Dagur - 26.05.2000, Qupperneq 16
Hreinn Sæmundsson,
54 ám húsvörðurí
Flensborg, hefurekki
bara verið húsvörður
við skólann síðustu ár
heldurlíka nemandi.
Hann setti upp stúd-
entshúfu þar um síð-
ustu helgi og gerði
reyndar betur því hann
sópaði líka að sérað
sérverðlaunum.
„Ég hef verið að dunda við þetta
nám í öldungadeildinni í sex
vetur. Þegar ég byrjaði var ég
ekkert sérstaklega að stefna á
stúdentspróf, vildi hara kynna
mér ýmsa hluti" segir Hreinn.
Hann kveðst ekki hafa haldið
sig við neina ákveðna braut
heldur farið í það sem bauðst
hverju sinni og fyrir bragðið sé
hann kominn með 40 einingar
framyfir það sem þurfi til stúd-
entsprófs. „Ég hringlaði fram og
aftur og væri löngu húinn með
prófið ef ég hefði haldið mig við
eitthvað ákveðið," segir hann
sallarólegur.
Hreinn útskrifaðist af hag-
fræðibraut en vantar hara einn
áfanga til að Ijúka við félags-
fræðibrautina og annan upp á
tölvulínu innan hagfræðibraut-
arinnar.
Verðlaun fyrir
uppáhaldsfögin
Við útskriftina fékk hann bóka-
verðlaun fyrir íslensku, ensku,
þýsku og sögu og hann segir
þau endurspegla hver hafi verið
hans uppáhaldsfög. „Upphaf-
lega ætlaði ég að fara í gegn um
íslenskuáfangana, erlend
tungumál og sögu, svo var ég
líka að kíkja í sálarfræði, félags-
fræði, heimspeki og fleira.“
Hann kveðst hafa verið minna
fyrir raunvísindin. „Ég var yfir-
Ieitt lélegri í þeim fræðum sem
tölustafir voru notaðir í en hók-
stafir. flagfræðigreinarnar höfð-
uðu ekki til mín og stærðfræðin
fannst mér tormelt."
Hann viðurkennir að það sé
dálítið sérstakt að útskrifast af
þeirri braut sem liggi lengst frá
áhugasviðinu en segir það hafa
Ég væri löngu búinn
meðprófið efég hefði
haldið mig við eitt-
hvað ákveðið
verið tilviijun að hún kláraðist
fyrst. Hann efast um að Ijúka
við hinar brautirnar og telur þá
áfanga sem eftir séu þar skipta
Iitlu máli. „Einn er bara vélrit-
unaráfangi, aðallega til að þjál-
fa upp hraðann," segir hann og
bætir við að óhægara verði um
vik næsta vetur að stunda nám
því engin öldungadeild verði við
Flensborg vegna IítiIIar aðsókn-
ar. „Það er svo margt í boði alls-
staðar,“ segir hann.
Níu mánuði í bamaskóla
Hreinn er uppalinn norður á
Tjörnesi og á hans barnaskóla-
árum var farkennslan enn við
lýði. „Ég held ég hafi verið sam-
tals níu mánuði í barnaskóla,"
segir hann en bætir við að eftir
það hafi hann lesið 1. bekk
gagnfræðaskóla utan skóla og
tekið próf um vorið. „Svo settist
ég á skólabekk í gagnfræðaskóla
Húsavíkur og Iauk þaðan lands-
prófi eftir tvo vetur en síðan
ekki söguna meir. Eftir það lá
leiðin á vinnumarkaðinn." Við
eftirgrennslan kemur í Ijós að
hann hefur lagt gjörva hönd á
margt, unnið á skrifstofu, við
jarðvegsvinnu, hjá glerskreyt-
ingafyrirtæki og f tuttugu ár
siglt á fragtskipi um heimsins
höf. „Ég kom ekki endanlega í
Iand fyrr en ‘97 en þá tók ég að
mér húsvörslu við Flensborgar-
skólann." Hann kveðst hafa
verið farinn að vera löngum
stundum í landi strax 1994 og
þá notað tímann til lærdóms.
Skyldi það hafa verið draumur-
inn allan tímann að Iæra meira?
„Já, ég man eftir því að þegar
Hamrahlíðin byrjaði með öld-
ungadeild 1972 sagði ég strax
að þetta væri eitthvað sem ég
ætlaði að prófa við tækifæri.
Svo liðu yfir tuttugu ár þar til ég
kýldi á það.“
Menntimin notast óbeint
Hreinn kveðst ekki hafa lært
þýsku fyrr en í Flensborg en
alltaf þótt leiðinlegt að geta
ekki átt orðaskipti við Þjóðverja
þegar hann var í siglingum.
„Svo fer maður að læra þetta
þegar maður er hættur að þurfa
á því að halda,“ segir hann og
hristir höfuðið. En hyggst hann
breyta eitthvað sínu Iífi með til-
liti til þessa nýja áfanga? „Nei,
þótt hagnýtir hlutir eins og und-
irstöðuatriði í tölvukunnáttu sé
eitthvað sem ég mun nota þá tel
ég menntunina aðallega koma
mér óbeint að gagni. Hún hefur
áhrif á ýmis viðhorf og það er
gott þegar maður er að vinna í
skólanum að vita hvað krakk-
arnir eru að fást við.“
- GUN
mammmommamammm
Bókaðu í síma 570 3030 og 460 7000
Fax 570 3001 • websales@airiceland.is •www.flugfelag.is