Dagur - 23.05.2000, Page 18
18- ÞRIÐJUD A G U R 23. MAl 2000
Akureyri-Norðuiiand
mm
hhh
Frá afhendingu styrks Landsbanka
íslands til Áfengis- og vímuvarna-
nefndar Akureyrar sl. föstudag.
Landsbank-
iiui slyrkir
víniiivarnir
Landsbanki íslands á Akureyri
afhenti sl. föstudag Áfengis- og
vímuvarnanefnd Akureyrar 600
þúsund króna styrk til útgáfu á
blaði um vímuefnavarnir en
blaðinu er sérstaklega ætlað að
ná til ungs fólks á Akureyri og
nágrenni og foreldra þess.
Blaðið, sem ber heitið Ungt
fólk án vímu, er í vinnslu en
ætlunin er að dreifa því í hvert
hús á Akureyri og nágrenni í
lok mánaðarins. Áfengis- og
vímuvarnanefnd Akureyrar
kostar útgáfu og dreifingu
blaðsins að hluta en ofangreint
framlag Landsbanka íslands á
Akureyri vegur langþyngst og
gerir nefndinni í raun kleift að
ráðast í svo viðamikið verkefni.
Viljum sýna
viljaun í verki
„Það er okkur mikið ánægju-
efni að geta stutt þetta góða og
verðuga málefni með þessum
hætti. Við teljum fulla þörf á
að efla forvarnarstarf í vímu-
efnamálum til mikilla muna,
ekki síst með hliðsjón af þeirri
öfugþróun sem átt hefur sér
stað síðustu misserin,“ segir
Sigurður Sigurgeirsson, svæð-
isstjóri Landsbanka Islands á
Norðurlandi. Hann segir að
ráða megi af fréttum að magn
fíkniefna í umferð og þar mcð
neysla þeirra fari vaxandi á Ak-
ureyri sem annars staðar á
landinu og full ástæða sé til að
sporna við fótum. „Landsbanki
íslands á Akurcyri hefur alla
tíð stutt unglingastarf íþrótta-
og tómstundafélaga hér í bæ og
þannig lagt sitt að mörkum til
að efla forvarnirnar. Við viljum
sýna vilja okkar enn frekar í
verki með því að styðja útgáfu
þessa blaðs Afengis- og vímu-
varnanefndar Akureyrar, sem
vonandi nær augum sem
flestra. Eg skora jafnframt á
önnur fyrirtæki í bænum og
bæjarbúa alla að taka höndum
saman í baráttu gegn þessum
vágesti," segir Sigurður Sigur-
geirsson.
Kristín Sigfúsdóttir, formað-
ur Afengis- og vímuvarna-
nefndar Akureyrar segir stuðn-
ing Landsbankans koma sér
ákaflega vel en með útgáfunni
sé m.a. verið að hvetja fólk til
að vera á verði gagnvart allri
vímuefnaneyslu og sýna sam-
stöðu. Skýr skilaboð foreldra til
barna sinna sé það sem ráði
mestu um hvernig til tekst í
uppeldinu.
GG
Við fyrstu sýn hefði mátt áætla að klámkóngurinn Hugh Hefner hefði litið við í miðbæ Akureyrar í gær umvafinn kanínunum sfnum. Þegar betur var að
gáð kom í Ijós að menntskælingar voru að dimmetera, enda ekki á bætandi í klámiðnaðinum - mynd brink
Full alvara er á bak
við áætlanir um
jarðgðng undir
Vaðláheiði
„Ég sé það fyrir að þetta yrði
mjög arðbær framkvæmd,"
sagði Valgerður Sverrisdóttir
iðnaðarráðherra aðspurð um
viðbrögð við hugmyndum og
áformum bæjaryfirvalda á Ak-
ureyri um að jarðgöng undir
Vaðlaheiði verði tekin til gaum-
gæfilegrar athugunar hjá
stjórnvöldum. Valgerður minnti
á að hún hefði ritað grein í Dag
fyrir síðustu þingkosningar um
jarðgöng og þar hefði hún kom-
ið inn á mikilvægi jarðganga
undir heiðina.
Göng undir Vaðlaheiði eru á
þeim lista Vegagerðarinnar sem
gerður var um göng framtíðar-
innar, en þau eru ekki mjög
framarlega á forgangslista ríkis-
stjórnarinnar. I skýrslu Vega-
Skoðað tíl hlitar
Valgerður sagðist hafa fullan
skilning á því að Vaðlaheiðar-
göng væru ekki í 1. áfanga jarð-
gangaáætlunar. Onnur göng
væru brýnni en þarna væri engu
að síður um arðbæra fram-
kvæmd að ræða. Skoða ætti
þennan kost til hlítar þegar farið
yrði að raða jarðgöngum niður í
næsta áfanga.
„Miðað við að gangamunnarnir
yrðu í 70 metra hæð yfir sjávar-
máli þá yrði hægt að komast
landleiðina frá Siglufirði alveg
austur á Melrakkasléttu án þess
að fara upp fyrir 100 metra
hæð. Það er mjög mikilvægt at-
riði í samgöngumálum," sagði
Valgerður og minnti einnig á
kostnaðarsaman snjómokstur í
Víkurskarði, sem myndi sparast
með jarðgöngum.
EkkL spuming hvort heldur
hvenær
Hákon Hákonarson, atvinnu-
málanefndarmaður á Akureyri, er
sömu skoðunar og Valgerður um
mikilvægi þess að unnið verði að
framgangi málsins. Hann segir
ljóst að göng undir Vaðlaheiði
muni hafa meiri áhrif á þróun
byggðar en nokkur önnur ganga-
gerð á teikniborði stjórnvalda
nú. Hann segir: „I mínum huga
er spurningin ekki hvort heldur
hvenær. Það verður vaxandi
þrýstingur á gerð ganganna á
næstu árum.“
Hákon telur að Akureyringar
sem og allir Norðlendingar hafi
sofið á verðinum í þessu hags-
munamáli. „Þetta eru ekki bara
hagsmunir Eyfirðinga, heldur
ekki síður Þingeyinga, en þeir
eiga í miklum erfiðleikum með
að hafa beint flugsamband við
Reykjavík, sem er þeim mjög
mikils virði. Göng undir Vaðla-
heiði myndi einfalda það mál
gerðarinnar um jarðgangaáætl-
un kemur fram að göngin yrðu
7,2 kílómetra löng og kosta um
4 milljarða króna. Göngin yrðu
að vera tvíbreið sökum mikillar
umferðar, en mælingar yfir
sumarmánuðina hafa sýnt að
um 1.240 bílar fari daglega yfir
Vaðlaheiði um Víkurskarð.
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráð-
herra segir göng undir Vaðlaheiði
vera mjög arðbæra framkvæmd.
Hjálmur bjargaði bami
Sex ára gamall drengur varð fyr-
ir bíl á sunnudagskvöldið á Ak-
ureyri. Slysið átti sér stað á
mótum Hólabrautar og Gránu-
félagsgötu um klukkan 19.00 og
fór betur en á horfðist. Dreng-
urinn kom hjólandi niður Odd-
eyrargötuna og beygði á gatna-
mótum með þeim afleiðingum
að bíll skall á honum. Hann var
með hjálm á höfðinu sem að
öllum líkindum hefur bjargað
honum frá stórslysi. Hjálmur-
inn brotnaði við áreksturinn en
eftir skoðun á slysadeild reynd-
ist drengurinn óverulega slasað-
ur.
Björn Snorrason, varðstjóri
hjá lögreglunni á Akureyri, seg-
ir allt of mörg dæmi þess að of
ungir krakkar séu að hjóla í um-
ferðinni. „Sex ára gömul börn
eiga ekkert erindi í umferðinni
og allra síst svona niður í bæ,“
segir Björn.
Varðstjórinn segir ástæðu til
að brýna það fyrir foreldrum að
hleypa ekki ungum börnum i
umferðina en á hinn bóginn
jákvætt að hlutfall hjólrei
manna með hjálma á höfð:
fari sífellt hækkandi. Notl
þeirra skipti oft sköpum eins
þetta nýjasta dæmi sanni.
Arðbær jarðgöng
undir Vaðlaneiði