á ungum og efnilegum stelpum
og eru ekki talin eiga mikla
möguleika á að halda sæti sínu í
deildinni. Þór/IG\ sigraði í 1.
deildinni í fyrra, en FH komst
upp eftir aukakeppni gegn
Grindavík og hafa liðin í raun
lítið styrkst síðan. FH, sem
vann Þór/KA 0-1 í úrslitakeppni
deildarbikarsins um 8. sætið í
vor, hefur þó fengið góðan liðs-
styrk, sem er Hanna B. Stefáns-
dóttir frá Haukum, en á móti
hefur liðið misst Örnu Steinsen,
sem var kjölfestan í liðinu í
fyrra.