Dagur - 23.05.2000, Blaðsíða 13

Dagur - 23.05.2000, Blaðsíða 13
ÞRinjUDAGUR 23. MAÍ 2000 - 13 niihlmiii Um þau umæli Bjarkar að hún væri hætt kvikmyndaleik sagðist Friðrik Þór skilja þá ákvörðun full- komlega. Björk kom fram í mynd Friðriks, Rokk í Reykjavík, á sín- um tíma og hann sagðist eitt sinn hafa verið með handrit að kvik- mynd með Björk í huga. Hvort rykið yrði dustað af því handriti sagðist Friðrik ekki reikna með. „Þetta er svolítið „grand“ hjá Björk að koma og hirða þessi verðlaun fyrir einu myndina. Hún er góð í því sem hún gerir mest, músfk- inni, og kemur þar sífellt á óvart,“ sagði Friðrik Þór. Björk er hætt! Eins og kom fram í upphafi samdi rithöfundurinn Sjón textana við söng- og dansatriði í kvikmynd- inni, ásamt Lars Von Trier. Þegar Dagur ræddi við hann í gær sagð- ist hann ekki geta verið annað en ánægður með að myndin hefði hirt „Pálmann". Þetta væri þýð- ingarmikið fyrir myndina og eldd síst fyrir Lars og Björk. Sjón sagð- ist trúa Björk alfarið þegar hún segðist vera hætt að leika í kvik- myndum. Henni væri fúlasta al- Þorfinnur Úmarsson: „Hollywood er hrifin af leikkonum sem geta h'ka sungið. Erfitt er að segja um þetta fyrirfram en ég tel Björk eiga góða möguleika. Kannski er ævintýrið bara rétt að byrja.“ vara með þessum ummælum. „Hún væri ekki að lýsa þessu yfir nema að hún meinti það. Nú þarf hún að vera með manneskju í vinnu við að afþakka boð um leik í kvikmyndum. Hún ákvað að setja þetta fram strax," sagði Sjón, sem þekkir vel til Bjarkar og hennar verka. Aðspurður um þýðingu verð- Iaunanna fyrir Björk sagði Sjón þetta hjálpa til við feril hennar sem listamanns. Hún væri á for- síðum flestra stórblaða í heimin- um og allt umtalið hjálpaði til við að koma henni á framfæri. Tón- listarlega séð væri hún einnig að sýna á sér nýjar hliðar í Dansaran- um. Margt í myndinni ætti eftir að koma aðdáendum hennar á óvart. Myndin gerist í Bandaríkjunum á árunum í kringum 1960 og það hefði verið áskorun fyrir hana að fást við ýmsar hefðir og venjur þess tíma. Lars elskulegur og gefandi Miklar fréttir hafa verið um stirð- leika í samtarfi Lars og Bjarkar og á stundum hefði legið við sam- starfsslitum. Aðspurður um sam- Sjón: „Ágætis hobbí fyrir skáld- sagnahöfund að gera eina og eina kvikmynd sem fengi Gullpálmann í Cannes. Fóik í kvikmynda- heiminum fer að kannast við nafnið mitt." starfið við Lars sagðist Sjón reynd- ar hafa skrifað undir þagnarheit um að hann mætti ekki tjá sig um samstarfið. Það hefði að vísu verið ansi náið, þeir hefðu lokað sig inni í fjórar vikur og setið yfir texta- gerðinni. „Ég lít á Lars sem vin minn. Hann er afskaplega elskulegur og gefandi maður, og hann er vel að þessum verðlaunum kominn. Hann er einstakur Iistamaður á heimsvísu," sagði Sjón. Svo virðist sem Sjón sé kominn á kaf í kvikmyndirnar því hann vinnur nú að handriti að breskri kvikmynd, Newton eða Neftróna, sem til stendur að Friðrik Þór leik- stýri. Sú mynd á m.a. að gerast í framtíðinni. Hvort verðlaunin fyr- ir Dansarann hafi þýðingu fyrir hann sagði Sjón það ágætis „hobbí fyrir skáldsagnahöfund að gera eina og eina kvikmynd sem fengi Gullpálmann í Cannes. Fólk f kvikmyndaheiminum fer að kann- ast við nafnið mitt. Eg er þarna íyrst og fremst sem textahöfundur og híð bara eftir því að hringt’verði frá Broadway í New York,“ sagði Sjón. Hvort Dansarinn ætti mögu- leika í Oskarinn sagðist Sjón reik- na með því. Vonandi stæðu þau Björk og Lars á sviðinu í HoIIywood á næsta ári að taka við styttunni. „Kannski að maður fari að undirbúa þakkarræðuna og byrja á því að æfa sig á fjölskyld- unni,“ sagði Sjón, kátur f bragði. Frábært að vtnna með Björk Valgeir Sigurðsson, sem á og rek- ur hljóðverið Gróðurhúsið og lék á árum áður með hljómsveitinni Unun og Möggu Stínu, vann við hljóðupptökur og tæknilega úr- vinnslu á tónlistinni í Dansaran- um. Björk fékk hann til Iiðs við sig og Marc Bell fyrir rúmum tveimur árum. Valgeir fór til Cannes að sjá myndina og upplifði því stemning- una sem þar ríkti. í samtali við Dag sagðist hann að sjálfsögðu vera ánægður með útkomuna. Uppskeran væri góð eftir mikla vinnu undanfarin tvö ár. Upptök- urnar fóru að mestu fram á ls- landi en einnig í Danmörku og London. Valgeir sagði dvölina í Cannes hafa verið frábæra. Dansarinn hefði fengið mikla umfjöllun en fyrir og eftir myndina hefðu menn ekki verið öruggir með að myndin fengi Gullpálmann. Annað hefði síðan komið í ljós. Hvort verð- launin og athyglin sem myndin fékk myndu hafa einhverja þýð- ingu fyrir hann, sagði Valgeir erfitt að segja til um það. Vonandi væri hann að vinna sér inn punkta með góðum verkum. Dansarinn hefur verið hans meginverkefni síðustu misserin auk þess sem þau Björk unnu lokalagið í kvikmyndinni Ffeingjohn Malkovich. „Það er aldrei að vita nema að við Björk vinnum meira saman. Samstarfið hefur gengið vel og all- ir ánægðir með það. Það var frá- bært að vinna með henni. Hún er fagmaður fram í fingurgóma. Hún veit nákvæmlega hvað hún vill en um leið gefur hún manni frelsi til að skapa. Björk er mjög gagnrýnin á sjálfa sig, hættir aldrei fyrr en hún er ánægð. Tíminn með henni og flestu öðru fólki í myndinni hefur verið afar lærdómsríkur," sagði Valgeir. FRÉTTIR Leigubílstjórar komast stundum í hann krappann og m.a. í Reykjavík um helgina. Leigubílstjóra ógnað með bnifi Lögreglan í Reykjavík hafði í nógu að snúast um helgina. Mikið um hraðakstur. F dagbók lögreglunnar í Reykja- vík segir m.a. frá því að tilraun hafi verið gerð til innbrots að- faranótt laugardags. Maður náði að spenna upp glugga á húsi en húsráðendur urðu hans varir. Maðurinn var eltur uppi af Iög- reglumönnum, handtekinn og vistaður í fangageymslu. Leigubílstjóri var rændur á laugardagskvöld þegar farþegi dró upp hníf og ógnaði leigubif- reiðastjóranum og heimtaði af honum peninga. Hafði hann 3500 krónur upp úr krafsinu ásamt því að skulda áfallið öku- gjald 6000 krónur. Maður var staðinn að því að taka peningasíma af vegg á skemmtistað í miðborginni á að- faranótt sunnudags. Reyndi maðurinn því næst að fara með símann út af staðnum, nokkrar skemmdir hlutust af þessu atferli mannsins. Á sunnudag var tilkynnt um innbrot í heimahús í Austurborg- inni, þaðan hafði verið tekin ýmis tækjabúnaður. Með ffkniefni á klósettmu Tvö fíkniefnamál eru skráð í dag- hók lögreglunnar. Tveir aðilar voru handteknir á skemmtistað í miðhorginni þar sem þeir voru staðnir að neyslu fíkniefna inni á salerni staðarins. „Ætluð fíkni- efni“ fundust svo við leit á mönnunum. Þá fundust fíkni- efni við leit í handfarangri bíls þegar ökumaður hans var stöðv- aður á sunnudag, grunaður um ölvun við akstur. Um aðfaranótt Iaugardags voru þrír aðilar handteknir eftir átök í miðborginni, einn þeirra var vistaður í fangageymslu. Dyravörður á veitingahúsi var sleginn af manni sem hann meinaði um inngöngu. Arásarað- ilinn var handtekinn skömmu síðar eftir að hafa reynt að brjóta upp útihurð á öðrum skemmti- stað. 87 kitluðu pinnann um of Umferðarmál eru áberandi í dag- bók lögreglunnar eftir helgina. 87 ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur og þar af einn á 133 km hraða á Kringlumýrar- braut þar sem hámarkshraði er 70 km/klst. 15 ökumenn voru grunaðir um ölvun við akstur. Á laugardag var tilkynnt um um- ferðarslys á mótum Gullengis og Reyrengis. Þrír voru fluttir á slysadeild með sjúkrabifreiðum og báðar bifreiðarnar eru óöku- hæfar. Harður árekstur varð á mótum Miklubrautar og Lönguhlíðar á sunnudagsmorgni. Báðir öku- menn voru fluttir á slysadeild með sjúkrabifreiðum og voru skráningarnúmer tekin af bif- reiðunum. Annar ökumannanna er grunaður um ölvun við akstur ásamt því að aka yfir gatnamótin á rauðu ljósi. Vildl ekki ríða A aðfaranótt sunnudags var til- kynnt um bifreið með hest í taumi á Breiðholtsbraut. Var eig- andi hestsins að fara með hann að hesthúsi sínu, en hesturinn hafði misst skeifu og vildi hann því ekki ríða honum. Var mann- inum gert að ganga með hestinn. Guðjón með Jom forseta Fræðimannsíbúð í húsi Jóns Sigurðssonar for- seta í Kaupmannahöfn hefur verið úthlutað frá 1. september í ár til 31. ágúst 2001. Alls bárust 33 umsóknir en 6 fræði- menn duttu í lukkupott- inn. Þeirra á meðal er Guðjón Friðriksson sagnfræðingur, sem ætl- ar að dvelja þar við ritun ævisögu sjálfs Jóns for- seta. Aðrir eru Anna Agnarsdótt- ir, sem hyggst rannsaka skjöl er varða málefni íslands 1770- 1830, Elín Soffía Ólafs- dóttir, til að kanna að- ferðir við að mæla virkni náttúruefna á malaríu- frumdýrið, Haraldur Bessason, til rannsókna á þjóðsögum, Páll Vals- son, sem ætlar að kanna gögn um Bjarna Thorarensen, og Þórður Jónsson, sem vinnur að rannsóknum í kennilegri eðlisfræði við Niels Bohr stofnunina. Fræðimenn- irnir fá jafnframt afnot af vinnu- stofu í Jónshúsi. Guðjón Friðriks- son sagnfræð- ingur.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.