Alþýðublaðið - 23.02.1967, Page 4
Ritstjórar: Gylfi Gröndai (áb.) og Ber.edikt Gröndal. — Ritstjórnarfuli-.,
trúi: EiSur Guönason — Simar: 14900-14903 — Auglýsingasími: 14906,
Aðsetur AlþýSuhúsið við Hverfisgötu, Seykjavík. — Prentsmiðja Alþýðu-.
blaðsins. — Áskriftargjald kr. 105.00. — í lausasölu kr. 7.00 eintakið,
Útgefandi Alþýðuflokkurinn.
Varnir Islands
í UMRÆÐUM um varnir íslands, sem fram hafa
farið síðustu vikur, hefur mátt heyra bollaleggingar
um það, hvort ameríska ivarnarliðið sé hér á landi til
þ»ess eins að verja ísland, eða sem hluti af vörnum
Bandaríkjanna.
Slíkar vangaveltur byggjast á miklum misskilningi.
ísland er aðili að sameiginlegum vörnum allra
Atlantshafsbandalagsríkjanna og gagnkvæmri varnar
ábyrgð þeirra. Ef ráðizt er á eitt bandalagsríki jafn-
gildir það árás á öll. í þessu felst máttur bandalagsins
til að hindra hugsanlegar árásir eins og bezt mátti
sjá á fyrstu árum þess í Vestur - Evrópu.
Öllum er ljóst, að einstök -ríki innan bandalagsins
gætu ekki varizt árás, þótt þau hafi allmiklar varnir.
Grikkland, Danmörk eða Noregur gætu ekki varizt
e'in, og varnarliðið gæti ekki einangrað varið ísland.
En sem hlutar af heild tryggja varnir þessara ríkja
ekki aðeins þau sjálf, heldur hvert annað. Þess vegna
'veitir hið fámenna varnarlið á íslandi ekki aðeins okk
ur vörn, ekki aðeins Bandaríkjunum og Kanada auk-
ið öryggi, heldur hefur það meginþýðingu fyrir varn
ir Bretlands, Danmerkur og Noregs og raunar fleiri
bandalagsríkja.
íslendngar geta sagt sig úr þessu varnarkerfi, ef meiri
hluti þjóðarinnar vill. Aðeins lítið brot landsmanna
fylgir þeirri stefnu — jafnvel ungir framsóknarmenn
slyðja hana ekki lengur. Á hinn bóginn er matsatriði,
þegar friðvænlegar horfir í þessum hluta heims, hvort
eða hve mikið varnarlið þurfi hér að vera, eða hvers-
konar viðbúnaður með eða án erlendra hermanna.
Það mál er að sjálfsögðu sífellt íhugað og endurskoð-
að, rétt eins og stórveldin sjálf eru sífellt að endur-
skoða varnarkerfi sín, breyta þeim, leggja niður stöðv
ar eða taka upp nýjar. En það er ekki farsælt að rjúka
til í þessum málum eingöngu af því að kosningar eru
framundan. Öryggis- og utanríkismál eru áframhald
sjálfstæðisbaráttunnar. Þau megum við ekki hafa að
pólitískum leiksoppi.
Fulbright
J. WILLIAM FULBRIGHT öldungadeildarþing-
maður er til íslands kominn í tilefni af afmæli þess
námsstyrkjakerfis, sem við hann er kennt. Hefur þetta
kerfi gert okkur mikið gagn, því íslendingum er nauð-
.synlegt að eiga jafnan nokkurn hóp námsmanna í
Bandaríkjunum til að fylgjast með tækni og annarri
þróun þar. Hins vegar er nám vestra dýrt og því hefur
Fulbright-stofnunin gengt mikilvægu hlutverki. Nauð
synlegt er og að styrkja hinn íslenzka hluta þessara
skipta og bjóða hingað fleiri amerískum náms- og
fræðimönnum.
4 23. febrúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
skólar — Skrifstof ur
Verzlanir — Vinnustaðir
SUPA-MAT
HANDKLÆÐASKÁPAR MEÐ
RÚLLUHANDKLÆÐIN
eru nauðsyn á hverju snyrtiherbergi.
HVER NOTANDI FÆR HREINT HAND-
KLÆÐI í HVERT SINN.
Ný sending — mikil vesðlækkun
Kaupið handklæðaskáp hjá okkur strax
í dag.
Borgarþvottahúsið h.f.
Borgartúni 3. — Sími 10125.
★ UNGLINGAVANDAMÁLIÐ.
Unglingavandamálið svokallaða
hefur borið talsvert á góma undanfarið, eins og
oft áður. Tilefnið að þessu sinni er skrílslæti
og óeirðir unglinga í Miðbænum tvívegis með
stuttu millibili ekki alls fyrir löngu.
Það er segin saga, að í hvert
skipti, sem eitthvað ber út af með hegðun ungl-
ínganna, hvort heldur það er nú í Þórsmörk, á
Laugarvatni eða þá hér í bænum, upp rís heill
hópur siðgæðissérfræðinga og afsakar ósómann
með þyí, að hinir fullorðnu hafi gefið fordæm-
ið, því hafi farið sem fór. í raun og veru séu
unglingarnir sýknir saka. Eldri kynslóðin beri á-
byrgðina. Á þessu er búið að tönglast svo oft og
lengi, að ístöðulitlir unglingar eru farnir að trúa
þessy og tyggja þetta jafnvel upp sjálfir í við-
tölum og skrifum. Þó hef ég heyrt ungt fólk and-
mæla þessari kenningu og bendir það til þess,
að ekki séu allir hrifnir af utanínuddinu, þótt
þægiiegt geti verið að skjóta sér bak við þá, sem
eldri eru, þegar í óefni er konjið.
★ AFSÖRUNARKENNINGIN
FÆR ERKI STAÐIZT.
Hér skal á engan hátt gert lítið
úr fordæmi hinna fullorðnu, en afsökunai-postul-
arnir hafa þó rangt fyrir sér í öllum aðalatriðum.
Öll mannkynssagan vitnar á móti þeim. Sjálf fram*
þróunin afsannar kenninguna fullkomlega. Slæmt
fordæmi hefur alltaf verið firmanlegt og alls stað-
ar. Samt hefur hver ný kynslóð tekið fram þeirri,
sem á undan var, þegar á heildina er litið. Sann-
leikurinn er nefnilega sá, að hið betra fordæmið er
líka einatt fyrir hendi og má sín meira, þótt ein-
stök dæmi virðist benda til hins gagnstæða. Til-
hneigingin til að sækja fram á við og upp á við er
okkur öllum í blóð borin, annars gengjum við sjálf-
sagt ennþá á fjórum fótum og bitum gras. Hitt er
svo annað mál, að þetta kann að ganga dálítið mis-
jafnlega, enda þúsund ljón á veginum. Eigi að
síður er það skylda hverrar nýrrar kynslóðar að
gera betur en næsta .kynslóð á undan, ungling-
anna að gera betur en þeir fullorðnu, Og þá
kröfu ber skilyröislaust að setja á oddinn, þegar
ungu fólki er vísað til vegar. Það eitt er þvi
samboðið. Allt tal um, að ungu fólki sé eðlileg-
ast að sækja fyrirmyndina í ræsið eða rennu-
steininn, er rangt og mannskemmandi. Þess vegna
er afsökunarkenningin hvort tveggja í senn, ó-
sæmileg og móðgandi fyrir æskulýðinn í land-
inu. — S t e i n n .
svciií!
VANTAR BLAÐBURÐAR-
FÓLK í
EFTIRTALIN HVERFI:
MEBBÆ, I. og II.
HVERIISGÖXU
EFRI OG NEÐRI
ESKIIILÍÐ
RAUBARÁRHOLT
LÖNGUHLÍB
GNOÐARVOG
LAUGAVEG, EFRI
LAUGAVEG, NEBRI
FRAMNESVEG
LAUFÁSVEG
S I Ml 14900