Dagur - 26.05.2000, Blaðsíða 17
Xfc^MT
FÖSTUDAGUE 26. MAÍ 2000 - 17
LÍFIÐ í LANDINU
„Ég er kennari í mér“
Helgi Tómasson erjyr-
ir löngu orðinn goð-
sögn í hugum okkarís-
lendinga. Hann lagði
heiminn aðfótum sér
sem listdansari fyrir
þrjátíu árum og ernú
húinn að gera slíkt hið
sama sem listrænn
stjómandi San
Francisco hallettsins.
Uppsetning hans á
Svanavatninu erá dag-
skrá Listahátíðar í
Reykjavík ogMenning-
arborgarinnar.
Helgi Tómasson lagði endan-
lega frá sér ballettskóna þegar
hann tók við stjórn San
Francisco ballettsins árið
1985. Nokkrum árum áður
hafði hann fyrst reynt fyrir sér
sem balletthöfundur og var
hvattur til að halda áfram af
ekki ómerkari manni en Geor-
ge Balanchine danshöfundi.
Helgi þótt einn fremsti túlk-
andi verka Balanchine og Jer-
ome Robbins, sem segja má að
hafi uppgötvað danshæfileika
Helga.
- Eg hélt að klassískur ballett
væri rígfastur i fonninu, en
skilsl svo að þií hafir breytt
ýmsu í uppsetningu þinni á
Svanavatninu. Er slíkt kannski
algengt?
„Það er rétt að ég hef breytt
kóreógrafíunni heilmikið, en
það er ekki óalgent með Svana-
vatnið. Aðeins öðrum þættin-
um þykir ekki ástæða til að
breyta og í þriðja þættinum
held ég inni tvídansinum fræga
sem er kallaður Svarti svanur-
inn. Allt annað er mitt.“
Notuðu þjóðdansa
- Hvers vegna þarftu að búa til
ný sporfyrir Svanavatnið?
„Af því enginn veit með vissu
hvernig ballettinn var dansaður
í upphafi. Annar þáttur hefur
haldist nær óbreyttur síðustu
100 árin, en allt annað hefur
breyst.“
- Er ástæðan sú að ekki er til
neitt ritmál fyrir dans?
„Það er alveg hægt að skrifa
niður dans þó það hafi ekki
verið gert við Svanavatnið. Það
er aðeins vitað að á 19. öld
voru notaðir þjóðdansar í
fyrsta, þriðja og tjórða þáttinn.
Eg nota einnig þjóðdansaþem-
að en sporin eru algjörlega
mín.“
- Hefurðu endursamið fleiri
klassísk dansverk fyrir San
Fraticisco ballettinn?
„Ég breytti dálitlu í Giselle
og bætti við hann á einum
stað. Ég kom inn með tónlist
sem hætt var að nota og þurfti
þess vcgna að semja nýja
kóreógrafíu. Breytingin áÞyrni-
rós var mun minni enda meira
vitað um hvernig sá ballett var
fluttur."
Dansandi búningar
„Það eru til margar mismun-
andi uppsetning-
ar á ballett eins
og Svanavatninu
og oft kjósa
dansflokkar að
setja upp eldri
uppfærslu frekar
en gera breyting-
ar. Ég átti þess
líka kost, en
ákvað að búa til
mína eigin út-
gáfu.“
- Þannig að nú
geta aðrir ballett-
flokkar farið að
selja upp þína
útgáfu af Svana-
vatninu?
„Einmitt," seg-
ir Helgi og bros-
ir.
- Útgáfa þtn er
þá hluti af þvi
hve mikla athygli
sýningin hefur
vakið?
„Já og svo hafa
búningarnir vak-
ið athygli. Þeir
eru yfirleitt hafð-
ir í gotneskum stíl, sem mér
fannst of þungur. Ég vildi nota
í þá léttara efni svo að þeir
virkuðu meira dansandi. Um
Ieið færði ég söguna fram í
tíma. Ég læt hana gerast í
kringum aldamótin 1800, en
flestar uppsetningar á Svana-
vatninu, til dæmis í Bússlandi,
hafa verið staðsettar mun fyrr."
- Er það rétt skilið að San
Francisco ballettinn einbeiti sér
að klassískum dansi?
„Nei, alls ekki. Við sýnum
líka mikið af nýjum ballettum
sem ég og aðrir danshöfundar
höfum samið sérstaklega fyrir
flokkinn. Sumir þeirra eru
hreinir nútímaballettar. Það er
mikil breidd í dönsum á fastri
efnisskrá flokksins."
Ballett erfiðari
- Þarftu þá ekki að vera með
dansara sem
sérhæfa sig
ýmist í klass-
ískum dansi
eða nútíma-
dansi?
„Dansari
getur auðvitað
sérhæft sig, en
undirstaðan í
klassískum
balletti er svo
góð að Idass-
ískur dansari á
mjög auðvelt
með að dansa
nútímadans.
Hið gagn-
stæða á ekki
við. Þess
vegna kjósa
margir nú-
tímadanshöf-
undar núorðið
að semja lýrir
ballettflokk
frekar en nú-
tímadans-
flokk.“
- Er klass-
tskur ballett á
undanhaldi?
„Ekkert stendur í stað og
ekki viljum við hafa eingöngu
gamla ballettflokka á niðurleið.
Dansinn er háður breytinguin
og þróun eins og allt annað, En
það er rétt að sífellt færri geta
samið balletta í klassíkum stíl.
Hann er miklu erfiðari en sá
móderníski, þar sem allt er
leyfilegt."
- Nú er íslensld dansflokkur-
inn hættur að dansa klassiskan
ballett. Er það miður?
„Ég hef ekki getað fylgst með
dansflokknum og þekki hann
því miður ekki. En þetta er
þeirra ákvörðun og það geta
legið margvíslegar ástæður að
baki henni, til dæmis fjárhags-
legar. Ballett er mjög dýr list-
grein. Við getum tekið táskóna
sem dæmi. Aðalballerínan í
Svanavatninu fer með tvö til
þrjú pör á kvöldi. Hinar geta
notað sína skó í eina til tvær
sýningar. Þá eru allir búningar
handsaumaðir, þannig að
kostnaðurinn er gífurlegur."
Þrenn pör af táskóm
„San Francisco ballettinn er
ekki alltaf með svona stórar
sýningar. Vinsælust hjá okkur
núna er dagskrá þar sem boðið
upp á allt í senn klassískan
dans, nútímadans og alveg nýj-
an dans. Með þessu vil ég
kynna mismunandi listdans-
greinar fyrir fólki. Ahorfandi
sem kemur til að sjá klassískan
ballett fær að kynnast nútíma-
dansi og uppgötvar kannski að
hann hefur ekkert síður gaman
að honum. Eða öfugt. Þetta er
spurning um að læra og afla
sér þekkkingar."
- Ertu þá kennari t þér?
„Já.“ (Hlátur)
- Finnst þér skemmtilegt að
kenna dans eða skiptir máli fyr-
ir þig sem fyrrverandi dansara
að geta miðlað eigin kunnáttu?
„Ég kenni aðallega dans-
flokknum og það skiptir máli.
Þannig get ég sagt dönsurun-
unt hvernig ég vil að þeir
dansi.“
Horfið og njótið
- Hvað tók það langan tíma að
gera San Francisco ballettinn
að þeim afburðadansflokki sem
liann er í dag?
„Við getum sagt að það hafi
tekið allan þann tíma sem ég
hef verið með flokknum eða 1 5
ár. Ballettinn var orðinn góður
fyrir mörgum árum, en það
tekur langan tíma að öðlast
viðurkenningu og fá fólk til að
kannast við að flokkurinn sé
virkilega góður.“
- Hvað geturðu sagt við ís-
lenska áhorfendur sem ætla að
sjá Svanavatnið í kvöld og á
morgun, en eru ekki vanir að
horfa á klassískan ballett?
„Njótið hans - eins og þið
sætuð heima að hlusta á tón-
list. Það er ekki nauðsynlegt að
skilgreina tónlist til að geta
notið hennar. Þú þarft ekki að
vita um hvað hún er, hvernig
hún var sköpuð eða hvernig
hljóðfæraleikararnir spila á
hljóðfærin. Það sama á við um
dansinn. Þú þarft ekki að gera
annað en horfa og njóta þess
sem þú sérð.“
MEÓ.