Dagur - 26.05.2000, Síða 2

Dagur - 26.05.2000, Síða 2
2 — FÖSTUDAGVR 26. MAÍ 2000 FRÉTTIR MýfLugsmenn ósáttir vegna Húsavíkurflugs Mýflugsmenn telja sig hafa fengið spark í afturendaim þegar Húsavíkurbær gekk framhjá þeim og samdi við Flugfélag íslauds. Bæjarstjóri vísar gagnrýni á hug og segir gögn félags- ins ófullnægjandi. Fyrirgreiðsla Húsavíkurkaup- staðar og fleiri aðila til að ná samningi við Flugfélag íslands um tilraunaáætlunarflug milli Húsavíkur og Reykjavíkur, hefur vakið upp viðbrögð hjá forkólf- um flugfélagsins Mýflugs. Þing- eyingum er væntanlega flestum Iétt yfir þvf að fastar áætlunar- flugsamgöngur heQist aftur 1. júní nk. en Mýflugsmönnum finnst sem framhjá sér hafi verið gengið. „Hvar voru þessir aðilar á með- an heimamenn börðust fyrir því að halda þessu flugi áfram? Hvar var Húsavíkurkaupstaður þá, hvar var markaðsskrifstofan, hvar var atvinnuþróunarfélagið og ferðaþjónustuaðilaranir?“ spyr Leifur Hallgrímsson, einn forkólfa Mýflugs. Hrópuðuin á hjálp Mýflug flaug milli Húsavíkur og Reykjavíkur í um eitt og hálft ár og tapaði flug- félagið um 40 milljónum á þeim tíma. Leif- ur segir að Húsavíkurflugið hafi næstum rið- ið félaginu að fullu: „Við erum að berjast fyrir Iífi okkar þessa dagana og engan veginn útséð um að það náist. Þess vegna spyr maður enn og aftur: Hvar voru þessir aðilar þeg- ar við hrópuðum hér í myrkrinu á hjálp? Hrópuðum á ferðaþjón- ustuaðila og heimamenn í Þing- eyjarsýslum í örvæntingu og báð- um um aðstoð. Eg er ekki að segja að við höfum ekki fengið neina aðstoð en hún var bara allt of lítil," segir Leifur. Annar hlut- hafi Mýflugs gekk lengra í gagn- rýni sinni í gær og talaði um spark í afturendann frá bæjar- stjórn Húsavík- ur. Auk Húsavík- urkaupstaðar standa Mark- aðsskrifstofa Norðurlands At- vinnuþróunar- félag Þingeyinga og ferðaþjón- ustuaðilar að nýja flugsamn- ingnum við Fl. Heimildir Dags herma að beinn styrkur til flugs- ins sé áætlaður um 1 milljón króna á til- raunatímanum en fjárhagsleg áhætta er óskrif- að blað. Þannig getur rekstur flugafgreiðslunnar, sem verður á höndum markaðsskrifstofunnar, orðið kostnaðarsamur næstu mánuði. Mýflug tapaði stórfé á rekstri hennar eða um 800.000 kr. á mánuði skv. heimildum en tekjumöguleikar skrifstofunnar eru líka nokkrir, t.d. í gegnum Amadeus sölukerfi Flugleiða. Rangar upplýsingar Bæjarstjórinn á Húsavík neitar þvf að Mýflugsmönnum hafi ver- ið mismunað: „Það voru lögð fyr- ir bæjaryfirvöld ákveðin gögn af hálfu Mýflugs með beiðni um hlutaíjárframlag upp á 3 milljón- ir. Bæjarráð féilst á vilyrði þessu lútandi, greiddi út helminginn þegar ákveðin gögn frá félaginu lágu fyrir. Síðan kom það í ljós bara nokkrum vikum síðar þegar búið var að greiða út helming hlutaljárins, að þau gögn sem fé- Iagið lagði fyrir bæjaryfirvöld voru vægast sagt mjög langt frá því að sýna raunverulega stöðu. Ég tel að gert hafi verið vel við félagið undir slæmum formerkj- um. Hreinlega ekki á grundvelli réttra upplýsinga," segir Rein- hard Reynisson bæjarstjóri. „Eg held að bæði sveitarfélagið hér og Skútustaðahreppur hafi gengið eins langt og jafnvel lengra en hægt var í fyrirgreiðslu til Mýflugs. Að auki erum við að tala um mjög mismunandi getu hjá þessum tveimur flugfélögum til að halda uppi markaðsdrifnu áætlunarfélagi," segir bæjarstjór- inn. - BÞ Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræðingur. Jón Steinar hreinsaður Þriggja manna meirihluti fimm manna úrskurðarnefndar (siða- nefndar) Lögmannafélags Is- lands hefur úrskurðað að Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræð- ingur hafi ekki brotið siðareglur með opinberri umljöllun sinni í kjölfar dóms, þar sem háskóla- prófessor var sýknaður í kyn- ferðisbrotamáli. Tveggja manna minnihlutinn taldi að Jón Steinar hefði farið út fyrir siðferðileg mörk, en hann tók að sér að verja skjól- stæðing sinn í fjölmiðlum. Með- al annars bar hann brigður á hlutleysi sérfræðinga sem kall- aðir voru til í málinu. Lögmaður kæranda f siðanefndarmálinu, Siv Konráðsdóttir, hefur lýst því yfir að skjólstæðingur sinn vilji höfða dómsmál til að hnekkja niðurstöðu meirihlutans. - FÞG Leifur Hallgrímsson hjá Mýflugi veltir upp spurningum vegna ákvördunar Húsavíkurbæjar að styrkja Flugfélag íslands til áætlunarflugs milli Húsavík- ur og Reykjavíkur. Vestlensk böm komin á hotninn í meðaltali aUra greina fá nemendur 10. hekkjar í Reykja- vík 6,57 en Vestlend- ingar taka vid hotns- ætinu af Vestfirðing- ummeð 5,82. Rannsóknastofnun uppeldis og menntamála hefur sent frá sér niðurstöður samræmdra prófa í 10. bekk á þessu vorí. Prófað var í fjórum greinum, stærðfræði, þar sem meðaleinkunn yfir Iand- ið var 5,1, íslenska þar sem með- aleinkunn var 6,6, danska þar sem meðaleinkunn var 6,5 og enska þar sem meðaleinkunn var 6,6. I öllum greinunum er með- aleinkunnin hæst í Reykjavík, 5,4 f stærðfræði, 6,9 í íslensku, 6,9 í dönsku og 7,1 í ensku. í meðatali allra greina er útkoman lökust á Vesturlandi, en undan- farin ár hafa nemendur í 10. bekk á Vestfjörðum og Norður- landi vestra skipað þann vafa- sama sess. I stærðfræði var meðaleinkunn lægst á Suðurnesjum, 4,1; í ís- lensku var meðaleinkunn lægst á Suðurnesjum og Vesturlandi, 6,2; í dönsku var meðaleinkunn- in lægst á Vesturlandi, 5,7 og f ensku var meðaleinkunn lægst á Vesturlandi, eða 5,7. Nemendur sem tóku samræmt próf f norsku eða sænsku í stað dönsku eru ekki reiknaðir inn í meðaltal. Meðaleinkunn allra fjögurra greina var 6,57 í Reykjavík, 6,32 í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur, 5,70 á Suðurnesj- um; 5,55 á Vesturlandi, 5,82 á Vestfjörðum, 5,97 á Norðurlandi vestra; 5,95 á Norðurlandi eystra, 6,15 á Austurlandi og 5,80 á Suðurlandi. Alls þreyttu 3892 nemendur að meðaltali samræmd próf í 10. bekk á þessu vori. I stærðfræði náðu 10 nemendur þeim árangri að hljóta einkunnina 10,0 en flestir, eða 288, fengu einkunn- ina 6,5 og 217 nemendur fengu Iægstu einkunn, 1,0 eða 5,6% allra nemendanna. I íslensku fékk enginn einkunnina 10,0 en 6 nemendur 9,5 en flestir, eða 570 nemendur voru með ein- kunnina 7,0, og einn nemandi fékk einkunnina 1,5 sem hlýtur að vekja ugg í brjósti þeirra sem vilja veg móðurmálsins sem mestan. I dönsku náðu 50 nem- endur þeim árangri að hljóta ein- kunnina 10,0 en flestir, eða 393, fengu einkunnina 8,5 og 2 nem- endur fengu einkunnina 1,0. I ensku náðu 7 nemendur ein- kunninni 10,0 en flestir, eða 448, fengu einkunnina 8,0 en tveir ncmendur fengu einkunn- ina 1,0. Samanburður milli ein- stakra skóla eða bæjarfélaga Iigg- ur enn ekki fyrir. - GG Aukablað um hús og garða Veglegt aukablað fylgir Degi í dag - Hús og garðar. Blaðíð er 16 síður að lengd og kennir ýmissa grasa. Góða skemmtun. Ostaveisla á Norðurlandi Þessa dagana stendur yfir kynning á íslenskum ostum og ostaréttum á nokkrum stöðum á Norðurlandi á vegum Osta- og smjörsölunnar hf. Kynningin hófst í gær á Húsavík, Olafsfirði og Dalvík og verður fram haldið á Akureyri í dag og á morgun. í dag ld. 14-19 verður kynning í KEA-NE'ITO, Hagkaupi og Vöruveltunni 10/11 í Kaupangi. Og á morgun, laugardag, verður ostaveislunni fram haldið í KEA-NETTO, Hagkaupi og Úrvali Hrísalundi frá kl. 11-16. Meðal þess hnossgætis sem kynnt verður þessa daga má nefna ab- ost, Krydd-Havarti, Stóra-Dímon, Skólaost, Búra, Dala-Brie, Sítrón- uostaköku, Marmaraostaköku, Ostakvartett og Skinkusósu. Fagfólk frá Osta- og smjörsölunni ásamt og með norðlenskum ostameistur- um munu sjá um kynningarnar og gefa góð ráð. Þá verður og kynn- ing á vef Osta- og smjörsölunnar hf. - js Halldór varar við sundnmgu Á vorfundi utanríkisráðherra Atlantshafsbandalags- ins sem haldinn var í Flórens í gær ítrekaði Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra mikilvægi þess að frumkvæði Evrópusambandsins (ESB) í öryggis- og varnarmálum, sem þróast hefði hratt undanfarið, mætti ekki verða til þess að veikja Atlantshafsbanda- lagið og þær varnarskuldbindingar sem væru grund- völlur þess. Áréttaði utanríkisráðherra mildlvægi þess að ESB tæki ákvörðun á væntanlegum lciðtoga- ráðsfundi sambandsins í Feira í júní, um að bjóða evrópsku Atlantshafsbandalagsríkjunum sex utan ESB til reglulegrar þátttöku í nýjum öryggismála- stofnunum sambandsins. Sagði ráðherra að íslensk stjórnvöld hafi í hyggju að leggja af mörkum til sameiginlegra friðaraðgerða á vegum ESB í framtíðinni. Varaði ráðherra jafnframt við því að sköpuð yrði sundrung milli ESB og Atlantshafsbandalagsins. Mikilvægt væri að samtökin tvö tækju upp formleg samskipti hið lýrsta þar sem meðal annars yrði farið yfir möguleika ESB á aðgangi að liðsafla og búnaði bandalagsins svo og þátttöku bandalagsríkjanna sex utan ESB í ör- yggismálastofnunum sambandsins. - bþ Halldór Ásgrímsson.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.