Dagur - 18.08.2000, Síða 5
FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 2000 - S
FRÉTTIR
Flestar félagslegar íbúdir hafa verið innleystar á höfuðborgarsvæðinu.
Eigendux félagslegra
íbúða á höfuðborgar-
svæðiuu sem vildu
losna og fara á frjálsa
markaðiuu verða
margir að hætta við
það að sinni.
Sveitarfélögin innleystu um 140
félagslegar íbúðir í fyrra og seldu
aftur á markaðsverði, þar af hátt
í 90 á höfuðborgarsvæðinu.
Söluhagnaður á höfuðborgar-
svæðinu, þ.e. mismunur inn-
lausnarverði íbúðanna (eignar-
hluti eigenda og áhvílandi lán)
og söluverði þeirra rann í Vara-
sjóð viðbótarlána, sem dekkaði
sfðan það sem á vantaði úti á
landi að söluverð þar nægði ekki
fyrir innlausnarverði. En algengt
var að sveitarfélög á landsbyggð-
inni þyrftu að selja íbúðirnar
með um 2 milljóna, tapi, sem
þau þá fengu bætt úr varasjóðn-
um.
Fastir í kerfmu
En blikur virðast nú á lofti. Því
flest bendir til að tekjur sjóðsins
af söluhagnaði íbúða fari þverr-
andi, þar sem eigendur félags-
legra íbúða á höfuðborgarsvæð-
inu dragi nú við sig að óska inn-
lausnar. Astæðan er sú að hlutur
eiganda í innlausnarverðinu
(kannski oft milli 1 og 2 milljón-
ir) sem í mörgum tilvikum hefði
nægt upp í útborgun á frjálsum
markaði fyrir hálfu öðru til tveim
árum dugar nú engan veginn
lengur. Þar sem innlausnarverð
félagslegra íbúða miðast við
verðvísitölur vantar mikið á að
það hafi haldist í hendur við
verðhækkanir á fasteignamark-
aðnum að undanförnu. Þykir því
sýnt að fólk sem vildi losa sig út
úr félagslega kerfinu og fara á
frjálsan markað muni fresta því
og bíða verðlækkunar á frjálsa
markaðnum.
RiMð „gleymt“ að borga
Þar við bætist að „þrátt fyrir
heimildarákvæði í fjárlögum rík-
isins 1999 og 2000 hafa engar
greiðslur borist sjóðnum frá rík-
issjóði," segir Þórður Skúlason
framkvæmdastjóri Sambands ísl.
sveitarfélaga í Sveitarstjórnar-
málum. Verði þetta viðvarandi
ástand í einhvern tíma verður
ekki séð hvernig lítil sveitarfélög
ráða við það að standa undir
skuldbindingum sínum vegna
fjölda félagslegra íbúða sem þau
hafi innleyst en engin eftirspurn
sé eftir og standi jafnvel auðar.
Sums taðar stefnir í þrot
„Grfðarleg óf\'rirséð fækkun íbúa
hefur leitt til þess að mörg sveit-
arfélög geta aldrei að óbreyttu
staðið við þær skuldbindingar
sem alþingi hefur á þau lagt
vegna félagslega íbúðakerfisins.
Að því kann að koma, fyrr en
seinna, að þau geti ekki staðið í
skilum geð greiðslur af yfirtekn-
um Iánum sem hvíla á íbúðun-
um.“ Með nýjum húsnæðislög-
um hafi verið búið til tæki, Vara-
sjóður viðbótarlána, til að fást
við þennan vanda. „Ríkisvaldið
verður að gangast við ábyrgð
sinni á þeim vanda með árlegum
greiðslum á framlögum ríkisins
til Varasjóðs," segir Þórður. Það
hljóti að vera sameiginlegur
vandi sjóðanna og sveitarfélag-
anna að reyna að greiða úr þess-
um vanda með einhverjum
hætti. — HEI
Flugleiðir hafa nú kynnt nýja skip-
an í Skandinavíu.
ílugleiðir
hagræða
Flugleiðir hafa hrint af stað hag-
ræðingu á starfsemi sinni á
Norðurlöndum með því að sam-
eina skrifstofur sínar þar í eina
öfluga markaðs- og söluskrif-
stofu í Danmörku sem á að
þjóna allri Skandinavíu. Sölu-
fulltrúi verður síðan í hverju
landi sem þjóna ferðaskrifstof-
um og fyrirtækjum sem kaupa
og nóta þjónustu félagsins. Sím-
sölustöð sem þjónar Danmörku,
Noregi og Svíþjóð verður einnig
þjónað frá Danmörku. Hannes
Hilmarsson, sem er nú svæðis-
stjóri Flugleiða í Bretlandi, verð-
ur svæðisstjóri yfir allri Skand-
inavíu með aðsetri í Kaup-
mannahöfn. Steinn Logi Björns-
son, framkvæmdastjóri mark-
aðs- og sölusviðs Flugleiða, seg-
ir að tilgangurinn sé að auka
tekjur með sókn á nýjum sviðum
og jafnframt að nýta tækifæri til
ítrustu hagkvæmni. Breyting-
arnar hafa í för með sér fækkun
starfa í Osló og Stokkhólmi en
fjölgun starfa í Kaupmanna-
höfn. Tilkynning um þetta kem-
ur í kjölfar miliuppgjörs félags-
ins sem sýndi um 1200 milljóna
króna tap. - GG
Spilavíti í Valholl?
Fréttir af sölu á Hótel Valhöll til
bresks auðkýfings af gyðingaætt-
um, Howard Krúgers í London,
hefur vakið mikla athygli. Meðal
annars hafa verið fluttar fréttir
af hugsanlegum áhuga Krúgers
á að setja upp spilavíti (casino) á
Þingvöllum og sú hugmynd hans
sé ekki ný, hann hafi fyrir all-
noklirum árum reynt að fá Hótel
Holyday lnn í Reykjavík, en
samningar tókust ekki, enda
óleyfilegt að starfrækja spilavíti á
íslandi.
Ljóst er að a.m.k. einn lánar-
drottna Vallhallar, Lánasýsla rík-
isins, mun krefjast þess að skuld-
ir við stofnunina verði greiddar,
komi til sölu á hótelinu.
Björn Friðfinnsson, ráðuneyt-
isstjóri dómsmálaráðuneytisins,
segir að ef að af til sölu Hótels
Vallhallar á Þingvöllum kemur
muni málið berast dómsmála-
ráðuneytinu. Björn segist van-
trúaður á að ef til sölu komi að
Howard Krúger sé að kaupa Val-
höll sem sumardvalarstað og
draga sig með þeim hætti út úr
skarkala alheimsins, eins og nú-
verandi hóteleigandi, Jón Ragn-
arsson, hafi sagt. Björn segist
ekki hafa heyrt um að ríkis-
stjórnin hafi tekið afstöðu til
þessa máls.
„Verði gerður kaupsamningur
verður farið með hann til sýslu-
mannsins á Selfossi til þinglýs-
ingar. Þá mun hann óska eftir
samþykki eða synjun ráðuneytis-
ins og við munun þá svara því
enda má þinglýsingarstjóri ekki
ganga frá þinglýsingu án okkar
samþykkis þar sem um er að
ræða erlendan borgara. Sé um
ESB-borgara að ræða þarf hann
að hafa lögheimili hérlendis. Það
vekur undrun mína ef fasteigna-
salar vita ekki hvernig á að stan-
da að sölu fasteigna þegar út-
lendingar eiga í hlut,“ segir
Björn. — GG
Gæsaveiði á sunnudag
Umhverfisráðurneytið, Skotveiði-
félag Islands og Olís boðuðu til
blaðamannafundar í gær.
Astæða fundarins var nýtt
átak undir heitinu Láttu ekki
þitt eftir liggja. Atakið beinist
að skotveiðimönnum en með
því er verið að skora á þá að
safna tómum skothylkjum
saman í stað þess að skilja þau
eftir úti í náttúrinni. „Hægt
verður að nálgast poka undir
hylldn á bensínstöðvum Olís
og þeir sem skila þeim inn
lenda í potti sem dregið verð-
ur úr 23. desember. „Það eru
vegleg verðlaun í boði en
lýrstu verðlaun er ársútekt á
eldsneyti hjá Olís og önnur
verðlaun eru 75 þúsund króna
vöruútekt frá Ellingsen," segir Sig-
mar B. Hauksson.
Siv Friðleifsdóttir, umhverfisráðherra, Sigmar B.
Hauksson og Tómas Möller, framkvæmdastjóri
markaðssviðs Olís kynna fyrir fjölmiðlafólki nýtt
átak gegn sóðaskap skotveiðimanna.
Að sögn Sigmars tókst gæsavarp
vel þetta sumarið og er fuglinn vel
á sig kominn. „Það lítur því
bara vel út með gæsaveiði
þetta haustið. Gæsin er komin
óvenju mikið niður miðað við
árstíma en hún er snjöll og
það er aldrei að vita nema hún
láti sig hverfa eftir að veiði-
tímabilið hefst,“ segir Sigmar
sem sjálfur ætlar að veiða um
helgina. „Fg fer oft að veiða og
reyni þá að veiða lítið í einu.
Það er svo gott að vera bara úti
og njóta náttúrunar. Eg er ætt-
aður af Ströndum og hef mik-
ið dálæti á því svæði. Fjöl-
skyldan á þar jörð og ég geri
ráð fyrir að fara eitthvað þang-
að að veiða." — GJ
Hafnarfjarðarbær veitti I gær árlegar viðurkenningar fyrir fallega garða,
snyrtimennsku og fegrun. Tíu einstaklingar og fyrirtæki hlutu að þessu
sinni viðurkenningu auk þess sem gatan Víðivangur var valin stjörnugata
ársins. í vali dómnefndar er ekki farin sú leið að velja fegursta garðinn
heldur eru valdir úr nokkrir garðar, mismunandi að gerð og uppbyggingu,
bæði gamlir og nýir. Á þessari mynd má sjá garðinn að Þrúðvangi 2 en
hann fékk verðlaun fyrir að vera fjölbreyttur, vel hirtur og rótgróin. Eig-
endur eru Ægir Bessason og Guðný Sigríður Arnbergsdóttir.
Erótík bönnuð eftir fjögur
Á fundi bæjarráðs Akureyrar sem fram fór í gær tók ráðið fyrir bréf frá
Einari Gunnlaugssyni og Bernharði Steingrímssyni. Einar og Bern-
harð eru eigendur skemmtistaðanna Venus, við Ráðhústorg, og Set-
ursins, í Sunnuhlíð. Þar sem staðirnir bjóða upp á erótískan dans
óska þeir Einar og Bernharð eftir því að þeir verði flokkaöir sem
næturklúbbar og fái því undanþágu gegn styttingu opnunartíma. En
bæjarráð stytti eins og kunnugt er opnunartíma öldurhúsa á Akureyri
á síðasta fundi sínum. Þeir félagar mega því frá og með 15. septem-
ber aðeins leyfa stúlkum sínum að dansa til fjögur á nóttunni. Við það
eru þeir félagar ósáttir og verða að vera áfram því þeir höfðu ekki er-
indi sem erfiði. Hjá hæjarráði var litla samúð að finna og sá ráðið ekki
ástæðu til að brcyta lögum sínum eingöngu fyrir þessa tvo staði. — GJ