Dagur


Dagur - 26.05.2000, Qupperneq 5

Dagur - 26.05.2000, Qupperneq 5
 FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 2000 - 5 FRÉTTIR Neistar kviknuðu við fyrstu kynni BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON SKRIFAR Ólafur Ragnar Gríms- son forseti þakkar þjóðinni srigrúmið sem þau Dorrit fengu til að þróa samband sitt. Brúðkaupsdagur óákveðinn. Sannarlega var þröng á þingi að Bessastöðum í gær þegar Olafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, og Dorrit Mousaieff tilkynntu trúlofun sína. Olafur byrjaði fundinn á að bjóða fjölmiðla- menn hjartanlega velkomna til Bessastaða á „þessum fagra degi“. Þau virkuðu afslöppuð og ekki annað að sjá en að ást þeirra væri óskipt og innileg. Erfiðar aðstæður Ólafur Ragnar sagði það hafa ver- ið mikla gæfu fyrir sig á erfiðuð- ustu tímum í sínu lífi að hitta Dorrit og kynnast henni smátt og smátt og fá á ný trú á lífið, ham- ingjuna og ástina. „Eg veit að allir gera sér Ijóst að það er nú eitt og sér merkilegt að hitta manneskju og finna ást og tilfinningar að nýju eftir erfiða tíma en að þurfa síðan að gera það við þær aðstæður sem ég bý við og Dorrit að nokkru Ieyti líka. Það hefur gert þetta flóknara en allajafna, að reyna að vera maður og finna sig á ný sem manneskja á sama tíma og ég hef reynt að gegna skyldum mínum við for- setaembættið og fyrir þjóðina. Gæfan hefur verið mér hliðholl og fyrir það vil ég þakka á þessum degi. Það er eiginlega ekki hægt að lýsa því með orðum hve þakk- látur ég er fyrir þá gæfu og fyrir að Dorrit skuli hafa tekið mér, samþykkt að deila með mér lífinu það sem eftir er,“ sagði Ólafur Ragnar og tilkynnti síðan ákvörð- un þeirra um trúlofunina. Hann sagði ákvörðun ekki liggja fyrir um hvenær brúðkaupsdagur rynni upp, það yrði gert í samráði við Ijölskyldur þeirra. Þó gáfu þau það í skyn að brúðkaupið yrði á þessu ári. Trúiii engin fyrirstaða Ekki var heldur upplýst hvernig hrúðkaupið færi fram en þau eru hvort af sinni trúnni, hann krist- innar trúar og hún gyðingatrúar. Dorrit sagðist trúa á þann Guð sem væri sammannlegur öllu fólki og Ólafur Ragnar sagði fjölda fólks af ólíkum trúarhrögð- um vera í sambúð og trú þeirra væri því engin fyrirstaða. Hann sagðist reikna með að brúðkaup færi fram innan íslensku þjóð- kirkjunnar. Ólafur Ragnar sagði að það væri stór ákvörðun fyrir Dorrit að taka ekki aðeins honum heldur nýju landi, tungumáli og þjóð. Vonandi tækist það með hans hjálp, fjölskyldunnar og þjóðar- innar allrar. Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Mousaieffá Bessastöðum í gær, ástfangið par sem ætlar að verja lífinu saman það sem eftir er. myndir: gva. Dorrit sagði það hafa auðveld- að ákvörðunina að finna þann stuðning og hvatningu sem kom frá dætrum Ólafs Ragnars, þeim Döllu og Tinnu. Fyrir það vildi hún þakka. Hún þakkaði einnig íslensku þjóðinni fyrir þolinmæð- ina og góðvildina sem hún hefði sýnt þeim. Dorrit sagðist ætla að gera sitt besta til að koma fram fyrir Iand og þjóð sem góður full- trúi, henni líkaði Island æ betur, þrátt fyrir gæsirnar í landi Bessa- staða sem vektu hana á hverri nóttu! Dorrit mælti á ensku á blaðamannafundinum en sagðist vera að læra íslenskuna, fór með nokkur orð á íslensku og sagðist vera með góðan kennara sem Ólafur væri og fleiri í kringum hana. Fram kom á fundinum að Ólaf- ur Ragnar og Dorrit væru ekki búin að setja upp hringana og þau upplýstu heldur ekki hvort trúlofunarhringarnir yrðu bresk eða íslensk hönnun, en Dorrit er sem kunnugt er skartgripahönn- uður. Hann sagði heitbindingu þeirra duga að sinni, hringarnir biðu betri tíma. Aðspurð sagðist Dorrit að sjálfsögðu óska eftir ís- Ienskum ríkisborgararétti. Þakka þjóðinni fyrir svig- rúmið Þau upplýstu að þau hefði kynnst snemma í fyrra í hádcgisverðar- boði vina hans í London. „Það er skemmtilegt að segja frá því hér að hún hafði enga hugmynd um hver ég var og ég hafði enga hug- mynd um hver hún var. Það kviknuðu neistar á milli okkar þarna fyrst og síðan kvöldið eftir þegar við hittumst. Þá hafði hún einhverja hugmynd um hver ég var. Hugir okkar tengdust saman án þess að við vissum hvaða stöð- um eða störfum við gegndum. Það finnst mér ánægjulegt,“ sagði Ólafur Ragnar. Dagur spurði Ólaf Ragnar hvort þjóðin hefði veitt þeim það svigrúm sem hann óskaði eftir á síðasta ári, þegar samband þeirra varð opinbert. Hann var á því og vildi þakka þjóðinni fyrir það. „Ég gerði mér fyllilega grein fyrir því að það var flókið að verða fyrir þeirri lífsreynslu að finna allt í einu konu sem ég skynjaði að ég var ástfanginn af. Ég kaus að greina þjóðinni frá okkar sam- bandi, þegar fjölmiðlar hófu að fjalla um það, því ég vildi ekkert laumuspil í kringum það. Ég er mjög þakklátur fyrir það og tel að þjóðin og fjölmiðlarnir hafi sýnt okkur mikla tillitssemi og mikinn skilning," sagði Ólafur Ragnar. Aðspurður hvort tilkynna hefði átt trúlofunina þegar hann til- kynnti framboð sitt áfram til næstu fjögurra ára sagði Ólafur Ragnar ekki hafa séð ástæðu til þess. Þau hefðu viljað þróa sam- band sitt lengur og gefa Dorrit fleiri tækifæri til að kynnast starfi hans, m.a. með heimsókninni til Washington í síðasta mánuði. Þau hefðu hins vegar ætlað að til- kynna trúlofunina á afmæli hans 1 5. maí sl. en orðið að fresta því vegna anna Dorritar í útlöndum. Líklega hafa sjaldan verið jafnmargir fjölmiðlamenn samankomnir á Bessa- stöðum og i gær. Fjölskylda Dorritar Fjölmiðlar fengu í gær ágrip af ævi og fjölskylduaðstæðum Dor- ritar. Þar kemur fram að hún er fædd og uppalin í Jerúsalem en fluttist ung að árum til London, þar sem hún hefur átt heimili síð- an. Hún hefur um árabil fengist við hönnun skartgripa og marg- vísleg viðskipti. Hún hefur einnig haft umsjón með innréttingu gamalla og sögufrægra húsa og verið greinahöfundur í hreskum blöðum og límaritum. Embætti forsetans upplýsti cinnig að Dorrit talaði, auk ensku, frönsku, þýsku og hebr- esku og væri nú að læra íslensku. Meðal áhugamála hennar eru lista- og menningarsaga, útivist, skíðaíþróttir, sund og hesta- mennska. Foreldrar Dorritar eru Shlomo og Alisa Mousaieff og í tilkynn- ingu embættisins segir að faðir hennar sé víðkunnur fyrir „hið mikla og einstæða safn sitt af forngripum frá tímum Gamla og Nýja testamentisins." Fjölskyldan hefur einnig varðveitt eitt elsta og viðamesta safn fornra gyðinglegra handrita og hefur nýlega tilkynnt að safnið verði afhent háskólan- um í Tel Aviv.“ Móðir Dorritar var á yngri árum náin samstarfsmað- ur David Ben-Gurion, fyrsta for- sætisráðherra Israels. Systur hennar eru tvær, þær Tamara, sem býr í New York, og Sharon, sem býr ásamt Ijölskyldu sinni í Tel Aviv. „Einkamál sem kemui mér ekki vid“ Einn góðra kunningja Ólafs Ragnars er Össur Skarphéðins- son, formaður Samlýlkingarinn- ar. Hann sagðist í samtali við blaðið fagna trúlofuninni. Þetta væri ákaflega ánægjulegur við- burður. „Allir eiga rétt á því að finna hamingjuna og ég er viss um að þarna finna þau hana bæði. Þetta eru gleðitíðindi fyrir alla þjóðina," sagði Össur. Aðspurður hvort þjóðerni Dorritar hefði sérstaka þýðingu fyrir forsetaembættið sagði Össur það engu skipta. Is- lendingar væru alþjóðlegir og tækju öllum opnum örmum. Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður sagði að trúlofunin væri einkamál forset- ans sem kæmi sér ekki við, og hann vildi sem minnst vita af. Jón Steinar sagðist eðlilega sýna því skilning að við missi Guðrúnar Katrínar hefði Ólafur Ragnar leit- að samneytis við aðra konu. „Ólafur Ragnar Grímsson situr í embætti forseta lslands, illu heilli, og trúlofunin breytir engu um það,“ sagði Jón Steinar. HÆSTIRÉTTUR Baugur fór offari Baugi hefur af Hæstarétti verið gert að greiða starfsmanni, sem sagt var upp vegna meintra brota í starfi, laun í uppsagnarfresti, ríflega 520 þúsund krónur. Starfsmaðurinn undirritaði starfslokayfirlýsingu í febrúar 1999 og lét af störfum samdæg- urs, í kjölfar fundar hans með framkvæmdastjóra og öryggis- stjóra verslunar Baugs. Sagði hann að þar hefði sér verið gef- inn kostur á að segja upp eða vera sagt upp vegna meintra brota í starfi, sem m.a. voru í því fólgin að vinna í aukagetu við sölu meindýravarnarbúnaðs, sem hann seldi Baugi. Höfðaði hann mál til innheimtu launa í upp- sagnarfresti. Hæstiréttur taldi að hann hefði ekki afsalað sér þeim réttindum, að hluti meintra brota mannsins í starfi var talinn ósannaður og önnur atvik ekki talin hafa réttlætt fyrirvaralausan brottrekstur. Meðal gagna í mál- inu voru skjöl sem starfsmanna- stjórinn afhenti manninum fyrir mistök. Sjóður fær sitt Hæstiréttur hefur staðfest þá niðurstöðu undirréttar að Jón Guðmundsson og Leó E. Löve skuli greiða Samvinnusjóði 2,2 milljónir króna vegna máls, þar sem deilt var um skuldabréfalán. Samvinnusjóður veitti Leó skuldabréfalán með sjálfskuldar- ábyrgð Jóns og fyrsta veðrétti í Chryslerbifreið, sem félagið BT- Bílar seldi Leó. Vanskil urðu á láninu og höfðaði Samvinnusjóð- ur mál á hendur Leó og Jóni. Báru þeir fyrir sig að Samvinnu- sjóður hefði ranglega afhent BT- Bílum lánsQárhæðina í stað þess að greiða hana til Leós. Viður- kennt var að BT-Bílar hefðu haft alla milligöngu um töku og frá- gang lánsins og að Samvinnu- sjóður hefði greitt Iánsféð til BT- Bíla. Var afsal fyrir bifreiðinni talið bera það með sér að hún væri að fullu greidd og hefði Samvinnusjóður mátt ætla að það hefði gerst með afhendingu skuldabréfsins til BT-Bíla. Voru Leó og Jón því ekki taldir hafa sannað að haga hefði átt við- skiptunum á annan hátt. Meðferðin bjarg- aði þjófmim Hæstiréttur hefur tekið til greina rök sakfellds þjófs fyrir því að all- ur dómur hans í þjófnaðarmáli skuli skilorðsbundinn, í Ijósi þess m.a. að hann hefði farið í áfeng- ismeðferð. Maðurinn hlaut 8 mánaða dóm, þar af 6 mánuði skilorðsbundna. Með niðurstöðu Hæstaréttar losnar sá seki við þá tvo mánuði sem hann átti að sitja inni, þ.e. haldi hann skilorð. Maðurinn var sakfelldur fyrir rán og með því broti rauf hann skilorð tveggja eldri dóma, þar sem hann hafði verið dæmdur til að sæta fangelsi í samtais 60 daga fyrir þrjú þjófnaðarbrot. I þessu máli var hann dæmdur fyr- ir þátttöku með þremur öðrum í ráni í sjoppu við Ofanieiti í júlí 1999, þar sem ráðist var á af- greiðslumann. Þessi maður átti ekki frumkvæði að ráninu og tók ekki þátt í árásinni. - FÞG I

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.