Dagur - 18.08.2000, Blaðsíða 1

Dagur - 18.08.2000, Blaðsíða 1
Úttekt gerð á ör- yggi ferðafólks Slysahrinan imdanfar- ið kallar á spumingar um öryggi í ferðaþjón- ustu. Samgönguráð- herra felur ferðamála- stjóra að ranusaka málið. Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra hefur falið ferðamálastjóra að gera úttekt vegna fjölda alvar- legra slysa, tengdum ferða- mennsku í landinu í sumar. Þar er ekki síst Iitið til rútuslysa og há- lendisins. „Við höfum farið yfir þetta hér í ráðuneytinu og ég hef ákveðið að óska eftir því við Magnús Odds- son ferðamálastjóra að Ferða- málaráð fari yfir þetta mál frá sjónarhóli ferðaþjónustunnar og skili greinargerð um stöðu máls- ins og þá tillögum um aðgerðir ef ástæða er til. Þær yrðu þá gerðar í þeim tilgangi að reyna að finna hugsanlega hnökra en hins vegar er ástæða til að átta sig á því að slys geta alltaf gerst og það er fyrir mestu að hvetja fólk til aðgæslu og góðrar skipu- lagningar á ferða- lögum," segir Sturla. Svart ár Fjórir erlendir ferðamenn hafa á skömmum tíma látist í slysum hér á landi og má teljast mildi að sú tala sé ekki ein- um til tveimur tugum hærri. Und- angengið hafa dauðaslys útlend- inga verið 0-1 á ári í umferðinni þannig að árið 2000 er þegar búið að skapa sér óheilla sérstöðu hvað varðar síð- ari tíma. Sturla treystir sér eltki til að meta hvort ímynd landsins hafi skaðast vegna öryggis- mála en hann segir hálend- isslysin vekja sér- staka athygli. „Þær ferðir eru þess eðlis að fara verður varlega og þess vegna er Vegagerðin vak- andi yfir því að loka leiðurn og benda á hættur," segir samgöngu- ráðherra. Sturla segist líta málið rnjög al- varlegum augum og aðrir viðmæl- endur blaðsins eru sama sinnis. Samtök ferðaþjónustunnar munu heita sér fyrir aukinni fræðslu og áróðri um öryggismál. „Það verð- ur að gera allt sem mögulegt er til að koma í veg fyrir að þetta end- urtaki sig,“ segir Erna Hauksdótt- ir framkvæmdastjóri. Reynsluleysi? Aðalsteinn Júlíusson, varðstjóri á Húsavík, segir að tvímælaust verði að sýna meiri varúð á vegun- um, bæði á þjóðvegum og utan þeirra. Hann veltir upp spurning- um um reynsluleysi rútubílstjóra og varaformaður Sleipnis tekur undir þann möguleika, auk þess sem reglur um vinnutíma bílstjóra hafa verið teygðar til samkvæmt varaformanni Sleipnis. Fram- kvæmdastjóri slysavarnafélagsins Landsbjargar segir lslendinga hafa sloppið lyrir horn í slysalegu tilliti. Ekki sé nóg að gleðjast yfir stöðugri fjölgun ferðamanna heldur verði líka að mæta henni með viðunandi öryggishætti. - BÞ Sjábls. 12-13. Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra: Lítur málið mjög alvarlegum augum. Spáir 5,6% verðbólgu „Fyrirliggjandi hagtölur á fyrri helmingi ársins fela ekki í sér nein ótvíræð merki um að of- þensla sé tekin að hjaðna, og á suma mælikvarða er hún reyndar að aukast, sérstaklega á vinnu- markaði", segir í Peningamálum Seðlabankans. I nýrri verð- bólguspá gerir Seðlabankinn nú ráð fyrir 5,6% verðbólgu yfir árið 2000 í stað 5% í maí (og 3,8% í janúar). Versnandi verðbólgu- horfur á þessu ári segir bankinn aðallega stafa af því að gengi krónunnar, sem spáin miðist við, sé rúmlega 5% Iægra en í maí- spánni. „Eins og venjulega er þessi verðbólguspá háð töluverðri óvissu. Hugsanlegt er að verð- bólga verði meiri cf innlend þensluöfl halda áfram af sama krafti og á undanförnum mánuð- um/og/eða ef gengi krónunnar lækkar frekar". Seðlabankinn segir það einnig valda áhyggjum að verðbólguvæntingar yfir 5% virðist vera að festast í sessi, samkvæmt úrtakskönnun. — HEl Bílstjórinn sýndi mikinn kjark með því að synda í land. „Einhver varð að sækja hjálp“ Andrés Róbertsson, rútubílstjóri, var þrekaður og eftir sig í gær- morgun eftir atburði gærdagsins. Hann þótti vinna mikið þrekvirki þegar hann synti frá rútunni og í land og gekk síðan í skálann í Herðubreiðarlindum til að sækja hjálp. Hann sagði að það hefði ekki verið mikill tími til að hugsa eftir að fólkið var komið upp á þak rútunnar, cn einhver varð að sækja hjálp. „Þannig að ég stökk bara í ána, það var einfaldlega ekki um annað að ræða“, segir Andrés. Hann telur sig hafa borist 4-500 metra með straumnum áður en hann náði landi. En var hann ekki að bjóða hættunni heim þegar hann lagði af stað eftir veginum sem Jökulsá flæddi inn á? Andrés lýsir að- stæðum á sama hátt og leiðsögu- maðurinn. „Það var þessi pollur á veginum og mótaði fyrir steinum sem mörkuðu vegarkantinn og við sáum veginn halda áfram hin- um megin við pollinn. Eg hef oft farið þessa leið bæði í sumar og síðustu ár og aðstæður virtust alls ekki verri en oft áður þegar menn hafa verið að fara þarna um á jeppurn og öðrum öflugum bílum. Þetta leit ágætlega út, annars hefði ég að sjálfsögðu aldrei reynt að fara yfir“, sagði Andrés Róbertsson. — JS Banaslys í Þorskanrði Ungur þjóðverji lét lífið þegar bill sem hann var farþegi í valt í Þorskafirði um miðjan dag í gær. Okumaðurinn, sem var faðir mannsins, slasaðist mikið og var fluttur með þyrlu suður til Reykjavíkur. Annar mannanna var búsettur hér á landi. Ein- breitt bundið slitlag var á vegin- um þar sem bílinn valt og er ástæða veltunar ekki ljós. — GJ ___rft___ RdDIOiyMfST Geislagötu 14 • Sími 462 1300 SPARIDAGAR kraftmikil og heimilisleg tilboð á úrvals vörum 8.-18. ágúst B R Æ Ð U R N I R Lágmúla 8 • Sími 530 2800

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.