Dagur - 28.07.2000, Blaðsíða 8

Dagur - 28.07.2000, Blaðsíða 8
8- FÖSTUDAGUlt 2 V. JÚLÍ 2 000 SMÁTT OG STÓRT „Óhætt er að segja að fæst mannanna verk hafi orðið svæð- inu til framdráttar - kísilgúrvinnslan þó síst.“ Kári í Garði í DV í gær í tilefni af úr- skurði skipulags- stjóra um náma- leyfi Kísilgúrverk- smiðjunnar við Mývatn. Stálu styttum Frétt í hinu gagnmerka blaði Feyki frá Sauðárkróki á dögunum hefur vakið verðskuldaða athygli. Fréttin fjallaði um þrjá pilta sem voru gómaðir á Hofsósi við að stela styttum úr görðum Hofsósinga um miðjan mánuðinn. „Lögreglunni á Sauðárkróki var gert viðvart og voru piltarnir gómaðir á leið sinni til Sauðárkróks. Reyndust þeir auk tveggja stórra garðstyttna hafa í fórum sínum áfengisflösk- ur sem þeir hnupluðu af tjaldstæðinu og eitthvert smádót voru þeir líka með sem Iögreglan tók í sína vörslu. Drengjunum var sleppt að lokinni yfir- heyrslu, enda málið upplýst," segir m.a. í frétt Feykis. A Króknum mun nú talað um að Iögregla hafi stövað bíl á leiðinni frá Hofsósi og tekið í sína vörslu tvær styttur og þrjár byttur!. Sviptingar á Höfn Það vakti óskipta athygli þess sem þetta ritar á sínum tfma þegar ráðist var í að gefa út tvö héraðsfréttablöð á Höfn í Hornafírði. Þetta voru hið gamalgróna Eystra horn og svo hið nýja blað Þveitin sem Sigurður Örn Hannes- son ritstýrði. Á dögunum komust svo þessi blöð í hendur eins eigenda og voru þá sam- einuð undir nafni Eystra horns. Hins vegar var Sigurður Örn ráðinn ritsjóri og lítur Eystra horn nú út eins og Þveitin gerði áður, nema hvað nafnið er annað. í leiðara fyrsta tölublaðs hins nýja Eystra horns kveður Sigurður Örn Þveitina formlega og er hann auljóslega tregafullur. Hann segir m.a. „Þveitarævintýr- inu er nú lokið, að sinni að minnsta kosti. Eftir lifa þó 60 tölublöð sem von- andi varðveitast víða um aldur og ævi. Þetta var skemmtilegt meðan á því stóð þó stundum væri það erfitt." Heyrst hefur að þessi leiðari gangi nú und- ir nafninu: „Blessuð sértu þveitin mín“. ■ fína og fræga fólkið Vesalings nkastáLkan Athina Roussel er einkadóttir Christinu Onassis af fjórða hjónabandi, en Christina Iést þegarAth- ina var einungis þriggja ára gömul. Athina er sögð vera ríkasta barn heims. Hún er nú fimmtán ára gömul og býr mcð föður sínum og stjúpmóður og sagði stjúpu sinni eitt sinn að hún vildi brenna alla peningana sína þar sem hún liti á þá sem helsta ógæfuvald fjölskyldunnar. Athina hefur fengið ótal mannránshótanir og lífverðir fylgja henni við hvert fótmál. Faðir hennar hefur höfð- að mál til að fá yfirráðarétt yfir auði hennar en hefur ekki unnið þau málaferli. Kunnugir segja að peningarnir skipti hann mun meira máli en dótturina. Með Christinu nnóður sinni, ári fyrir lát hennar. Athina með föður sínum en hún er sögð ríkasti unglingur heims. Dagur ÍÞRÓTTIR Biört framtíð Eiðs Eiour Guðjohnsen, leikmaður úrvalsdeild- arliðs Chelsea, er sagður hafa áhuga á ein- hvers konar þjálfarastarfi samhliða því að halda áfram að skora mörk. Eiður er að byrja sinn feril með Chelsea, en hann var seldur frá 1. deildarliðí Bolton fyrir 4 millj- ónir punda sem kunnugt er. Ray Wilkins, þjálfari, segir að Eiður hafi borið af eins og guil af eiri í samanburði við aðra marka- skorara í 1. deildinni og tímabært að hann reyni sig í úrvalsdeildinni. „Það var hans ólán að hann skyldi meiðast illa sem ung- lingur en hann er á góðri leið að ná fyrri styrkleika. 4 milljón punda greiðslan virðist ætla að verða góð fjárfesting og ég er viss um að það verðmætamat á honum mun a.m.k. fimmfaldast. Hann er að leika fullur sjálfstrausts við hliðina á mönnum með mikla reynslu og það mun gefa honum tækifæri til að slípa leik sinn enn frekar. Eg er sannfærður um að eftir svona tvær leiktíðir mun hann verða einn af bestu sóknarmönnum á Bretlandi." Brynjar ekki með vegna meiðsla Brynjar Gunnarsson, leikmaður Stoke City, lék ekki með íslenska Iandsliðinu gegn Möltu vegna smávægilegra meiðsla. Vonir standa til að hann verði orðinn góð- ur þegar fyrstu leikirnir í 1. deild verða leiknir 12. ágúst nk. Heiðar góður af meiðslum Graham Taylor, þjálfari Watford, sem féll úr úrvalsdeildinni f vor, segist ánægður ineð það að þeir Nordin Wooter og Peter Kennedy séu að ná sér af meiðslum. Þeir léku báðir æfingaleik gegn Cornwall sem Watford vann 5-3. Heiðar Helguson var ekki með í leiknum gegn Cornwall þar sem hann er sagður hafa þjáðst af beinhimnu- bólgu, en er á góðum batavegi og lék leik- inn gegn Möltu. \\4itford fer til Hollands í næsta mánuði til þáttöku í móti þar. Barcelona viU Overmars og Petit Spænska liðið Barcelona vill kaupa Arsenalleikmennina Emmanuel Petit og Marc Overmars og borga fyrir þá 3 milljarða króna. Overmars hefur sagt að hann sé samningsbundinn Arsenal og ekki á leið frá félaginu. Barcelona fékk nýverið liðlega 4 milljarða króna fyr- ir portúgalann Luis Figo, sem seldur var til Real Madrid. Aston Villa hefur borið víurnar í Steve Staunton frá Liverpool og David Ginola frá Tottenham og greiða fyrir þann síðarnefnda 360 milljónir króna. GG Brassamir iuihu Argentmu Brasilía bar sigurorð af Argent- ínu 3:1 í undankeppni hcims- meistaramótsins í knattspyrnu í Sao Paulo í Brasilíu í nótt. Á miðvikudag gerði miðvallarmaö- urinn Vampeta tvö marka Brasil- i'u og Alex það þriðja. Þetta var fyrsta tap Argcntínu í und- ankeppninni, en þeir halda þó forystunni í riðlinum með I 5 stig en Brassarnir eru í 2. sæti með 1 1 stig. Brasilíumenn hafa ekki verið að sýna góða leiki f keppninni til þessa, rétt eins og þeir séu ekki enn búnir að ná ser eftir að hafa tapað úrslitaleiknum gegn Frökkum í heimsmeistarakeppn- inni í Frakklandi 1998. Þeir höfðu aðeins náð í átta stig eftir fímm fyrstu leiki sína í kcppn- inni, m.a. tapað 2-1 íyrir Paragu- ay og sætt fyrir það mikilli gagn- rýni í Brasilíu. Alex gerði lýrsta markið eftir aðeins sex mínútur, staðsetti sig frábærlega í teign- um og afgreiddi fyrirgjöfina frá hægri viðstöðulaust í fjærhornið. Vampeta kom liðinu í 2:0 áður en Matias Almeida minnkaði muninn fýrir Argentínu. - GG

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.