Dagur - 26.05.2000, Síða 11

Dagur - 26.05.2000, Síða 11
FÖSTVDAGVR 26. MAÍ 2000 - 11 ERLENDAR FRÉTTIR Mannréttmdaákvæð- in pirra Kínverja Kínverjar fagna upp- hafi eðlilegra við- skiptatengsla við Bandaríldn. Talsmaður kínverska viðskipta- ráðuneytisins sagði kínversk stjórnvöld engan veginn sætta sig við þau skilyrði í mannrétt- indamálum, sem Bandaríkjaþing setti Kínveijum í tengslum við löggjöf um aukin viðskiptatengsl ríkjanna. Hann krafðist þess að Banda- ríkin leiðréttu þessi afglöp sín svo tryggja megi eðlilega þróun í samstarfi og viðskiptum Iand- anna. Hins vegar fögnuðu Kínverjar ákaft að nú hafi Bandaríkjaþing samþykkt lög um varanleg við- skiptatengsl ríkjanna, sem m.a. auðveldar Kínverjum inngöngu í Heimsviðskiptastofnunina (WTO). Kínverjar sögðu þessa ákvörðun þingsins hafa verið „viturlega“. Mannréttindaskilyrðin felast í því að sérstök nefnd verður sett í það að fylgjast með frammistöðu Kínverja í mannréttindamálum. Nefndin getur síðan mælt með refsiaðgerðum, en þær yrðu að vera í samræmi við reglur WTO. Eins og venjulega líta Kínverjar á öll afskipti af ástandi mannrétt- indamála sem óeðlilega íhlutun í innanríkismál, og bregðast hinir verstu við. Þessi ákvæði voru sett inn í lögin að kröfu demókrata á Bandaríkjaþingi, sem voru and- snúnir frumvarpinu vegna ástands mannréttindamála í Kfna. Ekki var þó samþykkt að setja inn í lögin ákvæði um að þau færu úr gildi ef Kínverjar gerðu árás á Taívan, eins og sumir bandarískir þingmenn vildu. Með þessari ákvörðun Banda- rfkjaþings Iýkur tuttugu ára tímabili í viðskiptum Bandaríkj- anna og Kína, sem hafa ein- kennst af því að Bandaríkjaþing hefur árlega þurft að endur- skoða þau kjör sem Kínverjar eigi að njóta. Með nýju lögunum er Kínverj- um tryggður aðgangur að banda- rískum markaði á sömu kjörum og flest önnur ríki hafa, en í staðinn veita Kínverjar banda- rískum fyrirtækjum aðgang að eigin markaði. Ekki er þó talið að samningur ríkjanna komist fyllilega í framkvæmd á næst- unni, og Iiðið geta mörg ár þang- að til fyrirtæki í Bandaríkjunum geti í raun verið komin með full- an aðgang að kínverskum mark- aði. Bandarískir þingmenn sögðu þessa ákvörðun hafa verið sögu- lega og eina þá mikilvægustu sem þeir hefðu tekið á þingferli sínum. Bill Clinton lítur jafn- framt á þessa ákvörðun þingsins sem pólitískan sigur sinn, þar sem hann hefur lengi hvatt þing- ið til þess að samþykkja lögin. Taívanir hafa lýst yfir ánægju sinni með ákvörðun Bandaríkja- þings, enda má reikna með að Taívan gangi einnig í WTO og þá væru sjálfkrafa komin á við- skiptatengsl milli Kína og Taívan og vettvangur þeirra til þess að ræða ágreiningsmál sín. Aður en Kínverjar geta fengið aðild að WTO þurfa þeir þó íyrst að semja um tvíhliöa markaðsað- gang við nokkur ríki, þar á með- al Mexíkó og Sviss. Króatía með Nató á íslandi ÍTALIA - A vorfundi utanríkisráðherra Nató í Flórens á Italíu í gær gekk Króatía formlega til samstarfs við Nató og undirritaði utanríkis- ráðherra Króatíu þar aðildarskjal sitt. A sama fundi bauð Halldór As- grímsson, utanríkisráðherra, Króatíu að senda fulltrúa á almanna- varnaræfinguna Samvörð 2000, sem haldin verður í júní n.k. á Is- landi. Æfingin er fyrsta verkefnið sem Króatíu gefst kostur á að taka þátt í sem aðili að samstarfinu í þágu Iriðar (PfP). Rússar tvöfalda kjamorkimotkim BUSSLAND - Bússneska stjórnin hefur samþykkt áætlun um að hlutur kjarnorku í raforkuframleiðslu verði tvöfaldaður á næstu þrjá- tíu árum. Nú er hlutur kjarnorkunnar um það bil 14% af raforku- notkun Bússa. Þetta þýðir að byggð verða ný kjarnorkuver, einkum í Evrópuhluta Rússlands. Eritrea gefst upp, Eþíópía berst áfram ERITREA - Stjórnin í Eritreu sagðist í gær vilja helja samningavið- ræður við Eþíópíu um landamæraágreining ríkjanna, og er reiðubú- in til þess að Ieggja niður vopn þegar í stað. Einnig sögðust Erítrear ætla að draga herlið sitt frá öllum þeim svæðum, sem tekin voru af Eþíópíu fyrir tveimur árum, en þá hófst landamærastríðið. Fulltrúar Eþíópíu gerðu lítið úr þessum yfirlýsingum í gær, og sögðu þær hjá- kátlegar í ljósi þess að eþíópíski herinn hefði hrakið Erítreumenn frá svæðunum. Ekki væri því um skipulagðan brottflutning hers að ræða heldur flótta. Talið er að meira en 100.000 manns hafi látist í stríðs- átökunum undanfarin tvö ár. Morð á hamborgarastað BANDARÍKIN - Ræningjar DÚnir alvæpni myrtu fimm starfsmenn á hamborgarastað í New York snemma í gærmorgun. Auk þess særðust tveir aðrir alvarlega í andliti. Vitni töldu árásarmennina vera undir áhrifum annarlegra lyfja, og hefðu þeir sýnt mikinn hrottaskap. Bráðabirgðastjóm hugsanleg FÍDJIEYJAR - Málamiðlunartillaga kom í gær fram á Fídjíeyjum, sem gengur út á það að hinn indverski forsætisráðherra, Mahendra Chaudry, annað hvort segi af sér embætti eða verði rekinn. Síöan verði mynduð bráðabirgðastjórn sem starfi í þrjú ár, en að því búnu fari fram kosningar. Fyrstu viðbrögð uppreisnarmannanna, sem halda Chaudray og fleiri ráðamönnum í gislingu í þinghúsi eyjanna, voru heldur neikvæð og ekki víst að þeir sætti sig við þessa málamiðl- un. Þeir vilja að stjórnin fari frá völdum og stjórnarskrá landsins verði breytt hið fyrsta þannig að innfæddum verði tiy'ggður meirihluti á þingi, jafnvel þótt þeir séu ekki nema tæplega helmingur eyja- skeggja. Úkraína afvopnast ÚKRAINA - Úkraínustjórn skýrði frá því í gær að öll hernaðarlega mikilvæg vopn verði eyðilögð fyrir árslok 2001, en það er í samræmi við alþjóðlega samninga sem Úkraína hefur gengist undir. Úkraína hafði strax um miðjan tíunda áratuginn afhent Rússum öll kjarn- orkuvopn. ■ FRÁ DEGI FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 147. dagur ársins, 219 dagar eftir. Sólris kl. 3.38, sólarlag kl. 23.14. Þau fæddust 26. maí • 1799 - Alexander Pushkin, rússneskt skáld. • 1886 - A1 Jolson, bandarískur söngvari og gamanleikari. • 1898 - Brynjólfur Bjarnason ráðherra og heimspekingur. • 1907 - John Wayne, bandarískur bfó- leikari með kúrekadellu. • 1930 - Ragnhildur Helgadóttir, fyrrver- andi ráðherra. • 1948 - Stevie Nicks, bandarísk rokksöngkona (úr Fleetwood Mac). • 1966 - Helena Bonham Carter, bresk leikkona. • 1972 - Kristinn Björnsson skíðamaður. Þetta gerðist 26 maí • 1056 var ísleifur Gissurarson vígður biskup fyrstur íslenskra manna og sat í Skálholti. TIL DflGS • 1521 bannfærði kaþólska kirkjan Mart- ein Lúter vegna skrifa hans um trúmál. • 1805 var Napóleon Bonaparte; keisari Frakklands, krýndur konungur Italíu. • 1845 lést Jónas Hallgrímsson skáld og náttúrufræðingur í Kaupmannahöfn, 37 ára. • 1968 var hægri urnferð tekin upp hér á landi. • 1971 tók bandaríski tónlistarmaðurinn Don McLean upp Iag sitt „American Pie“, sem gengið hefur í endurnýjun líf- daga að undanförnu. • 1989 tóku 8.000 útvarpsstöðvar í Bandaríkjunum upp á því að stöðva út- sendingar til þess að vekja athygli á mik- ilvægi sínu. Þær treystu sér þó ekki til að hafa þögnina lengri en hálfa mfnútu. Vísa dagsins Brennivtn ég býö ekki neinum, best er mér aö drekka þaö einum. Hvaö á svín meö silfur á trýni? svo er að fylla „dóna" meö vtni. Páll Ólafsson Afmælisbam dagsins Þrátt fyrir dúkkulísulegt útlitið verður Peggy Lee að teljast ein athyglisverðasta dægurlagasöngkona tuttugustu aldar. Norma Egstrom heitir hún, er af sænsk- um uppruna en fæddist í Norður- Dakóta í Bandaríkjunum þann 26. maí árið 1920, og er því áttræð í dag. Sjálf hefur hún samið tjölmörg lög og texta, ýmist cin eða með öðrum, og er einna þekktust f’yrir lagið „Fever“, sem Elvis Presley hcfur m.a. sungið. Meðal Ijöl- margra söngvara seni flutt hafa lögin hennar eru Bing Crosby, Ella Fitzger- alcl, Judy Garland, Nina Simone, Madonna og k.d. lang. Allir kvarta undan lélegu minni, en enginn undan lélegri dómgreind. La Rochefoucauld Heilabrot Kappreiðar voru að hefjast, og keppend- urnir voru tveir bræður, synir ríks bónda sem hafði sagt bræðrununt að sá þcirra, sem ætti þann hestinn sem hlypi hægar, myndi erfa jörðina eftir hann. Nú óttuðust þeir báðir, að hinn myndi svindla með því að Iáta hestinn ekki fara jafn hratt og hann kæmist. Þeir leituðu ráða hjá nágranna sín - um, sem fljótlega kom auga á óbrigðula lausn á vanda þeirra. Hvernig var hún? Lausn á síðustu gátu: Þriðja barnið fædd- ist um svipað leyti, þannig að stúlkurnar tvær voru hluti þríbura, en ekki tvíburar. Veffang dagsins Öðru vísi leið til að nálgast upplýsingar á Netinu er að senda spurningar til fólks, sem þekkir til á því s\dði sem um er að ræða og veitir þjónustu sína á Netinu. Slík þjón- usta er t.d. á www.askme.com

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.