Dagur - 18.08.2000, Blaðsíða 8

Dagur - 18.08.2000, Blaðsíða 8
8- FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 2000 SMÁTT OG STÓRT UMSJÓN: SIGURDÓR SIGURDÓRSSON sigurdor@ff.is Hin sanna ást Þegar borgarstjóri, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, krafðist þess að fjármála- ráðherra viki sœti sem úrskurðaraðili vegna kæru Landssímans á fyrirhug- aða samninga borgarinnar og Línu nets, þar sem Landssíminn væri í eigu ríkisins, hafnaði Geir H. Haarde fjármálaráðherra því alfarið. Hann sá enga annmarka, hvorki lagalega né siðferðilega á því að hann úrskurðaði í málinu. En þá kom ástinn inn í málið. Eiginkona hans Inga Jóna Þórðar- dóttir er í hinni hörðu stjórnarandstöðu í borgarstjórn ásamt Landssíman- um. Það var vegna hennar sem Geir ákvað að segja sig frá málinu og fá það í hendur Birni Bjarnasyni menntamálaráðherra. Þarna náði ástin út fyrir lög og siðferði og segi menn svo að ástin og rómantíkin hafi dáið út með Rómeó ogjúlíu. „Hér greinir okk- ur Steingrím J. Sigfússon á. Hann sér enn roðann í austri og vill sov- éska kerfið, að ríkið eigi atvinnu- tækin og land- ið...“ Guðni Agústsson landbúnaðarráð- herra í samtali við Dag. Vafasöm umliyggja Þessi er dagsönn: Lögregluþjónn stöðvaði mann á fallegum Benz á Vest- urlandsvegi. Auk ökumanns sem er virðúlegur eldri maður var konan hans í bílnum. Lögreglumaðurinn: „Þú ókst að minnsta kosti á 120 km hraða og veist- væntanlega að leyfilegur hámarkshraði er aðeins 90 km á klst.“ Maðurinn: „Nei þetta er ekki rétt hjá þér, ég var á tæplega 100.“ Konan: „Láttu ekki svona elskan mín, þú varst á 140, ég sá það.“ Lögreglumaðurinn: „Eg þarf einnig að setja á sektarmiðann að annað bremsuljósið er brotið.“ Maðurinn: „Brotið bremusljós? Ég vissi það bara ekki!“ Konan: ,/E, þú veist að það er búið að vera brotið í nokkrar vikur." Lögreglumaðurinn: „Eg þarf einnig að setja á sektarmiðann að þú hafir ekki verið með örygg- isbelti." Maðurinn: „Heyrðu, láttu nú ekki svona ég losaði mig úr beltinu þegar þú stoppaðir mig.“ Konan: „Elsku kallinn minn, ekki segja svona, þú notar aldrei öryggis- beltið.“ Maðurinn er nú greinilega orðinn eitthvað pirraður yfir konunni, hann snýr sér að henni og öskrar á hana: „Reyndu nú að þegja einu sinni!“ Lögreglumanninum var farinn að finnast þetta nokkuð skemmtilegt svo hann snéri sér að konunni og spurði hana: „Frú, talar maðurinn þinn alltaf svona við þig?“ Konan: „Nei, bara þegar hann er fullur." ■ fína og fræga fólkið Yrkir ljóð í fnstundiiiii Sjónvarpsþættirnir Law & Order hafa verið sýndir í tíu ár í banda- rísku sjónvarpi. Helsta stjarna þáttanna er Jerry Orbach sem um margra ára skeið var ein helsta söngstjarna Broadway. Orbach hafði löngun til að verða dramatískur kvik- myndaleikari á borð við Marlon Brando og Montgomery Clift en kvikmyndaframleiðend- um þótti vangasvipur hans ólögulegur og voru tregir til að ráða hann í vinnu. Orbach var nýlega tilnefndur til Emmy verðlauna fyrir leik sinn f Law and Order enþar leikur hann löggu sem er hinn mesti harðjaxl. „Eg hef aldrei sóst eftir verð- launum enda hef ég ekki hiotið mörg,“ segir leikarinn sem í frí- stundum yrkir ástarljóð til seinni eiginkonu sinnar Elainc sem hann hefur verið giftur í rúm tuttugu ár. ÍÞRÓTTIR -Víujut Ríkharður Daðason skorar jöfnunarmarkið gegn Svíum sem jafnframt var hans tíunda landsliðsmark. ísland heldur toppsætinu íslenska karlalandslið- ið í knattspyrau setti í fyrrakvöld nýtt sigur- leikjamet, þegar það vann 2-1 sigur á Svímn á Laugardalsvelli. Þetta var fjórði sigur- leikur liðsins í röð undir stjóra Atla Eð- valdssonar, landsliðs- þjálfara. Eftir 2-1 sigurinn á Svíum í fyrra- kvöld er Island enn í efsta sæti Norðurlandamótsins í knatt- spyrnu með tíu stig eftir fjóra leiki. Finnar, sem unnu 3-1 sigur á Norðmönnum í Helsinki í fyrra- dag, halda öðru sætinu með níu stig eftir Ijóra leiki og Norðmenn því þriðja með fimm stig, einnig eftir (jóra leiki. Svíar verma síðan Ijórða sætið með fjögur stig eftir þijá leiki. Danir Iyftu sér úr botns- ætinu með 0-2 sigri á Færeyingum í Þórshöfn í fyrrakvöld og sldldu frændur sína þar með eftir eina og yfirgefna á botninum með ekkert stig eftir þrjá leiki. Mikill áhugi var fyrir leilmum í Þórshöfn og komu um 6.500 áhorfendur til að horfa á viðureign þjóðanna, sem eru um það bil 1.300 fleiri en komu á leik Islands og Svíþjóðar á Laugardals- velli. Fyrsti sigur á Svíum í 49 ár Kærkominn sigur okkar manna í fyrrakvöld er fyrsti sigur okkar gegn Svíum í 49 ár, eða frá því 29. júní árið 1957, þegar Island vann 4-3, þar sem Skagamaðurinn Ríkaharður Jónsson skoraði öll mörkin, en Ríkharður hefur skor- að flest landsliðsmörk íslands til þessa, eða alls sautján. Það var því við hæfi að dóttursonur Ríkharðs, Ríkharður Daðason, opnaði mark- areikninginn gegn Svíum í fyrra- kvöld, þegar hann jafnaði leikinn á 39. mínútu, eftir að Johan Mj%cllby hafði komið Svíum yfir á 23. mínútu. Leikurinn var fjórði sigurleikur íslenska landsliðsins í röð undir stjórn Atla eðvaldssonar, sem er nýtt met, en fimm sinnum áður hafði íslensku landsliði tekist að vinna þrjá leiki í röð, sem var árin 1984, 1987, 1990, 1994 og síðast í fyrra. Það er ekki hægt að segja annað en byrjun hjá Atla sé frábær, en hann hefur nú stjórnað Iandsliðinu án taps í fyrstu fimrn leikjum sfnum með liðið, en sá fyrsti gegn Noregi endaði með markalausu jafntefli í La Manga á Spáni. Eiður Smári bestur Besti maður íslenska liðsins gegn Svíum var án efa Eiður Smári Guðjohnsen, sem oft sýndi snilld- artakta, sérstaklega í seinni hálf- Ieiknum. Hann fískaði vítið sem Helgi Sigurðsson skoraði sigur- markið úr á 81. mínútu og hafði áður gert varnamönnum Svía lífið leitt með hraða sínum og tæloii. I tvígang var hann felldur innan teigs, þar sem dómarinn hefði hæglega getað dæmt vítaspyrnur og í fyrri hálfleiknum átti hann stóran þátt í undirbúningi fyrra marksins. Árni Gautur Arason, markvörð- ur, átti einnig mjög góðan leik og bjargaði nokkrum sinnum meist- aralega. Markið sem hann fékk á sig er það fyrsta sem skorað er hjá honum í landsleik, en áður hafði hann haldið hreinu í 272 mínútur í þeim Ijórum landsleikjum sem hann hefur komið við sögu í, en alls á hann nú skráða sjö A-Iands- leiki. Annars var allt íslenska liðið að spila vel og sýndi nú enn aftur hvað þolinmæðin getur verið dýr- mæt. Svíarnir byrjuðu leikinn mun betur í leiknum, en strákarn- ir sýndu mikinn „karakter" og náðu góðum tökum á leiknum eft- ir að hafa Ient undir. Þeir náðu yf- irhöndinni á miðjunni eftir leikhlé og þegar framlínan fékk nægilegan stuðning small leikur liðsins sam- an og sóknarmennir fengu þá úr nógu að moða. SænsM fjöliniólar óánægðir Sænskir fjölmiðlar eru vægast sagt óánægðir með framistöðu sinna manna í leiknum, en fyrirfram höfðu flestir þarlendir bókað nokkuð öruggan sænskan sigur og vonast til að það yrði upphafið af betri tíð, el'tir slakt gengi sænska liðsins í úrslitakeppni EURO- 2000 í sumar. Þeir virðast eiga erTitt með að kyngja tapi gegn „Litla íslandi" og segja það hneyk- sli að níu milljón manna þjóð skuli ekki geta gert betur gegn 270 þús- und manna smáþjóðinni í norðri. Svíar mæta Azerbaijan í Baku um næstu mánaðamót og hefur tapið í fyrrakvöld heldur betur slegið á sigurvissuna. Fjölmiðlar segja þó að Island sé ekkcrt Azerbaijan og hugga sjálfa sig með því að segja að hér á íslandi sé spiluð mun betri knattspyrna. Staðan á mótinu: ísland 4 3 1 0 6-4 10 Finnland 4 3 0 1 6-3 9 Noregur 4 12 1 6-6 5 Svíþjóð 3 111 3-3 4 Danmörk 4 10 3 5-7 3 Færeyjar 3 0 0 3 2-5 0

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.