Dagur - 18.08.2000, Blaðsíða 3
Laus störf á Jafnréttisstofu
Jafnréttisstofa er ný stofnun sem sett var á fót með lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nr. 96/2000.
Hún tekur til starfa á Akureyri 1. september nk. en hlutverk hennar er að vinna að því
að koma á og viðhalda jafnrétti og jöfnum tækifærum kvenna og karla og tryggja þannig
jöfnun á stöðu kynjanna á öllum sviðum samfélagsins. Til að ná þessu markmiði skal stofan
meðal annars sjá um fræðslu á sviði jafnréttismála og vera stjórnvöldum, stofnunum, fyrirtækjum
auk einstaklingum og félögum til ráðgjafar á því sviði. Jafnframt skal Jafnréttisstofa sinna
rannsóknarstörfum og annarri upplýsingaöflun er lýtur að jafnréttismálum.
Eftirtalin störf eru laus til umsóknar:
Ráðgjafar/sérfræðingar á sviði jafnréttismála
Tvær stöður ráðgjafa á sviði jafnréttismáia eru lausar frá og með 1. september nk. Ráðgjafi skal hafa háskólamenntun auk
grundvallarþekkingar og skilnings á jafnréttismáium kvenna og karla. Góð mála- og tölvukunnátta er mikilvæg.
Viðkomandi þarf jafnframt að hafa skapandi og gagnrýna hugsun, hæfileika til að vinna sjálfstætt
og búa yfir góðum samstarfs- og samskiptahæfileikum. Starfið felst meðal annars í
rannsóknarstarfi, ráðgjöf og fræðslu- og upplýsingastarfi á sviði jafnréttismála.
Fulltrúi
Viðkomandi þarf að hafa þekkingu og reynslu af almennum skrifstofustörfum og rekstri/bókhaldi,
góða færni í íslensku máli, auk tölvu— og málakunnáttu í ensku og einu norrænu tungumáli (dönsku/sænsku/norsku).
Jafnframt þarf hann/hún að hafa hæfileika til að vinna sjálfstætt og búa yfir góðum samstarfs— og samskiptahæfileikum.
Við ráðningar í ofangreind störf verður m.a. tekið tillit til þess að hafa sem jafnast
hlutfall kvenna og karla á Jafnréttisstofu. Unnt er að semja um stöðuhlutfall og upphafstíma starfs.
Umsóknarfrestur er til 25. ágúst nk.
Umsóknum skal skilað til: Félagsmálaráðuneytisins,
b.t. Valgerðar H. Bjarnadóttur,
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu150 Reykjavík
Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu,
Valgerður H. Bjarnadóttir í síma 862 8722, 462 7255
eða í tölvupósti: valkahb@nett.is.
240 Ktra kr. 23.995,- 3tr90a
320 Ktra kr. 28.995,- 894Í9ÍI
370 lítrakr. 31.995,-
460 Ktrakr. 35.995,- ^9^90.
F ry stikistu
25-3
afsláttur af Ice-Lux frystikistum
Verð frá
Kr.23.995,-
Skráðu þig |)
/ vefklúbbinn
www.husa.is
HÚSASMIÐJAN
Stmi 460 3500 • www.husa.is