Dagur - 19.08.2000, Síða 18

Dagur - 19.08.2000, Síða 18
I 34 - LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000 Tkyur í kompanfi við glæpamenn Leikarinn George Raft var ekki í hópi helstu stórstjarna Hollywood en hann var þekktur leikari sem átti langan feril á hvfta tjald- inu. Meðal helstu vina hans voru afkastamiklir glæpamenn. George Raft fæddist árið 1895 f New York og ólst upp í fátækra- hverfi sem gekk undir nafninu „eldhús helvítis". Faðir hans vann í verslun og móðirin hafði nóg að gera við að ala upp börn- in þeirra tíu. George var elstur barnanna og eftir því sem fjölg- aði í systkinahópnum eyddi hann æ meiri tíma á götunni. Þrettán ára gamall neitaði hann að halda áfram námi og sást stundum ekki heima hjá sér dögunum saman. Sextán ára gamall var hann orðinn hnefaleikari og síðan tók hann að vinna fyrir sér sem dansari. Hann vann á svokölluð- um tehúsum sem ríkar konur sóttu. Þar horfðu þær á unga menn dansa og keyptu þá síðan til fylgilags við sig. Meðal félaga Rafts í þeirri vinnu var Rudolph Valentino. Síðan dansaði Raft á sviði og vann í ferðaleikhúsi. Þar kynntist hann Grayce ungri kaþ- ólskri stúlku sem íylgdi honum þegar hann fór að skemmta f nokkrum fylkjum Bandaríkj- anna. A ferðalagi þeirra varð Grayce fyrir óþægilegum sím- hringingum. Hún sagði Raft að maðurinn sem væri síhringjandi hefði verið að ofsækja sig í nokkurn tíma og ætlaði nú að kæra Raft fyrir yfirvöldum fyrir að vera í sambandi við hana þar sem hún væri undir lögaldri. Af ótta við að enda í fangelsi bauðst Raft til að giftast Grayce. Nokkrum vikum síðar fóru þau hvort sína leið en voru enn gift. Raft kom fram á Broadway f söngleikjum og þótt hann drykki ekkí hafði hann unun af að skemmta sér f næturklúbbum. Þar komst hann í vinfengi við sprúttsala og glæpamenn og kunni afar vel við sig í þeim fé- lagsskap sem minnti hann um margt á götulífið í æsku. Meðal hclstu vina hans var voldugur mafíuforingi sem hélt Raft uppi þar til hann sló í gegn í Hollywood. Vafasamur félagsskapur Að ráði mafíuforingjans hélt Raft til Hollywood þar sem hann fekk hlutverk í kvikmyndum. Frægasta hlutverk Raft var myndinni Scarface sem fjallaði um ævi Al Capone. Raft lék þar lífvörð Capone sem talaði ekki ýkja mik- ið en kastaði mynt upp í loftið og George Raft ásamt dóttur Virginiu Pine en Virginia var ástkona hans til margra ára. Á innfelldu myndinni sést hann á tali við slúðurdrottninguna Heddu Hopper. sem ég hef kynnst. Það sem þeir gerðu í vinnutímanum var þeirra mál og kom mér ekki við.“ I hópi vina Rafts var glæpa- maðurinn og morðinginn Bugsy Siegel en um hann gerði Warren Beatty myndina Bugsy. Við réttar- höld þar sem Siegel var sakaður um vafasöm viðskipti kom Raft í vitnastúku og varði vin sinn af svo miklum krafti að mönnum þótti nóg um. Hann lánaði Siegel 100.000 dollara daginn áður en Siegel var myrtur af glæpamönn- um sem hann átti í útistöðum við. 100.000 dollararnir voru nær aleiga Rafts og hann fékk lánið aldrei endurgreitt. Um Bugsy Si- egel sagði Raft: „Hann var yndis- legur náungi. Allir sem ég þekkti kunnu vel við hann. Hann var skapmikill en hver er það ekki.“ Það er einkennileg mótsögn en þótt Raft umgengist stórglæpa- menn þá neitaði hann oft að taka að sér hlutverk illmenna í kvik- myndum ef þeir fengju ekki mak- leg málagjöld í lokin. I myndinni Dead End átti hann að leika morðingja sem felur sig í New York, unglingur nokkur ber kennsl á hann og unglingahópur- inn í hverfinu fer í kjölfarið að líta á morðingjann sem hetju. Raft líkaði ekki sá boðskapur og hafnaði hlutverkinu sem Hump- hrey Bogart tók að sér og fékk mjög góða dóma fyrir. Hann hafnaði sömuleiðis hlutverkum í Fligh Sierra, Möltufálkanum og Casablanca, myndum sem gerðu Humphrey Bogart að stórstjörnu. greip hana jafnharðan. Hann sýndist vera harður nagli. Hlut- verkið gerði Ralt að stjörnu. AI Capone sá myndina og líkaði hún en sagði Raft, sem hann kannað- ist við úr spilavítum, að endirinn væri sér ekki að skapi en þar var Capone drepinn. Seinna sagði Raft um Al Capo- ne og félaga hans: „Satt að segja dáðist ég að þeim. Þeir urðu fræg nöfn, og þegar maður talaði við þá fræddist maður um margt. Þeir voru áhugaverður félags- skapur. Við kvöldverð á góðu veit- ingahúsi eða í næturklúbbi voru þeir skemmtilegri en nokkur við- skiptajöfur eða kvikmyndamógull Hann lék i myndinni It Had to Happen árið 1936 ásamt Rosalind Russell. Með Betty Grable á skemmtistað. Hann vildi gii Me0 Deuy gði honum um skilnað. giftast henni en eiginkona hans neit- Fangi hjónabands Raft var enn giftur þótt kona hans byggi ekki í sama fylki og hann. Ilann varð ástfanginn af leikkonunni Virginiu Pine sem varð ástkona hans í fjögur ár og hann byggði glæsivillu handa henni og ungri dóttur hennar. Hann hélt á fund eiginkonu sinn- ar og grátbað hana um skilnað til að geta gifst Virginiu en eiginkon- an, sem fékk hluta af tekjum hans í sinn lilut, harðneitaði að skilja við hann. Virginia vildi ckki eyða ævinni í að vcrða ástkona og yfirgaf Raft. Ilann átti síðan í tæplega tveggja ára ástarsam- bandi við leikkonuna Normu Shearer og einnig við Marlene Dietrich og Carole Lombard og kolféll síðan fyrir Betty Grable. Þau urðu brátt óaðskiljanleg og þráðu ekkert meir en að giftast en eiginkona Rafts neitaði enn að skilja við hann. „Eg hefði gifst honum viku eftir að ég hitti hann en það virðist ekki vera framtíð í sambandi við giftan mann,“ sagði Betty Grable eftir að hún sleit sambandi þeirra. Raft var í sárum og ákvað nú að bindast engri konu tilfinninga- böndum, þar sem slíkt myndi ein- ungis valda honum og konunni sársauka. Eftir þetta lét hann sér að mestu nægja að eiga samskipti við gleðikonur. Hann var einn vinsælasti viðskiptavinur þeirra því hann kom ætíð fram við þær eins og væru þær hertogaynjur og hlóð á þær gjöfum. Hann lifði hátt og eyddi dögunum við sund- laug sína og horfði á vændiskon- urnar vinkonur sínar synda nakt- ar. Hetja á Kúbu Raft yfirgaf heimili sitt til að sjá um skemmtanahald á nætur- klúbbi í Havaria. Hann var þar þegar bylting var gerð á Kúbu. Þegar byitingarsinnar og stuðn- ingsmenn Castrós réðust inn á hótel þar sem Raft dvaldi þekktu þeir hann og hrópuðu fullir brifningar: „Þctta er George Raft kvikmyndastjarnan." Þeir settust síðan niður, drukku kók og hlustuðu á Raft halda inn- blásna ræðu um hlutleysi sitt í átökunum. Byltingarsinnar hylltu síðan leikarann og héldu á brott. 1 Bandaríkjunum var Raft dreginn lýrir dóm vegna skatta- skulda. Næsta dag hringdi lög- fræðingur Rafts í hann og sagði: „Þú átt einn besta vin sem nokkurn tíma hefur fæðst." Frank Sinatra hafði sent Raft auða ávísun með boði um að gefa honum allt upp í eina millj- ón dollara til að bjarga honum frá skuldum. Raft settist að á Englandi og gerðist skemmtistjóri á enskum næturklúbbi Colony þar sem Elizabeth Taylor, Richard Burton, Charlie Chaplin og Jackie og Ari Onassis stunduðu iðulega. Þegar hann brá sér f frí til Bandaríkjanna bannaði breska ríkisstjórnin honum að snúa aftur og gaf sem ástæðu tengsl hans við glæpamenn. „Eg tilheyri engri mafíu,“ sagði Raft. „Vissulega þekki ég menn sem eru glæpamenn að atvinnu en ég þekki fullt af fólki. Hvað á ég að gera þegar þessir menn heilsa mér. Segja þeim að fara til fjandans? Hvað þarf ég að gera til að hreinsa nafn mitt? Eg lifi kyrrlátu lífi. Eg bið ekki um vandræði. Eg hef aldrei drukkið. Eg slæst ekki. En ef það er sak- næmt að eltast við kvenfólk þá lýsi ég mig sekan.“ Afsakanir hans dugðu ekki. Hann eyddi síðustu árum sínum í Bandaríkjunum og lésl þar árið 1980.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.