Dagur - 26.05.2000, Side 9
' T n f (’ '1 T n >N ^
Q
Ttoptr.
ÍÞRÓTTIR
l.
Erkiij endumir
á Skaganiun
Þriðja umferð Landssímadeildar
karla í knattspyrnu hefst á morg-
un með leik gömlu erkifjend-
anna, IA og KR, á Skaganum.
Búist er við hörkuleik og víst að
bæði lið munu leggja allt í söl-
urnar til að sigra, þar sem leikur-
inn gæti verið einn sá mikilvæg-
asti á leiktíðinni í slagnum um
Islandsmeistaratitilinn og jafn-
vel ráðið úrslitum um Iokastöð-
una ef mjótt verður á mununum.
Báðum liðum hefur verið spáð
góðu gengi í sumar, þar sem ís-
landsmeisturum KR er spáð Is-
landsmeistaratitlinum annað
árið í röð og Skagamönnum öðru
sætinu. Skagamenn hafa styrkt
sitt Iið til muna fyrir sumarið og
hafa byrjað vel á mótinu, þar
sem þeir eru með fullt hús stiga
eftir tvær fyrstu umferðirnar.
Þeir unnu Leiftur á Skaganum í
fyrstu umferð 1-0 og síðan
Breiðablik í Kópavogi, einnig 1-0
og deila toppsætinu með Kefl-
víkingum. KR-ingar hafa ekki
byrjað eins vel og töpuðu 3-2
gegn Keflvíkingum á Laugar-
dalsvelli í síðasta leik, eftir að
hafa unnið Fram 1-0 á sama
velli í íyrstu umferð. Það er þó
ljóst að liðið er geysisterkt og
spurning hvenær það fer að sýna
sitt rétta andlit.
Skagamenn eiga harma að
hefna
Skagamenn, með baráttujaxlana
Sigurð Jónsson og Olaf þjálfara
Þórðarson innanborðs, eru ekki
árennilegir fyrir KR-inga hinu
megin Hvalfjarðarganganna, en
þar fara tveir leikmenn með
mikla reynslu sem sætta sig ekki
við neitt annað en sigur og hefur
annar þeirra, Ólafur Þórðarson,
marg lýst því yfir að hann þoli
alls ekki að tapa. Skagamenn
eiga líka harma að hefna gegn
KR-ingum frá því í íyrra, þegar
KR-ingar unnu þá í öll þrjú
skiptin sem liðin mættust, tvis-
var í deildinni og síðan í úrslit-
um bikarkeppninnar á Laugar-
dalsvelli. Þeir mæta því örugg-
lega ákveðnir til leiks, eins og
reyndar KR-ingar verða að gera,
til að rífa sig upp úr meðal-
mennskunni. Leikurinn hefst kl.
15:00.
Standa Framarar uiulir
væntingum?
Næstu þrír leikir 3. umferðar
fara svo fram á sunnudag, þar
sem Framarar fá Eyjamenn í
heimsókn á Laugardalsvöll,
Breiðablik mætir Leiftri norður
á Olafsfirði og nýliðar Stjörn-
unnar og Fylkis mætast í Garða-
bæ.
Framarar, hafa auk Breiða-
bliks, ekki ennþá krækt í stig í
deildinni og má ætla að nú verði
allt gefið í botn til að bjarga mál-
unum gegn IBV. Eyjamenn sem
eru í þriðja sæti dcildarinnar,
sem er einmitt það sæti sem
þeim er spáð, verða þó engin
lömh að leika sér við og ætla sér
örugglega ekkert annað en sigur.
Þegar liðin mættust í fyrra vann
ÍBV 0-2 sigur á Fram í Laugar-
dalnum, en jafntefli varð í seinni
leiknum í Eyjum. Framliöinu er
spáð ágætum árangri í sumar,
eða Ijórða sætinu, þannig að þeir
verða að fara að sanna sig ef þeir
ætla að standa undir væntingum.
Kemst Breiðahlik af botnin-
um?
Leikur Breiðabliks gegn Leiftri,
verður liðinu örugglega erfiður
eftir hrakfarirnar í upphafi móts
og Ijóst að sigurlíkurnar eru litl-
ar. Leiftursmenn hafa þó aðeins
hlotið eitt stig, eftir jafntefli við
Fylki í síðasta leik og tap gegn IA
í fyrstu umferðinni og þurfa því
nauðsynlega á sigri að halda, til
að halda sér í þægilegri stöðu.
Breiðablik er spáð fallsæti í
deildinni og þar sitja þeir enn
ásamt Fram eftir tvær fyrstu um-
ferðirnar, en Leiftur, sem er spáð
áttunda sætinu, deilir nú því sjö-
unda með Stjörnunni.
Það má svo húast við hörku-
leik í Garðabænum þar sem ný-
liðar Stjörnunnar og Fylkis mæt-
ast, en Fylkisliðið hefur þó verið
öllu brattara í upphafi móts, þó
Stjörnuliðið hafi alls ekki verið
að spila illa. Fylkir, sem var spáð
sjötta sætinu, vermir nú það
sæti, en Stjarnan það áttunda
með eitt stig. Leikurinn í Garða-
bæ hel’st kl. 16:00, en Ieikirnir á
Laugardalsvelli og í Ólafsfirði kl.
20:00.
Suðumesjaslagiix 1 Keflavík
Síðasti leikur umferðarinnar fer
svo fram í Keflavík á mánudag,
þar sem Keflvíkingar mæta ná-
grönnum sínum úr Grindavík.
Keflvíkingar, sem spáð er sjö-
unda sætinu í deildinni, eru á
mikilli siglingu í upphafi móts og
eru nú með fullt hús stiga í topp-
sætinu, eftir sigra á KR-ingum í
sfðasta leik og Breiðabliki í
fyrstu umferðinni. Grindvíking-
ar, sem spáð er fimmta sætinu
eru Iíka á mikilli siglingu og eru
taplausir í þriðja sætinu eftir 3-0
sigur á Fram í síðasta leik og
markalausu jafntefli við Stjörn-
una í opnunarleik mótsins. Eins
og alltaf þegar Suðurnesjaliðin
mætast, verður Ieikurinn örugg-
lega harður og spennandi og
ekkert gefið cftir. Keflvíkingar
eiga harma að hefna síðan í úr-
slitakeppni deildarbikarsins, en
þá unnu Grindvíkingar 5-1 stór-
sigur og það ætla Keflvíkingar
sér ekki að láta gerast aftur.
Leikir 3. umferðar:
Laugard. 27. ntat
Kl. 15.00 ÍA - KR
Sunnud. 28. ntat
Kl. 20.00 Fram - ÍBV
Kl. 20.00 Leiftur - Breiðablik
Kl. 16.00 Stjarnan - Fylkir
Mánud. 29. tnat
KI. 20.00 Keflavík - Grindavík
Dagsliðið 1. umferð
Guðmundur Steinarsson Andri Sigþórsson Keflavík KR
Sverrir Sverrisson Fylki Baldur Aðalsteinsson ÍA Biarni Geir Viðarsson ÍBV Sipurður Tónsson ÍÁ
Hlvnur Stefánsson ÍBV lakob lónharðsson Keflavík
Hlvnur Birgisson Leiftri Vladimir Sandulovic Stjömunni
Atli Knútsson Breiðabliki
FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 2000 - 9
Gary McAllister til Liverpool
Gamla brýnið, Skotinn Gary McAlIister, sem Ieikið
hefur með Coventry City síðustu árin hefur ákveðið
að ganga til liðs við Liverpool í sumar, þegar samn-
ingur hans við Coventry rennur út þann 30. júní.
Talið er að þessi 35 ára, fyrrum landsliðmaður
Skotlands, muni undirrita eins árs samning við
Liverpool, með fyrirvara um framlenginu hans til
eins árs eftir tímabilið. „Eg varð að grípa þetta tæki-
færi,“ sagði McAllister. „Þetta er ævintýri líkast og ég
gat hreinlega ekki annað en tekið tilboðinu," bætti
kappinn við.
Gary McAllister.
Evrópuleikjamet hjá Sanchis
Varnarmaðurinn Manuel Sanchis, hjá Real Madrit, setti leikjamet í úrslita-
leiknum gegn Valencia, hvað varðar þátttöku í leikjum Evrópumóts meist-
araliða. Sanchis, sem hélt uppá 35 ára afmælið sinn á mánudaginn var,
kom inná sem varamaður þegar níu mínútur voru til leiksloka og setti þar
með nýtt 100 leikja met. Eldra metið átti annar leikmaður Real Madrid,
Paco Gento, sem lék með liðinu á árunum 1950 - 1960 og vann með því
sex Evróputitla. Aðeins sjö félög hafa spilað fleiri en 100 Evrópuleiki
meistaraliða og þar leiðir Real Madrid með 214 leiki og hefur félagið tekiö
þátt í 30 keppnum af 45 frá upphafi. Sanchis, sem hefur leikið 48 lands-
leiki fyrir Spán, hefur leikið með Real Madrid síðustu sautján árin.
Yfír 200 manns slösuðust
Það var mikil gleði ríkjandi meðal stuðningsmanna Real Madrid eftir úr-
slitaleikinn í París og tugir þúsunda þeirra sem höfðu fylgst með leiknum í
beinni útsendingu sjónvarps heima í Madrid, flykktust út á götur borgar-
innar að leik loknum til að fagna. Svo mikill varð gauragangurinn að yfir
200 manns lágu meiddir, eftir ólæti sem brutust út í miðborginni, þegar
lögregla reyndi að hindra að verðmæt listaverk yrðu fyrir skemmdum. Við
það brutust út slagsmál og mun um fjórðungur hinna meiddu vera lög-
reglumenn.
Sigur og tap á EM í hlaM
Islenska karlalandsliðið í blaki tekur nú þátt í riðlakeppni Evópumótsins f
blaki sem fram fer á Möltu. Liðið leikur í C-riðli mótsins ásamt Liechten-
stcin, Kýpur, Irlandi og Lúxemborg og hefur þegar spilað río leiki gegn
Liechtenstein í fyrradag og gegn Kýpur í gær. 1 fyrri leiknum vann íslenska
Iiðið auðveldan 3-1 sigur á Liechtenstein, þar sem hrinurnar fóru 25:21,
25:17, 19:25 og 25:17. Okkar menn léku flestir mjög vel og aðeins í þriðju
hrinunni sem Lichtensteinarnir náði að velgja þeim undir uggum.
íslenska liðinu gekk ckki eins vel gegn Kýpurbúum í gær og töpuðu þar
0:3, þar sem hrinurnar fóru 17:25, 20:25 og 22:25. Liðið lékágætlega gegn
sterku liði Kýpveija, sem þurfti að hafa þó nokkuð fyrir sigrinum.
I dag , föstudag, leikur íslenska liðið t\'o Ieiki, gegn Irlandi kl. 11:00 og
gegn Lúxemhorg kl. 20:00. A morgun verður síðan leikið krossspil og síðan
fara úrslitin fram á sunnudag.
Magnús Aron nálgast ÓL-lágmarkid
Magnús Aron Hallgrímsson, kringlukastari úr HSK, tók í fyrrakvölil þátt í
sterku fijálsíþróttamóti í Knox\'iIIe í Tennessee í Bandaríkjunum og kastaði
kringlunni þar 60,66 m. Þetta er lengsta kast Magnúsar til þessa, en fyrir
átti hann best 60,62 m frá því árið 1998. Olvmpíulágmark FRI er sléttir 62
metrar þannig að Magnús nálgast það óðum. Magnús varð þriðji á mótinu,
en sigurvegarinn, Bandaríkjamaðurinn Andy Bloom, kastaði 64,76 metra.
Þetta er þriðja mótið sem Magnús tekur þátt í núna í vor, en á fyrsta mót-
inu kastaði hann 56,50m og síðan 58,86 m á öðru mótinu. Magnús hefur
í vetur dvalið í Athens í Georgiu við æfingar og keppni og síðastliðinn mán-
uð með Sydneyhópi FRI. Vésteinn Hafsteinsson, þjálfari Magnúsar, sem
jafnframt er verkefnisstjóri Sydneyhóps FRI, sagði að næstu keppnir hjá
Magnúsi yrðu í Svíþjóð í byrjun júní og ætti hann þá von á enn betri árangri
hans.
Dagsliðið 2. umferð
Guðmundur Steinarsson Andri Sigþórsson
Keflavík KR
Páll Guðmundsson Paul McShane
ÍBV Grindavfk
Zoran Ljubicic Sigurður Jónsson
Keflavík ÍA
Hialti lóhannesson Sturlaugur Haraldsson
ÍBV ÍA
Hlvnur Birpisson Vladimir Sandulovic
Leiftri Stjörnunni
Gunnleifur Gunnleifsson
Keflavík