Dagur - 05.01.2001, Qupperneq 8
8- FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2001
ÍÞRÓTTIR
■ SMÁTT OG STÓRT
UMSJÖN:
SIGURDÓR
SIGURDORSSON
sigurdor@ff.is
Puiiktiiris
Mönnum er sennilega enn í fersku minni uppistandið sem varð á Jökuldal
þegar þar fannst hreindýrakjöt sem menn gátu ekki gert grein fyrir. Kjöt-
ið var sett í frystigám og hann innsiglaður af lögreglu. Þegar svo löggan
ætlaði að sækja kjötið (sönnunargagnið) var búið að rjúfa innsiglið og kjöt-
ið horfið. Hákon Aðalsteinsson bjó til eftirfarandi: Auglýsing af Jökuldal:
Auglýst skal núna með örfdum línum
alls konar heillandi matarval.
Hákon Aðalsteinsson. Almennings freista með ofurðum sínum
—----------- dræðnir hændur af Jökuldal.
llafirðu dhuga d hreindýraketinu
í hútíðarveislu til ábætis,
réttasl er þá að reyna á netinu
rudolf app gámur punktur is.
Úldin íslandspóstux
„Mér fannst
skaupið frábært,
en hins vegar
virðist mér Is-
lendingar ekki
vera í stakk búnir
til að skilja það
þegar hlutirnir
eru settir í
spaugilegt Ijós
með tvíræðum
hætti.“
Flosi Ólafsson í
samtali við Dag um
áramótaskaupið.
Það gat varla hjá því farið að hagyrðingur sætu aðgerðarlausir eftir hneyk-
sliö sem kom upp hjá Islandspósti um jólin. Sá snjalli þingeyski hagyrð-
ingur, Friðrik Steingrímsson sendi mér þessa vísu:
llafist gæti röfl og róstur,
ryskingar og hvað sem er,
þegar úldinn Islandspóstur
eftir jólin skilar sér.
Sáttaumleitun
Þeir hafa kveðist á hér í þættinum undanfarið Konráð Erlendsson kenn-
ari að Laugum og fyrrverandi nemandi hans Friðrik Steingrímsson. Kon-
ráð sendi mér eftirfarandi:
„Ekki átti ég von á að þér yrði svona mikill matur úr þessum Ieirburði
okkar Friðriks! Nú held ég að sé mál að Iinni og því vil ég fara hæfilega vel
að honum og vita hvort hann þagnar ekki.“
A/öðrum sveinum æ þú harst
hvað iðni og gáfur snerti
og orðheppinn þú alltaf varst
en óttalegt merkikerli.
Við þig semja vil nú frið
vísur eru á þrotum
kennari vill kaupa grið
kominn að niðurlotum.
FÍNA OG FRÆGA FÓLKIÐ
Spielberg ástamt elskunni sinni
og eiginkonu, Kate Capshaw
Spielberg hyggst byggja reiðhöH
fyrir konuna sína.
Reiðholl
fyrir
firúna
Leikstjórinn heimskunni er ekki hvað
síst frægur fyrir að setja upp nýjar við-
miðanir um hvað er hægt að gera í kvik-
myndum. Nú hefur hann sett fram nýj-
ar viðmiðanir um það hvað góðir eigin-
mcnn gera fyrir eiginkonurnar sem þeir
elska. Hann sætir nú mikilli gagnrýni
meðal nágranna sinna í Los Angeles fyr-
ir að ætla að byggja reiðhöll með tilheyr-
andi reiðhringjum og færanlegu hvolf-
þaki og fimm hæða hús við hliðina með
sérstakri fbúð, bara fyrir elskuna sína,
eiginkonuna og leikkonuna
Kate Capshaw. Reiðhöllin á að
kosta litlar 7 milljónir dollara
eða hátt í 700 milljónir ís-
lenskra króna. Raunar hefur
Spielberg orðið að fresta
áformum sfnum um byggingu
hallarinnar vegna andstöðu við
þessar áætlanir. Talsmaður
leikstjórans hefur hins vegar
sagt það af og frá að búið sé að
leggja þessi áform á hilluna,
þvert á móti muni teikningar
af mannvirkinu verða lögð fyr-
ir skipulagsyfirvöld í LA þegar
búið væri að taka tillit til at-
hugasemda sem borist hafa.
Ðuqur
lafé de
/jlombi
[lotnbia
’b £ y r
Janica Kostelic frá Króatíu, fagnar sigri i síðasta heimsbikarmóti ársins
2000 í svigi, sem fram fór í Semmering í Austurríki milli jóla og nýárs.
Sonja Nef frá Sviss Ct.v.J varð í öðru sætinu og Trine Bakke frá Noregi
[t.h.J í því þriðja.
Kostelic á toppinn
í heimsbikamujn
Króatíska skíðastelpan, Janica Kostelic, komst í toppsætið í stiga-
keppni heimsbikars kvenna í samanlögðu, eftir góðan árangur á síð-
asta heimsbikarmóti ársins 2000, sem fram fór í Semmering í Aust-
urríki milli jóla og nýárs. Kostelic gerði sér lítið fyrir og vann þar sinn
fimmta heimsbikarsigur í svigi á jafnmörgum mótum vetrarins og
náði síðan sjöunda sætinu í stórsvigi sem fleytti henni upp í toppsæti
stigalistans, upp fyrir Martinu Ertl, sem varð að hætta keppni á mót-
inu vegna meiðsla. Sonja Nef, frá Sviss, sem nú tók þátt í sinni fyrstu
svigkeppni í vetur varð í öðru sæli og Trine Bakke, l’rá Noregi í því
þriðja.
Sonja Nef sigraði síðan í stórsvigskeppni mótsins, sem fram fór á
laugardaginn og var það hennar þriðji heimsbikarsigur í greininni í
vetur. Landa hennar Corinne Rcy-bellet varð í öðru sætinu og Sarah
Schleper frá Bandaríkjunum í því þriðja.
Staðan 1 stigakeppni heimsbLkarsins
Karlar
B run:
1. Stefan Eberharter, Austurríki 240
2. Hermann Maier, Austurríki 231
3. Lasse Kjus, Noregi 140
4. Silvano Beltrametti, Sviss 132
5. Fritz Strobl, Austurríki 131
6. Alessantlro Fattori, Ítalíu i 26
7. Bruno Kernen, Sviss 119
8. Andreas Schifferer, Austurríki 108
9. Hannes Trinld, Austurríki 99
10. Josef Strobl, Austurríki 97
Svig:
1. Heinz Schilchegger, Austurr. 180
2. Mario Matt, Austurrílá 180
3. Hans-Petter Buraas, Noregi 150
4. Kjetil-André Aamodt, Noregi 146
5. Pierrick Bourgeat, Frakklandi 96
6. Florian Seer, Austurr. 89
7. Kilian Albrecht, Austurr. 80
8. Jure Kosir, Slóv. 80
9. Matjaz Vrhovnik, Slóv. 80
10. Bainer Schönfelder, Austurríki 75
Stórsvig:
1. Michael von Gríinigen, Sviss 350
2. Hermann Maier, Austurríki 286
3. Heinz Schilchegger, Austurríki 219
4. Fredrik Nyberg, Svíþjóð 200
5. Erik Schlopy, Bandar. 191
6. Andreas Schifferer, Austurríki 185
7. Marco Biichel, Liechtenstein 13íf
8. Lasse Kjus, Noregi 138
9. Bode Miller, Bandaríkjunum 126
10. Christian Mayer, Austuríki 117
Risasvig:
1. Hermann Maier, Austurríki 140
2. Fredrik Nyberg, Svíþjóð 129
3. Lasse Kju, Noregi 125
4. Cristoph Gruber, Austurríki 120
5. Josef Strobl, Austurríki 86
6. Andreas Schifferer, Austurríki 80
7. Kjetil-André Aamodt, Noregi 76
8. Stefan Eberharter, Austurríki 74
9. Kenneth Sivertsen, Noregi 60
10. Hans Knauss, Austurríki 56
Samanlagl:
1. Hcrmann Maier, Austurríki 657
2. Lasse Kjus, Noregi 441
3. Stephan Eberharter, Auslurríki 417
4. Michael von Griinigen, Sviss 412
5. Hcinz Schilchegger, Austurríki 399
6. Fredrik Nyberg, Svíþjóð 375
7. Andreas Schifferer, Austurríki 373
8. Kjetil Andre Aamodt, Noregi 290
9. Christoph Gruber, Austurríki 268
10. Josef Strobl, Austurríki 246
Kottur
Brun:
1. Isolde Kostner, Ítalíu 260
2. Renate Götschl, Austum'ki 173
3. Régine Cavagnoud, Frakklandi 160
4. Carole Montillet, Frakklandi 141
5. Petra Haltmayer, Þýskalandi 125
6. Brigitte Obermoser, Austurríki 111
7. Corinne Rey-bellet, Sviss 108
8. Jonna Mendes, Bandaríkjunum 90
9. Mélanie Turgeon, Kanada 89
10. Tanja Schneider, Austurríki 86
Svig:
1. Janica Kostelic, Króatfu 500
2. Trine Bakke, Noregi 245
3. Martina Ertl, Þýskalandi 234
4. Christelle Saioni, Frakklandi 171
5. Sonja Nef, Sviss 168
6. Kristina Koznick, Bandar. 166
7. Anja Paerson, Svíþjóð 146
8. Vanessa Vidal, Frakklandi 143
9. Sarah Schleper, Bandar. 142
10. Karin Köllerer, Austum'ki 135
Stórsvig:
1. Sonja Nef, Sviss 376
2. Michaela Dorfmeister, Austurr. 281
3. Anja Pacrson, Svíþjóð 280
4. Martina Ertl, Þýskalandi 236
5. Brigitte Obermoser, Austurríki 226
6. Karen Putzer, Italíu 147
7. Corinne Rey-bellet, Sviss 143
8. Janica Kostelic, Króatíu 139
9. Andrine Flemmen, Noregi 109
10. Régine Cavagnoud, Frakklandi 108
Risasvig:
1. Régine Cavagnoud, Frakklandi 260
2. Michaela Dorfmeister, Austurr. 192
3. Renate Götschl, Austurríki 154
4. Martina Ertl, Þýskalandi 150
5. Corinne Rey-bellet, Sviss 141
6. Carole Montillet, Frakldandi 131
7. Isolde Kostner, Ítalíu 105
8. Petra Haltmayer, Þýskalandi 90
9. Daniela Ceccarelli, Italíu 73
10. Melanie Suchet, Frakklandi 72
Samanlagt:
1. Janica Kostelic, Króatíu 655
2. Martina Ertl, Þýskalandi 634
3. Michaela Dorfmeister, Austurr. 573
4. Sonja Nef, Sviss 544
5. Regine Cavagnoud, Frakklandi 538
6. Renate Goetschl, Austurríki 521
7. Brigittc Obermoscr, Austurríki 446
8. Anja Pacrson, Svíþjóð 426
9. Isolde Kostner, Italíu 419
10. Corinne Rey Bellet, Sviss 400