Dagur - 19.08.2000, Blaðsíða 15

Dagur - 19.08.2000, Blaðsíða 15
LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000 - 31 l.íl: 0(1 SÍÍU. j Hafsteinn og Sigurður leggja sín spil ípúkk efþeir spila við aðra. „Þá höfum við meiri möguleika og ef við vinnum þá deilum við vinningnum, “ segja þeir. myndir: gun. M Scsrch >'our for a y ^ ^ il 10 ****■Shufflc fhh atuck. SSE # wátincc mn*t cosj & m f of}l,eK Pokémon *otW tt'cv “ •«*». Í-V. M «S WH"c.vam«. oimMM, Pikachu er aðal hetjan I myndinni en ekki i spilunum. Pokémon spilaæði geisar nú meðal krakka á aldrin- um 9-12 ára. Pokémon er blanda af hlutverkaspili, bardagaleik og sýndar- gæludýrum og æðið gengur út á að koma sér upp spilum (á stærð við venjuleg pókerspil) með Pokémon skrímslum - skrímslum sem geta barist við skrímsli ann- arra. Og það er safnað, býttað, spilað, unnið og tapað. Pikachu, Charmander og Bul- basaur eru nöfn á vinsælum skrímslum en alls er um að ræða um 150 mismunandi skrímsli. Og eins og gengur og gerist meðal manna og dýra þá eru skrímslin fyrst lítil en stækka og eflast með aldrinum. I versluninni Nexus við Hverfísgötu og utnhverfís / hana reyndust margir fróðir um þessi fvrírhæri. Utan á i’Á-r^s búðinni er plakat með ' nokkrum figúrum og þegar fávís blaðakonan bendir þar á lítið grey og spyr við- staddan sérfræðing hvort þetta sé nú ekki óttalegur vesa- lingur fær hún það svar að þetta sé eiginlega smábarn en verði stórt skrímsli og sterkt með auknum þroska. Þannig ku fyrrgrcindur Bul- basaur til dæmis breytast í skrímslið Ivysaur og eftir það í Veusaur og þá er hann orðinn mik- ill bardagajaxl. hafa náð hámarki. „Þetta nær ekki hámarki fyrr en allir læra að spila og enn vantar dálítið upp á það,“ segir hann. „Þetta er eins og í öðr- um spilum, maður verður að læra vissar reglur því ef maður gerir eitthvað vitlaust þá vindur það upp á sig.“ Aðspurður segir Júlíus spilið alls ekki flókið og að flestir séu fljótir að komast upp á lagið ef þeir einbeiti sér að því á annað borð. Og skemmtilegra sé það en flest venjuleg spil. „Það reynir mjög á hæfni spilamanna því þeir búa að nokkru leyti sjálfir til spilastokkinn sem þeir eru með. Það verða að vera 60 spil í stokknum og galdur- inn er að vera með stokk sem vinn- ur alla.“ Júlíus segir þá í verslun- inni Nexus kenna öllum spilið sem eftir því leiti og einnig hafi þeir haldið nokkur mót sem hafi verið vel sótt. En hvernig skyldi þetta hafa byijaðr1 Júlíus veit það: „Þetta hófst Galdurinn að hafa góðan stokk. Að vera með stokk sem vinnur alla Júlíus Einarsson er við afgreiðslu í versluninni. Hann segir æðið ekki í Japan 1996. Það voru snilling- ar hjá Nintendo sem ákváðu að búa til eitthvert æði og fundu upp á þessum litlu körlum. Fyrst komu þeir með tölvuleiki, síðan teiknimyndir, spil, lím- miða, tyggjó, innréttingar, ... nefndu það!“ Mæðumar með í ráðum Pokémon er greinilega vinsælla af drengjum en stúlkum, að minnsta kosti fer lítið fyrir kvenþjóðinni í og við Nexus meðan blaðakona er þar. Þó kemur ein og ein móðir til að leggja á ráðin við Ijárfestingarn- ar. Meðal þeirra er Hjördís Sigurð- ardóttir. Hún segist fylgjast dálftið með söfnuninni hjá syni sínum, Sigurði. „Hann sýnir mér þetta allt og ég fylgist með krökkunum spila. Það er greinilegt að þetta er rnjög skemmtilegt. En reyndar fylgja líka neikvæðir þættir því fyrir kemur að krakkar hnupla hvert írá öðru.“ Aðspurð segir hún ekki mikinn pening fara í myndirnar „Auðvitað væri búið að eyða miklu ef sonur- inn hefði fengið allt sem hann vill kaupa í þessu en við reynum að fara samningaleiðina. Hann er til dæmis fyrst núna að fá möppu fyr- ir spilin.“ Hægt að giæða rosalega Frændumir Hafsteinn Tómas Sverrisson og Sigurður Arin- bjöm Sigurðsson segja tölu- verðan pening liggja í svona spilum þótt þeir hafi ekki eytt nema nokkmm þús- undum ennþá. „Ef maður ætti 100 sjaldgæf spil þá gæti ' maður grætt rosalega á að selja þau. Samt fer þetta allt eftir því hvað hver og einn vill því þetta eru sjö mismunandi seríur og menn leggja yfirleitt áherslu á eina seríu frekar en aðra,“ segja þeir og upplýsa að þeir vinni saman að söfnuninni en ráði samt sjálfir hvað þeir geri við eigin myndir. „Við leggjum okkar spil í púkk þeg- ar við spilum móti einhverjum öðr- um. Þá höfurn við sterltari stokk og meiri möguleika." GUN. Júlíus Einarsson í versluninni Nexus seg- ir æðið enn eiga eftir að vaxa Mæðginin Hjördís Sigurðardóttir og Sigurður Þórarinsson segjast reyna að komast að samkomulagi um eyðs/una. Kjartan Darri Kristjánsson, Albert Marel Róbertsson og Vilhjálmur Alex Hann- ésson eiga mörg hundruð spil hver og voru að býtta. Þeir segjast fara eftirþví hvað myndimar séu flottar og sjaldgæfar en merki neðst í horni segir til um það hversu sjaldgæfar þær eru. Stjarna merkir að spilið sé sjaldgæft og þar með verðmætt en hringur er tákn um mun ódýrara spil.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.