Dagur - 05.01.2001, Blaðsíða 9

Dagur - 05.01.2001, Blaðsíða 9
FÖSTVDAGVR S. JANÚAR 2001 - 9 Tkypir. ÍÞRÓTTIR L Öm Amarson í jrcttánda sæti á heimslistanum Örn Arnarson hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir frábæran árangur sinn á síðasta ári og var m.a. kjörinn „íþróttamaður Hafnarfjarðar", fjórða árið í röó. Auk þess varð hann annar íkjöri „íþróttamanns ársins", kjörnum af íþróttafréttamönnum og var einnig valinn „Sundmaður ársins'‘ hjá SSÍ. Frábær árangur sirnd- kappans Arnar Arnar sonar í 200 m baksun- di skipar honum í þrettánda sæti heims- listans í sundi, sem nýlega var birtur á fréttavefnum „Swim- news“. Öm er auk þess meðal 50 bestu í átta simdgreinum. Orn Arnarson, sundkappi úr SH, er með þrettánda besta heimsár- angurinn í sundi í 25 m laug, samkvæmt nýbirtum stigalista „Swimnews" sem nær yfir tíma- bilið I. júní 2000 til 2. janúar 2001. Örn nær þrettánda sætinu fyrir árangur sinn í 200 m bak- sundi á Evrópumótinu í Valencia í desember s.k, þegar hann synti á 1:52,90 mín. í úrslitasundinu og gefur sá frábæri árangur hon- unt 1001 stig á afrekalistanum og skipar bonum í fimmta sætið meðal karlanna á listanum. Stigahæsti sundmaðurinn á listanum er sænska sundkonan Anna Karin Kammerling með 1024 stig, fyrir árangur sinn í 50 m flugsundi, sem hún náði á Evr- ópumeistaramótinu í Velencia, en þar synli hún á 25,60 sck., sem er heimsmet í greininni. Ftmmtán bestu suiitlar- angrarnir í heiminum: (Fæðingarár í sviga) 1. Anna-K. Kammerling, Svíþ. 50 m flugsund kv. - 25,60 sek. 2. Therese Alshammar, Svíþ. 50 m skriðsund kv. - 24,09 sek. 3. Kvennasveit Svíþjóðar 4x50 m skriðsund - 1:38,21 mín. 4. Matt Welsh, Ástralfu 200 m baksund ka. - 1.51.62 mín. 5. Kvennasveit Bretlands 4x50 m skriðsund - 1:38,39 mín. 6. Alison Sheppard, Bretlandi 50 m skriðsund kv. - 24,26 sek. 7. Michael Klim. Ástralíu 50 m flugsund ka. - 23,1 1 sek. 8. Grant Hackett, Ástralíu 800 m skriðsund ka. - 7:36,41 mín. 9. Annika Mehlhorn, Þýskal. 200 m flugsund kv. - 2:05,77 mín. 10. Martina Moravcova, Slóvak. 100 m flugsund kv. - 57,54 sek. I I. I lui Qi, Kína - 200 m bringu- sund kv. - 2:21,82 mín. 12. Thomas Bupprath, Þýskal. 200 m llugs. ka. - 1:53,28 mín. 13. Orn Arnarson 200 m bak- sund ka. - 1:52,90 mín. 14. Stephan Perrot, Frakkl. 200 m bringsund ka. - 2:07,58 mín. 15. Xuejuan Luo, Kína 100 m bringusund kv. - 1:06,18 mín. Meðal 50 bestu í átta greiniun „Swimnews" birtir einnig upp- færða afrekalista yfir fimmtíu bestu afrek í einstökum greinum frá sama tímabili og kemur nafn Arnar þar fyrir alls átta sinnum. Hann er í öðru sæti bæði í 100 og 200 m baksundi, en í báðum greinunum er Ástralinn Matt Welsh með besta árangurinn, sem hann náði á ástralska meist- aramótininu í haust, þar sem hann setti heimsmet í 200 m bak- sundi. Welsh var í þriðja sæti í 200 m baksundi á Ólympíuleik- unum í Sydney, næslur á undan Erni. Einstakar greinar: lOömbaks. 52,28 2. sæti 200 m baks. 1:52,90 2. sæti 50 m baks. 24,79 8. sæti 800 m skriðs. 8:07,71 18. sæti I 500 m skriðs. I 5:25,94 27. sæti 100 m skriðs. 49,52 39. sæti 400 m fjórs. 4:23,69 42. sæti 200 m flugs. 2:00,94 44. sæti Nafn Jakobs Jóhanns Sveins- sonar úr Ægi, er einnig á listan- um, en hann er í 39. sæti fyrir ár- angur sinn í 200 m bringusundi, 2:17,07 mín., sem hann náði í Bikarkeppni SSI í nóvember s.l. Örn Arnarson ásamt því hafnfirska afreksfólki sem tilnefnt var fyrír kjör „íþróttamanns Hafnarfjarðar". Þrír landsleiMr gegn Frökkum Islenska karlalandsliðið í handknattleik mætir því franska í þremur vináttulandsleikjum á næstu dögum og fer sá fyrsti fram á Ásvöllum í Hafnarfirði á morgun, laugardag, og helst kl. 16:00. Á sunnudag verður síðan leikið á Akureyri, þar sem leikurinn hefst kl. 17.00, en sá síðasti fer fram í Laugardalshöll á þriðjudagskvöld og hefst kl. 20:15. Leikirnir eru liður í undirbúningi beggja liðanna fvrir HM sem hefst í Frakklandi þann 23. janúar n.k. og eru þetta fyrstu þrír Ieikir íslenska liðsins af átta í lokaundirbúnirignum fyrir mótið. Um næstu helgi mun íslenska liðið síðan taka þátt í fjögurra landa æfingamóti á Spáni, ]?ar sem Norðmenn og Egyptar verða mótherjar liðsins ásamt gestgjölunum, cn síðan verða Ieiknir tveir leikir gegn Banda- ríkjamönnum hér heima, 18. og 19. janúar, áður en haldið verður til Frakklands mánudaginn 21. janúar. AIIs 24 þjóðir taka þátt í úrslitakeppni HM í Frakklandi og er leik- ið í fjórum sex liða riðlum. lsland spilar í A-riðli með Svíum, Portú- gölum, Marokkóum, Egyptum og Tékkum og verður fyrsti Ieikurinn gegn Svíum, þriðjudaginn 23. janúar í Montpellier, en þar er allur riðillinn leikinn. Næsti leikur verður síðan gegn Portúgölum 24. jan- úar, þá Marokkóunt 25. janúar, Egyptum 27. janúar og Tékkum 28. janúar. Fjögur efstu liðin úr hverjum riöli komast áfram í 16-liða úr- slit og ef okkar mönnum tekst ætlunarverkið, mæta þeir þar ein- hverju liði úr B-riöli um að komast í 8-liða úrslit. Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálfari, helur valið 20-manna æfinga- hóp fyrir lokaundirbúninginn, en mun síðan v'elja endanlegan 16- manna hóp eftir leikina við Bandartkjamenn. Æfingahópurinn: Markverðir: Guðmundur Hrafnkelsson (Nordhorn), Sebastian Al- exandersson (Fram) og Birkir ívar Guðmundsson (Stjörnunni). Aðrir leikmenn: Björgvin Björgvinsson (Fram), Róbert Sighvats- son, (Dormagen), Guðjón Valur Sigurðsson (KA), Dagur Sigurðsson, (Wakunaga), Patrekur Jóhannesson (Essen), Gústaf Bjarnason (Minden), Aron Kristjánsson (Skjern), Guðfinnur Kristmannsson (ÍBV), Ólafur Stefánsson (Magdeburg), Róbert Duranona (Nettel- stedt), Erlingur Richardsson (IBV), Ragnar Óskarsson (Dunquirke), Heiðmar Felixson, (Wuppertal), Valgarð Thoroddsen (Val), Einar Örn Jónsson (Haukum), Róbert Gunnarsson (Fram), Þórir Ólafsson (Selfossi). Björgvin keppir í Kranjska Björgvin Björgvinsson, skíðakappi frá Dalvík, mun á næstu dögum taka þátt í tveimur Evr- ópubjkarmótum, sem fram fara dagana 8. og 9. janúar í Kranjska Gora í Slóveníu og 11. og 12. janúar í Altaussee í Austurríki. Á báðum mótun- um fara fram tvær keppnir, því fyrra í svigi og því seinna f stórsvigi. Mótið í Kranjska Gora er annað Evrópubikarmótið sem Björgvin tekur þátt í í vetur, en fyrsta mótið sem hann tók þátt í fór fram í Levi í Finnlandi f lok nóvember. Þar keppti Björgvin bæði í stórsvigi og svigi og lenti í 40. sæti í stórsviginu, eftir að hafa náð 29. besta tímanum í seinni ferðinni, en í sviginu féll hann úr keppni. Litmanen til Liverpool I gær var gengið frá félagaskiptum finnska landsliðsframherjans Jari Litmanen frá Barcelona til Liverpool og hefur hann þegar skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við enska félagið. Samningur Litmanens við Barcelona hefði runnið út í sumar og þurfti Liverpool því ekki að greiða krónu fyrir kapp- ann, sem þegar hefur verið leystur undan samningi við Börsunga. Litmanen, sem er 29 ára, gekk til lið \4ð Barcelona árið 1999 eftir sjö ára dvöl hjá Ajax í Hollandi, þar sem hann vann til fjögurra meistaratitla, þriggja bikartitla og þriggja „Super Cup“ titla með félaginu, auk þess sem hann varð Evrópumeistari með því árið 1995. Árið 1993 var hann valinn leikmaður ársins í Hollandi og var sama ár markahæsti leikmaðurinn í hollensku deildinni. Eftir að Ajax hafði unnið Evrópu- bikarinn árið 1995 varð Litmanen þriðji í kjöri „Knattspyrnumanns Evrópu". Litmanen hefur átt erfiða daga hjá Barceióna að undanförnu og þá sérstaklega eftir að Van Gaal var rekinn frá félaginu, en það var hann sem keypti Litmanen til félagsins. Gerard Houllier, framkvæmdastjóri, Liverpool sagði t' gær að kaup- in á Litmanen til Liverpool væru þau ánægjulegustu sem hann hefði staðið fyrir til þessa. „Hann er mjög fjölhæfur leikmaður sem hefur tileinkað sér annan stíl en við eigum að venjast hjá okkar framherj- um og því mun hann örugglega fríska upp á sóknarleik liðsins," sagði Houllier. Litmanen verður strax gjaldgengur með Liverpool í UEFA-bikarn- um, þar sem hann hefur ekki leikið með Börsungum í Meistaradeild Evrópu og mun það hafa ráðið miklu um að hann var keyptur til liðs- ins, þar sem hann hittir fyrir landa sinn, Sami Hyypia. Gora Björgvin Björgvinsson. Jari Litmanen.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.