Dagur - 26.05.2000, Síða 19
F Ö STUDAGIIR 2 6. MAÍ 2 0 00 - 19
LEIKHÚS
KVIKMYNDIR
TÓNLIST
SKEMMTANIR
Úr og í skautahöllina
Viðamikil
tískusýning og
skemmtun verð-
urhaldin í Skautahöll-
inni áAkureyri í
kvöld, þarsem boðið
verðuruppá það
flottasta ísumarlínu
tískuverslana og sköp-
unargleði íslenskra
fatahönnuða.
Tilkoma saumavélarinnar á 19.
öld olli straumhvörfum, bæði í
lífi saumakvenna og neytenda.
Líkaminn er útgangspunktur
allrar fatahönnunar og án hans
er engin þörf fyrir föt. Einstök
föt eru hönnuð fyrir einstakar
konur og einstaka menn.
Þegar við lesum í fatnað og
útlit erum við, meðvitað eða
ómeðvitað, að safna upplýsing-
um um samferðamenn okkar.
Upplýsingar um kyn, pcrsónu-
leika, stétt og stöðu, sem eru
brotnar niður í tákn og myndir
út frá fatnaði og ýmsum fylgi-
hlutum, verða því að eins kon-
ar tungumáli okkar á milli.
Með þessum hætti sendum við
þeim sem horfa á okkur skila-
boð, sönn eða skálduð, um
hvernig við kjósum að koma
þeim fyrir sjónir.
Það er ekki auðvelt að vera
fatahönnuður á Islandi, mark-
aðurinn er lítill, vinnuaflið er
dýrt og áhættufjárfestar hafa
verið mjög tregir til að taka
áhættu í þessum efnum. Engan
þarf því að undra að íslenskir
fatahönnuðir þurfi að leggjast í
víking og spreyta sig á erlendri
grund.
I tengslum við hönnunarsýn-
inguna „Ur og f“ í Listasafninu
á Akureyri verður efnt til viða-
mikillar tískusýningar í sam-
starfi við Eskimo Models og
Futurice í Skautahöllinni á Ak-
ureyri í kvöld og hefst hún kl.
20.00. Það eru tískuverslanirn-
ar Levi¥s/Stone, Parið, Perfect,
Chrome, XI8 og Gallery 17,
sem sýna sumarfatnað úr versl-
unum sínum. Hársnyrtistofan
Medulla sér um hár og förðun
Eskimomódelanna.
Boðsmiðum dreift
Mikið verður lagt í sýninguna
og verður lifandi tónlist spiluð
undir af hljómsveitinni Sanasol
frá Reykjavík. Tískulöggan,
Svavar Orn Svavarsson verður
kynnir kvöldsins. Heiðursgest-
ur verður Bolli Ásgeir Krist-
jánsson, eigandi Gallery 17.
Skipuleggjendur eru: Listasafn-
ið á Akureyri í samstarfi við
Halldór Magnússon, Hönnu
Hlíf Bjarnadóttur og Þórarinn
Blöndal. Veitingar verða í boði
Kaffi Karólínu og Egils ehf.
Eftir hlé munu fimm ungir,
íslenskir fatahönnuðir kynna
framleiðslu sína og gefst norð-
anmönnum hér einstakt tæki-
færi til að taka forskot á sæl-
una, því hönnuðirnir fimm eru
þeir sömu og valdir hafa verið í
tískusýninguna Futurice, sem
haldin verður í Reykjavík í
ágúst næstkomandi í samvinnu
við Reykjavík menningarhorg
Evrópu árið 2000.
Áætlað er að framhald verði
á skemmtuninni í Skautahöll-
inni sem lýkur um það bil kl.
23.30 í Sjallanum og Deiglunni
á Akureyri og verður boðsmið-
um dreift til 16 ára og eldri á
sýningunni. Aðgangseyrir á
sýninguna er kr. 500.
- W
Á sýningunni í Skautahöllinni verður kynning á sumartísku helstu tískuversl-
ana á Akureyri, aukþess sem Gallery 17 í Reykjavík mun viðra sína fatalínu.
Rúsínan í pylsuendanum er svo sýning fimm íslenskra fatahönnuða á fram-
leidslu sinni.
San Francisco ballett-
inn dansar Svanavatn-
ið við tónlistTsjajkov-
skíj undirstjóm Helga
Tómassonar í Borgar-
leikhúsinu í kvöld,
föstudaginn 26. maí
klukkan 20. Fjórar
sýningarem laugar-
dag og sunnudag,
klukkan 14og20
báða dagana.
San Francisco ballettinn hefur
vakið rnikla athygli í Bandaríkj-
unum og víðar á undanförnum
árum undir Iistrænni stjórn
Helga Tómassonar. Engin sýn-
ing flokksins hefur þó vakið jafn
mikla athygli og Svanavatnið
sem Helgi hefur að hluta til
endursamið (sjá bls. 17) án þess
þó að breyta söguþræðinum.
Prinsessa í álögum
Svanavatnið er ballett í fjórum
þáttum. 1. þátturinn hefst í 21
árs afmælisveislu Sigfrieds
prins, þar sem dansaður er þrí-
dans honum til heiðurs.
Drottningin færir honum lás-
boga að gjöf og tilkynnir hon-
um að mál sé að hann kvænist.
Hún ætli að bjóða til dansleiks
næsta kvöld með nokkrum
prinsessum. Sigfried er ekkert
yfir sig hrifinn og yfirgefur
veisluna.
I upphafi 2. þáttar flýgur
hópur svana yfir. Prinsinn
mundar lásbogann, en þá
breytist einn svanurinn í und-
urfagra konu, Odettc. Sigfried
er heillaður og Odette trúir
honum fyrir því að hún og
stöllur hennar hafi verið
hnepptar í álög af Rauðskeggi
seiðmanni. Þær heri svansham
á daginn en séu mennskar á
nóttunni. Aðeins einlæg ást og
tryggð mennsks manns geti los-
að þær.
Svik seiðmannsms
Sigfried svcr henni eilífa ást,
en þá birtist Rauðskeggur. Sig-
fried ætlar að skjóta hann, en
Odette skýlir honum. Dauði
hans myndi þýða að hún losn-
aði aldrei úr álögunum. Rauð-
skeggur flýr, Odette hleypur f
burt og prinsinn á eftir. Þá
birtast hinar svanameyjarnar
og dansa margrómaðan vals.
Sigfried hirtist aftur einn og
játar ást sína í frægum tvíd-
ansi. I lok nætur breytast stúlk-
urnar allar aftur í svani.
3. þáttur hefst á dansleikn-
um sem drottning hefur boðið
til sex álitlegum prinsessum..
Sigfried dansar við þær allar,
en hugurinn er hjá Odette.
Rauðskeggur svindlar dóttur
sinni inn í líki hennar og Sig-
fried tilkynnir að þarna sé heit-
mey sín koniin. Hann uppgötv-
ar mistök sín í lok þáttarins og
yfirgefur höllina. 1 fjórða þætti
leysist úr flækjunni og allt end-
ar vel að lokum eins og í öllurn
sönnum ævintýrum.
- MEÓ
njfiKfiiwti TlimiW
Mangi'ét ■ Valdís
Elísabet Ólafsd ■ Viðars
■um helginaI
ErlingurJón Valgarðsson (elli)
m
Helga jörð
>^j^^Myndlistarmaðurinn
l Erlingur Jón Valgarðs-
son (elli) opnar sýningu
í Gallerí List Skipholti
50d, laugardaginn 3.
júní, kl. 15. Á sýning-
unni verða málverk og skúlptúr-
ar. Sýningin nefnist Helga jörð.
Um sýninguna segir listamað-
urinn: „Jörðin á skilið virðingu,
auðmýkt og aðdáun. Gjöfult líf
hennar, fegurð dulúð og máttur
lætur engan ósnortinn. Til að
heiðra hana fyrir gjafír hennar
og Iíf, og ekki síst til að sýna
henni auðmýkt og virðingu hef
ég unnið málverk og skúlptúra
sem sýna tilbrigði hennar í lit-
um, formum og áferð.“
elli er fæddur 1961. Hann
stundaði listnám við Myndlista-
skólann á Akureyri, hjá Rafael
Lopes í Falun í Svíþjóð og við
Haraldsboskolan á sama stað.
elli er búsettur á Akureyri og
hefur haldið nokkrar einkasýn-
ingar þar sem og í Reykjavík.
Hann hefur einnig tekið þátt í
samsýningum bæði hér heima
og í Svíþjóð. Sýningin er opin
virka daga frá 11 til 18 og um
helgar frá 11 til 17, henni lýkur
18. júní.
ÁreiM
Flakk heitir sýning sem verður
opnuð í Norræna húsinu laug-
ardaginn 27. maí klukkan 16.
Flakk vísar til þeirrar sérstöku
tilfinningar að vera bæði heima
og heiman, en grunnhugmynd-
in byggist á því sem Frakkar
kalla ý la déríve eða á reki. Reiki
gæti því alveg eins átt við eða
ferðlag án markmiðs og því
þótti viðeigandi að setja sýning-
una upp eins og völundarhús.
Listamennirnir sem þarna
eiga verk koma frá Danmörku,
Finnlandi, Noregi, Islandi, Sví-
þjóð, Þýskalandi og Bandaríkj-
unum, en eiga það sameiginlegt
að búa ekki í heimalandi sínu.
Þau heita Frans Jacobi, Seppo
Renvall, Ole Jörgen Ness, Egill
Sæbjörnsson, Þóroddur Bjarna-
son, Annika Ström, Aleksandra
Mir, Mattias H%orenstam, Susa
Templin og Sarah Morris. Sýn-
ingarstjórar eru Andrea Kroks-
nes frá Þýskalandi og Per
Gunnar Tverbakk frá Noregi.
Sýningunni er ætiað að kynna
fyrir Islendingum alþjóðlega
strauma í myndlist og er styrkt
af NIFCA, Norrænu samtíma-
listastoluninni.
■, \
Egill Sæbjörnsson kemur frá Vín.
\______________________/