Dagur - 18.08.2000, Blaðsíða 12
12-FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 2000
FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 2000 - 13
FRÉTTASKÝRING
Leikiir að eldimrm
Björgunarsveitarmenn fylgjast með rútunni sem lenti út í Jökulsá í fyrradag.
Fleiri útlendingar
hafa látist í umferð-
inni undanfarið en
samanlagt í mörg ár.
Ferðaþjónustan lýsir
áhyggjum. Orðspor
rútuhílstjóra hefur
skaðast.
Fjórir erlendir ferðamenn hafa á
skömmum tíma látist í slysum
hér á landi, þrír í bílslysum og
einn á vélsleða. Þessi tala hefði
gctað orðið miklu hærri. Nærri
hefur legið að tugir útlendinga
hafi misst lífið í slysum undanfar-
ið og segir ferðamálastjóri ástæðu
til að staldra við og íhuga stöðuna
á alvarlegan hátt. Lögregla telur
að reynslu sé ábótavant í hópi at-
vinnubílstjóra og taka fleiri undir
það sjónarmið. Island er vara-
samt land og það þarf að kynna
ferðamönnum sérstöðu þess og
hættur þegar kemur að ferðalög-
um.
Þeir útlendingar sem látist hafa
á vegum landsins í ár eru Adam
Bedarik, 1 5 ára Pólverji sem fórst
27. febrúar í árekstri vestan
Olafsvíkurennis. Detlef
Schiesches, 65 ára sem fórst í
rútuslysinu við Hólsselskíl á
FjöIIum og Klara IVIaria Kompf
scm lést 6. ágúst sl. í slysinu við
Þelamörk í Eyjafirði. Þessar upp-
Iýsingar eru fengnar frá Umferð-
arráði en þær ná ekki til slysa
utan vega. Þessu til viðbótar lést
ferðamaður í vélsleðaslysi fyrir
skömmu.
Árið 2000 er skuggalegt í þessu
efni miðað við fyrri ár. Maj Britt
Nielsen, 19 ára, lést í fyrra 23.
júní í bílveltu við Torfufell í Eyja-
fjarðarsveit. Það var eina
banaslysið á vegum það árið og
árið 1998 varð ekkert banaslys í
umferð. Arið 1997 fórst einn út-
lendingur í Reykjavík en næstu ár
á undan enginn.
4 stórslys í rútum
Fleira er sérstakt við árið f ár.
Slysið við Jökulsá er þriðja alvar-
lega hópslysið í rútu á þessu ári.
3 létust á Kjalarnesi í vetur, aftur
varð alvarlegt slys 1 7. júlí sl. þeg-
ar þýskur ferðamaður lést við
Hólsselskíl auk þess sem margir
slösuðust. Björgunin í fyrradag
við Jökulsá er einstæð en gæfan
er ekki alltaf fyrir hendi eins og
fjöldi banaslysa undanfarið sýnir.
Þ.álm. dauðaslysið við Þelamörk
sem fyrr er getið þegar rúta og
fólksbíll Ientu í árekstri.
Alvarleg áminning
Magnús Oddsson ferðamálastjóri
segir að þar á bæ fylgist menn
grannt með slysaöldunni. Hann
vill ekki ganga það langt að segja
að ímynd íslands sem ferða-
mannalands hafi þegar skaðast,
enda verði slys alls staðar í heim-
inum. „Hitt er ljóst að ástandið er
mjög alvarleg áminning til okkar
um að fara rækilega í gegnum alla
þætti upplýsingamiðlunar og ör-
yggis innan greinarinnar. Þó að
ég hafi þá skoðun að við höfum
ekki tapað ímynd sem öruggt
ferðamannaland þá þarf ekki svo
mikið til að sú mynd geti skað-
ast,“ segir Magnús.
Hann segist velta upp spurn-
ingunni um rangar ákvarðanir í
einstökum tilvikum fremur en að
heildarskipulagningu sé ábóta-
vant. Aukinnar aðgæslu sé greini-
lega þörf og hvað varðar atvinnu-
bílstjóra sérstaklega segir hann
að atvinnurekendur f ferðaþjón-
ustu hljóti að verða að fara alvar-
lega yfir þá þætti sem brugðist
hafa. „Island er ekki öruggt land,
það vitum við sem förum um það
og við leggjum ríka áherslu á að
ferðamenn sýni aðgæslu. Aukin
fræðsla dugar hins vegar ekki
alltaf. Fólk brennir sig á hvera-
svæðum þrátt fyrir að þar séu lok-
uð svæði og aðvörunarskilti um
allt. Við eigum hins vegar ekki að
sætta okkur við eitt einasta slys
og greinin mun fara yfir þessi mál
og leita úrbóta."
Harma slysin
Erna Hauksdóttir, framkvæmda-
stjóri Samtaka ferðaþjónustunn-
ar, segir að aðgerða sé þörf.
„Samtök ferðaþjónustunnar
harma þau slys sem orðið hafa í
íslenskri ferðaþjónustu í sumar.
A vegum SAF verður rætt um
þessi auknu slys í sumar og reynt
að komast að orsökum þeirra, en
sjálfsagt eru þar á ferð margir
samverkandi þættir. Samtökin
munu beita sér fyrir aukinni
fræðslu og áróðri um öryggismál.
Það verður að gera allt sem
mögulegt er til að koma í veg fyr-
ir að þetta endurtaki sig," segir
Erna.
Reynsluleysi ökumaima?
Aðalsteinn Júlíusson, varðstjóri á
Húsavík, segir að tvímælaust
verði að sýna meiri varúð á veg-
unum, bæði á þjóðvegum og utan
þeirra. Bæði hópslysin í sumar
urðu í umdæmi Húsavíkurlög-
reglu. „Þetta er búið að vera mjög
sérstakt en það verður líka að
benda á að hér hefur verið stór-
aukin umferð hópbíla,“ segir Að-
alsteinn og vitnar þar ekki síst til
aukningar sem tengist hvalaskoð-
un.
Aðalsteinn segir að geysileg
fjölgun hafi orðið á yngri atvinnu-
bílstjórum undanfarið og reynslu-
leysi hljóti að há sumum án þess
að hann hyggist fella dóma yfir
bílstjórunum sem lent hafa í
óhöppunum í sumar. Almennt
segir Aðalsteinn brýnt að kynna
betur fyrir útlendingum hvaða
hættur steðji að ferðamönnum í
umferðinni á Islandi. „Við tölum
oft um svokallaðar „hefðbundnar
útlendingaveltur" þ.e.a.s. þegar
ekið er á malarvegum oft á lítilli
ferð. Svo sjá þeir beygju, snar-
hemla, missa bílinn út í kant og
velta honum. Fólk áttar sig ekki á
því hvernig fslenskir vegir eru og
mér finnst að það þurfi að kynna
þetta miklu betur. Bæði fyrir
þeim sem taka bílaleigubíla og
eins þeim sem koma með ferj-
unni. Svo er sauðfé á vegunum
líka sérstakt vandamál."
Kraftaverk
Hvað slysið við Jökulsá varðar, má
skilja af orðum Aðalsteins að
kraf'taverk hafi ráðið því að ckki
fór verr. „Þetta fólk hlýtur að vera
heppnasta fólk í heimi, það er
ekkert hægt að orða það öðruvísi.
Að bíllinn skyldi ekki fara þvers-
um í ánni og velta, er alveg stór-
merkilegt," segir Aðalsteinn og
getur þess að björgunarmenn hafi
unnið gífurlega vel og lagt sig f
töluverða hættu.
Höfiun sloppið fyrir hom
Kristbjörn Oli Guðmundsson,
framkvæmdastjóri slysavarnafé-
Iagsins Landsbjargar, er svipaðrar
skoðunar og varðstjóri lögregl-
unnar á Húsavík um hugsanlegt
reynsluleysi atvinnuökumanna.
„Það þýðir ekki að tala alltaf um
gífurlega aukningu í ferða-
mennsku og ætlast á sama tíma
til að allir bílstjórar séu með 100
ára reynslu. Ég held að við höfum
sloppið nokkuð vel fyrir horn þeg-
ar kemur að slysum í ferða-
mennsku en núna erum við að
upplifa það sem hægt var aö sjá
fyrir. Það verður að fjalla meir um
þessi mál og ítreka muninn á þvf
að keyra á bundnu slitlagi og upp
til fjalla." Kristbjörn ÓIi segir líka
að það sé óheppilegt að í sumar
hafi ekki verið neitt fast eftirlit á
hálendinu. Löggæsla verði að
fylgja hinni auknu umlerð á há-
lendinu.
Tengsl á miHi verkfaUs og
slysa?
Varaformaður Sleipnis, Hjalti
Hafsteinsson, segir að hlutaðeig-
andi bílstjórar í rútuslysunum
undanfarið, hafi ekki verið félags-
menn í Sleipni. Sleipnismenn
búa yfir hvað mestri reynslu að
sögn Hjalta og hann bendir á að
hugsanlega geti verið tengsl milli
verkfallsins í sumar og óhapp-
anna sem á eftir fylgdu. „Eftir
kjarabaráttuna í vor hefur okkar
mönnum gengið mjög erfiðlega
að fá vinnu. Það vísar til þess að
reynslulitlir menn geti verið á
ferðinni í einhverjum tilfellum.
Það er skiljanlegt út af fyrir sig að
menn séu ekki tilbúnir að ráða sig
í vinnu fyrir skítalaun," segir
Hjalti.
Ónóg vinnuvemd
Hann ncfnir annan þátt sem er
vinnuálag bílstjóra. „Hér eru í
gildi reglur um aksturs- og hvíld-
artíma hílstjóra sem eiga að vera í
takti við reglur á e\TÓpska efna-
hagssvæðinu. Að mati Sleipnis eru
þessar reglur mjög mistúlkaðar af
stjórnvöldum á Islandi. Þar er tal-
að um hámark og Iágmark en svo
er heimild til að lækka hámörk og
hækka lágmörk. Islenska ríkið hafi
hins vegar hækkað hámörk og
lækkað Iágmörk, þ.e.a.s. fer öfuga
leið. Við höfum komið þessum
sjónarmiðum á framfæri við
stjórnvöld en þetta er svo sem ekk-
ert algjört einsdæmi á Islandi,"
segir Hjalti.
Varaformaður Sleipnis telur
engan vafa á því að orðspor at-
vinnuhílstjóra hafi skaðast að und-
anförnu og hann segir vel líldegt
að bílstjórar muni funda um mál-
ið og skoða viðbrögð við ástand-
inu. Hann segist vita til þess að
menn séu sendir áfram í ferðir án
þess að þeir hafi náð tilskyldum
hvíldartíma. „Þetta er ekkert ann-
að en leikur að eldinum."
Nokkuð hefur verið rætt um
tryggingahlið slyssins í Jökulsá og
segir Ágústa Jóhannesdóttir starfs-
maður að fyrirtækið hafi átt lund
með tryggingafélagi sínu í kjölfar
atburða og hafi niðurstaða þess
fundar verið sú að Vestfjarðaleið
fái fullar bætur fyrir allt annað en
rútuna. „Farangur, fólkið og allt er
trvggt nema bíllinn sjálfur. Rútan
er metin á 10-12 milljónir," segir
Agústa.
Kostnaður björgunaraðgerða er
gífurlegur en hann fellur undir
tryggingu fólksins eftir því sem
Dagur kemst næst. Aðilar kunnug-
ir tryggingaheiminum segja ekki
tímabært að spá fyrir um niður-
stöðu bótaábyrgðar í þessu máli.
Vegurinn að Herðubreiðarlindum
var lokaður og hugsanlega verður
tekist á um hvort umferðarlaga-
hrot hafi verið framið og hvaða af-
leiðingar það hefur bótalega.
„Við eigum eftir að fá skýringar
á því af hverju hann fór þarna yfir
lokaðan veg en við erum mjög
stolt af honum,“ segir Ágústa.
„Það er alltaf samráð bílstjóra og
fararstjóra að taka svona ákvarð-
anir en bílstjórinn á síðasta orðið.“
Austurríkismennirnir sem lentu í rútuslysinu á miðvikudag á Húsavík.
Roland Dunzendorfer fyrir utan Hótel Húsavík í gærmorgun.
„Hugsuðu um
börnjjt heima“
Roland Dunzendorfer, leiðsögu-
maður austurrísku ferðamann-
anna sem lentu í lífsháska í Jök-
ulsá í fyrradag, hafði í nógu að
snúast á Húsavík í gærmorgun.
Hann fór í ský'rslutöku hjá lög-
reglu, þurfti að ná í einn farþega
sem dvaldi á sjúkrahúsinu um
nóttina, og koma honum niður á
hótel til félaga sinna þar og síð-
an var fundað um framhald ferð-
arinnar. Hann gaf sér þó tíma til
að ræða stuttlega við blaðamann
Dags.
Roland kvast verða hamingju-
samur og glaður yfir því að allt fór
vel og allir sluppu heilir úr heljar-
greipum Jökulsár. Við báðum
hann að lýsa atburðarás gærdags-
ins.
„Við vissum að vegurinn var
lokaður en höfðum haft að því
spurnir frá Vegagerðinni að hægt
væri að komast þessa leið á öílug-
um bíl eins og við vorum á.
Þannig að við ákváðum að reyna
og taka ekki ákvörðun strax um
að snúa við. Þegar við komum að
ánni sáum við að hún Ilaut lítil-
lega yfir veginn og það mótaði
fyrir vegarköntunum. En vatnið
virtist grunnt og við töldum auð-
velt að komast yfir og héldum því
áfram, tilbúnir til að snúa við ef
þetta reyndist ófært. En eftir að-
eins nokkra metra flaut rútan
upp að framan og þá varð ekki
aftur snúið, áin tók völdin og ekki
varð við neitt ráðið“.
Roland sagði að rútan hafi
borist niður með ánni í um 5
mínútur og þá stöðvast. „Þá opn-
uðum við dyrnar að framan til að
hleypa vatninu inn og þyngja
hana þannig að framendinn virk-
aði sem akkeri sem sökk í botn-
inn. Þetta var það eina sem við
gátum tekið til bragðs. „
Síðan var þaklúgan opnuð og
fólkið kom sér upp á þakið og
gekk vel fyrir sig. Nema hvað elsti
farþeginn, 84 ára gömul kona,
var treg til að fara út úr bílnum og
þurfti að ýta henni út. Við það féll
hún í ána en einum félaga henn-
ar tókst með snarræði að grípa í
föt hennar og draga hana upp
áður en straumurinn hreif hana
með sér. Þakið var mjög sleipt,
þannig að fólkið gat sig hvergi
hrært af ótta við að renna í ána.
Aðspurður um líðan fólksins
meðan það beið björgunar sagði
Roland að í fyrstu hcfði ríkl nokk-
ur skelfing í hópnum meðan rút-
an llaut niður eftir ánni, en eftir
að fólkið var komið upp á þakið
var það mcrkilega rólegt og menn
sameinuðust um að stappa stál-
inu hver í annan. „En auðvitað
voru sumir á því að þetta væru
endalokin og þeim var ekki síst
hugsað til barnanna sinna sem
biðu heima“.
Hann átti varla orð til að lýsa
hugrekki landvarðanna tveggja,
(Kára Kristjánssonar og Elísabet-
ar Kristjánsdóttur), sem komu til
þeirra á litlum bát, sem þau
misstu síðan frá sér og komust
við illan leik upp á rútuna. „Þau
lögðu líf sitt í hættu fyrir okkur
og þessi björgunartilraun var
mikill sálfræðilegur styrkur fyrir
okkur. Og ég vil koma á framfæri
innilegu þakklæti okkar til Kára
og Elísabetar, sem og til björgun-
arsveitarmanna og allra annarra
sem liðsinntu okkur', sagði Rol-
and Dunzendorfer. - JS
Ekki aftnr á hálendlð
Austurríldsmennirnir sem Ientu í
rútuslysinu í Jökulsá, dvöldu í
góðu yfirlæti á Hótel Húsavík í
gærmorgun. Þeir báru sig vel og
virtust hafa náð sér furðanlega
eftir hina erfiðu raun og það
voru fagnaðarfundir þegar elsti
meðlimur hópsins, 84 ára gömul
kona, mætti á staðinn, en hún
hafði dvalið á sjúkrahúsi um
nóttina.
Allur farangur fólksins var í
rútunni sem enn var í ánni, og
menn voru í lánsfötum frá m.a.
Rauðakrossinum. En fulltrúi frá
Sjóvá-Almennum, tryggingafé-
Iagi rútunnar, var kominn á stað-
inn með þau skilaboð að búið
væri að ganga frá því við eigend-
ur fata- og skóverslana á Húsavík
að þangað gætu menn farið og
orðið sér úti um fatnað á kostnað
tryggingafélagsins og létti mörg-
um við það.
Hópurinn fundaði stíft um
framhaldið, þ.e. hvort menn
vildu fara beint heim til Austur-
ríkis eða ljúka þessari hálfsmán-
aðarferð um ísland sem hófst s.l.
föstudag. Niðurstaðan var sú að
tveir, sá elsti og sá yngsti í hópn-
um, ákváðu að fara beint heim,
en hinir ætluðu að dvelja í gær á
Húsavík, hvíla sig og safna kröft-
um og halda síðan áfram ferðinni
um Island. „En það voru allir
sammála um að fara ekki aftur
upp á hálendið það sem eftir lif-
ir ferðar“, sagði Ieiðsögumaður-
inn Roland Dunz.endorfer. - JS