Dagur - 26.05.2000, Blaðsíða 20

Dagur - 26.05.2000, Blaðsíða 20
20 - FÖSTUDAGVR 26. MAÍ 2000 Frumsaminn Árni Heidar Arni Heiðar Karlsson píanóleikari hefur boðað þrjá kunna djass- leikara með sér í Múlann, ó 2. hæð Sólons íslanduss, sunnu- dagskvöldið 28. maí klukkan 21.30. Jóel Pálsson saxófónleik- ari, sem ekki þarf að kynna, Valdimar Kolbeinsson konbrassa- leikari úr Funkmatser 2000 og hinn víðförli trommuleikari Matth- ías Hemstock ætla að leika með Árna tónlist sem hann hefur sjálfur samið. Á dagskránni verða lög eftir hann samin á síðast- liðnum fjórum árum og hafa fæst þeirra verið leikin opinberlega áður. Lítill fugl hvíslaði því þó að okkur að tónlistin væri undir ýmsum áhrifum, allt frá gospel til skandinavískrar ECM djass- tónlistar. Gehry, Botta, Graves.... A o , Arkitektúr- )innásér ^sínar stjörnur eins og aðrar list- greinar og nú eru hús eftir joær flest- ar saman komin á Kjan/alsstöðum. Laugardaginn 27. maíklukkan 15 verður Garðhúsa- bærinn opnaður við hátíðlega at- höfn, en þar gefur að líta líkön og teikningar af garð- húsum eftir ekki ómerkari menn en Mario Botta, Ralph Erskine, Michael Graves, Heikkinen & Komonen, Arata Isozaki, Josef Paul Kleihues, Léon Krier, Henning Larsen, Richard Meier, Enric Miralles, Dominique Perrault, Richard Rogers, Aldo Rossi, Al- varo Siza og Sören Lund. Þá verður á sýningunni garðhús í fullri stærð eftir íslensku arkitektana Hjördísi og Dennis. Börn úr Korpuskóla sýna eigin hugmyndir að garðhúsum. Sýningar- stjóri er Kirsten Kiser. V Tunglskot til the 80’s Klúbbur Listahátíðar verður í fullu fjöri um helgina. í kvöld verður óvænt W uppákoma, örugglega tengd ballett því klúbburinn þarf að hugga þá sem ekki fengu miða á Svanavatnið. Annað kvöld, laugardagskvöldið 27. maí ætla Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur og Gerður Kristný ritstjóri og skáld að leiða gesti í allan sannleikann um tónslátt níunda áratugarins með aðstoð Herberts Guð- mundssonar, sem flytja mun eitt lag. Doddi diskótekari af Radíó þeytir diskó-pönk skifur og Helena Jónsdóttir sýnir kannski break dans. Réttur dagsins eru diskókúlur. Á sunnudagskvöldið verður Klúbbfélögum boðið í tunglferð með Alexöndru Mir. Sér- stakir gestir eru Dr. Guðmundur Sigvaldsson jarðfræðingur, Gjörningaklúbburinn og Jón Hallur Stefánsson útvarpsmaður. Réttur dagsins er speisruddi.... ÞAO ER KOMIN HELGI Hvað ætlarþtxað gera? Neðsta sætið frátekið „Skákþing Norðurlands verður haldið hér á Húsavík um helgina og þar ætla ég heldur bet- ur að láta taka mig í karphúsið. Er meira að segja búinn að láta taka neðsta sætið frá fyrir mig, þannig að engum tekst þar að ógna mér,“ segir Sigurjón Benediktsson, tannlæknir og bæjarfulltrúi á Húsavík. „Skákþingið verður skipað fjölda góðra skákmeistara sem margir hverjir eru komnir með yfír 2.000 ELO stig, þannig að þú heyrir að hér verða miklir menn á ferð. - Nú svo ætla ég einnig að hugsa vel um Olíufélagið um helgina, enda er það nýbúið að kaupa stóran hlut hér í Fiskiðjusamlaginu. Og ætli ég verði ekki í leiðinni að huga einnig vel að öllum öðrum vinum okkar hér.“ Össur Skarphédinsson. Vitjað um væna urriða ,Á laugardag ætla ég í Laugardalinn í Reykjavík og þar ætla ég og dætur mínar að stíga með Gauja litla fyrstu skrefin í átaki því sem nefnt hefur verið Skref 2000. Þetta átak er fyrir þá sem eru svolítið of þungir og þurfa að ganga kílóin af sér, en sjálfur hef ég þó alltaf gert nokkuð af því að fara út að ganga. Ekki síst hefur það verið á sumrin og svo mun verða í ár,“ segir Ossur Skarphéðinsson alþingismaður og formaður Samfylkingarinnar. ,Á sunnudag stendur síðan til að fjölskyldan fari og fái sér bíltúr eitthvað út í buskann og verða kannski tvo daga, en hvert farið verður mun ráðast af veðri. En mér finnst líklegt að farið verði annað hvort upp í Borgarfjörð eða austur á Þingvöll, en þá yrði veiðistöngin með til þess að renna fyrir urrðiða en þeir hafa veiðst vænir í Þing- vallavatni í vor.“ Vesturfarasýiiiiig „Eg verð nú bara að vinna um helgina, enda þarf mörgu að sinna hér á bæ,“ segir Valgeir Þorvaldsson í Vesturfarasetrinu á Hofsósi. „Hér er verið að ljúka byggingu húsa sem munu hýsa fleiri sýningar sem hér verða settar upp og nú erum við að byija hér uppsetningu á farandsýn- ingu sem kemur frá Isiandssafninu í Giimi í Kanada, þar sem brugðið verður ijósi á sögu þeirra Islendinga sem fóru vestur um haf og urðu þar Iandnemar á sléttunum miklu. Það er mikið verk að setja þessa sýningu upp - en ekki neitt stórmál þó, enda vinnast öll verk vel sé góð stemning í kringum þau.“ ■ HVAD ER Á SEYfll? HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ TÓNLIST Dúett+ í Leikhúskjallaranum Djasssveitin Dúett heldur tónleika tileinkaða Miles Davis og Chet Baker í Listaklúbbi Leikhúskjallarans mánudagskvöldið 29. maí klukkan 20.30. Hljómsveitina skipa Þóra Gréta Þórisdóttir, Andrés Þór Gunn- laugsson, Valdimar Kolbeinn Sigur- jónsson og Birgir Baldursson. Fjórir ungir Fjórir ungir tónlistarmenn, þau Ari Þór Vilhjálmsson í^^^fiðuleikari, Árni Björn Árna- *son píanóleikari, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzosópran og Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari halda tónleika í Salnum, Kópavogi, sunnu- daginn 28. maí klukkan 20.30. Djass í Mulanum Nú eru bara tveir múlar eftir af vor- önninni. Næstsíðasti múlinn verður sunnudagskvöldið 28. maí, en þá mun Ámi Heiðar Karlsson leika ásamt hljómsveit. AUir tónleikar Múlans eru á efri hæð Sólon íslandus. Árni Heiðar Karlsson píanóleikari er nýútskrifaður úr klassískum píanóleik við Tónlistar- skólann í Reykjavík. I vetur hefur hann starfrækt eigið tríó ásamt Matth- íasi Hemstock trommuleikara og Tómasi R. Einarssyni kontrabassaleik- ara. Að þessu sinni er bandið í s breyttri mynd, á trommur er Matthías Hemstock, kontrabassa Valdimar Kol- beinn Sigurjónsson, píanó Árni Heiðar og á tenórsaxófón leikur Jóel Pálsson. Á þessum tónleikum mun hljómsveitin flytja lög eftir Árna Heiðar en þau eru samin á síðustu árum og sækir hann áhrif úr ýmsum áttum, allt frá negrasálmum í evrópskan „ECM“- djass. Tónleikarnir hefjast kl. 21:30 og er miðaverð 1000 kr., 500 kr. fyrir nema og eldri borgara. Flugskýli 4 Hljómsveitin Land & Synir verður á árlegu flugskýlisballi í flugskýli 4 á Reykjavíkurflugvelli laugardagskvöldið 27. maí sem er á vegum FI og Flug- Ieiða. Kristinn Sigmundsson og Karla- kórinn Stefnir Kristinn Sigmundsson syngur með Karlakórnum Stefni á tónleikum í Borgarleikhúsinu 3. júní. Efnisskráin er fjölbreytt að vanda en tekur mið af sjómannadeginum sem er sunnudag- inn 4. jún. Einnig verður frumflutt lag fyrir einsöngvara og karlakór, Þar sem háfjöllin heilög rísa, eftir stjórnanda kórsins Atla Guðlaugsson, við Ijóð Halldórs Laxness. Forsala aðgöngu- miða er hafin í Borgarleikhúsinu og er tónlistaráhugafólki bent á að vissara er að tryggja sér miða í tíma. Einnig er bent á tónleika Stefnis sem haldnir verða í Reykholtskirkju laugar- daginn 27. maí kl. 14.00. Hátíð harmonikunnar Hátíð harmonikunnar verður haldin í laugardagskvöldið 27. maí í Ásgarði, Glæsibæ í Reykjavík með harmoniku- tónleikum og -dansleik. Fjörið byijar kl. 20.30. Meðal flytjenda eru: Helgu Kristbjörgu Guðmundsdóttur (12 ára), Leif Þorbergsson (15 ára) og snilling- inn Vadim Fjodorov, sem öll koma frá Isafirði, Heimir Sverrisson, Garði, úr Harmonikufélagi Reykjavíkur koma þau Ása Eiríksdóttir, Margrét Arnar- dóttir (13 ára), Einar Friðgeir Bjöms- son og Matthías Kormáksson, sem þjóðkunnur hefur orðið fyrir snilli sína í harmonikuleik. Tvær stórar hljóm- sveitir með alls um þremur tugum flytjenda, STORMURINN undir stjórn Arnar Falkner og LÉTTSVEIT Harm- onikufélags Reykjavíkur undir stjórn Jóhanns Gunnarssonar. Allir eru vel- komnir hvort sem er á tónleikana, dansleikinn eða hvoru tveggja. Naustið Söngkonan og píanóleikarinn Lis Gammon frá Englandi syngur og spilar fyrir gesti í Reykjavíkurstofu um helg- ina. Hin vinsæla hljómsveit Upplyfting leikur fyrir dansi á föstudags- og laug- ardagskvöld. SÝNINGAR Myndabandaveisla Þessa dagana standa yfir sýningar á myndböndum eftir þekkta listamenn í Listasafni Islands. Föstudaginn 26. maí klukkan 12 og 15 verða sýnd verkin Frage (4 mín., 1979) og Haut- musik (3 mín., 1981) eftir Barböru Hamman. Laugardaginn 27. maí verður sýning á Song Delay (19 mín., 1973) eftir Joan Jonas. Myndbands- verkin Talk predding Eye Talk (41 mín.), Eye Talk (30 mín.), Eye Talk II, (55 mín) og Kúplingsdiskur (30 mín.) sem Magnús Pálsson gerði á árunum 1986 til 1999 verða sýnd með hléum frá klukkan 11 - 17. Sunnudaginn 28. maí verða tvær sýn- ingar á Working the douhle shift or chaning politics on the domestic front, (20 mín., 1984) eftir Liza Steele og Kim Tomczak. FUNDIR OG MANNFAGNAÐIR Málþing um lesskimun og lestr- arerfiðleika Á undanförnum árum hefur verið unn- ið að stefnumótun í málefnum nem- enda með sértæka lestrarörðugleika á öllum skólastigum. Menntamálaráðu- neytið hefur ákveðið að standa að mál- þingi um lesskimun og Iestrarörðug- leika. Á málþinginu verða flutt erindi um ýmsa þætti lesskimunar og lestrar- örðugleika, t.d. skilgreiningar á lestrar- örðugleikum, aðferðir við að meta sér- tæka lestrarörðugleika, úrræði fyrir nemendur og greint verður frá ýmsum mats- og mælitækjum þar að lútandi. Einnig verður svigrúm til umræðna og fyrirspurna. Málþingið verður haldið þriðjudaginn 6. júní nk. í Borgartúni 6 og stendur frá kl. 9.00-16.00. Mál- þingið er öllum opið og er þátttakend- um að kostnaðarlausu. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til menntamálaráðu- neytisins, grunnskóladeildar fyrir 4. júní nk. í síma 560 9567 fyrir hádegi, eða í tölvupósti erla.osk.gudjonsdott- ir@mm.stjr.is. Esperantistar funda Esperantistafélagið Auroro heldur fund í kvöld kl. 20:30 að Skólavörðu- stíg 6b. Gerð verður merkingafræðileg úttekt á andstæðuforskeytinu í esper- anto, rætt um esperantohreyfinguna í Afríku og dreift minnismiða um það helsta sem gera þarf húsnæði samtak- anna til góða og um skráningu bóka- safns. Málþing um matarfíkn Málþing um matarfíkn, offitu og holla hreyfingu verður haldið sunnudaginn 28. maí á Hótel Loftleiðum í Þingsal 5, kl. 13 til 15. Að málþinginu standa Landlæknisembættið og Félagasamtök Feitra. Aðgangur ókeypis og allir vel- komnir. OG SVO HITT... Námskeið fyrir börn um sveitarstörf Slysavarnafélagið Landsbjörg, Umferð- arráð og Vinnueftirlit ríkisins efna til námskeiðs um hættur sem geta fylgt sveitastörfum. Námskeiðið verður haldið í húsnæði Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Stangarhyl 1, mánudag- inn 29. ma( nk. Það stendur frá klukk- an 13 - 15:30 og verður farið yfir helstu hættur sem fylgja sveitarstörf- um, umgengni við dráttarvélar og önn- ur tæki og þátttakendur fá að skoða dráttarvél með þeim búnaði sem al- gengastur er. Námskeiðin eru ætluð börnum sem fædd eru árin 1985 til 1987. Innritun fer fram á skrifstofu Slysavarnafélagsins Landsbjargar í síma 570-5900 og er þátttökugjald krónur 1000 -. Félag eldri borgara Ásgarði, Glæsibæ Kaffistofa opin alla virka daga frá kl. 10:00-13:00. Matur í hádeginu. Göngu-Hrólfar fara í létta göngu frá Ásgarði Glæsibæ kl. 10.00 á laugar- dagsmorgunn. Eldri borgurum er boð- in afnot í Skólagörðum Reykjavíkur í sumar ef rými leyfir, nánari upplýsing-

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.