Dagur - 05.01.2001, Blaðsíða 21
Jólin kvödd í Mosfellsbæ
Kveikt verður í árlegri þrettándabrennu í Mosfellsbæ é þrettánd-
anum laugardaginn 6. desember kl. 20.00. Lagt verður af stað í
blysför frá miðbænum og gengið fyl’ktu liðí að brennunní. Skóla-
hljómsveit Mosfellsbæjar undir stjórn Birgis Sveinssonar verður (
broddi fylkingar og stjórnar Mosfellskórinn fjöldasöng í göngunni.
Álfakóngur og -drottning verða að sjálfsögðu á staðnum og bú-
ast má við að Grýla sjálf og Leppalúði ásamt öllu þeirra hyski láti
sjá sig lika. Björgunarsveitin Kyndill mun standa fyrir glæsilegri
flugeldasýníngu í lok brennunnar, sem verður um kl. 21:00.
Þá mun Leikfélag Mosfellssveitar standa fyrir Þrettándaskemmt-
un í Bæjarleikhúsinu kl. 22:00. Frítt inn! Svo lýkur þrettándagleð-
inni með hinu árlega leikfélagsþrettándaballi í Hlégarði, þar sem
hljómsveitin Sixties mun halda uppi fjörinu, aðgangseyrir 1500 kr.
Glanskort fram á þrettánda
Jólasýningin í Borgarskjalasafni Reykjavíkur Frá aðventu
fram á þrettánda, verður sérstaklega opin laugardaginn 6.
desember á þrettándanum frá kl. 13-16.
Á sýningunni eru sýnd jóla- og nýérsglanskort, sum hver .
handgerð, frá lokum 19. aldar og fram eftir 20. öld. Þar má
sjá hvernig myndefni fylgdi tískusveiflum eins og annað.
Sýningin er til-
valin fyrir alla
fjölskylduna til
að upplifa anda
liðinna jóla. Hún
er (húsakynnum
Borgarskjala-
safns Reykjavík-
ur á 3. hæð
Grófarhússins,.
Tryggvagötu 15.
Sýningin er opin
mán.-fös. kl.
10-16og erað-
gangur ókeypis
og stendur hún
fram á þrettánd-
ann.
Braggalíf í Hafnarhúsinu
Sunnudaginn 7. janúar lýkur Ijósmyndasýningunni Undir bárujárnsboga - Braggalif
í Reykjavík 1940-1970 í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhús. Sýningin er sett upp í
tengslum við samnefnda metsölubók eftir Eggert Þór Bernharðsson sagnfræðing
og hefur vakið griðarlega athygli. Myndunum á sýningunni er það sammerkt að
fanga á áhrifamikinn hátt hversdagslegt líf Reykvíkinga á eftirstríðsérunum og allt til
1970 þegar búseta í bröggum var hverfandi.
Ljósmyndirnar á sýningunni eru eftir Helgu Hansen (1916-1987) braggabúa, Jón
Bjarnason frá Laugum (1909-1967) og Pál Sigurðsson, en myndir hins síðast-
nefnda þykja miklar gersemar og hafa margar hverjar ekki komið fyrir augu al-
mennings áður.
Leiðsögn verður um sýninguna sunnudaginn 7. janúar kl. 16:00.
kl. 12:05 og lýkur stundvfslega kl.
13:00. Aðgangtlr er ókevpis og er allt
áhugafólk um sögu og sagnfræði vel-
komið. Fyrirlesturinn er sá fyrsti í há-
degisfundaröð Sagnfræðingafélagsins
á vormisseri 2001, sem ber yfirskrif-
ina Hvað er heimild? 1 fyrirlestri sín-
um mun Anna varpa fram sígildum
spurningum og leita svara við þeim.
Meðal spurninga verða eftirfarandi:
Ilvað er frumheimild? Hver er hin
fullkomna sagnfræðilega heimild?
Finnast dæmi hennar? Er hægt að
komast að sannleikanum um það sem
gerðist í fortíðinni? Hvað eru „sögu-
legar staðrevndir"? Hvernig glímir
sagnfræðingurinn við heimildirnar?
Fyrirlestur í
Listaháskóla Islantls
Fyrirlestur Aernout Mik verður í
Listaháskóla íslands á Laugarnesvegi
91 mánudaginn 8. janúar kl. 12.30,
stofu 024. Aernout Mik er mjög
þekktur hollenskur myndlistarmaður
sem notar myndbönd sem sitt aðal
tjáningarform. Ilann er búsettur í
Amsterdam og kcnnir við Ríkisaka-
demíuna þar í borg. Aernout Mik var
fulltrúi hollendinga á Tvíæringnum í
Feneyjum árið 1997. Ilann er um
þessar mundir gestakennari við Lista-
háskóla Islands og í fvrirlestrinum
segir hann frá eigin verkum og sýnir
myndbönd.
Bæklingur um námskeið á vegum
Opna listaháskólans á vorönn 2001
er kominn út og liggur frammi á
skrifsiofu LHI og hjá Opna Iistahá-
skólanum. Hann er einnig að finna á
heimasíðu skólans.slóð www.lhi.is.
Netfang Opna listaháskólans er: opni
listahaskoIinn@lhi.is.
LANDIÐ
SÝNINGAR
Gleðigjafarnir, síðasta sýning
Gleðigjafarnir verða á fjöltim Leikfé-
lags Akureyrar í allra síðasta sinn
laugardagskvöldið 6. janúar. Það var
Gísli Rúnar Jónsson sem þýddi Gleði-
gjafana og staðfærði - aðlagaði að ís-
lenskum aðstæðum og nútíma, leík-
ritið gerist nú á Akurevri og sögutím-
inn er dagurinn í dag.
OG SVO HITT...
Menning Egils
Um helgina opnar nýr veitingastaður
á Akureyri sem hefur fengið nafnið
Menning Egils. Formleg.opnun verð-
ur í kvöld og verður húsið opnað kl.
21 með vínkynningu. Hljómsveitin
PKK leikur fyrir gesti. Aldurstakmark
20 ár.
Sjallinn
Þrettándadansleikur Sjallans verður
annað kvöld. Hljómsveitin Papar sér
um stemninguna. Húsið opnað kl.
24. Aldurstakmark 20 ár.
Odd-Vitinn
Hljómsveitn Félagar ásamt DJ BO sjá
um stuðið á þrettándagleði Odd-Vit-
ans á Iaugardágskvöldið. Frítt til mið-
nættis.
Kyrrðarstund
Sálarrannsóknárfélagið á Akureyri
býð'ur nýtt ár velkomið með kyrrðar-
stund í sal félagsins sunnudaginn 7.
janúar kl. 20.30. Umsjón Þórhallur
Guðntundsson. Allir velkomnir.
Jólafagnaður eldri borgara
1 dag kl. 14 veður Hjálpræðisherinn á
Akureyri með sinn árlega jólafagnað í
félagsmiðstöðinni Víðilundi 22. Gest-
ir verða Turid og Knut Gamst. Að-
gangur ókeypis og allir velkomnir.
Hvað er é seyði?
Tónleikar, sýningar,
fyrirlestrar o.s.frv...
Sendu okkur upplýsingar á netfangi, í símbréfi eða hringdu.
ritstjori@dagur.is / fax 460 6171 / sími 460 6100
Útvörður upplýsinga
Spáð í spádómana
Busla með
börnunum
Baráttumaður fyrir
mannréttindum
-Ragnar Aðalsteinsson hæsta-
réttarlögmaður í helgarviðtali
Áskriftarsíminn er 800-7080
Ysa var það heillin
Bíó og bridge, kynlíf og krossgáta, flugur og margt fleira