Dagur - 19.08.2000, Page 4

Dagur - 19.08.2000, Page 4
20 - LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000 Skáldsögur og pólitík BÓKA- HILLAN í tímans rás hafa verið skrifaðar margar skáld- sögur sem vakið hafa les- endur til umhugsunar um pólitík og þjóðfélags- mál og í sumum tilvikum jafnframt til vitundar um brýna nauðsyn þess að ráðast gegn órétltæti og misrétti í samfélaginu. Eitt af þekktari dag- blöðum Bandaríkjanna, Los Angeles Times, leit- aði nýverið til kunnra rit- höfunda og spurði um þær pólitísku skáldsögur sem hefðu haft mest áhrif á þá á yngri árum. Svörin voru afar mis- jöfn, eins og vænta mátti. Margir töldu þó að Iestur tiltekinna skáldsagna hefði skipt sig miklu máli pólitískt á æskuár- um, og eru sumar bækurnar nefndar aft- ur og aftur. Hérna er einungis hægt að nefna örfá dæmi úr þessari ítarlegu sam- antekt blaðsins. Elías Snæland Jónsson ritstjóri Úr ólíkum áttum Susan Sontag, sem er bæði þekkt fyrir skáldskap og pólitísk skrif, varð fyrst fyr- ir pólitískum áhrifum af Iestri franskra skáldsagna á borð við Vesalingana eftir Hugo og Greifann af Monte Kristó eftir Dumas, en þær vöktu með henni reiði gegn ranglæti og misrétti. Hún fékk andúð á kynþáttamisrétti við lestur frægrar sögu eftir Richard Wright, Nati- ve Son, og varð eindregið á móti dauða- refsingu eftir lestur Amerískrar harm- sögu (An American Tragedy) eftir Dreiser - en þá var hún þrettán ára. Að hennar mati eru allar metnaðarfullar skáldsögur að einhverju leyti pólitískar í eðli sínu. Hin kunna skáldkona Margaret Atwood nefnir til sinnar sögu nokkrar frægar bækur, einkum þó Stikkilsberja- Finn eftir Mark Twain, Dýragarð Orwells og Oliver Twist eftir Dickens. Nokkrír skáldsagnahöfundanna sem sett hafa mark sitt á pólitísk viðhorf lesenda sinna: Mark Twain, John Dos Passos, James Baidwin, Edith Wharton, Harriet Beecher Stowe, Theodore Dreiser, John Steinbeck, Jean-Paul Sartre, Albert Camus, Emile Zola, Victor Hugo, Simone De Beauvoir, Honore Baizac, Virgina Woolf, Jonathan Swift, George Orwell, Charíes Dickens, George Eliot. Aðrar kunnar skáldsögur hefðu líka haft mikil áhrif á sig, svo sem Myrkur um miðjan dag eftir Köstler, Fagra nýja ver- öld Huxleys og hin skáldsagan sem held- ur nafni Orwells á lofti: Nítján hundruð áttatíu og fjögur, en þessar bækur Ias hún á táningsárunum. Tom Wolfe, sem er ekki síður kunnur sem blaðamaður en skáldsagnahöfund- ur, nefnir einungis eina bók sem hann telur að gnæfi upp úr öllum öðrum póli- tískum skáldsögum: Dagur í lífi Ivan Denisovich eftir Solzhenitsyn. Nóbelshafinn suðurafríski Nadine Gordimer kveðst hafa Iesið sláturhúsa- sögu Upton Sinclairs, A refilstigum (The Jungle), þegar hún var þrettán ára og hafi sú lesning haft veruleg áhrif á pólitíska vitund sína. Doris Lessing, sem ólst upp í breskri nýlendu sem hét Suður-Ródesía (nú Zimbabve), segist hafa lesið Dickens sem barn og hafi einungis þurft að líta í kringum sig í nýlendunni til að sjá það sem hann hafi verið að lýsa á Englandi einni öld áður. Hún hafi fengið þau skýru skilaboð gegnum sögur hans að hvers kyns óréttlæti væri rangt og óþol- andi. Þríleikur Dos Passos Mexikanski rithöfundurinn Carlos Fu- entes nefnir fyrst franskar skáldsögur og byrjar þá á Balzac og Mannlega gleði- leiknum hans, ekki síst sögunni Týndar tálmyndir, en getur einnig um Stendhal (La Chartreus de Parma) og Malraux (Örlög manns). Þá lýsir Fuentes miklum áhrifum af Iestri „Allra manna konungs- ins“ (All the King’s Men) eftir Robert Penn Warren - en þá sögu um rotna inn- viði bandarískra stjórnmála nefna reynd- ar allmargir þeirra sem svara spurningu blaðsins. Þar á meðal rithöfundurinn John Gregory Dunne sem segir þá skáld- sögu hafa leitt sig ungan að árum í allan sannleika um hvernig „stóru strákarnir" hegði sér í pólitíkinni, enda fyrirlíti hann stjórnmál og stjórnmálamenn. Skáldkonan Joyce Carol Oates segir Þrúgur reiðinnar eftir Steinbeck hafa haft mest áhrif á sig í æsku. Seinna hafi hún hins vegar áttað sig á þvf að þríleik- ur John Dos Passos - USA - væri miklu sterkara og heilsteyptara verk. Margir aðrir verða reyndar til að lofa þessar skáldsögur Passos, en þær hafi ekki ver- ið metnar að verðleikum. Gay Talese, sem hefur meðal annars skrifað metsölubækur um bandarísku Mafíuna (Honor Thy Father) og stór- blaðið The New York Times (The Kingdom and the Power), nefnir tvö skáldverk til sögunnar sem áhrifavalda í æsku: annars vegar Stríð og frið eftir Tolstoy og hins vegar Hægláta Ameríku- manninn (The Quiet American), þá frægu skáldsögu Graham Greene frá fyrstu árum Víetnamstríðsins. Norman Mailer segir USA eftir Dos Passos Iíklega „mestu skáldsögu" sem skrifuð hafi verið í Bandaríkjunum síð- ustu hundrað árin og hún hafi haft meiri áhrif á hann á skólaárunum en nokkur önnur bók. John Irving stundaði nám í Austurríki og það voru þýskir höfundar sem höfðu fyrst áhrif á hann pólitískt - sérstaklega Gunther Grass með Blikktrommunni og Köttur og mús, en fyrir þau verk og önn- ur hefur hann nú nýverið fengið bók- menntaverðlaun Nóbels. Gott og slæmt á myndbandaleigum Ástæða er til að vekja athygli á þrem afbragðs- góðum kvik- myndum sem nýlega komu á myndbanda- markað. Besta myndin er tví- m æ 1 a 1 a u s t A m e r i c a n Beauty, snjöll t r a g i k o m c d í a sem er sérlega vel Ieikin og einkum þá af Kevin Spacey sem hlaut verðskulduð Óskarsverðlaun fyrir Ieik sinn sem fjölskyldumaðurinn sem hyggst hefja nýtt Líf. Þetta er fyndin, kaldhæðin og átakamik- il mynd sem engan ætti að svík- ja- Græna mílan, gerð eftir sér- Iega góðri sögu Stephen King, er fín kvikmynd um baráttu góðs og ills, þótt hún nái aldrei að endurvekja hrollvekjandi stemmningu bókarinnar. Mynd- in heldur athygli allan tímann og er þar ekki síst að þakka dá- samlegum ieik Michael Clark Duncan sem bregður upp ein- staklega fallegri mynd af risa með barnshjarta og hug sem er fullur af góðmennsku og sér- stæðum hæfileikum. Sá tilgerð- arlausi leikari Tom Hanks fellur algjörlega í skuggann og hið sama má segja um alla aðra hæfileikamenn sem leika í þess- ari mynd; þegar Duncan er á skjánum sér maður einfaldlega engan annan. Seint hefði ég talið mig eiga eftir að dásama hæfileika Tom Cruise en það verður ekki horft framhjá stórleik hans í Magnol- ia. I þessari rúmlega þriggja tíma mynd er sögð saga nokk- urra einstaklinga sem verða að gera upp líf sitt. Þetta er mann- eskjuleg mynd, sálfræðilega sterk og ögn drungaleg eins og raunveruleikinn er alltof oft. Helst má finna að lengd mynd- arinnar en hún er full langdreg- in. Hún er vel leikin en Cruise stelur senunni frá jafn þraut- þjálfuðum dramatískum Ieikur- um og William H. Macy og Juli- anne Moore. Double Jeopardy er enn ein sönnun þess að gæði og vin- sældir fara ekki alltaf saman. Þessi auma mynd var í nokkurn tíma í fyrsta sæti á myndbanda- leigum landsins. Myndin segir frá konu sem fundin er sek um niorð á eiginmanni sínum, hana fer að gruna að hann lifi og hyggur á hefndir. Handrit myndarinnar er botnlaus þvæla, Ashley Judd gengur í gegnum myndina án þess að sýna vott af hæfileikum en alverst er að sjá Tommy Lee Jones rcmbast hvað eftir annað við ð blása lífi í myndina en misheppnast jafn- óðum. Ekki veit ég heldur hvað að- standendur The Limey voru að hugsa við gerð þeirrar myndar. Terence Stamp leikur þar fyrr- verandi tugthúslim sem hyggur á hefndir eftir dauða dóttur sinnar og beinir spjótum að fyrrum ástmanni hennar sem Peter Fonda leikur. Þetta er sér- kennilega kraftlíti mynd, full- komlega Iaus við spennu og ansi rík af tilgerð. Myndin er svo hæggeng og leiðinleg að í kvik- myndahúsi hefði ég gengið út í hléi en heima horfði ég á hana í áföngum og andvarpaði allan tímann. KVIK- MYNDIR Kevin Spacey sýnir snilldarleik í Óskarsverdlaunamyndinni American Beauty sem nú er komin á myndbandaleigur.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.