Dagur - 18.08.2000, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 2000 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Breska köfunartækið sem notað verður til þess að reyna að bjarga áhöfn rússneska kafbátsins Kursk.
Björgimarsveitir í
kappi við tímaim
Bresku o g norsku
bj örguuar s veitimar
koma ekki á vettvang
fyrr en um helgina.
Enn þann dag í dag, tæpri viku
eftir að óhapp varð í rússneska
kjarnorkukafbátnum Kursk,
virðist ríkja töluverð óvissa um
það hvað gerðist í raun og veru.
Þögn rússneska hersins og
stjórnvalda er það mikil, að ekki
er einu sinni víst hvort óhappið
varð síðastliðinn laugardag, eins
og haldið hefur verið fram síð-
ustu daga, eða jafnvel mun fyrr.
Hópur breskra björgunar-
manna lagði af stað í gær og er
reiknað með því að þeir komi á
strandstað kafhátsins í Barents-
hafi á morgun, laugardag. Norsk
björgunarsveit lagði sömuleiðis
af stað með skipi frá Þrándheimi
í gær, en ekki er búist við að hún
konti þangað fyrr en á sunnudag.
Óðum dregur úr vonum um að
takast megi að hjarga nokkrum
lifandi úr hátnum. En það eitt að
Rússar skuli þiggja aðstoð frá
Norðmönnum og Bretum við að
bjarga áhöfninni bendir til þess
að Rússar sjálfir hafi trú á því að
einhverjir geti verið á lífi.
Myndir af kafbátnum sýna að
hann er mikið laskaður frá toppi
og niður að veltiuggum, en ekk-
ert er vitað með vissu um hvað
olli þessu tjóni. Flest bendir
samt til þess að sprenging hafi
orðið.
Fullyrðingar, sem bárust frá
Rússum fyrst eftir að skýrt var
frá óhappinu, voru misvísandi og
ósannar að hluta til. Sagt var að
kafbáturinn hefði ekki sokkið,
heldur farið niður að botni sjáv-
ar. Sagt var að náðst hefði sam-
band við áhöfnina og að súrefni
og rafmagni hafi verið komið um
borð í bátinn með leiðslum frá
yfirborði sjávar. Sömuleiðis var
sagt að áhöfnin væri öll á lífi og
að slökkt hefði verið á báðum
kjarnaofnum bátsins.
Allar þessar yfirlýsingar eru
annað hvort byggðar á getgátum
eða beinlínis til þess ætlaðar að
afvegaleiða.
Rússar fullyrtu ennfermur að
tvær ástæður gætu verið fyrir
því, sem gerðist. Að kafbáturinn
hefði rekist á eitthvað, eða að
sprenging hafi orðið um borð.
Hafi kafbáturinn rekist á annað
skip eða kafbát, þá ætti mikið
tjón að hafa orðið á því skipi eða
þeim kafbáti. Ekkert hefur frést
af slíku neins staðar.
Ekki er talið líklegt að spreng-
ing hafi orðið í tundurskeyta-
hólfi kafbátsins, þar sem tundur-
skeyti eru ckki Iengur drifin af
eldsneyti heldur er þeim ýtt út
úr kafbátnum með þrýstingi.
Norsku umhverfissamtökin
Bellona telja helst tvo möguleika
koma til greina. Annað hvort að
um mannleg mistök hafi verið að
ræða, þannig að stjórn kafbáts-
ins hafi skyndilega verið skipt úr
sjálfvirkri stýringu yfir í hand-
stýringu og af slysni hafi honum
verið stýrt beint niður. Þá hefði
báturinn sokkið til botns á
nokkrum sekúndum og þrýsti-
loftstankar hefðu sprungið.
Hins vegar hefði getað orðið
sprenging í þrýstiloftstanld, ann-
að hvort vegna þess að olía hafi
lekið inn í hann eða vegna
sprungu sem myndast hefði af
einhverjum ástæðum.
Ross leitar sátta
TEL AVIV - Dennis Ross, sérlegur
sendimaður Clintons Bandaríkja-
forseta í viðræðum um frið fyrir
botni Miðjarðarhafs, hóf í gær
vinnu við að meta friðarhorfur á
svæðinu. Heimsókn sína, sem bú-
ist er við að muni standa fram á
sunnudag, hóf Ross með því að
ræða við Shlomo Ben-Ami, aðal-
samningamann Israelsmanna og
starfandi utanríkisráðherra í Tel
Aviv. Ross ætlaði svo að hitta full-
trúa frá Palestínumönnum síðar í
ferð sinni. „ Aðalatriðið er að fá
tækifæri til að ræða við báða aðila í rólegheitum og síðan sjáum við
til með hvort ekki er hægt að yfirstíga ýmis ágrciningsefni þegar fram
Iíða stundir," sagði Ross við blaðamenn áður en hann fór inn á fund-
inn í gær. Ben-Ami sagði að heimsókn Ross myndi skera úr um hvort
einhver flötur væri á samkomulagi.
Bæði ísraelar og Palestínumenn eru sammála um að lokafrestur til
að ná samkomulagi sé 13. september.
Ford óhress með Firestone
DETROIT - Forsvarsmenn Ford bifreiðafyrirtækisins í Bandaríkjun-
um eru óhressir með hversu hægt gegnur að innkalla gallaða hjól-
barða frá Firestone, en forsvarsmenn hjólbarðafýTÍrtækisins hafa tal-
að um að innkölluninni yrði lokið næsta vor. Astæðan fyrir óróleika
Ford er að einn allra vinsælasti jeppinn frá fyrirtækinu, Ford Explor-
er notar nær eingöngu dekk af þeirri gerð sem talin eru gölluð, og eru
nú ýmsir farnir að velta fyrir sér hvort það séu ekki bara dekkin sem
séu gölluð heldur jafnel hönnun bílsins. Fram til þessa hafa að
minnsta kosti 62 dauðsföll orðið sem tengjast hjólbörðunum og yfir
100 manns hafa slasast. Kvartanirnar eru þó mun fleiri eða um 800
talsins. Fordmönnum þykir slæmt að þeirra framleiðsla skuli alltaf
dregin fram í tengslum við rannsókn á dekkjunum og fullyrðir for-
stjóri Ford, Jac Nasser að ekkert sé að hönnun Ford Explorer jeppans.
Hann segir hins vegar þörf á að hraða framleiðslu á dekkjum sem
komi í stað hinna sem innkölluð eru og ef það verði ekki gert muni
Ford þurfa að skoða aðra kosti.
Tutu heiui að „sofa6t
CAPE TOWN -Desmound Tutu erkibiskup sem
varð heimsfrægur fyrir gagnrýni sína á aðskiln-
aðarstefnu fyrrum stjórnvalda í Suður Afríku
sagðist í gær vera á leiðinni „heim að sofa.“
Hann hefur verið í tvö ár í Bandaríkjunum að
reyna að fá lækningu við krabbameini sem hann
er með. „Eg vil koma heim til að hvíla mig, að
sofa“ sagði Tutu við blaðamenn þegar hann fór
upp í flugvél á Atlantaflugvelli í gær, en i þeirri
borg hafði hann unnið við kennslu samhliða
krabbameinsmeðferðinni. En þrátt fyrir að Tutu
biskup væri augljóslega máttfarinn og hrumur af
veikindum sínum sáu fréttamenn enn gamal-
kunnan baráttuneista í honum þegar hann min-
nti á að nú væri mikil þörf á því að ná sáttum í
S-Afríku og við yrðum öll að vera þátttakendur i
því ferli. „Við verðum að læra að kunna að meta
fjölbreytileika okkar," sagði hann. „Það er minn draumur. Það er mín
sýn - það er eitthvað sem er þess virði að sækjast eftir.“
Tutu biskup - kveðst
vera að fara heim að
sofa, en vill að við
metum fjölbreytni
mannkynsins.
Dennis Ross er kominn til ísrael
að leita sátta. Hér ræðir hann við
Shlomo Ben-Ami aðalsamninga-
mann ísraelsmanna og starfandi
utanríkisráðherra.
FRÁ DEGI TIL DAGS
FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST
231. dagur ársins, 135 dagar eftir.
Sólris kl. 5.28, sólarlag kl. 21.32.
Þau fæddust 18. ágúst
• 1892 Loftur Guðmundsson ljósmynd-
ari.
•1921 Shelley Winters, leikkona.
• 1922 Alain Robbe-Grillet, franskur rit-
höfundur.
• 1933 Roman Polanski, pólskur kvik-
myndaleikstjóri.
• 1938 Robert Redford, bandarískur leik-
ari.
• 1953 Patrick Swayze, bandarískur leik-
ari.
Þetta gerðist 18. ágúst
• 1227 lést Genghis Khan, mongólahöfð-
ingi.
• 1786 fékk Reykjavík kaupstaðarréttindi.
•1914 lýsti Woodrow Wilson ýfir hlut-
leysi Bandaríkjanna í fyrri heimsstyrj-
öldinni.
• 1920 fcngu bandarískar konur kosn-
ingarétt.
• 1958 kom út skáldsagan Lolita eftir Vla-
dimir Nabokov.
•1961 var Grasagarðurinn í Laugardal í
Reykjavík opnaður.
• 1966 tók Jóhannes S. Kjarval fyrstu
skóflustungu að myndlistarhúsinu á
Klambratúni í Reykjavík, en húsið var
síðar nefnt Kjarvalsstaðir.
• 1990 var listaverkið Sólfar cftir Jón
Gunnar Árnason afhjúpað við Sæbraut í
Reykjavík.
• 1991 reyndu sovéskir harðlínumenn að
ræna völdum af Mikhail Gorbatsjev,
sem var í fríi á Krímskaga.
Afmælisbam dagsins
I dag eru 250 ár liðin frá því ítalska tón-
skáldið Antonio Salieri fæddist. Salieri
fluttist sextán ára gamall til Vínarborg-
ar í Austurríki og var á sínum tíma með-
al virtustu og þekktustu tónskálda Evr-
ópu. Síðar meir hefur hans þó einkum
verið minnst vegna sambands hans og
Mozarts, og miklar vangaveltur hafa
verið um andúð Salieris á Mozart.
Margt bendir þó til þess að þær hug-
myndir eigi við lítil rök að styðjast, hvað
þá sagan um að Salieri hafa verið vald-
ur að dauða Mozarts. Salieri var enn-
fremur góður vinur bæði Beethovens og
Haydns. Salieri lést árið 1825.
Verið nú snögg, berið mér bikar víns svo
ég geti vætt huga minn og sagt eitthvað
af viti.
Aristófanes
Heilabrot
Hann Þórður er staddur í gömlu húsi, þar
sem svo háttar til að ljós í herbergi niðri f
kjallara er kveikt með rofa uppi á þriðju
hæð. Þar eru þrír rofar, tveir þeirra eru
óvirkir en sá þriðji stjórnar ljósinu í kjall-
araherberginu. Engin leið er að sjá frá
þriðju hæð hvort ljósið er kveikt í kjallara-
herberginu. Hvernig getur Þórður komist:
að því hver af rofunum þremur kveikir ljós
ið í kjallaraherberginu, ef það skilyrði fylg-
ir að hann megi aðeins gera sér eina ferð
niður í kjallara?
Lausn á síðustu gátu: Klukkan er níu að
kvöldi, því klukkan sjö að kvöldi var jafn
langt frá því klukkan var eitt eftir hádegi og
þar til hún verður eitt að nóttu.
Veffang dagsins
Myndir af svokölluoum pin-up stúlkum frá
fimmta og sjötta áratug aldarinnar er að
finna á veffangi dagsins: freespace.virg-
in.net/b.mercer/Pinup 1 .html
Vísa dagsins
Golþorsk sd ég grnfa staf
köngulóna skrifa bréf
svínið sttfa tárhreint traf
taka úr bauk í nefið ref
Ofugmælavísa eignuð Bjarna Jónssyni
Borgfirðingaskáldi.