Dagur - 28.07.2000, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ 2000 - 13
Thgpr.
nuefinln
miklum vanda. Það getur gerst
með því að taka ranga rútu,“ segir
heilbrigðisráðherra.
Sólveig Pétursdóttir dómsmála-
ráðherra sló á svipaða strengi og
gat sérstaklega um aukna löggæslu
í þvf efni. „Við höfum skerpt okkur
í baráttunni við fíkniefnin og ár-
angurinn er að líta dagsins ljós.
Þetta er í fyrsta skipt-
ið í áratug sem dregur
úr ueyslu löglegra og
ólöglegra vímuefna.
Það segir ekki bara til
um stöðuna í nútíð-
iuni, heldur gefur vís-
bendingar um fram-
tíðiua. Við erum
þarua að sjá lægri töl-
ur en ég mau eftir að
hafa áður séð og allt
fylgisl að; samdrætti
á einu sviði íylgir
samdráttur á öðru.
Þessar aðgerðir beinast vitaskuld
fyrst og fremst gegn framboði
fíkniefna. En þær hafa einnig
varnaðaráhrif, jafnvel forvarnar-
gildi. Aðgerðir lögreglu minna
stöðugt á alvöru þess að neyta eða
höndla með fíkniefni, og sýnir
hvers konar ógöngum þeir lenda í
sem temja sér slíkan lífsstíl" sagði
dómsmálaráðherra.
Vel fylgst með skólalóðum
Sólveig fullyrti einnig að hertar að-
gerðir hefðu jafnvel skilað svo
miklum árangri „að ýmsir aðilar
eru nú farnir að kvarta undan þvi
að of hart sé gengið að þeim sem
stunda innflutning og sölu á ólög-
legum vímuefnum".
Hvernig kemur það fram - eru
dópsölumenn farnir að senda
formleg kvörtunarbréf um þetta?
Karl Steinar Valsson, aðstoðaryfir-
lögregluþjónn í forvarnadeild lög-
reglunnar: „Eg hygg að þarna megi
vísa til umfjallana um að þeir dóm-
ar sem hafa verið að falla séu
þungir. Með því er samfélagið ein-
faldlega að lýsa því yfir að þeir sem
ætli sér í þennan farveg, að koma
ólöglegum efnum á framfæri, megi
vita að þeir eigi von á hörðum við-
brögðum. Einhverjir aðilar í þjóð-
félaginu eru á hinn bóginn hlynnt-
ari mildari aðgerðum."
Aðspurður sérstaklega um eftir-
lit með dópsölumönnum við og á
grunnskólalóðum segir Karl Stein-
ar. „Eg myndi aldrei greina þér frá
því hvaða aðferðum við beitum við
eftirlit með sölustarfsemi á skóla-
lóðum. En það er óhætt að segja
að við fylgjumst með öllum þeim
stöðum og svæðum sem hugsan-
lega eru notuð til að koma fíkni-
efnum á framfæri. Við fylgjumst
með skólalóðum og með aukinni
grenndarlöggæslu er auðveldara
að fylgjast með þessu. En þetta er
bara einn hlekkurinn í því sem við
erum að gera,“ segir Karl Steinar.
RiMð: „Díler“ númer eitt
Umræðan um vímuefnaneyslu
unglinga, fíkniefnasölumenn og
aðgengi að vímuefnum almennt,
auk umræðunnar um að hefja sölu
bjórs og léttvíns í matvörubúðum,
leiðir hugann að þeirri staðreynd
að afkastamesti „dílerinn" í land-
inu er sjálft ríkið, með sína einok-
unarverslun á áfengi og tóbaki.
Kemur ekki til greina að ríkið ein-
faldlega hætti að selja þetta dóp?
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigð-
isráðherra fellst ekki á orðanotk-
unina „díler" um áfengis- og tó-
bakssölu ríkisins. „Það er ekki
samstaða um það í þjóðfélaginu að
banna áfengissölu, þvert á móti er
samstaða um að áfengissala eigi
sér stað. Það hefur orðið breyting
á sölu áfengis í þjóðfélaginu í
frjálsræðisátt og ég tel engar sér-
stakar ástæður til að breyta núver-
andi fyrirkomulagi umfram það
sem orðið hefur. Ríkið hefur haft
einkasölu og það leiðir af sér að
hægt er að hafa eftirlit með söl-
unni. Við værum ekki að bæta for-
varnirnar með því að gefa þetta
frjálst. Sama gildir um tóbakið."
Hvað segir ráðherra þá um stöðu
ríkisins sem söluaðila tóbaks í ljósi
himinhárra skaðabóta sem tóbaks-
fyrirtæki hafa verið dæmd til að
greiða í Bandaríkjunum? „Við
fylgjumst mjög grannt með þessu
sem er að gerast vestan hafs, ekki
síst lögfræðideild okkar. Það gerir
hún, því ríkið hefur jú selt tóbak,
sem setur strik í reikninginn. Eng-
ar niðurstöður liggja fyrir af okkar
hálfu,“ segir ráðherra.
Hannes Garðarson ásamt Guðmundi Gíslasyni framkvæmdastjóra starfsstöðvarinnar i Hrísey i starfsstöðinni í
Ólafsfirði.
Biðum of lengi
Innsiglun fjögurra
starfsstöðva íslenskr-
ar miðlunar á Vest-
fjörðum hafa vákið
upp spumingar um
stöðu annarra starfs-
stöðva fyrirtækisins á
landsbyggðinni. Á
Ólafsfirði er ein slík
„og við stöndum í
skilum við ríkissjóð,
ennþá allavega“, segir
Hannes Garðarsson,
framkvæmdastj órí.
Fimm manns vinna hjá lýrirtæk-
inu á Olafsfirði og eingöngu á
kvöldin. Fyrst og fremst er um að
ræða símsöluverkefni en nú í vik-
unni verður farið að vinna við
símsvörun fyrir Sæplast á Dalvík
samkvæmt nýgerðum samningi
þar um. Hannes segir að vcrk-
efnin fyrirtækisins séu þó mun
minni en að var stefnt í upphafi.
„Islensk miðlun er með átta
starfsstöðvar og við gerðum ráð
fyrir því að á þessum tímapunkti
yrðu þær allar fullmannaðar og
með nóg af verkefnum." Hann
segir þetta hinsvegar hafi tekið
lengri tíma en menn áætluður en
það væru bjartari tímar framund-
an. „Hér á Ólafsfirði stöndum
við f skilum með gjöld til hins op-
inbera, að minnsta kosti ennþá".
Hannes segir að fyrirtækið hafi
farið að huga að öðrum verkefn-
um meðan beðið var eftir verk-
efnum frá hinu opinbera. „Við
gáfum út Arbók Ólafsljarðar fyr-
ir árið 1999 og erum þegar byrj-
aðir að vinna að Arbók fyrir árið
2000 og höfum fengið mjög góð-
ar undirtektir við þessa útgáfu.
Það eru ýmsir möguleikar í stöð-
unni þannig að það þarf alls ekki
að geispa golunni þó ekki komi
öll verkefni frá opinbera geiran-
um. Hinsvegar má kannski segja
að við höfum beðið alltof lengi
með hendur í skauti í stað þess
að bera okkur eftir björginni og
leita sjálfir verkefna. En skila-
boðin frá stjórnvöldum voru þau
að þetta væri á leiðinni, það var
alltaf verið að gefa okkur undir
fótinn með að verkefnin kæmu
og yrðu veruleg og þessari trú var
lengi viðhaldið. Þessvegna bið-
um við og biðum“, sagði Hannes
Garðarsson.
Bjartsýnn á fjarvúmslu
Asgeir Logi Asgeirsson, bæjar-
stjóri á Ólafsfirði, segir það sitt
álit að það verði að gefa Ijar-
vinnslunni lengri tíma, kveðst
sannfærður um að hugmynda-
fræðin á bak við Islenska miðlun
sé rétt og þetta eigi eftir að verða
öflug atvinnugrein á landsbyggð-
inni. „Þetta er svo nýtt og þessi
starfsemi þarf að fá tíma að þró-
ast og breytast frá því sem lagt
var upp með. Það væri að mínum
dómi algjör synd og mikil mistök
ef menn segðu sem svo að inn-
siglun starfsstöðvanna á Vest-
fjörðum þýddi það einfaldlega að
dæmið gengi ekki upp og þessi
starfsemi þar með afgreidd og
slegin af. Það væri að vísu mjög
„íslensk" afgreiðsla, en það má
ekki gerast, þetta er alltof mikil-
vægt mál fyrir svo marga til þess
að það megi afgreiða málið svo
billega. Þegar menn eru að prófa
nýjar hugmyndir og vinna þær
áfram, þá gengur auðvitað ekki
allt upp frá fyrsta degi. Við verð-
um að þola það að ganga á veggi,
læra af því og taka svo kúrsinn í
rétta átt“, sagði Ásgeir Logi Ás-
geirsson, bæjarstjóri á Ólafsfírði.
- JS
Vissu mest um
mjólkma og beinin
íslenskur mjólkuriðnaður og
Beinvernd afhentu nýverið
heppnum gestum ásýningunni
Bú 2000 verðlaun í spurningaleik
sem haldinn var á vegum þeirra.
Leikurinn bar yfirskriftina Veistu
um mjólkina? og gafst gestum
landbúnaðarsýningarinnar kostur
á að svara spurningum um mjólk-
ina og beinin í bás íslensks
mjólkuriðnaðar og Beinverndar.
Fjöldi verðlauna var í boði.
Fyrstu verðlaun, 21 gíra TREK
800 SPORT reiðhjól frá Ernin-
um, hreppti Hannes A. Magnús-
son Eystri-Leirárgörðum. Önnur
verðlaun, Back RoIIer fylgitöskur
einnig frá Erninum, hlaut Birgir
Blöndahl í Reykjavík og þriðju
verðlaun, reiðhjólahjálm frá Ern-
inum, fékk Jón H. Rúnarsson frá
Akureyri. Fjórðu til áttundu verð-
laun voru bókin Lífsþróttur -
næringarfræði almennings eftir
A myndinni eru frá vinstri Hannes A. Magnússon, vinningshafi fyrstu verð-
launa, Halldóra Björnsdóttir frá Beinvernd, Birgir Blöndahl, vinningshafi
annarra verðlauna og Magnús Ólafsson, formaður Markaðsnefndar
mjólkuriðnaðarins.
Ólaf G. Sæmundsson. Tíu auka-
verðlaun voru veitt en það voru
ostakörfur frá lslenskum mjólkur-
iðnaði. íslenskur mjólkuriðnaður
og Beinvernd óska vinningshöf-
unum til hamingju.